Morgunblaðið - 28.10.1987, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVHUJDAGUR 28. OKTÓBER 1987
17
Síldarsöltun
lokið á Eskifirði
EddfirðL
SÍLDAKSÖLTUN er nú lokið á
Eskifirði á þeim tunnum, sem
búið var að úthluta á söltunar-
stöðvar vegna sölusamninga við
kaupendur i Sviþjóð og Finn-
landi. Saltað var á fimm stöðvum,
en ein söltunarstöð, Eljan hf.,
hefur enga sUd saltað, en þar,
eins og víðar, mun nú beðið þess
að samningar takist við Rússa.
Loðnuverksmiðjan hefur þegar
tekið við um 300 tonnum af sfld til
bræðslu, og má búast við að meira
magn fari þar í vinnslu eftir að
saltað hefur verið upp í sölusamn-
inga. Þá hafa um 200 tonn verið
flökuð og heilfryst hjá Hraðfrysti-
húsi Eskifjarðar hf. og mun sú
vinnsla halda áfram af fullum
krafti, þó söltun sé yfirstaðin í bili.
Um 7.400 tunnur hafa verið salt-
aðar á vertíðinni og skipast þær
þannig á söitunarstöðvar að Frið-
þjófur hf. er búinn að salta um
3.000 tunnur, Þór hf. um 700 tunn-
ur, Askja hf. um 800 tunnur,
Söltunarstöðin Auðbjörg um 1.600
tunnur og Sæberg hf. um 1.300
tunnur.
Ingólfur
Akranes:
Hörpuútgáfan með
18 bækur áþessu ári
Akranesi.
HÖRPUÚTGÁFAN hf. á Akra-
nesi mun á næstu vikum gefa út
fimmtán bækur og hefur þá alls
gefið út átján bækur á þessu ári.
Af íslenzkum bókum má nefna
viðtalsbók Hjartar Gíslasonar
blaðamanns við fimm landsþekkta
skipstjóra og aflakónga. Bókin
neftiist „Aflakóngar og athafna-
menn“.
Önnur bók heitir „Lífsreynsla",
frásagnir tíu einstaklinga af eftir-
minnilegri og sérstæðri reynslu.
Tvær bókanna flokkast undir
sagnfræði. „Skóla í 100 ár“, sögu
skólahalds á Akranesi 1880-1980.
130 ijósmyndir prýða bókina. Höf-
undur hennar er Stefán Hjálmars-
son sagnfræðingur. Hin bókin er
„Saga Olafsvíkur", fyrra bindi eftir
Gísla Ágúst Gunnlaugsson sagn-
fræðing.
Þá verður gefin út minningarbók
um hjónin dr. Eirík Albertsson og
Sigríði Bjömsdóttir. Bókin nefnist
„Ar og dagur í víngarði drottins".
Fastur liður hjá Hörpuútgáfunni ár
hvert er útgáfa ljóðabókar og að
þessu sinni er það bókin „Á hljóðum
stundum" eftir Óskar Þórðarson frá
Haga.
- JG
ALVIS FYRIR STJORNENDURI 12.11.
INNRITUNTIL
10.NÓV.
SIMI:
621066
ALVÍS BÓKHALDSKERFIÐ ER
SIGLINGATÆKI FYRIRTÆKISINS.
ÞAÐ SÝNIR STÖÐU HVERS REKSTRAR-
ÞÁTTAR, STEFNU HANSOG HRAÐA.
En stjórnendur þurfa aö kunna á það, jafnt og önnur
stjórntæki rekstursins.
EFNI: Kennd notkun fyrirsþurna, uþþgjöra, áætlana, skýrslu-
gerðar og arðsemiútreikningar rekstrarþátta.
LEIÐBEINANDI: Björgvin B. Schram.
TÍMI OG STAÐUR:
12. og 13. nóv. kl. 13:30-17:30 að Ánanaustum 15.
ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM S.F.Í.
INNRITUN ER AÐ LJÚKA í: Orðsnilld, framhald 2.-4. nóv., Einkatölvur 2.-5. nóv.
___________og Alvfs vörukerfi 2.-5. nóv._
Stjórnunarfélag íslands A
TÖLVUSKOU Æ
== I Ánanaustum 15 ■ Sími: 6210 66
Ráðstefna Vöku:
Dagvistarmál
VAKA, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta í Háskóla íslands heldur
ráðstefnu í Hugvísindahúsi Há-
skólans, Odda, stofu 101,
fimmtudaginn 29. október kl.
20.15. Viðfangsefni ráðstefnunn-
ar er dagvistun í Reykjavík,
nýjar leiðir og hvernig skuli
bregðast við vanda stúdenta í
dagvistarmálum.
Benedikt Bogason, formaður Vöku
setur ráðstefnuna. Fjögur framsögu-
erindi verða flutt á ráðstefnunni.
Davíð Oddsson borgarstjóri fjallar
um dagvistun á vegum Reykjavíkur-
borgar og stöðu þeirra mála hjá
borginni. Eiríkur Ingólfsson fram-
kvæmdastjóri Félagsstofnunar
stúdenta ræðir um dagvistun á veg-
um Félagsstofnunar, nú og áður fyrr
og hvemig Félagsstofnun geti hugs-
anlega tekið þátt í nýjum leiðum í
dagvistun bama. Freyja Kristjáns-
dóttir forstöðumaður bamaheimilis-
ins Óss, kynnir rekstur foreldrarek-
ins bamaheimilis og hvetjir kostir
og gallar fylgja sKkum rekstri.
Síðasta erindið á ráðstefnunni flytur
Valborg Snævarr, fóstra og laga-
nemi, sem situr í Háskólaráði fyrir
hönd Vöku. Valborg fjallar um nýjar
leiðir í dagvistarmálum stúdenta og
stofnun áhugahóps um rekstur
bamaheimilis fyrir stúdenta og
starfsfólk Háskóla íslands. Að lokn-
um framsöguerindum verða umræð-
ur og fyrirspumir. Fundarstjóri á
ráðstefnunni verður Lilja Stefáns-
dóttir, formaður Félags hjúkruna-
rfræðinema við Háskóla íslands.
Á fundinum mun ganga undir-
skriftarlisti, þar sem stúdentar og
aðrir áhugasamir geta skráð sig í
áhugahóp um stofnun foreldrarekins
bamaheimilis fyrir stúdenta og
starfsfólk Háskólans. í fréttatilkynn-
ingu frá Vöku eru stúdentar með
böm hjá dagmæðrum og sem ekki
komast að hjá dagheimilum borgar-
innar kvattir til þess að mæta og
taka þátt í stofnun hópsins, þar sem
hér sé um að ræða raunhæfa lausn
fyrir fjölda stúdenta.
Verðfrá kr.: 399.900,-
Argerð 1988
komin til landsins
Bílar til afgreiöslu strax Nýbýlavegi 2 • Sími 42600