Morgunblaðið - 13.12.1986, Page 67

Morgunblaðið - 13.12.1986, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986 67 Aðventutón- leikar í Kefla- víkurkirkju FÁTT nýtur meiri vinsælda i menningarlífi Suðurnesja en tónleikar þeirra kóra sem hér starfa og hafa borið hróður byggðarinnar viða erlendis. Kór Keflavíkurkirkju sótti ísrael heim um síðustu jól og Karlakór Keflavikur fór til Kanada sl. sumar. Nú gefst Suðurnesja- mönnum kostur á að fagna komu jólanna með því að hlýða á söng þeirra í Keflavíkurkirkju nk. sunnudag kl. 17.00. Efnisskráin verður Qölbreytt. Karlakórinn syngur m.a. „Það aldin út er sprungið", lag frá 15. öld, „Bæn“ eftir Þórarinn Guð- mundsson, „Hátíð að höndum fer ein“, sem er fom sálmur og „Rokkamir em þagnaðir", al- þýðuvísa í útsetningu Emils Thoroddsens. Kór Keflavíkurkirkju syngur m.a. „Sjá morgunstjaman blikar blíð“, „Af himnum ofan boðskap ber“ og „Ó, Jesúbam blítt“, allt lög í útsetningu J.S. Bach. Á söng- skránni eru pólsk jólalög, „María syngur við Jesúbamið" og „Jóla- stjaman". Sverrir Guðmundsson syngur „Ave María" og María Guðmundsdóttir „He shall feed His Flock“ úr Messíasi eftir Hand- el og „Nóttin helga" eftir A. Adams, raddsett af Guðmundi Gilssyni. Auk þeirra syngur Steinn Erlingsson einsöng með kórnum. Oft er sagt að uppeldi sé fólgið í því að miðla menningunni til uppvaxandi kynslóðar. En það er einnig fólgið í því að gefa ungu fólki tækifæri til að nýta hæfileika sína. Á mánudagskvöldið 15. des. munu nemar Tónlistarskólans í Keflavík halda jólatónleika í Keflavíkurkirkju kl. 20.30 undir leiðsögn kennara skólans og skólastjóra, Kjartans M. Kjartans- sonar. Allir em velkomnir á umrædda aðventutónleika sem gegna því hlutverki að færa okkur nær hátíð og helgi jólanna. Sr. Olafur Oddur Jónsson. Sýning á textíl- verkum VERKSTÆÐIÐ V Þingholts- stræti 28 sýnir i desember ný textOverk. Verkin sem em á sýningunni em . bæði stór og smá og unnin með ýmis konar tækni. Einnig em collage- og vatnslitamyndir. Sýningin er opin alla daga nema sunnudaga frá kl. 11.00-18.00. Kökubasar ERLENDIR skiptinemar á veg- um AFS á íslandi munu halda kökubasar í dag, 13. desember, kl. 13.00, á Lækjartorgi. Kökubasar þessi er til styrktar starfsemi fyrir skiptinemana hér á landi. í AUSTURVERI GERIR ÞÚ EKKI BARA GÓÐ JÓLAINNKAUP HELDUR FÆRÐU LÍKA JÓLASKEMMTUN í KAUPBÆTI í dag fáum við marga góða gesti í Austurversem ætla að setja jólasvip á innkaupin með skemmtilegum uppákomum. Þar verða jólasveinamir auðvitað í fararbroddi með söng og sprell, krakkarnir geta fengið mynd af sér með þeim og hver veit nema þeir verði með glaðning í pokahorninu. Hjá okkur verða líka fóstrur sem kenna krökkunum að útbúa jólaföndrið. Lúðrasveitin Svanurleikur létt jólalög og ekki má gleyma Ingó tóframannisem sýnir listir sínar af sinni alkunnu snilld. í Austurveri kemst þú örugglega í jólaskapið. Opið til kl. 18 í dag. T—T--r'T r-'fft Z AUSTURVER

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.