Morgunblaðið - 12.11.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
25
Gróðursfarslega gœti fsland nútímans verið jafngott og jafnvel betra land en það' var fyrir landnAm.
'Myndin erfrá Hallormsstað.
gróðurfar myndi í stórum dráttum
vera með þeim hætti, að láglendið
upp að 3—400 m hæð yfír sjó væri
að verulegu leyti vaxið birkiskógi
og kjarri, nema blautustu flóar og
nýhraun. Ofan skógarbeltisins upp
að 5—600 m hæð myndi víðikjarr,
ijalldrapi og lyng vera ríkjandi, en
þar ofan við tæki við harðger flall-
gróður upp að gróðurmörkum. í
kjölfar þessa mjmdi fylgja svipuð
gróska og hér var áður og nú er
að finna í bestu gróðurlendum.
Gróðurþekjan mjmdi þéttast og rof
lokast. Af þeim sökum, vegna þeirr-
ar vemdar og skjóls, sem skógur
og kjarr veitir og vegna styrkari
gróðurs myndi eyðingarhætta af
völdum vatns og vinda verða lítil.
Sú staðhæfíng, að landið gæti
jafnvel orðið gróðurfarslega betra
en það var fyrir landnám, byggir á
þeirri staðreynd, að til sögunnar eru
nú komnar ýmsar innfluttar teg-
undir plantna — tré og jurtir — sem
ekki voru hluti af gróðurríki lands-
ins, en sem þrífast hér með
ágætum. Þá má nefna margvíslegar
rætkunaraðferðir og notkun áburð-
ar, sem margfalda afkastagetu
landsins. Allt þetta gefur möguleika
á Qölbreyttari framleiðslu en hér
hefiir nokkum tíma verið.
Endurheimt landgæða
Það mun taka langan tíma að
endurheimta fyrri landgæði, jafnvel
eftir að gróðureyðing hefur verið
stöðvuð, en á það skortir mikið
enn. Aðferðir til að bæta og auka
gróður landsins em margar og þær
veiður að velja eftir aðstæðum á
hveijum stað og tíma. En það, sem
öðm fremur þarf að sitja í fyririými
er að stöðva eyðingu og sfyrkja og
bæta það gróðurlendi, sem enn er
.f landinu. Sfðan má snúa sér að
uppgræðslu þess lands, sem er ör-
foka og getur ekki versnað.
Fyrra verkefnið útheimtir sam-
ræmdar landgræðslu-, skógræktar-
og beitarstjómunaraðgerðir. Sum
þeirra landsvæða, sem verst em
farin, þarf að alfriða fyrir beit og
afhenda til meðferðar Landgræðslu
og/eða Skógrækt rikisins. Önnur
svæði þarf aðeins að friða fyrir
beit um takmarkaðan tíma meðan
gróður er að styrkjast. Loks em
svæði, þar sem nægir að draga úr
beitarálagi og koma á beitarstjóm-
un.
Það fer eftir ástandi landsins hve
hröð áhrifin verða við friðun þess
eða við minnkandi beitarálag. Því
verra sem ástandið er, því seinna
er landið að taka við sér. Þess vegna
er ekkert mikilvægara í þessu sam-
bandi en að koma beitarmálum sem
fyrst í það gott horf, að hér verði
hvergi ofbeit. Vfða um land hefur
dregið úr beitarálagi á undanföm-
um ámm vegna fækkunar sauð^ár.
Sú fækkun hefur að vísu ekki skipu-
lega tekið mið af ástandi landsins
né endilega orðið þar sem hennar
var mest þörf af þeim sökum. En
víða em farin að sjást jákvæð áhrif
þessa á gróðurfar, bæði úthaga og
skóglendis.
Hagsmunir gróðurvemdar og
búflárræktar fara saman og það
er flestum þeim ljóst, sem búfjár-
rækt stunda. Því á ekki að þurfa
að dragast lengur að ná samstöðu
um að koma beitarmálum og land-
nýtingu í gott horf, með svipuðum
hætti og orðið hefur í sambandi við
nýtingu fískimiðanna. Þetta er unnt
að gera á gmndvelli þeirrar vitn-
eskju, sem fyrir hendi er um
gróðurfar landsins og ástand þess.
Höfundur er deildarstjóri hjá
landnýtingardeUd Rannsókna-
stofnunar iandbúnaðarins. Grein-
in erbyggðáerindi, sem h/öfundur
flutti nýlega á ráðstefnu „Lifs og
lands*4.
Næg atvinna í
Stykkishólmi
Stykkishólmi.
A þessu ári hefir verið næg
atvinna í Sfykkisliólmi og frekar
hægt að tala um skort á vinnu-
afli en hitt. Vonandi að atvinnulff
haldist í góðum skorðum en
margir hafa lagt í fjárfestingar
í von um tryggari atvinnu.
Góðviðri hefír ríkt hér við Breiða-
Qörð eins og víðar. Hiti komist í
10 stig og snjór er á undanhaldi til
fjalla. Gengið hefír á með hvas-
sviðri og rigningu en bjart er á milli.
Samgöngur em ágætar nema að
því leyti að Kerlingarskarð hefir
verið þakið aurbleytu, og erfitt fyr-
ir smærri bíla að komast áfram og
forugir hafa þeir komið á leiðarenda
og vart hægt að sjá hvaða lit þeir
bera. Hafa því margir gripið til
þess á leið til Stykkishólms að fara
Heydal þótt það muni 20—30 km
en fengið bara greiðari veg.
— Ámi
Þessarglæsilegu
bækur eru til sölu hjá
Tölvufræðslunni.
Pantanasfmi 687590.
7^b.TiPj?-mSlAM
Borgartúni 28.
HAFÐUALLTÁ
HREINU
FÁÐU ÞÉR
OTDK
SPfLAÐU MED
Fylgstu með árangri og
styrkleika liðanna.
Þannig stendurðu
velaðvígi.
ÍSLENSKAR GETRAUNIR
- eini lukkupotturinn
þar sem þekking
margfaldar vinningslíkur.
Hægteraöspá íleikinasímleiðisoggreida
fyrir með kreditkorti. Þessi þjónusta er veitt
alla föstudaga frá kl. 9.Ö0 til 17.W og laugardaga
frá kl. 9:00 til 13:30. Slminn er688 322.