Morgunblaðið - 13.12.1986, Side 86

Morgunblaðið - 13.12.1986, Side 86
86 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986 fclk f fréttum Ný útgáfa af Trivial Pursuit Guðmundur Guðveigsson, framkvæmdastjóri Eskifells, býður gesti velkomna. Islenska þjóðin fékk svo sannar- lega að kynnast leiknum Trivial Pursuit í fyrra, en þá var ekkert fjölskylduboð fullkomið án þess að ungir og aldnir reyndu með sér, Velgengi þessa leiks hefur verið ótrúleg um víða veröld, en líklega er áhugi íslendinga ákafastur, því að sögn Richard Evans, fulltrúa Trivial Pursuit í Englandi, eru hvergi fleiri spil á nef hvert en ein- mitt á íslandi. Þrátt fyrir þessar fádæma vin- sældir er því ekki að neita að sumar spumingamar vom fullþungar fyrir unga keppendur, svo að keppendur vom yfírleitt táningar og þaðan af eldra fólk. Til þess að vinn bráðan bug á þessum vanda lét fyrirtækið * Eskifell þýða, staðfæra og semja sex þúsund spumingar „fyrir unga leikmenn". Ytri búningur spilsins er allur sem hins fyrra, nema til aðgreiningar em umbúðimar fag- urbláar en ekki dökkgrænar. Til þess að kynna spilið bauð Eskifell h/f til sín velunnumm fyrir- tækisins, fulltrúum fjölmiðla, versl- ana auk erlendra fulltrúa fyrirtæk- isins, sem komu hingað sérstaklega til þess að vera við útgáfu þess. Til þess að tryggja að gestimir kynntust hinum nýja leik vel, var haldið mót undir stjóm Guðmundar Guðveigssonar, framkvæmdástjóra Eskifells. Var mönnum skipað í lið og þeim att saman, en það lið skyldi sigra sem fyrst ynni þijá leiki. Varð af þessu hin besta skemmtun, enda spennandi keppni í góðum hóp. Þama tókust m.a. á lið dagblað- anna Tímans og Morgunblaðsins og var hún mjög jöfn. Svo fóra þó leikar að lið Morgunblaðsins sigraði alla þrjá leiki, en það skipuðu Gunn- ar Guðjónsson og Andrés Magnús- son. Fengu þeir sitt hvort spilið að launum. Ekki fóm Tímamenn þó tómhentir heim, því í sárabætur fengu þeir sérstakt Trivial Pursuit- súkkulaði, sem og annað vinnings- laust lið. Til fróðleiks skal þess getið að ekki vannst tími til þess að semja nýjar spumingar sem telja má full- þungar fyrir jól, en vonast er til að þær geti komið út snemma á næsta ári. Þess skal þó getið að hinar nýju spumingar em vel boð- legar fullorðnum, þó þær séu léttari en hinar fyrri. Það var glatt á hjalla við borðið, en réttsælis um borðið eru: Peter Salmon, Magni Magnússon, Jakob Ármannson, Sigurjón Gíslason, Kjartan L. Pálsson, Ásgeir Tómasson og Gunnar V. Andrésson. Hér afhendir Guðmundur skammarverðlaunin, en auk hans eru á myndinni Timamennirnir Eggert Skúlason og Birgir Guðmundsson, og Magni Magnússon og Jakob Ármannsson. Guðmundur Guðveigsson og lið Morgunblaðsins, þeir Gunnar Guðjónsson og Andrés Magnússon, ás&mt Richard Evans starfsmanni Trivial Pursuit. Sveit Breiðholtsskóla sigraði jólaskákmót 1.-6. bekkjar. Jólamót grunnskóla Fyrir skömmu vom haldin mót í skák og borðtennis á vegum Iþrótta- og tómstundaráðs og Gmnnskóla Reykjavíkur. Ekki verður annað sagt en að motin hafí verið vel sótt, því að í borð- tenniskeppninnni, sem fram fór hinn 30. nóvember kepptu 35 sveitir, eða tæpiega tvöhundmð alls. Keppt var í fjóram flokkum, drengja og stúlknaflokki, yngri og eldri. I yngri drengjaflokki sigraði Breiðholtsskóii, í öðm sæti varð Æfíngaskólinn og í þriéja Seljaskóli. í eldri flokki drengja varð Breiðholtsskóli efst- ur, en Hagaskóii og önnur sveit Breiðholtsskóla komu í humátt á eftir. í stúlknaflokki 1.-6. bekks fék sveit Hlíðarskóla fyrstu verð- laun, en á eftir komu Breiðagerð- isskóli og Seljaskóli. í eldri flokki stúlkna sigraði Breiðholtsskóli, en fast á hæla fylgdu Seljaskóli og Ölduseisskóli. Á skákmótinu, sem haldið var 4. desember, kepptu 18 sveitir, en mótið var einungis ætlað 7.-9. bekk. í fyrsta sæti varð A-sveit Seljaskóla með 21'/2 vinning, í öðm til þriðja sæti varð A-sveit Hagaskóía og B-sveit Seljaskóla, Stúlkurnar úr HHðaskóla, sem sigruðu S jólaborðtennismóti 1.-6. bekkjar. I eldri flokki sigraði sveit Breiðholtsskóla. með 15‘/2 vinning hvor. Síðasta sunnudag var svo hald- ið skákmót fyrir yngri bekki gmnnskóla, en það sigraði Breið- holtsskóli með'19 vinninga. Harða keppni veitti Hvassaleitisskóli með I8V2 vinning. í þriðja sæti varð sveit Æfíngaskóla Kennara- háskólans. Meðfylgjandi em nokkrar myndir frá mótunum. Frá skákmóti 7.-9. beklgar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.