Morgunblaðið - 13.12.1986, Síða 81

Morgunblaðið - 13.12.1986, Síða 81
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986 82 Minning: Sveinn Erlendsson fyrrum hreppstjóri Sveinn Erlendsson, fyrrum hreppstjóri Bessastaðahrepps, verð- ur jarðsettur frá Bessastaðakirkju í dag. Með honum er genginn einn af elstu og virtustu sveitungum þessa byggðarlags. Hann fæddist á Breiðabólsstöðum 26. júlí 1904 og því á áttugasta og þriðja ári er hann lést. Hann var sonur Erlendar Björnssonar útvegsbónda og konu hans, Maríu Sveinsdóttur. Sveinn ólst upp í foreldrahúsum og bjó æ síðan á Breiðabólsstaðatorfunni. Mjög góður vinskapur var með feðr- um okkar Sveins og minnist ég hans fyrst, er ég drenghnokkinn var sendur til Breiðabólsstaða í ýmsum erindagjörðum fyrir föður minn. Alltaf var mér tekið þar af sömu ljúfmennskunni og hafa þau kynni við Svein og Breiðabólsstaða- heimilin haldist ætíð síðan. All- mörgum árum síðar lágu leiðir okkar Sveins saman í sveitarstjóm Bessastaðahrepps. Sveitugar Sveins völdu hann fljótlega til hinna ýmsu trúnaðarstarfa fyrir byggðar- lagið. Hann var skipaður hrepp- stjóri Bessastaðahrepps þegar faðir hans lét af því starfi árið 1950, því starfi gegndi hann meðan heilsan leyfði eða til ársins 1984. Sveinn sat nær óslitið í hreppsnefnd Bessa- staðahrepps frá árinu 1946 til 1974 er hann kaus að láta af störfum þar. Hann var sáttanefndarmaður í mörg ár, sat í sóknamefnd, skóla- nefnd og ýmsum störfum öðrum, sem ekki verða tíunduð hér. Er ég kom til starfa í hreppsnefnd 1968, þá eru þar til umfjöllunar tvö, ég vil segja mjög stór mál fyrir svo fámennt byggðarlag sem Bessa- staðahreppur var þá, en það voru vatnsveituframkvæmdir og bygg- ing á nýju skólahúsnæði. Eg minnist mjög ötullar baráttu Sveins fyrir þessum brýnu hagsmunamál- um sveitarinnar. Var það ekki síst fyrir hans tilstuðlan að vatnsveitan var í höfn með undirritun samnings við Garðahrepp árið 1971. Bygging skólahússins hófst svo árið 1974, þótt Sveinn hafi verið hættur störf- um í hreppsnefnd hafði það ekki nein áhrif á áhuga hans á fram- kvæmdunum. Þurfti hann oft að grennslast fyrir um hraða fram- kvæmda og hvenær hugsanlega væri unnt að heíja kennslu í hinum nýju húsakynnum. Jafnframt því sem hér hefur verið nefnt af störf- um hans fyrir byggðarlagið var Sveinn meðhjálpari við Bessastaða- kirkju í íjölda ára. Eitt var mjög einkennandi í fari Sveins, en það var hjálpsemi hans og stuðningur við þá er minna máttu sín í sam- félaginu. Var hann ætíð reiðubúinn til stuðnings, með áhrifum sínum í sveitarstjórn ef svo bar við að horfa. Ég veit að mér leyfist fyrir hönd sveitunganna fyrr og síðar, að færa Sveini þakkir fyrir vel unnin störf í þágu okkar allra. Nú að leiðarlokum flyt ég eigin- konu Sveins Erlendssonar, frú Júlíönu K. Björnsdóttur, börnum þeirra hjóna og öðrum aðstandend- um, mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Einar Ólafsson, Gesthúsum. Ég man aldrei öðruvísi eftir hon- um afa mínum en hressum og katum. Sú minning, sem sækir mest að mér nú á þessari stundu, er þegar hann sat inni í hlöðu eftir að búið var að koma heyi inn, með strá í munninum og söng fyrir okk- ur frænkumar vísur, sem hann bjó til sjálfur um okkur. Þetta held ég að verði mér ásamt frænkum mínum ógleymanlegt. Afi talaði mjög fallega um Mývatnssveit, þar sem hann vann í kring um 1940 við brennisteinsverkssmiðjuna. Að hans mati var þetta ein fallegasta sveit landsins. Og mikið var hann sagði að allir hefðu gott af því að fara að heiman til að þroskast og ekki væri það verra að vera í svona fallegu umhverfi. Litli sonur minn fékk ekki að njóta hans lengi. En þegar afi sá hann í fyrsta skipti, sagði hann að þetta barn væri alltaf velkomið í sitt hús. Og oft eftir að hann var kominn upp á spítala talaði afi um að allir yrðu að vera góðir vð Gunn- ar Andra, hann þyrfti svo mikla blíðu. Guð blessi afa minn og langafa. Hinsta kveðja. Guðrún og Gunnar Andri glaður, þegar ég sjálf fór þangað að vinna í töluverðan tíma. Hann Hann afi okkar er dáinn. Óum- flýjanleg staðreynd. Útför hans fer fram í dag. Við systkinin vorum svo lánsöm að eiga afa, sem var ekki bara afi úti í bæ, hann var hluti af daglegu lífí okkar og uppeldi, frá bernsku til fullorðinsára. Hann var bóndi og bjó á næsta bæ, og við ólumst upp í skjóli hans og ömmu. Afi var einstakur mannkosta- maður. Hjartahlýja hans og mildi veitti öryggi, lund hans og kímni gleði. Alltaf hafði hann tíma fyrir okk- ur. Hann leysti úr vandamálum okkar, hann miðlaði okkur af þekk- ingu sinni og reynslu. Ung gerði hann okkur að fullgildum þátttak- endum í störfum sínum. Hann var félagi okkar og vinur. Alltaf vildi afi allt fyrir okkur gera og við fyr- ir hann, þannig var afi. Við uxum úr grasi, fullorðinsár tóku við, um- hyggja afa fyrir okkur minnkaði ekki, hann vakti yfir velferð okkar. Við eigum honum mikið að þakka. Fyrsta langafabamið, Erlendur Kári, sem nú er fjögurra ára, fékk líka notið ástar og umhyggju afa. Milli þeirra myndaðist mikil vinátta. Báðir sóttust eftir samfundum. Drengurinn litli sýndi fljótt áhuga á smíðum og það líkaði afa, enda smiður sjálfur. Ein af síðustu óskum afa var að smíðað yrði fyrir Iitla drenginn verkfæraskrín eins og það er hann hafði sjálfur átt, en þó minna. Þegar afi var dáinn sagði dreng- urinn við móður sína „ekki gráta mamma, núna er langafi kominn á spítala hjá guði, þar sem er bara gamalt fólk og það er alltaf læknir hjá honum, núna líður honum vel“. Við kveðjum afa með orðum litla drengsins, sátt við að hann skuli hafa fengið hvíldina og full þakk- lætis yfir að hafa fengið að njóta hans svo lengi. Minningin um afa lifir. Systkinin frá Akrakoti Vinsælasta bókin í Bandaríkjunum ídag Dansað í LJÓSINU SIilRLEY MACLAIHE November 30,19 THE NEW YORK TIMES BOOK REVIEW iperback Best Sellers Flction 1 THE MAMMOTH HUNTERS, by Jean M. Auel. (Bantam,$4.95.) Aylaof “The Valleyoí Horses" continues her adventures in the prehistoríc world. 1 i 2 DARK ANGEL,by V. C. Andrews (Pocket,$4.50.) f The saga of the hauntcd Casteel family contlnues among the Boston rich. l3 SECRETS, by Danielle Steel. (DeU.$4.95.) Behind the scenes of a television production. 14 THE HUNT FOR RED OCTOBER, bvTom Clancy. (Berkley, $4.50.) A submarine driver brings Soviet nuciear secrets to the United States. 1 5 THE CAT WHO WALKS THROUGH WALLS, by Robert A. Heiniein. (Berkley, $3.95.) A comic look at a future time when mankind will try to control fate. 6 NIGHT OVER THE SOLOMONS, by Louis L'Amour. (Bantam, $2.95.) Slx stories of World War II adventure in Brazil, Siberia and points between. THE SEVENTH SECRET, by IrVlng Wallace $4.95JF^ur peopj^^^jjg^^ Nonfiction DANCINGIN THE LIGHT, by Shirtey MacLalne (Bantam, K 50 ) Tbe entertainer wlas an Oscar, aurvlvea a stormy romance and haa new viskms. WEST WTTH THE NIGHT, by Beryl Markham. (North Point, $12.50.) A woman’s eaperiences flylng in East Africa and across the Atiantic in the 1930’s. 3THE ROAD LESS TRAVELED,by M. Scott Peck. (Touchstone/SAS, $9.95.) Psycbokjgical and spiritual inspiration by a psychiatnst. 4 ONTHE ROAD WITH CHARLES KVIRALT, by Charles Kuralt. (Fawcett, $4.50.) Tbe televUkm retjorter tells o( Americans he*s encountered. Advlce. Htm-to >nd IWQacuPaneow WOMEN WHO LOVE TOO MUCH, by Robin Norwood. (Pocket, $4.90.) How toavoéd or end addictive, unbealthy relatknsWps wtth men. THE FAR S*oF. L -_____- Trésmiðjan Viðja hóf nýlega framleiðslu á vönduðum og sterkum fataskápum sem eru afrakstur áralangrar þróunar og reynslu starfsmanna fyrirtækisins. Þeir byggjast á einingakerfi sem gerir kaupendunum kleift að ráða stærð, innréttingum og útliti, innan ákveðinna marka. Hægt er að fá skápana í beyki, eik eða hvítu, með sléttum hurðum. Auk þess eru hvítu skáparnir fáanlegir með fræstum hurðum (sjá mynd). Einingaskáparnir frá Viðju eru auðveldir í uppsetningu og hafa nánast óend- anlega uppröðunar- og innréttingamöguleika. Þeir einkennast af góðri nútímalegri hönnun og sígildu útliti sem stenst tímans tönn. Stærðir: hæð: 197 cm eða 247 cm Jí, breidd: 40 cm - 50 cm - 60 cm o.s.frv. dýpt: 60 cm. 20% útborgun 12 mánaða greiðslukjör. Trésnniðjan viðja Smiðjuvegi 2 Kópavogi sfmi 44444 þar sem góðu kaupin gerast. Viðja býður nú nýja gerð af fataskápum sem settir eru saman úr einingum eftir óskum viðskiptavinanna sjáifra
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.