Morgunblaðið - 12.11.1987, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
9
HÁMARKSÁVÖXTUN
ALLTAFLAUS ALLSSTAÐAR
Eins og hinir fjölmörgu viðskiptavinir
Kaupþings hf. vita, sem notið hafa hámarks
ávöxtunar á undanfömum árum, báru Ein-
ingabréf 14,23% vexti umfram verðbólgu
á síðastliðnu ári. Meginkostur Einingabréf-
anna auk hinna háu vaxta er að mati eigenda
þeirra að þau eru alltaf iaus þegar þeir þurfa
á fjármunum að halda. Nú eykur Kaupþing
enn þjónustuna við viðskiptamenn sína og
gerir þeim kleift að innieysa Einingabréfin
um allt land, hvar sem er hvenær sem er.
SÖLUGENGI VERÐBRÉFA ÞANN12. nóvember 1987
Einingabréf 1 2.418,-
Einingabréf 2 1.417,-
Einingabréf 3 1.498,-
Lífeyrisbréf 1.216,-
SS 10.810,-
SÍS 18.319,-
Lind hf. 10.322,-
Kópav. 10.472,-
KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar ■ sími 68 69 88
Ný sjónarmið?
Hannes Ólafsson, rit-
stjóri Nýrra mennta-
mála, ritar grein i síðasta
tölublað ritsins, sem ber
yfirskriftina: Ný sjónar-
mið í menntamálaráðu-
neytinu? Er greinin
einskonar aðdragandi að
viðtali Hannesar við Guð-
mund Magnússon, að-
stoðarmann mennta-
málaráðherra, sem var
blaðamaður hér á Morg-
unblaðinu. Segir Hannes,
að sldpun Guðmundar í
þetta embætti hefði vak-
ið nokkra athygli, vegna
afstöðu Guðmundar til
uppeldis- og mennta-
mála, sem birtist i grein-
um hér í blaðinu frá 1983
til 1986. Fyrsta spuming
ritstjórans til Guðmund-
ar er á þann veg, hvort
samtök kennara „hefðu
ehthvað að óttast með
ráðningu hans sem að-
stoðarmanns mennta-
málaráðherra";
Guðmundur segist vera
mjög hissa á spuming-
nnni og svarar henni
síðan:
„Ég hef alltaf verið
velviljaður kennarastétt-
inni þótt ég hafi deilt á
ákveðna þætti skóla-
starfs og ákveðnar
hugmyndir í skólamál-
um. í skrifum minum hef
ég stundum tekið þetta
sérstaklega fram, þótt
það ætti ekki að vera
nein þörf á þvi. Ég kann-
ast ekki við neikvæð
viðhorf min, hvorki til
samtaka kennara sem
slíkra eða kennarastarfs-
ins. Ég tel kennarastarf-
ið nýög mikilvægt og það
er á þeim grundvelli sem
ég hef fjallað um það.
Ég leyfi mér að vitna i
eigin orð i Morgunblað-
inu 22. febrúar í fyrra:
„Það er . . . gagnrýnis-
vert og áhyggjuefni, að
skólayfirvöld ráði til
kennslu fólk, sem ekki
veldur starfinu vegna
lítillar menntunar,
reynsluleysis eða áhuga-
skorts". Fyrr i sömu
grein fjallaði ég um þær
kröfur sem eðlilegt er að
gera til kennara og sagði:
„. . . fyrsta krafan [til
kennara] hlýtur að vera
sú, að kennarar þekki
Viðhorf til kennara
Umræður um menntamál eru jafnan tölu-
verðar. Hér í blaðinu hefur nýverið verið
skýrt frá tveimur skýrslum, sem samdar eru
á vegum menntamálaráðuneytisins um
kennslu í framhaldsskólum, annars vegar
um íslensku og hins vegar stærðfræði. Eru
menn ekki á einu máli um niðurstöður þeirra
frekar en svo margt annað. í síðasta tölu-
blaði Nýrra menntamála ræðir Hannes
Ólafsson, ritstjóri tímaritsins, við Guðmund
Magnússon, aðstoðarmann menntamála-
ráðherra. Er staldrað við það samtal í
Staksteinum í dag.
það námsefni sem þeir
eiga að miðla nemendum
(eða hjálpa nemendum
að skilja — ef menn kjósa
það orðalag fremur).
Þetta er nauðsynlegt
skilyrði, en ekki nægi-
legt. Kennarar þurfa lika
að hafa ánægju af því
að umgangast börn og
unglinga og áhuga á þvi
að setja sig inn i hug-
myndaheim þeirra. Þeir
þurfa loks að hafa yfir-
vegaðar skoðanir á þvi
hvernig haga á skóla-
starfinu svo það verði
nemendum í senn tíl
þroska, uppfræðslu og
ánægju." Nú spyr ég: Eru
þessi orð til marks um
„neikvæð viðhorf" til
kennara? Er þetta „aft-
urhaldsraus"?
Viðhorf mín til mennt-
unar kennara eru svipuð
og viðhorf mln til mennt-
unar blaðamanna — og
hef ég þó aldrei verið
sakaður um „neikvæð
viðhorf “ til blaðamanna.
Ég tel að menntun þess-
ara stétta þurfi að vera
fjölbreytíleg og að i þessi
störf ve\jist fólk með
ólíkan bakgrunn, félags-
lega og menntunarlega.
Þess vegna er ég ein-
dregið andvígur þvi að
fjölmiðlar ráði eingöngu
svokallaða „fjölmiðla-
fræðinga" til starfa og
þeir hjjóti löggildingu á
sama hátt og kennarar.
Ég tel nauðsynlegt að i
skólum starfi kennarar
með fjölbreyttari mennt-
un en núverandi kenn-
aramenntun er. Þetta
þýðir ekki að ég telji
kennaramenntun eða
starfrækslu kennara-
skóla óþarfa. Fjarri þvi
og tel raunar mikilvægt
að búa vel að slíkri skóla-
stofnun."
Löggildingin
Að ósk kennarasam-
takanna var á sinum tima
lagt fram frumvarp um
löggildingu kennara-
starfsins og var það
samþykkt á Alþingi. Þeg-
ar til kastanna kemur er
framkvæmdin flókin, svo
sem fyrir kennara i list-
greinum og presta.
Prestar kallast ekki leng-
ur kennarar heldur
leiðbeinendur eins og
aðrir, sem falla ekki inn-
an ramma löggildingar-
innar. Guðmundur
Magnússon var andvigur
löggildingunni og af þvi
tilefni er hann spurður i
Nýjum menntamálum á
þennan veg: En á sinum
tíma barðist þú mjög
heiftarlega gegn löggild-
ingu stéttarinnar [kenn-
ara]? Guðmundur svarar:
„Ég leyfði mér að
skrifa blaðagreinar, þar
sem ég færði rök gegn
áformunum um löggild-
ingu kennarastarfsins.
Ég beitti mér ekki á nein-
um öðrum vettvangi i
þessu máli. Naumast er
hægt að tala um „heiftar-
lega baráttu" i þvi
sambandi, eða hvað? Ég
Ift á löggildingu kennara-
starfsins í samhengi við
löggildingu starfsrétt-
inda almennt, en löggild-
ingu tel ég stríða gegn
sjónarmiðum hag-
kvæmni og réttlætis.
Löggilding er réttlætt
sem hagsmnnamál „við-
skiptavina" viðkomandi
stéttar, en í reynd snýst
málið ætíð um þrönga
sérhagsmuni. Ég tek mér
stöðu með hinum al-
mennu borgurum i
málum af þessu tagi —
ekki sérhagsmunahóp-
um, hvort sem það eru
kennarar, iðnaðarmenn,
nú eða blaðamenn. Þetta
þýðir ekki að mér sé á
neinn hátt i nöp við við-
komandi stéttir eða
stéttarfélög — það er
barnaleg ályktunarvilla
ef menn halda það.“
Færibönd
fyrir allan
iðnað
Getum útvegað með
stuttum fyrirvara allskonar
færibönd úr plasti og stáli
fyrir smáiðnað sem
stóriðnað; matvælaiðnað,
fiskvinnslu og
verksmiðjuiðnað.
Fjölbreyttir möguleikar.
Leitið upplýsinga.
UMBODS- OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFDA 16 SÍML6724 44
ISLlamatkadutinn
^f-tattisgötu 12-1*5
Honda Civic Sport 1985
Drappsans., 5 gíra, ekinn 45 þ.km. útv. +
segulb. Verð 420 þ.
Mazda 929 Coupé 1983
hvitur, 2000 vól, sjálfsk., ekinn 74 þ.km.
Sóllúga, rafm. i rúðum o.fl. Fallegur sportbíll.
Rauðbrúnn, 4 gira m/overdrive, ekinn aöeins
35 þ.km. Sóllúga, litaö gler o.fl. Úrvalsbíll.
Verö 740 þús.
Dekurbíll: M. Benz 190 E 1986
Gullsans., 55 þ.km. Sjálfsk., litað gler, sóll-
úga, 2 dekkjagangar, útvarp + segulb. o.fl.
Verð 1.050 þús.
Cherokee (Wagoneerj 1984
Dökkblár, 6 cyl., beinsk., 4 gíra, ekinn aö-
eins 51 þ.km. Rafm. í rúöum o.fl. Gullfallegur
jeppi. Verö 980 þús.
Pontiac Firebird m/T-topp 1984
Rauöur, 69 þ.km. 5 gíra, bein innspýting
o.fl. Fallegur sportbíll. Verö 750 þ.
Chevrolet Cavalier Type-10 ’85
Toyota Tercel 4x4 1984
Grænn (tvíllt.), eklnn 58 þ.km. Með halla-
mælum. Ný vetrardekk o.fl. V. 430 þ.
Ford Escort 1300 CL »87
8 þ.km. 3 dyra, 5 gíra. V. 450 þ.
Ford Fiesta 1100 Fighter ’87
8 þ. km. sem nýr. V. 340 þús.
BMW 323i ’82
80 þ.km. 5 gíra m/aflstýri. V. 500 þ.
Toyota Tercel 4x4 ’88
Nýr bfll. V. 610 þ.