Morgunblaðið - 13.12.1986, Qupperneq 95
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
95
íþróttir helgarinnar:
Stórleikir í
úrvalsdeildinni
SÍÐUSTU leikir fyrir jól ííslands-
mótinu í körfu, handboita og blaki
verða um helgina. Tveir stórleikir
verða í úrvalsdeildinni f körfu-
bolta og í 1. deild kvenna og karla
verða tveir í hvorri deild. Einn
leikur verður í 1. deild karla í
handbolta og fjórir f 1. deild
kvenna. í blakinu verða fjórir leik-
irí 1. deild karla og einn f 1. deild
kvenna.
Körfubolti
Tveir leikir verða í úrvalsdeild-
inni á morgun. Klukkan 14 hefst
leikur KR og UMFN í íþróttahúsi
Hagaskóla, en leikur Vals og ÍBK
verður í íþróttahúsi Seljaskóla og
byrjar klukkan 20. Fyrir leikina er
Njarðvík efst í deildinni með 16
stig, Valur og ÍBK hafa 14 stig og
KR 10 stig.
í 1. deild kvenna hefst leikur
UMFG og UMFN klukkan 15.30 í
Grindavík í dag, en á sama tíma á
morgun byrjar leikur ÍR og KR í
íþróttahúsi Seljaskóla.
UMFG og Þór leika í 1. deild
karla og verður flautað til leiks
klukkan I4 í Grindavík í dag. Á sama
tíma á morgun leika ÍR og Þór í
íþróttahúsi Seljaskóla.
Handbolti
Síðasti leikurinn fyrir jól í 1. deild
karla verður í Digranesi á morgun.
UBK og Stjarnan keppa og hefst
viðureignin klukkan 14.
Á sama stað og tíma í dag leika
Stjarnan og ÍBV í 1. deild kvenna,
en á morgun veröa þrír leikir í
Höllinni. Valur og ÍBV byrja klukkan
14, síðan Ármann og FH klukkan
15.15 og loks Fram og KR klukkan
16.30.
Blak
Fjórir leikir verða í 1. deild karla
í blaki um helgina. í dag leika Fram
og ÍS í íþróttahúsi Hagaskóla og
Þróttur, Neskaupsstað, og HSK
Guðmundur
fer ekki til
Austurríkis
„LASK í Austurrfki gerði mér til-
boð, og ég sendi gagntilboð, sem
þeir gengu ekki að, og þvf er Ijóst
að ég geri ekki samning við félag-
ið,“ sagði Guðmundur Steinsson,
fyrirliði íslandsmeistara Fram f
knattspyrnu, f samtali við Morg-
unblaðið f gœrkvöldi.
„Ég er tilbúinn til að fara í at-
vinnumennsku ef ég fæ tilboð sem
Skíði:
Figini sigraði
íbrunkeppni
ÓLYMPÍU- og heimsmeistari
kvenna, MICHELA Figini, sigraði
f bruni f Val D’lsere í Frakklandi
f gær og er f 4. sæti að loknum
fimm mótum, en þetta var fyrsta
brunkeppnin.
Figini, sem ekki hefur sigrað í
keppni á undanförnum 20 mánuð-
Zurbriggen í
keppnisbann
SVISSNESKI skfðamaðurinn
Pirmin Zurbriggen, sem nú hefur
forystu í heimsbikarnum, hefur
verið meinað að taka þátt f FIS-
móti f risastórsvigi sem fram fer
f Obereggen é Ítalíu f dag.
Alþjóða Skíðasambandið setti
þetta bann á Zurbriggen vegna
þess að hann sleppti hliði númer
15 í risastórsviginu í heimsbikarn-
um á laugardaginn. Hann fór niður
alla brautina og náði þá besta
timanum, en samkvæmt FlS-regl-
unum verður keppandi að hætta
keppni strax og hann missir hlið.
ég er ánægður með. Hins vegar
sé ég ekki ástæðu til að fara að-
eins til þess að fara, þvi þessu
fylgir mikil röskun og sérstaklega
fyrir fjölskyldumann. Ég var ekki
ánægður með tilboðið og þá er
betra að sleppa því.
Að öllu óbreyttu leik ég áfram
með Fram næsta sumar og síðan
sé ég til,“ sagði Guðmundur.
fyrir austan. Báðir leikirnir hefjast
klukkan 14. KA og Víkingur leika í
karla- og kvennaflokki á Akureyri
í dag. Karlaleikurinn hefst klukkan
14.30, en kvennaleikurinn klukkan
15.45. Á morgun leika síðan HK
og HSK í 1. deild karla og hefst
leikurinn í Digranesi klukkan 16.45.
Morgunblaöifi/Steinþór Guðbjartsson
• Gordon Lee var f gær endurráðinn þjálfari 1. delldarliðs KR f knatt-
spyrnu fyrir næsta keppnistfmabil. A myndinni er Gordon Lee til
hægri með Hauki Gunnarssyni, gjaldkera knattspyrnudeildar KR,
_____________ kampakátir eftir að hafa gengið frá samningnum.
Gordon Lee
áfram með KR
„ÉG hlakka mikið til næsta
keppnistfmabils og við munum
halda áfram þar sem frá var horf-
ið. KR-liðið er á uppleið, blandan
er góð og reynslan, sem yngri
strákarnir fengu í sumar, kemur
þeim og liðinu örugglega til góða
næsta sumar," sagði Gordon Lee
við Morgunblaðið f gær eftir að
hann var endurráðinn þjáifari 1.
deildarliðs KR f knattspyrnu fyrir
næsta keppnistfmabil.
Gordon Lee hefur verið þjálfari
KR undanfarin tvö keppnistímabil
en á veturna hefur hann aðstoðað
David Pleat, áður framkvæmda-
stjóra hjá Luton en nú hjá Totten-
ham. „Eg sé að meðaltali tvo leiki
á viku og bendi Pleat á efnilega
leikmenn. Það er nauðsynlegt fyrir
hvern þjálfara að vera í nánu sam-
bandi við þaö sem er að gerast
hverju sinni og afskipti mín af
enska boltanum koma mér að
gagni hjá KR.
Hvað íslenska boltann varöar
þá finnst mér breiddin hafa aukist
og knattspyrnan batnað síðan ég
kom hingað fyrst. Liðin eru jafnari
og hérna eru margir strákar, sem
gætu staðið sig vel í hinum harða
heimi atvinnumennskunnar.
KR-liðið er ungt og við höfum
ekki náð að vinna titla á undanförn-
um árum, en árangur felst ekki
aðeins í því að standa uppi sem
sigurvegari í móti. Þegar knatt-
spyrnumenn dafna , styrkjast og
verða betri, þá er það árangur fyr-
ir þá, félagið og viðkomandi þjálf-
ara,“ sagði Gordon Lee, sem hélt
aftur til Englands í morgun eftir
nokkurra daga dvöl í Reykjavík, en
hann gerir ráð fyrir að koma aftur
til starfa í lok febrúar.
um, fékk tímann 1.25,59 mín.
Maria Walliser varð önnur á
1.25,90 mín. og Heidi Zurbriggen,
systir Pirmins, þriðja á 1.26,48
mín., en þær eru allar frá Sviss.
Að loknum fimm mótum eru
svissneskar stúlkur í fjórum efstu
sætunum. Erika Hess stendur best
að vígi með 51 stig, Vreni Schneid-
er er með 46 stig, Maria Walliser
er með 40 stig og Figini með 37
stig.
Kvennakarfa:
Æ
IBKvann
ÍBK vann ÍR f 1. deild kvenna í
körfuknattleik f Keflavfk f fyrra-
kvöld með 50 stigum gegn 41
eftir að ÍR haföi haft 23:22 yfir f
leikhléi.
Anna María Sveinsdóttir var
stigahæst heimaliðsins með 16
stig, Margrét Sturlaugsdóttir skor-
aði 13 og Björg Hafsteinsdóttir 10.
Hjá ÍR gerði Vala Úlfljótsdóttir
15 stig, Fríða Torfadóttir 10 og
Dagbjört Leifsdóttir 8.
GLÆSILEGIR JOGGINGGALLAR FRA GOLDEN CUP
Vandaðir og fallegir jogging- og innigailar fyrir konur og karla.
Tilvalin jólagjöf.
Frá Golden Cup færðu einnig vandaðan sundfatnað. Verð við
allra hæfi. Trimmið og syndið í sundfötum frá Golden Cup.
Golden Cup vörur fást í helstu sportvöruverslunum.
rCOLDENl
CUP
SP0RTSWEAR
Heildverslunin
Borgartúni 36.
Sími 688085.