Morgunblaðið - 13.12.1986, Page 38

Morgunblaðið - 13.12.1986, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986 Þriðja bindi af Reykjavík fyrri tíma eftir Arna Ola BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur gefið út bók- ina Rejíkjavik fyrri tíma III eftir Áma Óla, rithöfund og blaða- mann. Þetta er þriðja og síðasta hindi af Reykjavíkurbókum Ama Óla. I þessari bók em Sagt frá Reykjavík og Svipur Reykjavíkur endurútgefnar í einu bindi. Fyrsta og annað bindið af Reykjavík fyrri tíma komu út á síðustu tveimur árum. Reykjavíkurbækur Áma Óla hafa að geyma geysimikinn fróðleik um Reykjavík fyrri tíma, um persónur, stofnanir og staði. Mikill §öldi gam- alla mynda er í þessari bók eins og hinum fyrri; myndir af persónum, sem mótuðu og settu svip á bæinn og myndir af Reykja'dk eins og hún var fyrr á tímum. Frásögnin er lif- andi og skemmtileg. í þessu þriðja bindi er nafnaskrá yfír öll þijú bindin. Ámi Óla rithöfundur fæddist 2. desember 1888 og andaðist 1979. Hann lauk prófí frá Verslunarskóla íslands, gerðist starfsmaður Morg- unblaðsins strax við stofnun blaðs- ins og starfaði þar sem blaðamaður, auglýsingastjóri og ritstjóri Les- bókar-blaðsins allan starfstíma sinn að frátöldum fáum ámm, er hann var við verslunarstörf í Reykjavík og Viðey. Auk blaðamannsstarf- anna var hann afkastamikill rithöf- undur og gaf út 37 bækur. Reykjavík fyrri tíma III er 512 bls. að stærð í stóm broti. Bókin var sett og prentuð í Prisma og bundin í Bókfelli. Káputeikningu gerði Böðvar Leós. HÚN ER KOMJN PLATAN SEM alur hafa beðið eftir 10 ný og bráðskemmtileg lög fyrir alla. Skíðaferð, polki Lag og texti: Viðar H. Guðnason. Söngur: HjördísGeirsdóttir. Söknuður, tangó Lag: Viðar H. Guðnason. Tcxti: Jóhannes Benjamfnsson. Söngur: ÞuríðurSigurðardóttir. Töfrandi tónar, vals Lag: Valdimar J. Auðunsson. Texti: Kristjana Unnur Valdimarsdóttir. Söngur: Jón Kr. Ólafsson. Péturspolki Lag: Guðjón Matthíasson. Hestamannaræll Lag: Ólöf Jónsdóttir. Texti: Jón Sigurðsson. Söngur: Ama Þorsteinsdóttir. Austur yfir fjail, vals Lag: Bjami Sigurðsson. Texti: Jón Sigurðsson. Söngur Einar Júlíusson. Minning, tangó Lag: Karl Jónatansson. Texti: Helgi Seljan. Söngun Jóhann Helgason. Dansað á Borginni, polki Lag: Hörður Hákonarson. Júlínótt, hægur vals Lag og texti: Jón Sigurðsson. Söngur: Haukur Morthens. Reykjavíkurskottís Lag: Guðjón Matthíasson. Hljómsveitarstjóri: Jón SigurÓsson. Hljóðfæraleikarar: Jón Sigurðsson, Reynir Jónasson, Sigurður Alfonsson, harmónikk- ur, Árni Scheving, bassi, Ólafur Gaukur, gitar, Guðmundur R. Einarsson, trommur, Þórir Baldursson, hljómborö, Reynir Sigurðs- son, marimha, Sigurður I. Snorrason, klarinett. Útsetningar og upptökustjórn: Ólafur Gaukur. Fyrir fjöldamörgum ámm vom danskeppnir SKT í gamla Gúttó við Tjömina best sóttu skemmtan- ir Reykjavíkinga. Sá maður, sem mestan þátt átti í að koma þeim á, var listmálarinn og tónskáldið Freymóður Jóhannesson — Tólfti september. Keppnir þessar urðu geysileg lyftistöng fyrir höf- unda sem e.t.v. hefðu aldrei komið lögum sínum á framfæri að öðrum kosti. Mörg þeirra laga, sem voru kynnt þar, má nú telja með perlum íslenskra dægurlaga. Forráða- mönnum Hótel Borgar fannst tímabært að endurvekja þessar keppnir og gefa höfundum laga við gömlu dansana tækifæri til að koma lög- um sínum á framfæri, en þeir hafa setið á hakanum, þótt ýmsar keppnir hafi verið haldnar um nýrri tónlist. Eins og sést á þeim lögum, sem komust í úrslit, eru höfundar þeirra bæði gamalreyndir góðkunn- ingjar og óþekktir höfundar, sem koma fram í fyrsta skipti á þessari hljómplötu. Til kcppninnar bárust 120 lög og urðu því mörg góð lög útundan. Við alla þá mörgu höfunda, sem tóku þátt í þess- ari tilraun, vil ég segja: Haldið áfram, þið eruð fólk framtíðarinnar. Sunnudagsgestum Hótei Borgar vil ég þakka sér- staklcga vinsemd og prúðmannlega framkomu öll þau ár, sem ég hef verið með hljómsveit mína á Hótel Borg, og vona að þeir eigi eftir margar ánægjustundir í elsta og viröulegasta samkomu- húsi Reykjavíkur. Jón Sigurósson Mat Stefáns Ingólfssonar hjá Fast- eignamati ríkisins: Fasteignaverð hækkar um 5-10% umfram verðbólgu - fyrstu mánuði ársins 1987 STEFÁN Ingólfsson deildar- verkfræðingur hjá Fasteigna- mati ríkisins telur að fasteigna- verð muni hækka talsvert í byrjun næsta árs eða um 5-10% umfram verðbólgu en fasteigna- verð hækkaði verulega á þessu ári og þar af um 15% á einni viku í byrjum september í kjölfar nýju húsnæðislaganna. Samkvæmt upplýsingum Fast- eignamats ríkisins fór söluverð fasteigna lækkandi, reiknað á föstu verðlagi, frá árunum 1983-84 og náði lágmarki í apríl 1986 eftir að hafa lækkað samfleytt í hálft annað ár. Eftir það fór verðið að hækka en breyttist þó hægt meðan mark- aðurinn var að vinna upp offramboð undanfarinna missera. Verðbreyt- ingamar gengu aðallega í þá átt að minnka verðmisræmi milli íbúð- arstærða. I bytjun september urðu síðan verulega snögg umskipti þar sem söluverð hækkaði á einni viku um 15%. Orsakimar eru taldar vera væntingar fólks í kjölfar nýsettra húsnæðislaga og gerðu margir kaupendur á þessum tíma ráð fyrir háum lánum frá Húsnæðisstofnun í kaupsamningum jafnvel þótt stofnunin hefði ekki lofað neinu. Síðan dró úr eftirspuminni og fast- eignaverð hefur nú lítið breyst síðan í september. Þegar Morgunblaðið spurði Stef- án Ingólfsson verkfræðing hjá Fasteignamatinu hver væntanleg þróun fasteignaverðs verði á næsta ári sagðist hann telja að vcrðið muni halda áfram að hækka fyrst um sinn að minnsta kosti. Það væri nær árviss regla að fasteigna- verð hækkaði í upphafi árs, þótt það hefði ekki gerst síðustu tvö ár. Aðalfundur Hins íslenska bókmenntafélags: Fagnar 170 ára starfsafmæli HIÐ íslenska bókmenntafélag fagnar um þessar mundir 170 ára starfsafmæli. Jafnframt eru 160 ár liðin frá útkomu fyrsta tölu- blaðs Skírnis, elsta tímarits á íslandi. Aðalfundur félagsins verður haldinn í Litlu Brekku við Bankastræti, í dag kl. 14.00. Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf. Að þeim loknum mun Ingi Sigurðsson flytja erindi sem hann nefnir „Upplýsingin á íslandi". Það er flutt í tilefni af útgáfu safns tíu ritgerða um þetta tímabil. Stjórn HÍB hvetur félags- menn til að fjölmenna á aðalfund- inn. Síðan væri viðbúið að það fólk, sem sótti um lán til Húsnæðisstofnunar án þess að hafa fest sér húsnæði, færi að hugsa sér til hreyfings þeg- ar svör bærust frá stofnuninni, sem væntanlega yrði innan skamms. Þetta myndi sennilega leiða af sér aukna eftispurn og sagðist Stefán ekki telja ólíklegt að fasteignaverð hækki um 5-10% umfram verðbólgu á fyrstu mánuðum ársins 1986 þótt margir ófyrirséðir þættir gætu raunar haft áhrif á markaðinn á þessum tíma. Aðventu- og jólasöngvar við kertaljós í Háteigskirkju HALDIÐ verður upp á vígsludag Háteigskirkju sunnudaginn 14. desember. Tuttugu og eitt ár er liðið frá vígslu hennar. Hátíðahaldið hefst með morgun- messu kl. 10.00 árdegis og bama- guðsþjónustu kl. 11.00. Hámessan verður kl. 14.00. Um kvöldið kl. 21.00 verður samkoma við kertaljós, þar sem kór Háteigskirkju syngur að- ventu- og jólasöngva undir stjóm organistans dr. Orthulf Pmnner, auk þess sem hann leikur á orgelið hálfa klukkustund áður en samkoman hefst og eins á samkomunni sjálfri. Verður þetta tónlist, sem á við aðventu- og jólatímann. Andrés Bjömsson, fv. útvarps- stjóri, flytur hið talaða orð og allir viðstaddir syngja saman algenga að- ventu- og jólasöngva. Þessir aðventu- og jólasöngvar við kertaljós í Háteigskirkju hafa notið sérstakra vinsælda, og verið góður og verðugur undirbúningur jólahátíð- arinnar. Allir geta verið þátttakendur og notið kyrrðar þessarar stundar. (Frá Háteigskirkju) Eining samþykkir kjarasamningana FÉLAGAR í Verkalýðsfélaginu Einingu í Eyjafirði samþykktu V^terkurog k J hagkvæmur auglýsingamióill! nýgerðan kjarasamning i vikunni með 202 atkvæðum gegn 28. Eining gekkst fyrir félagsfund- um í vikunni í öllum deildum félagsins um nýgerðan kjarasamn- ing, í Hísey, á Grenviík, Dalvík, Ólafsfírði og Akureyri. Leynileg atkvæðagreiðla fór fram um samn- inginn á hverjum stað fyrir sig og sameiginleg atkvæðatalning fór fram á síðasta fundinum, sem hald- inn var á Akureyri fímmtudaginn 11. desember. Atkvæði greiddu 236. Úrslit atkvæðagreiðslunnar voru þau að já sögðu 202, nei sögðu 28 en auðir seðlar voru 6. Samning- urinn var því samþykktur með 202 atkvæðum gegn 28. Aðalfélagar í Einingu eru 3.300.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.