Morgunblaðið - 01.10.1987, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
57
Nokkur huggunarorð
til ungs tónlistarmanns
eftirKarl
Jónatansson
Þessar línur læt ég frá mér fara
vegna pistils sem ungur tónlistar-
maður, Grétar Örvarsson, sendir frá
sér í Morgunblaðinu 17. september
sl. Greinin í heild er svo átakanleg
að við lestur hennar má maður vart
vatni halda, þó svo að honum tak-
ist mæta vel í leiðinni að auglýsa
að hann léki og syngi með hljóm-
sveit sinni í Súlnasal.
En ástæða þessa mikla mótlætis
sem téður Grétar á við að stríða
er andstyggilegur harmonikustimp-
ill sem honum tekst ekki að hreinsa
af sér hvemig sem hann reynir.
Aumingja maðurinn! Hvað þetta er
nú sorglegt. Og ekki er ömggt að
mér takist að hugga hann, og þó.
Það hefir alltaf verið ofarlega á
óskalista tónlistarflutnings hvers-
konar, kynslóð eftir kynslóð, að
hafa sem mesta tilbreytingu (lit-
brigði) í flutningnum, og hefir þá
aðallega verið bmgðið á það ráð
að nota mismunandi hljóðfæri. Þá
fengu sem flestir að heyra í sínu
uppáhaldshljóðfæri, því þar er
smekkur manna auðvitað mismun-
andi. Svo gerðist það fyrir 25 ámm
að dægurtónlistin tók hliðarspor og
þá vom það rafmagnshljóðfærin,
gítarar og hljómborð, sem réðu
ferðinni. Einkenni þessarar tónlist-
ar em fyrst og fremst talbreyting-
arleysi og ærandi hávaði (99—120
decibel). En um leið hefir þessi tón-
listarstefna lent úr tengslum við
dansinn. Nú bendir margt til þess
að breytingar séu á næsta leyti
hreinlega vegna þess að fólkið er
orðið leitt á hávaðanum og hopp-
Ókaftan
á pallbíl
ÖKUMAÐUR slasaðist þegar
hann ók bifreið sinni aftan á
pallbifreið á þriðjudagsmorg-
un.
Slysið varð á mótum Reykja-
nesbrautar og Bústaðavegar um
kl. 11. Við gatnamótin var dreg-
ið úr hraða bifreiðar sem ók
norður. Ökumaður næstu bif-
reiðar á eftir, sem var pallbif-
reið, dró einnig vemlega úr
hraða, en ökumaður þriðju bif-
reiðarinnar áttaði sig ekki strax
á því sem framundan var. Bif-
reið hans var því komin mjög
nærri pallbifreiðinni þegar hann
hemlaði skyndilega. Við það
snerist bifreið hans og hom pall-
bifreiðarinnar lenti í hlið hennar,
ökumannsmegin. Ökumaðurinn
hlaut nokkra áverka af og var
fluttur á slysadeild. Hann mun
þó ekki vera alvarlega slasaður.
inu. Það skyldi þó ekki vera að eftir
svona 3—5 ár vantaði góðan harm-
onikuleikara í Súlnasalinn. Ég tala
nú ekki um ef sá útvaldi kynni eitt-
hvað fyrir sér í sveiflunni. Annars
væri óskandi að sá tími kæmi aftur
að fólk fengi heilbrigðara mat á
tónlist og tónlistarmönnum, en þá
yrði ekki spurt um á hvaða hljóð-
færi maðurinn léki heldur hvað
maðurinn léki vel á hljóðfæri sitt.
Það var ansi góð hugdetta hjá
honum Grétari Örvarssyni að fara
í apótek og vita hvort til væm ein-
hvetjar pillur sem næðu harmoniku-
stimplinum af honum og þá myndi
ég ráðleggja honum að reyna að
fá pillur í leiðinni sem kenndu manni
að leika sveifluna.
Höfundur er landsþekktur harm-
onikuleikari.
Glatt á hjalla
á Sunnuborg?
eftir Stefaníu S.
Bjarnadóttur
Tilefni þessara skrifa er mynd á
baksíðu Morgunblaðsins 26. sept-
ember 1987. Myndin sýnir böm að
skemmta sér og er tekið fram að
glatt hafi verið á hjalla. Ekkert er
óvenjulegt við það, enda vel rekið
dagheimili og líður bömunum vel
þar. Undir venjulegum kringum-
stæðum væri ekkert athugavert við
birtingu þessarar myndar, en nú
skýtur svo skökku við, að nánast
er um blekkingu að ræða.
Ég vil ekki ætla að tilgangurinn
hafi verið að hylja það vandræða-
ástand sem er á dagheimilum
borgarinnar, en útkoman er alla-
vega sú.
Lokaðar deildir
Á þessu tiltekna dagheimili er
ástandið þannnig að ein deild hefur
verið lokuð í viku og stefnir í að
önnur loki innan skamms. Ástæðan
er sú að loksins er starfsfólkið að
gefast upp á laununum, þetta fólk
hefur þraukað í fleiri ár en nú er
svo komið að það hættir.
Enginn kemur
í þeirra stað
Það kemur enginn í staðinn fyrir
það fólk sem hættir, það fæst eng-
„Það kemur enginn í
staðinn fyrir það fólk
sem hættir, það fæst
enginn í vinnu fyrir 27
þúsund krónur á mán-
uði.“
inn í vinnu fyrir 27 þúsund krónur
á mánuði. Þetta er líka fólkið með
starfsreynslu og fólkið sem bömin
hafa tekið ástfóstri við, það skarð
getur enginn fyllt.
Erfítt er að reka fyrirtæki, svo
vel sé, með illa launuðu starfsfólki.
Það verður að borga mönnum laun
sem þeir geta lifað af til lengri tíma.
Það ætti að vera augljóst, en virð-
ist ekki vera það. Borgaryfírvöld
og Morgunblaðið láta sem allt sé í
himnalagi á dagheimilunum, en þau
eru ekki starfrækt nema að hluta
til. Bæði er deildum lokað og líka
verður erfíðara að reka þau vel
vegna skorts á starfsfólki. Launa-
stefna borgaryfirvalda er smám
saman að eyðileggja vel rekin dag-
heimili.
Að lokum, hversu lengi verður
glatt á hjalla í Sunnuborg?
Höfundur er háskólanemi.
ÚTSALA
Karlmannaföt kr. 4.975,- og 6.500,-
Stakirjakkarkr. 3.975,-
Terylenebuxur kr. 1.195,- og 1.395,-
Gallabuxur kr. 745,- og 795,-
Flauelsbuxur kr. 745,-
Skyrtur, peysur, nærföt o.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250.
Notaðu FIRMAbg^
og fitan ferl^S-
Fæst í apótekinu
Vaxtarræktin - Nóatún 17 - Sími 19900
by rjendanámskeið
FJölbreytt, gagnlegt og skemmtilegt byrj-
endanámskeið í notkun einkatölva.
Leiðbeinandi:
Dagskrá:
• Grundvallaratriði við notkun PC-
tölva.
• Stýrikerfið MS-DOS.
• Ritvinnslukerfið WordPerfect.
• Töflureiknirinn Multiplan.
• Umræður og fyrirspurnir.
Logi Ragnarsson,
tölvufræðingur.
Tími: 5., 7., 12. og 14. okt. kl. 20-23
Innritun í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.
Láttu okkur í Mýjabæ sjá um
matseldina á meðan þú verslar
Nú getur þú fengið heitan og Ijúffengan heimilislegan mat handa allri fjöl-
skyldunni þegar þú verslar í Nýjabæ við Eiðistorg. Þannig sparar þú tíma og
fyrirhöfn, sem fylgir því að elda í hádeginu eða að loknum löngum og ströng-
um vinnudegi.
Betriþjónusta með lengri opnunartima
Við erum alltaf að auka þjónustuna og nú er opið hjá okkur frá kl. 9 til 19
mánudaga til fimmtudaga, til kl. 20 á föstudögum og frá kl. 10 til 16 á
laugardögum.
G0TT F0LK / SIA
VÖRUHÚS/Ð E/Ð/STORG/