Morgunblaðið - 28.10.1987, Blaðsíða 41
stóð hennar trausti og góði eigin-
maður, sem vart vék frá sjúkrabeði
hennar síðustu mánuðina.
Margar góðar stundir höfum við
átt með þeim hjónum, ýmist á heim-
ili þeirra eða okkar við hátíðleg
tækifæri í fjölskyldunni.
Kærust er mér minning frá sum-
arbústað okkar systranna við
Álftavatn. Það var yndisfagurt
sumarkvöld. Við kveiktum lítinn eld
í skóganjóðri við lækinn okkar og
sungum okkar fallegu íslensku lög
í bláfjallageimi.
Við rifluðum oft upp þetta fagra
kvöld og áformuðum fleiri slík. í
öruggri vissu um endurfundi í landi
ódauðleikans munum við leita upp
fagran stað við litla lind, sem bugð-
ast og hjalar við slitna steina.
Er við kveðjumst um stundarsak-
ir er þakklætið efst í huga okkar.
Megi algóður Guð styrlq'a og
hugga eiginmann, bömin og bróður
Betzyar svo og ástvini alla í þeirra
miklu sorg.
Þá lífið oss réttir þunga þraut,
svo þolað ei fáum meira.
Hve dásama margur huggun hlaut,
ef hvislað var þá í eyra.
Sem talaði hann, er enn oss ann,
Hans orð er oss ljúft að heyra:
„Eg veiti yður hvild, sem þrautum þjást,
og þér skuluð til min leita.
Mín bregðast ei kunna orð né ást,
sem öllum ég náði heita."
Svo talaði hann, er enn oss ann,
sem enn er oss hjálp að veita.
(Sálmur — Halldór Benediktsson.)
Friður sé með henni.
Guð blessi Betzy.
Sigrún Óskarsdóttir
Guð gaf og Guð tók.
Nú hefur hann tekið Betzý frá
okkur. Hún er dáin. í blóma lífsins,
þegar hún var hamingjusöm og lífíð
virtist leika við hana er hún hrifsuð
frá okkur til annars heims, sem við
þekkjum ekki.
Við efumst. Er eitthvað réttlæti
til? Við spyijum okkur aftur og
aftur, hvers vegna Betzý? En eina
svarið er bergmál spuminganna.
Við verðum að trúa því að hún
hafí verið kölluð til einhverra mik-
illa starfa í betri heimi en okkar er.
Betzý var dóttir hjónanna Randý-
ar Þórarinsdóttur og Elíasar Krist-
jánssonar, sem nú em bæði látin.
Það er huggun okkar að við vitum
að Betzý mun fá blíðar móttökur
hjá foreldrum sínum.
Við Betzý kynntumst þegar við
vomm böm að aldri við leik á Sölv-
hólsgötunni. Heimsmynd okkar var
ekki stór í þá daga, hún náði frá
Sölvhól upp á Lándargötu. Svo urð-
um við eldri, heimurinn stækkaði í
augum okkar og alvara lífsins tók
við.
Betzý var ung að árum þegar
hún kynntist fyrrverandi eigin-
manni sínum og fíuttist með honum
úr landi ásamt bömum sínum tveim,
Innsogssett
úr sjálfvirku í handvirkt
SKEIFUNNI SA. SÍMI: 91-8 47 88
Vatnslásar
Mjög hagstœtt verö!
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1987
41
Randý og Elíasi. Þar skildu leiðir
okkar um tíma. Eftir heimkomuna
urðu miklar breytingar á högum
Betzýar, en hún lét ekki bugast.
Hún hóf nú störf í Útvegsbankanum
og bjó bömum sínum fallegt heimiii.
Þann 5. desember 1981 giftist
Betzý eftirlifandi eiginmanni
sínum, Haraldi Emi Haraldssyni,
og eignuðust þau eina dóttur sam-
an, Guðbjörgu Kristínu, sem nú er
aðeins 4 ára.
Betzý gleymdi ékki gömlu vin-
konunni og vom þær ófáar ferðimar
sem hún kom til mín á Landspítal-
ann til að stytta mér stundimar.
Jafnvel eftir að sá hörmulegi sjúk-
dómur, sem síðar tók hana frá
okkur, heijaði á hana var hugur
hennar alltaf hjá þeim sem áttu við
erfiðleika að stríða.
Betzý vil ég þakka innilega fyrir
allar þær stundir sem við áttum
saman. Þó hún sé farin yfír móðuna
miklu, geymum við minningamar
um hana í hjörtum okkar. Brosið
hennar fallega sem hún gaf mér
fáeinum dögum fyrir andlát sitt
mun ég ætíð varðveita.
Blessuð sé minning hennar.
Elsku Halli, Randý, Elías, Guð-
björg, Þorgeir og fjölskylda, ykkur
vottum við okkar dýpstu samúð og
vonum að allt hið góða í heiminurn
muni styrkja ykkur um alla framtíð.
„Sorgin er grima gieðinnar.
Og lindin, sem er uppspretta gieðinnar,
var oft full af tárum.
Þegar þú ert sorgmasddur, skoðaðu þá aftur
huga þinn, og þú munt sjá að þú grætur
vegna þess, sem var gieði þín.“
(Kahlil Gibran.)
Þórlaug Einarsdóttir og fjölskylda
DA6SINS í OAG
, GfS! G&
Gufugleypir, gerð E 601,
með eða án kolasíu.
Litir: brúnn, rauður, grænn
Utborgun kr. 3.000,-
Þurrkari.
Gerð TT 307.
Sérstakt verð.
jrka&
t0ek\um
i trátoaer3
Takroa1
magn a*
á ^pessu
Útborgun kr. 6.000,
Útborgun kr. 6.000,-
TATUNG SJÓNVARPSTÆKIN ERU FRAMLEIDD
í ENGLANDI í EINNI FULLKOMNUSTU VERKSMIÐJU
EVRÓPU. KYNNTU ÞÉR TATUNG-TÆKIN.
FRÁBÆR VERÐ:
20"—22" fjarstýrð - 22" stereo - 26" monitor.
Frystiskápur,
FS 120, 120 lítra.
Frystiskápur,
FF 311, 258 lítra.
Litir: grænn.
Kr. 34.990.- stgr
TOSHIBA
^■■■^Mi^M^kr. "T B i™WWf stgr.
Stereo myndsegulband. Gerð v-85.
Stórglæsilegt tæki með Dolby-HQ. Fjarstýrt. Útborgun kr. 10.000.
ndum
Eldhúsvaskar
í fjölbreyttu úrvali
ýtbor9un
CP 651. Með skolskál og bakka,
myndamót