Morgunblaðið - 01.10.1987, Side 35

Morgunblaðið - 01.10.1987, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987 35 NÝTTFLUGFÉ- LAG í EIGU FÆR- EYINGA OG DANA Þórshöfn í Færeyjum. Frá Snorra Halldórasyni, fréttaritara Morgunblaösins. NÝTT flugfélag hefur starfsemi er það líklega ástæðan til þess, að á flugleiðinni milli Færeyja og Danmerkur í marsmánuði á næsta ári. Félaginu hefur enn ekki verið gefið nafn, en það er í eigu Dana og Færeyinga. Meiri- hluti hlutafjár er færeyskur. Landsstjómin hefur átt í samn- ingaviðræðum við flugfélagið Cimber Air í Danmörku um alllangt skeið. Flugfélag þetta bauðst til að taka að sér fyrmefnda áætlunarleið - með þann möguleika í huga að fljúga á milli landanna tvisvar á dag, þegar fram liðu stundir. Fulltrúar frá Cimber Air vom í talað hefur verið um að fljúga tvær ferðir á dag, þegar fram líða stund- ir. Eins og fyrr sagði hefur nýja flugfélaginu ekki enn verið gefið nafn. Landsstjórnarmaðurinn Lassi Klein, sem fer með samgöngumál, segir, að hugsanlegt sé, að efnt verði til hugmyndasamkeppni um besta nafnið á félagið. Spánn: Reuter Lögreglumenn koma með Baskana átta til dómshússins i Madríd. Færeyjum í þessari viku til þess að ganga frá samningsgerðinni. A að ljúka viðræðunum og skrifa undir samninga seinna á þessu ári. Samkvæmt samningnum tekur Cimber Air að sér að mennta fær- eyska flugmenn, flugfreyjur og tæknilið, og félagið mun taka á sig hugsanlegt tap fyrstu árin. Ekki hefur enn verið ákveðið, hvemig Danair, sem séð hefur um áætlunarflug milli Færeyja og Dan- merkur, muni bregðast við þessum nýju aðstæðum; hvort það dregur sig í hlé eða heldur áfram starfsemi sinni um sinn. Það skýrist innan skamms. Þó að ekki hafi verið skrifað undir endanlegan samning, eru báð- ir aðilar svo einhuga, að þegar hefur verið pöntuð vél til að sinna þessu verkefni. Er hún heldur minni en þær vélar, sem notaðar em í Fær- eyjafluginu um þessar mundir, og Sprengingar við rétt- arhöld yfir Böskum Madríd, Reuter. TVÆR sprengjur sprungu í grennd við dómshús í miðborg Madríd, þar sem fram fóru yfir- heyrslur yfir átta baskneskum hryðjuverkamönnum. Að sögn lögreglu urðu engin meiðsl á mönnum í sprengingunum. Skrifstofufólk í grenndinni skelfdist við hávaðann af spreng- ingunni en lögreglan, sem var vel á verði vegna réttarhaldanna yfir Böskunum, hóf þegar leit að fleiri sprengjum á stóm svæði umhverfis dómshúsið. Talsmaður innanríkis- ráðuneytisins sagði að vel gæti verið að ungir hægri sinnar, sem höfðu safnast saman til að kreijast þungra dóma yfir Böskunum, hefðu komið sprengjunum fyrir. Baskarn- ir átta em allir meðlimir í ETA, samtökum þjóðernissinnaðra Baska, og em þeir sakaðir um að- ild að 17 morðum. Þeirra bíður 34 ára fangelsi verði þeir sakfelldir. Á sama tíma og sprengingamár urðu í Madríd handtók franska lög- reglan Santiago Arrospide, sem er talinn vera leiðtogi skæmliðahóps Baska sem berst fyrir sjálfstæði Baskahéraðanna. Hann var hand- tekinn í smábæ nálægt spönsku landamæmnum. Spönsk yfirvöld vilja fá Arrospide framseldan, en frönsk yfirvöld ætla að ákæra hann fyrir að hafa ólögleg vopn undir höndum og hafa neitað að fram- selja hann þar til dómur er fallinn. Tilboð! MASSÍVT FURURÚM 150x195 115x195 39.800 28.200 5.000,-út 5000,- á mánuði í 8 mánuði 4000,-út 4000,- á mánuði í 6 mánuði Ókeypis heimakstur og uppsetning á 5 tór-Reykja víkurs væðin u Grensúsueg 3 sími 681144 1111 . -SPStXI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.