Morgunblaðið - 13.12.1986, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
J
Hallarekstur ríkissjóðs á þremur árum:
„Jafngildir 12 Haf-
skipsgjaldþrotum“
segir Geir Gunnarsson (Abl.-Rn.)
Geir Gunnarsson (Abl.-Rn.)
sagði frumvarp að fjárlögum fyrir
komandi ár hafa tekið umtalsverð-
um framförum að þvi er varðar
gerð og framsetningu, sem auð-
veldi yfirsýn yfir rikisbúskapinn i
heild. Til bóta sé einnig að frum-
varp til lánsfjárlaga sé lagt fram
jafnhliða fjárlagafrumvarpi og að
lánsfjáráætlun fylgi i greinargerð
frumvarpsins. Um innihald fjár-
lagafrumvarpsins, stefnu rikis-
stjórnarinnar í ríkisfjármálum,
verði hinsvegar færra sagt til
hróss. Þrátt fyrir mikið góðæri sé
stefnt að þvi að afgreiða fjárlög
með halla, þriðja árið i röð. Sam-
tals jafngildi samansafnaður
ríkissjóðhalli þessara ára tólf Haf-
skipsgjaldþrotum.
Geir Gunnarsson, talsmaður Al-
þýðubandalagsins í ríkisfjármálum,
sagði m.a. efnislega, að þrátt fyrir
verulega auknar tekjur ríkissjóðs
þessi þijú ár, sem gera megi ráð
fyrir að færi ríkissjóði sérstaklega
um 4000 m.kr. í brúttótekjur, þá
jafngildi hallarekstur og skulda-
söfnun ríkissjóðs á þessu tímabili,
1985, 1986 og 1987, um 12 Haf-
skipsgjaldþrotum.
Nú í árslokin, sagði Geir, er
áætlað að afborgun af erlendum
lánum opinberra aðila nemi 2.700
m.kr., en ný erlend lán tekin á ár-
inu 1986, nemi 5.158 m.kr., það
er 2,458 m.kr. ný erlend skulda-
söfnun. Þrátt fyrir 7% aukningu
þjóðartekna á mann er nettóauking
TVÆR ÖRUGGAR
LEIÐIR
TIL LÆKKUNAR
SKATTA
úsnæðisreikningur er verð-
tryggður sparnaðarreikningur
með bestu ávöxtunarkjörum bankans,
ætlaður verðandi húsnæðiseigendum.
Samið er um sparnaðarupphæð á bilinu
4 - 40 þúsund til eins árs í senn. Spamaðar-
tíminn er 3-10 ár og lántökuréttur að
honum loknum nemur allt að fjórföldum
sparnaðinum. Fjórðungur árlegs
spamaðar á húsnæðisreikningi er frá-
dráttarbær frá tekjuskatti.
tofnfjárreikningur er ætlaður
þeim einstaklingum sem
hyggjast stofna til atvinnurekstrar. Hann
er verðtryggður samkvæmt lánskjara-
vísitölu og bundinn í 6 mánuði. Stofnun
atvinnurekstrar má fara fram hvenær sem
er innan 6 ára frá lokum innborgunarárs.
Innstæður á stofnfjárreikningum eru
frádráttarbærarfráskatti allt að 44.450.-
hjá einstaklingi eða 89.080.- hjá
hjónum.
íí þess aö þcssar skattfrádráttar-
yieiðirnýtistá tckjuárinu 1986
þarf að stofna reikningana fyrir áramót.
Allar nánari upplýsingar fást í sparisjóðs-
deildum bankans.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
erlendra lána opinberra aðila um
50 þúsund krónur á hveija fímm
manna fjölskyldu í landinu.
Þrátt fyrir stórfelda aukningu
þjóðartekna eyða stjómarflokkamir
um 6.000 m.kr. meir en þeir afla í
ríkissjóðinn á þriggja ára tímabili
og á árinu 1987 hækkar hrein skuld
ríkissjóðs úr 12,5% af vergri lands-
framleiðslu í tæp 14,4%. Þannig
velta þeir vandanum á undan sér í
einstöku góðæri.
Geir gagnrýndi harðlega niður-
skurð lögbundinna framlaga, m.a.
til framkvæmdasjóðs fatlaðara,
kvikmyndasjóðs, ferðamálasjóðs og
jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Geir sagði tekjuskatt fyrirtækja
nema 7,1% af heildartekjum ríkis-
sjóðs í Bandaríkjunum, en hér
aðeins 2,4%. Ef þessi tekjustofn
væri sá sami að hlutfalli hér og í
Bandaríkjunum myndi það þurrka
út áætlaðan halla á fjárlögum
næsta árs og ríflega það.
Hann gagniýndi og ráðgerða
útgjaldahækkun ráðuneyta, sem
væri 26,5% að meðaltali, á sama
tíma og laun og rekstrarkostnaður
hafí hækkað mun minna. Utgjalda-
hækkun einstakra ráðuneyta væri
ftá 11% (fj ármálaráðu neyti) upp í
42% (samgönguráðuneyti).
Pjárlög sem ekki fá
staðist
Krístin Halldórsdóttir (Kl.-
Rn.) sagði m.a. að Alþingi stæði
enn einu sinni frammi fyrir því að
afgreiða fjárlög, sem fá ekki stað-
ist. Þrátt fyrir góðæri og batnandi
efnahagshorfur sé stefnt í veruleg-
an ríkissjóðhalla og aukna skulda-
söfnun.
Kristín gagnrýndi bæði fram-
kvæmdann og ráðgerðann niður-
skurð á ýmsum þjónustuþáttum og
á framlögum til mannúðar- og fé-
lagssamtaka á sama tíma og
umtalsverðar hækkanir væru á yfír-
stjóm ráðuneyta og ríkisstofnana.
Tilraunir til endurskoðunar á um-
fangi og tilverurétti ýmissa stofn-
ana og verkefna á vegum ríkisins
virðist máttlausar og árangurslitlar.
Þá vilji stjómarliðar ekki heyra
minnst á skattlagningu stóreigna,
arðs af hlutabréfum né að íþyngja
bönkum og verzlunarfyrirtækjum,
sem mest og bezt hafi notið góðær-
isins og stefnu stjómarinnar.
Kvennalistinn vilji hinsvegar endur-
skoða tekjuöflunarkerfí ríkisins til
að ná fram réttlátari dreifingu byrð-
anna.
Enginn framkvæmdaliður er þó
eins skammarlega vanræktur, sagði
Kristín, og og dagvistarheimilin.
Mælti hún fyrir breytingartillögu
frá Kvennalista um verulega hækk-
un til þessa málaflokks. Hún
gagnrýndi og ónóg framlög til
framvæmdasjóðs fatlaðra og ferða-
málaráðs.
Rangar áherzlur ríkisstjómarinn-
ar birtast í spamaði og aðhaldi í
félagslegum framkvæmdum og
rekstri meðan rekstrargjöld ráðu-
neyta fái að þenjast út. Vilja og
samstöðu skorti til að endurksoða
tekjuöflun og rekstur ríkissjóðs til
að stöðva hallarekstur hans.
Fjárlög í hefðbundnum
stíl
Karvel Pálmason (A.Vf)sagði
m.a. að í fjárlagafrumvarpinu væri
ekki að fínna neinar þær breyting-
artillögur sem Alþýðuflokkurinn
hefði undanfarið barist fyrir, s.s. í
skatta- og húsnæðismálum. Karvel
sagði að breytinga væri þó vissu-
lega þörf og væri æ fleirum að
verða það ljóst. Það væri þó stað-
reynd að á þessu stigi málsins yrði
engu breytt. Meirihlutinn vildi sigla
sína gömlu ieið, sem ávallt „hefði
leitt til skipbrots".
Karvel taldi að árangurinn af því
að skipt var um fjármálaráðherra
s.l. haust læti á sér standa. Núver-
andi fjárlagafrumvarp væri í
hefðbundnum stíl. Taldi hann að
sama væri hvort litið væri á tekju-
öflunar- eða gjaldahlið fjárlaga -
viðleitni manna til að hafa stjóm á
ríkisbúskapnum væri komin í þrot.
Karvel gagnrýndi einnig að yfír-
bygging ríkisins og stofnana þess
drægi til sín allt meira fé á meðan
framkvæmdahliðin væri skorin nið-
ur. Þetta sýndi að kerfíð sæi um
sitt. Ljósasta dæmið um þetta væri,
að hans mati, embætti ríkislög-
manns og hvemig það hefði þanist
út á síðustu þremur árum. Karvel
sagðist vera sannfærður um að öll
þjónusta ríkisins gæti gengið vel
þó að 20-30% af öllu starfsliði ríkis-
ins væri látið hætta. Það væru líka
nóg verkefni fyrir þetta fólk annars
staðar í þjóðfélaginu
P~'
Febrúarsáttin kostaði ríkið 1,800 m.kr:
Launaútgjöld ríkisins
1987 13,500 milljónir kr.
Frá því þing kom saman í
haust hefur fjárveitinganefnd
haldið fjörtíu bókaða fundi og
rætt við fulltrúa frá 240 aðilum,
ráðuneytum, stofnunum, sveit-
arfélögum og félagasamtökum.
Nefndinni bárust á sjötta
hundruð bókuð erindi.
Fjárveitinganefnd lagði
fram breytingartillögur við
aðra umræðu fjárlaga sem fela
í sér 448 m.kr. eða 1% hækkun
á útgjaldaáætlun fjárlagafrum-
varpsins. Afgreiðsla B-hluta
stofnana sem og Trygginga-
stofununar ríkisins, Ríkisspít-
ala bíður þríðju umræðu í lok
næstu viku.
Pálmi Jónsson (S.-Nv.), form-
aður fjárveitinganefndar, mælti í
gær fyrir breytingartillögum
nefndarinnar, sem fela í sér 448
m.kr. útgjaldahækkun frá áætlun
fjárlagafrumvarps fyrir árið 1987.
Hér á eftir eru dregin saman
nokkur meginatriði úr ræðu hans:
1) Fjárlagafrumvarpið er að
ýmsu leyti óvenjulega vel úr
garði gert og því fylgja ítar-
Iegri upplýsingar en áður.
2) Frumvapið gerir ráð fyrir au-
knu fé til ijárfestingar í þeim
íjárfestingarliðum, sem mest
hefur verið kreppt að í fjárlög-
um síðustu ára.
3) Sú staðreynd að frumvarpið
er lagt fram með halla þrengir
hinsvegar möguleika Aiþingis
til þess að veija auknu fé til
ýmissa þarfra verkefna.
4) Af þessum sökum m.a. fjalla
hækkunartillögur fjárveitinga-
nefndar flestar um fjárfesting-
arútgjöld en aðeins lítillega um
nýja starfsemi, en sl. tvö ár
hafa útgjöld ríkisins til flestra
greina verklegra framkvæmda
verið skorin svo niður að ekki
varð lengra gengið.
5) Fjárlög liðandi árs vóru af-
greidd með rekstraijöfnuði.
Reyndin verður hinsvegar
rekstrarhalli, m.a. vegna
kjarasáttar í febrúarmánuði
sl., sem hafði neikvæð áhrif á
stöðu ríkissjóðs um 1.800
m.kr.
6) Viðskiptakjör hafa farið batn-
andi. Talið er að þjóðartekjur
aukist um 8% á þessu ári.
7) Talið er að jafnvægi náist á
árinu í viðskiptum við útlönd,
en viðskiptahalli við umheim-
inn hefur verið mikill næstliðin
ár.
8) Talið er að tekjur launafólks
hafí aukist um 30-35% á
líðandi ári en að verðbólga
vaxi á sama tíma um 11-12%.
Þannig hefur góðærið skilað
sér til fólksins.
9) Ljóst er að breytinga á launa-
kerfí landsmanna til meiri
jafnaðar, sem og verðlags-
þróun yfirhöfuð þýðir aukin
launaútgjöld ríkissjóðs 1987.
Á hinn bóginn mun staða
ýmissa ríkisstofnana þrengjast
vegna takmarkandi ákvæða
um gjaldskrárbreytingar og
skattahækkanir.
Við þessa umræðu verður ekk-
ert sagt um endanlega niðurstöðu
fjárlaga. Ýmsar mikilvægar
ákvarðanir bíða þriðju umræðu,
svo sem varðandi tekjuhlið frum-
varpsins, sem og mál B-hlutastof-
ana, Tryggingastofnunar og
Ríkisspítala.
Formaður fjárveitinganefndar
vék síðan að skattalækkunum á
tíma ríkisstjómarinnar. Orðrétt
sagði hann:
„Núverandi ríkisstjóm hefur
vemlega dregið úr skattheimtu á
sínum ferli. Ymsir sérskattar hafa
verið lækkaðir eða felldir niður
og tekjuskattur hefur v erið lækk-
aður. Nettólækkun skattheimtu
ríkisins frá árinu 1982 nemur
2.700 milljónum króna...“.
Útgjöld ríkis og sveitarfélaga
em mjög mismunandi á Norðurl-
öndum. Meðalútgjöld á hinum
Norðurlöndunum 1983 vóm
50,6% af landsftamleiðslu, hæst
Æt
Pálmi Jónsson formaður fjár-
veitinganefndar Alþingis
í Svíþjóð 61%, en hér vóm þau
35,2%. Þetta hlutfall var á sama
tíma 43,1% í Bretlandi og 47,6%
í V-Þýzkalandi.
Launaútgjöld ríkissjóð, sam-
kvæmt fmmvarpi til fjárlaga
1987, em 13,500 m.kr. Hvert 1%
í hækkuðum launum ríkisstarfs-
manna þýðir 200 m.kr. útgjaldau-
aka á ári, 135 m.kr. i bein laun,
60 m.kr. í auknar bótagreiðslur
tryggingakerfis.
Að lokum sagði formaður fjár-
veitinganefndar að nauðsynlegt
væri að halda sívakandi þeim
markmiðum, sem ríkisstjómin
hafí starfað að síðustu misseri.
Þau hafí m.a. verið: 1) Strangt
aðhald í rekstri ríkis og ríkisstofn-
ana, 2) Varúð við uppsetningu
nýrrar starfsemi, 3) Gagnger at-
hugun á viðamiklu þjónustukerfí
ríkisins, til þess að gera það virk-
ara og spoma við útþenslu án
þess að draga úr þjónustu, 4)
Endurskoða skiptingu verkefna
milli ríkis og sveitarfélaga, 5)
Ákvarðanir og ábyrgð fari saman,
6) Ríkið standi ekki í rekstri sem
aðrir aðilar geti með góðu mótu
annast.