Morgunblaðið - 13.12.1986, Síða 71

Morgunblaðið - 13.12.1986, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986 71 Vilhjálmur Th. Bjamar tannlæknir - Minning Vilhjálmur Th. Bjarnar, tann- læknir í Uddevalla í Svíþjóð, andaðist sunnudaginn 30. nóvem- ber. Vilhjálmur eða Villi, eins og hann var alltaf kallaður meðal vina og ættingja, fæddist 19. ágúst 1923. Foreldrar hans vcru Vilborg Vil- hjálmsdóttir og Theodór Vilhjálms- son Bjamar kaupmaður, og var Vilhjálmur yngstur þriggja systk- ina. Vilborg lést skömmu eftir fæðingu sonarins og tveimur árum síðar fórst faðir hans, er hann var að koma með skipi frá Akureyri til að vera við jarðarför móður sinnar. Móðursystir Vilborgar, Guðný, og maður hennar, Einar Sveinn Einarsson, tóku bömin 3 í fóstur og gengu þeim í móður- og föður- stað, en fyrir áttu þau einn fóstur- son, Inga Árdal. Einar Sveinn lést 1936, en Guðný hélt fjölskyldunni áfram saman og með ráðdeild og myndarskap bjó hún fósturbömunum fyrirmyndar- heimili á Lokastíg 7. Við Villi höfðum þekkst áður en mágsemd tengdi okkur. Jafnaldrar í austurbænum á þessum tíma hlutu að hittast og kynnast. Villi var ekki sérlega hár í loftinu né fyrirferðarmikill, en það var ekki hægt annað en taka eftir og laðast að þessum snaggaralega og bros- milda dreng. Síðar þegar við kynntumst nánar fann ég aðra þætti í skapgerð hans, það voru viðkvæmni, tryggð og skapfesta. Orlög Vilhjálms að búa erlendis mestan hluta ævinnar. Að loknu stúdentsprófí eða haustið 1945 fór hann til Málmeyjar í Svíþjóð til að læra tannlækningar og lauk því námi 1953. Á námsámnum kynntist hann ungri og fríðri bóndadóttur frá Skáni, Irmu E. Nilsson, þau gengu í hjónaband í desember 1952 og Vilhjálmur hóf störf sem tannlækn- ir árið 1953. Hann starfaði fyrst við Folktandvárden á nokkmm stöðum, en árið 1964 fluttust þau hjónin til Uddevalla með dætumar tvær, Ritu og Birgittu. Þar stofnaði Vilhjálmur sjálfstæða tannlækna- stofu og starfrækti hana til dauða- dags. í starfí var Vilhjálmur mjög vin- sæll, bæði sem fagmaður en ekki síður vegna elskulegs viðmóts, sem allir nutu, bæði háir og lágir. Það er trú mín að Vilhjálmur hafí aidrei ætlað sér að setjast að erlendis þó atvikin höguðu því svo. Hann var góður og virtur þegn í landi því sem varð starfsvettvangur hans og heimili, en hann var meiri Islendingur en margir sem heima sitja. „Hugur hans og hjarta" bám mót heimalandsins allt til hinstu stundar. Eitt ár dvaldi hann hér í Reykjavík og stundaði tannlækn- ingar en hvarf svo aftur til Svíþjóð- ar. í allmörg undanfarin ár hefur hann komið nokkuð reglulega heim til íslands og ávallt byrjað á að ganga niður í miðbæ til að sjá kunn- ugleg andlit og hitta gamla vini. Við vinina frá æsku- og skólaár- um hélt hann órofatryggð og þó stundum liðu ár á milli endurfunda var alltaf eins og þeir hefðu kvaðst í gær. Gott var að heimsækja Irmu og Villa á heimili þeirra í Uddevalla eða í sumarbústaðinn við Gauta- borg. Þaðan er margs að minnast. Fyrir þær stundir og fyrir vináttuna sem aldrei brást vil ég þakka að ferðalokum. Irmu, Ritu og Birgittu, sem nú dvelur fjarri ættjörð sinni, votta ég innilegustu samúð. Árni Björnsson Deman tshringar Draumaskart Gull og demantar Kjartan Ásmundsson, gullsmiður, Aðalstræti 7. Sími 11290. JÓLATRÉSSALA • Að þessu sinni mun Hjálparstofnun kirkjunnar ekki standa að jólasöfnun á sama hátt og undanfarin ár. • Gíróreikningur stofnunarinnar hjá Póstgíróstofunni nr. 20005-0 er opinn til mót- töku framlaga, sem koma má til skila í öllum bönkum, sparisjóðum og póstaf- greiðslum. • Þá mun Hjálparstofnun kirkjunnar gangast fyrir sölu jólatrjáa. Trén eru öll af tegundinni norðmannsþinur, en hann fellir ekki barr. • Trén verða seld á eftirtöldum útsölustöðum frá kl. 10.00 til 22.00 alla daga fram að aðfangadegi, en þá verður opið frá kl. 10.00 til 13.00. ViÖ Skógarhlið gegnt slökkvistöðinni. Við Tónabœ. Við verslunina Kaupstað í Mjódd. Við Kársnesbraut í Kópavogi við Fossvogsbrú. Við Grœnu höndina, Suðurlandsbraut. Á ofangreindum útsölustööum veröur einnig til sölu greni og kostar buntið 150 kr. Vonandi tekst meö þessu átaki aö standa viö skuldbindingar viö hjálparverkefni. Verði trjánna er stillt í hóf: Stærð: 1. flokkur 2. flokkur 70—100 sm 830 kr. 720 kr. 101 — 125sm 1.050 kr. 880 kr. 126-150 sm 1.490 kr. 1.190 kr. 151—175sm 1.820 kr. 1.530 kr. 176-200 sm 2.460 kr. 1.980 kr. 201-250 sm 2.460 kr. 2.110 kr. Gleðileg jól V3/ HJALPARSTOFNUN KIRKJUNNAR NÝ HRÍFANDI SKÁLDSAGA Ný skáldsaga eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur rithöfurtd, en hún hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda fyrir smásagnasöfn sín. Skáldsagan Eins og hafið, gerist í sjávar- þorpi á íslandi. Fríða lýsir í sögunni fjöl- skrúðugu mannlífi í þorpinu, en beinir aðallega sjónum að samskiptum, lífi og ástum fólks sem allt býr I sama húsi. Sagan er næm lýsing á fólki af mörgum kynslóðum, ástum þess, sorgum og gleði. Efnistök höfundar hrífa lesandann og persónur bókarinnar verða Ijóslifandi. o. VAKÁ }fjrí0Ofell GOTT FÓLK / SÍA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.