Morgunblaðið - 01.10.1987, Page 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
„þu ^leyrndir db gefb. henní
þjórfé."
Má ég ekki biðja um
steininn sem drengurinn
minn braut gluggann
með. Ég er að reyna að
geyma ýmsa muni
tengda bernsku hans___
Með
morgunkaffimi
Með ánægju gef ég þér
mink í afmælisgjöf. Ekk-
ert mál. En þú verður
sjálf að annast um búr-
ið ...
HÖGNI HREKKVÍSI
„ þ£ TTA ER. EKK/ OKKAR. L-IMA .. "
;■ y i . :
-Jc-kT
Þessir hringdu . . .
Góð þjónusta hjá
Smith & Noriand
Alfífa hringdi:
„Ég vil þakka fyrirtækinu
Smith & Norland hf. fyrir góða
þjónustu og greiðasemi í minn
garð. Ég keypti hjá þeim eldavél
fyrir skömmu en þegar henni
hafði verið komið fyrir í eldhúsinu
hjá mér reyndist hún taka meira
pláss en ég hafði ætlað þannig
að hún var fyrir eldhúshurðinni.
Ég hafði samband við Þóri Bergs-
son verkstjóra hjá fyrirtækinu og
baust hann strax til að sækja elda-
vélina mér að kostnaðarlausu og
endurgreiða hana að fullu. Þetta
kalla ég mikla greiðasemi og
væri betur ef fleiri fyrirtæki væru
rekin eins og þetta.
Mig langar einnig til að koma
að öðru. Ég er orðin dálítið svekkt
yfír í endurteknum árásum á
Davíð Scheving Thorsteinsson, nú
síðast vegna auglýsingarinnar um
týnda öldós. Davíð er mikill fram-
kvæmdamaður og hefur tekist vel
með sitt fyrirtæki. Er það þess
vegna sem alltaf er verið að ráð-
ast á hann?“
Heimat — góður
f ramhaldsþáttur
Sjónvarpsáhorfandi hringdi:
„Ég vil þakka Stöð 2 fyrir sýn-
ingar á þýska framhaldsþættinum
Heimat. Þessi þáttur er frábær
og mjög vel gerður. Þar er fjallað
um nasismann og þjóðfélags-
ástandið sem hann skapaði af
smekkvísi og öfgalaust. Ég vil
hvetja alla til að horfa á þessa
þætti.“
Sendum hreindýr til Finnmerkur
Til Velvakanda
Vitað er að hið hörmulega
Chernobylslys hafði mjög alvarleg-
ar afleiðingar m.a. fyrir Lappa, þar
sem talið er að hreindýr þeirra hafí
orðið fyrir kjarnorkugeislun. Nú er
það svo að hér austur á öræfum og
á Héraði erú um þijú þúsund hrein-
dýr sem valda ofbeit.
Væri mikið heillaverk að senda
Löppum að gjöf svo sem þúsund
hreindýr og myndi draga úr þeim
landspjöllum sem hreindýr þessi
valda. Einfalt er að veiða dýrin með
svefnlyfjakúlum og senda þau á
fæti til Finnmerkur, þá fengju þeir
ómenguð dýr til manneldis í
framtíðinni. Hreindýravinur
Víkveiji skrifar
Víkveiji hefur veitt því athygli
að umræður um fjölmiðla og
það sem í fjölmiðlum birtist fær æ
meiri rými í Qölmiðlunum sjálfum.
Það kemur kannski ekki á óvart
þegar skoðuð erþróunin undanfarin
misseri eftir að Islendingar losnuðu
úr meira en hálfrar aldar ríkiseinok-
un í ljósvakamiðlun. Menn töluðu
um að með nýjum útvarpslögum
yrði Qölmiðlabylting í landinu en
reyndin hefur orðið sú, að nær er
að nota orðið fjölmiðlasprenging.
Nú er svo komið að það er einum
manni algerlega ofviða að fylgjast
með öllu því efni sem á boðstólum
er í fjölmiðlunum. Jafnvel maður
sem hefði ekki annað fyrir stafni
allan daginn kæmist tæplega yfir
öll þau ósköp. Víkverji er áskrifandi
að öllum dagblöðunum fímm, hefur
aðgang að tveimur sjónvarpsstöðv-
um og fímm útvarpsrásum og fær
auk þess í hendur nokkur tímarit
innlend og erlend og einstaka lands-
málablöð! Starfs síns vegna les
Víkveiji blöðin vandlega og fylgist
með fréttum sjónvarps og útvarps
eftir'föngum. Það er helst að ein-
staka dagskrárliðir . útVarps * og
sjónvarps • vérðf útundan vegná
tímaskorts. Afleiðingin er sú að
Víkverji missir oft af athuglisverð-
um þáttum sem eru í umræðunni
hjá fólki. Hitt er svo annað mál að
Víkveiji verður meira og meira
undrandi á því með hveijum mánuð-
inum sem líður að í þessu fámenna
þjóðfélagi skuli gerast atburðir sem
dugi til að fylla dagskrár allra fjöl-
miðla!
XXX
Hér í þessum dálkum er stund-
um rætt um sívaxandi bíla-
íjölda á höfuðborgarsvæðinu og
vandræði sem skapast vegna þess
að gatnakerfið þolir ekki þessa
miklu umferð. Umferðin í mið-
borginni er sér kapituli. Að undan-
fömu hafa farið fram viðgerðir á
tveimur götum í miðbænum, þ.e.
Vonarstræti og Suðurgötu og báðar
þessar götur hafa verið lokaðar.
Þetta hefur valdið töfum og pirringi
hjá ökumönnum. Sú spurning vakn-
ar hvort ekki megi skipuleggja
gatnaframkvæmdir þannig að ein
gata sé tekin fyrir í einu svo kom-
ast megi hjá öngþveiti vegna þess
að tvær götur til ofe frá miðbænum
eru lok’aðar á sama tfma.- Gaman
væri að heyra frá gatnamálastjóra
um þetta mál
XXX
Bjórinn hefur verið til umræðu
upp á síðkasti í kjölfar skoð-
anakönnunar DV, en niðurstaða
hennar var sú að mikill meirihluti
landsmanna vill leyfa sölu á bjór í
landinu. Sú skoðun hefur komið
fram áður í þessum dálkum og skai
ítrekuð hér, að Alþingi getur ekki
skorast undan því lengur að taka
afstöðu í þessu máli.
Núverandi ástand er fáránlegt.
Að orði kveðnu ríkir hér bann við
sölu á bjór. Hins vegar eru nokkrar
löglegar leiðir til að koma bjór inn
í landið og allir vita að bjór kemur
líka inn í landið eftir ólöglegum
leiðum. Víkverji skoðaði á dögunum
hina stórmerku sjávarútvegssýn-
ingu. Það vakti athygli hans að allir
stærstu sýnendurnir buðu við-
skiptavinum sínum upp á bjór,
innlendan og erlendan. Þessi háttur
mun tíðkast á erlendum sýningum
að sögn kunnugra. Ekki varð Vík-
veiji var við að löggæzl^n hefði;
uppi, nejna tilburði til að stöðva'
þes'sar'véiíingar:; r :! r,v' ■ '•