Morgunblaðið - 22.09.1987, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987
53 Vestfrost
FRYSTIK1STUR _
DÖNSK gcedcivarci p
VESTFROST frystikisturnar eru búnar
hinum vióurkenndu Danfoss frysti-
kerfum.
Hverri VESTFROST frystikistu fylgja
1-2 geymslukörfur. Aukakörfur fáan-
legar á hagstæðu verði.
VESTFROST frystikisturnar eru allar
búnar sérstöku hraðfrystihólfi og
einnig má læsa kistunum. Innrabyrði
er úr rafgalvanhúðuöu stáli með inn-
brenndu lakki.
VESTFROST verksmiðjurnar í Esbjerg
er ein af stærstu verksmiðjum sinnar
tegundar á Norðurlöndum.
201 Itr.
271 Itr.
396 Itr.
506 Itr.
kr. 24.600.-
kr. 26.900.
kr. 30.600.
kr. 35.700.'
LÍTRAR 201 271 396 506
BREIDD cm 72 92 126 156
DÝPT |cm án HANDFANGS: 65 65 65 65
HÆÐ cm 85 85 85 85
FRYSTIAFKÖSTpr SÓLARHRING |kg. 15 23 30 30
ORKUNOTKUN pr. SÓLARHRING kWh 1,2 1,4 1,6 1,9
LANDSFUNDUR
BORGARAFLOKKSINS
1987
Verður haldinn á Hótel Sögu helgina 24.-26. september
næstkomandi.
LANDSFUNDURINN HEFST MEÐ OPNUM BORGARAFUNDI í
SÚLNASAL fimmtudaginn 24. september kl. 20.00
• ÁVARP: Albert Guðmundsson
formaður Borgaraflokksins.
• HUGVEKJA: sr. Gunnar Björnsson.
• Þingflokkur Borgaraflokksins situr fyrir svörum.
• Frjálsar umræður.
• Lúðrasveit leikur létt lög frá kl. 19.40.
ALLIR VELKOMNIR - BORGARAFUNDURINN ER ÖLLUM OPINN!
Landsfundarstörf hefjast föstudaginn 25. september kl. 13.30 og standa
fram eftir degi á laugardaginn 26. september.
Helstu málefni:
• Staða Borgaraflokksins í dag.
• Stefnumótun til framtíðar.
• Skipulag flokksins.
• Kosning formanns og annarra trúnaðarmanna.
Allir peir sem eru skráðir flokksfélagar eiga seturétt á fundinum.
Athugið: Aðeins þeir flokksmenn sem tilkynna þátttöku sína fyrir kl. 13.00
föstudaginn 25. september, hafa atkvæðisrétt á fundinum.
VINSAMLEGA TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU TIL SKRIFSTOFU BORGARA-
FLOKKSINS, Hverfisgötu 82, Reykjavík, 3. hæð, sími: (91) -623526.
Ódýr félags-
málaskólí
Hafsteinn Þórðarson landsforseti JC
Islands tekin tali
Egilsstöðum.
JC-HREYFINGIN á íslandi hélt
framkvæmdastjórnarfund að
Hallormsstað fyrir skömmu.
Þar voru mættir um 80 fulltrúar
og embættismenn til að und-
irbúa vetrarstarfsemina. JC-
hreyfingin er alþjóðlegur
félagsskapur ungs fólks á aldr-
inum 18—40 ára og starfar í 73
þjóðlöndum. JC-hreyfingin á ís-
landi starfar nú í 28 aðildarfé-
iögum með um 800 félaga.
Tilgangur þessa félagsskapar
er að efla hvern einstakling með
þekkingu, þjálfun og þroska.
í tilefni fundarins bað fréttarit-
ari Morgunblaðsins, Hafstein
Þórðarson, landsforseta, að kynna
þessa hreyfíngu lítillega.
„JC-hreyfíngin er alþjóðlegur
félagsskapur ungs fólks á aldrinum
18—40 ára sem starfar án tillits
til litarháttar, stjómmálaskoðana
eða trúarbragða í þeim tilgangi að
gera hvem einstakling hæfari til
að takast á við krefjandi verkefni
í sínu byggðarlagi," sagði Haf-
steinn.
„Þessum markmiðum náum við
með námskeiðahaldi þar sem
áhersla er lögð á að þjálfa einstakl-
inginn í ræðumennsku, nefndar-
störfum og mannlegum samskipt-
um auk stjómunar. JC-hreyfingin
heldur mikinn fjölda góðra nám-
skeiða á sviði mannlegra sam-
skipta og stjómunar sem em í
stöðugri endurskoðun og innan
JC-hreyfíngarinnar em margir
mjög hæfir leiðbeinendur.
Ég gett sjálfur í JC vegna nám-
skeiðanna," sagði Hafsteinn. „Ég
ætlaði að öðlast reynslu í stjómun-
arstörfum. Ég hefði getað sótt
hana annað en JC býður upp á
þessa þjálfun með glaðvæm og
góðu fólki og fjölbreytnin er meiri
en í flestum öðmm félögum. Ég
held að JC sé ódýrasti félagsmála-
skóli sem völ er á. Það er hægt
að fara á námskeið í hinum og
þessum stjómunarstörfum fyrir
ærinn pening hjá ýmsum félögum
og skólum en enginn býður upp á
þjálfun í starfí nema JC sem er
fijáls hreyfíng sem veitir fólki þau
tækifæri sem það sækist eftir
Morgunblaðið/Björn Sveinsson
Hafsteinn Þórdarson landsfor-
seti JC íslands.
sjálft. Enda er raunin sú að JC-
félagar era eftirsóttir til félags-
málastarfa í sínum byggðarlög-
um.“
Um framtíðina segir Hafsteinn:
„Aðalhlutverk næsta starfsárs
verður kynning og útbreiðsla á
hreyfingunni og er þörf á að sinna
því verkefni heldur meira en und-
anfarin ár. Fyrirhugað er að
endurvekja félögin í ísafírði, Sauð-
árkróki og Hveragerði. Jafnframt
því verður athugað með stofnun
nýrra félaga á Dalvík og Neskaup-
stað. Nú fer sá tími í hönd að
JC-félögin um allt land em að hefja
vetrarstarfsemi sína og þá um leið
að vinna að félagaöflun. Ég vil
hvetja ungt fólk til að kynna sér
þennan félagsskap og athuga hvort
þama er ekki eitthvað við þeirra
hæfí. Þama er t.d. kjörið tækifæri
fyrir ungt fólk sem er nýlega flutt
í annað byggðarlag til að eignast
í einum vettvangi fjölda nýrra
kunningja. Þó JC-hreyfíngin sé
fyrst og fremst félagsmálaskóli
sem veitir mikla og góða þjálfun
þá er þama ýmislegt sér til gam-
ans gert eins og ungu fólki er
lagið,“ sagði Hafsteinn Þórðarson
að lokum.
— Björn
Hugræktarskóli
tekur til starfa
GEIR Ágústsson hefur sett á
stofn hugræktarskóla sem hann
kallar Muninn — Hugræktar-
skóli Geirs Ágústssonar og er
hann að Grundarstíg 11.
Sigvaldi heitinn Hjálmarsson rit-
höfundur rak um árabil hugrækt-
arskóla á heimili sínu að
Gnoðarvogi 82. Kenndi hann hug-
rækt, athygliæfingar og slökun.
SigValdi var þekktur fyrir þekk-
ingu á yoga og mystik. Sótti hann
í austrænar hefðir sem hann
greindi frá hinum menningarlega
og trúarlega stakki og bjó í búning
sem hæfir hugsunarhætti verstur-
landamanna. Nú hefur Geir
Ágústsson sem var einn helsti
nemandi og samstarfsmaður Sig-
valda ákveðið að fara af stað með
hugræktarskóla sem hann kallar
Muninn.
Geir kennir sömu aðferðir og
Sigvaldi, með sama fyrirkomulagi:
eins mánaðar byrjendanámskeið í
tólf stundum og þriggja mánaða
Geir Ágústsson
framhaldsnámskeið, einnig í tólf
stundum. Þátttakendum er kennt
bæði í hóp og einum sér.