Morgunblaðið - 01.09.1987, Side 46
46
MORGUNBLAJÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
+
Morgunbladið/Bjöm Sveinsson
Stjóm Landsambands sauðfjárbænda, talið frá vinstri: Jóhannes Kristjánsson Höfðabrekku, Eysteinn
Sigurðsson Arnarvatni, Magnús Guðmundsson Oddgeirshólum, Bjöm Birkirsson Birkihlíð og Aðalsteinn
Aðalsteinsson Vaðbrekku.
Aðalfundur Landsambands sauðfjárbænda:
Vilja breytíngu
á skipan elli-
lífeyrismála
Stofnun kjötmarkaðs könnuð
Egilsstððum.
Á AÐALFUNDI Landsambands Kristjánsson endurkjörinn for-
sauðfjárbænda var Jóhannes maður samtakanna ásamt
öðrum stjómarmönnuin að und-
anskildum Sigurði Jónssyni af
Vesturlandi sem ekki gaf kost
á sér. í hans stað var kjörinn
Björa Birkirsson frá Birkihlíð.
■■■
Kennt verdur
,æst
nam
nu sinfn í vik
mtímar>senn
'tíÁLASKÓU
RÍtARASKjðrí
7 vikna námskeið hefiact 7 n----
J,™i: 18-30—20.30 og 2o10 ?°An Sept
Siðdegistímar kl 13_Ti Er°'40~22-40
ENSKA ’ 15
ÞÝSKA
franska
SPÆNSKA -----------------
PORTÚGALSKA
iJALSKA
ISLENSKA
fyrir útlendinga
12 V I K N A
N Á M S K E I Ð
H E F J A S T
14. SEPTEMBER
Enskuskoli æskunnar er
fyrir börn á aldrinum
8-13 ára og þeim er skipt
í hópa eftir kunnáttu.
Skólinn er starfræktur í
BREIÐHOLTI,
VESTURBÆ OG
HAFNARFIRÐI
OG MALIÐ ER LEYST!
Formaður Landsambands sauð-
fjárbænda, Jóhannes Kristján
Höfðabrekku.
Jóhannes Kristjánsson taldi að
fundurinn hefði verið starfssamur
og umræður hreinskilnar. Margar
góðar tillögur hefðu verið sam-
þykktar sem stjómin mundi nú
reyna að þoka fram á veg m.a. á
aðalfundi Stéttarsambands bænda
sem hófst á Eiðum sl. mánudag.
Tvær merkustu tillögumar taldi
Jóhannes að væru þegar til lengri
tíma væri litið tillaga frá aðal-
fundi til stjómar og Stéttarsam-
bands bænda um að beita sér fyrir
breytingu á skipan ellilífeyrismála
bænda og verði miðað að því að
öldruðum bændum verði greiddur
aukinn lífeyrir gegn því að þeir
hætti að mestu eða öllu leyti fram-
leiðslu kjöts og mjólkur en sitji
áfram á jörðum sínum sem þrátt
fyrir þetta haldi fullvirðisrétti
sínum óskertum. Einnig var sam-
þykkt tillaga þess efnis að skýrsla
sláturhúsanefndarinnar væri eng-
an veginn nógu vel unnin enda
virðist að lítið samband hafí verið
haft við heimamenn við samningu
þessarar skýrslu. Fundurinn legg-
ur á það ríka áherslu að breyting
á skipulagi slátrunar verði ekki
gerð nema að höfðu samráði við
bændur og sláturleyfíshafa.
Þá lagði fundurinn áherslu á
að ötullega væri unnið að korta-
gerð og gróðurmati á afréttum og
heimahögum en verulega hefur
skort á að nægilegu fjármagni
hafí verið veitt til þessara mála
undanfarin ár.
Sölumálin voru einnig til um-
ræðu og var stjóm samtakanna
falið að kanna hvort möguleiki
væri á að beita sér fyrir einhvers-
konar nýbreytni varðandi sölu
sauðljárafurða svo sem með stofn-
un kjötmarkaðar eða sérstakrar
kjötverslunar með kindakjöt.
— Björn.
XJöfðar til
i ifólks í öllum
starfsgreinum!
fllftfljuiiMiiftifr