Morgunblaðið - 28.10.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1987
7
Flugleiðir:
Samningum lokið um
búnað nýju þotnanna
Fyrri þotan afhent vorið 1989
FLUGLEIÐIR hafa lokið við að
semja um búnað Boeing 737-400
flugvélanna tveggja sem pantað-
ar hafa verið frá Boeing-verk-
smiðjunum í Seattle í Banda-
ríkjunum. Fyrsta flugvélin af
þessari gerð á að verða tilbúin í
janúar á næsta ári en vélar Flug-
leiða verða tiibúnar rúmu ári
síðar.
Leifur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri flugrekstrarsviðs
Flugleiða, sem var í Seattle til að
ganga frá þessum samningum,
sagði að kaupendur þyrftu að
ákveða hvaða búnað þarf til við-
bótar grunnbúnaði flugvélanna.
Þannig væru til dæmis tölvuskjáir
í mælaborði vélanna í stað hefð-
bundinna mæla, og þyrfti að velja
hvaða grunnmyndir væru heppileg-
astar á skjáunum.
Vélar þær sem Flugleiðir hafa
pantað eru af gerðinni Boeing
737-400 sem er nýjasti meðlimur-
inn í 737-fjölskyldunni. Fyrsta vélin
af þeirri tegund kemur úr verk-
smiðjunni í byijun janúar og verður
hún prófuð í 8 mánuði. Fyrirhugað
er að fyrstu vélamar verði síðan
afgreiddar til kaupenda í september
1988 en fyrstu vélamar af þyngri
gerð, eins og vélar Flugleiða, verða
ekki afgreiddar fyrr en vorið 1989
og eru Flugleiðir annað flugfélagið
sem fær slíkar vélar. Leifur Magn-
ússon gerði ráð fyrir að byijað ýrði
að setja flugvélar þær sem Flugleið-
ir hafa pantað saman næsta haust.
Fimm gerðir em til af 737-flug-
vélunum. 737-100 og 737-200 hafa
verið notaðar í talsverðan tíma en
þær em með eldri gerð hreyfla sem
eyða meira eldsneyti og em hávaða-
sainari. Tegundin 737-300 kom á
markaðinn 1984 og er hún með
hreyflum af nýrri gerð sem em
bæði spameytnari og hljóðlátari en
eldri gerðimar auk þess sem hún
er stærri og tekur að meðaltali 138
í sæti. 400-gerðin, eins og Flugleið-
ir em að fá, er síðan stærri en
300-gerðin en vélar Flugleiða munu
taka um 158 manns í sæti. Síðasta
gerðin er síðan 737-500 en hún er
minni og tekur aðeins um 118 í
sæti. Til samanburðar má nefna að
stærri Boeing 727-vél Flugleiða
tekur 164 í sæti.
Útgefendur keppa
um Sykurmolana
Útsendarar nokkurra helstu hljómplötufyrirtækja
í heimi verða viðstaddir tónleika Sykurmolanna i
Reykjavík næstkomandi föstudag. Erindi þeirra hing-
að til lands er það að sjá hljómsveitina á sviði, en
fyrirtæki þeirra hafa lýst áhuga sínum á að gera við
hana útgáfusamning.
Þessi tilboð hafa borist í kjölfar þess að lag hljómsveit-
arinnar Birthday hefur farið hátt á vinsældalistum í
Bretlandi. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að vem-
legar fjámpphæðir séu í boði.
Síðastliðinn laugardag vom myndir af hljómsveitinni
á forsíðum bresku poppblaðanna Melody Maker og New
Musical Express og hér til hliðar má sjá mynd af forsíðu
Melody Maker 24. október síðastliðinn.
Bogi Ágústsson
Ráðinn
blaðafulltrúi
Flugleiða
BOGI Ágústsson hefur verið ráð-
inn blaðafulltrúi Flugleiða. Hann
tekur við störfum 1. febrúar n.k.
Bogi gegnir nú starfi aðstoðar-
framkvæmdastjóra útvarpsins.
Hann var áður fréttamaður á Ríkis-
sjónvarpinu. Bogi tekur við hinu
nýja starfi af Sæmundi Guðvins-
syni.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
VANDAÐUR,
LITPRENTAÐUR
BÆKLINGUR LIGGUR
NÚ FRAMMI f
VERSLUNINNI
\"
FRAMLEITT AF EE HUSGÖGNUM
P&Ó/SlA