Morgunblaðið - 12.11.1987, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
Landsstjórn björgunarsveita:
Námstefna svæðastjóma
haldin í fyrsta sinn
LANDSSTJÓRN björgunarsveita hélt í fyrsta skipti námstefnu fyrir
svæðastjómir dagana 7. og 8. nóvember, en landinu er skipt í 18
svæði og er svæðisstjórn í hveiju þeirra. Landsstjórnin var stofnuð
fyrir tveimur árum til að bæta skipulag og samstarf björgunar-
sveita við björgunaraðgerðir í landi og aðild að henni eiga Landssam-
band flugbjörgunarsveita, Landssamband Hjálparsveita skáta og
Slysavamafélag íslands.
Formaður Landsstjómar björg-
unarsveita, Tryggvi Páll Friðriks-
son, setti námstefnuna og að því
loknu voru landssamböndin þijú
sem aðild eiga að Landsstjóminni
kynnt. Þá voru fundir svæðastjóma
þar sem hugsanlegar breytingar
svæðamarka vom meðal annars
ræddar og næsti fundur hverrar
svæðisstjómar var ákveðinn, en
sumar svæðisstjómimar funduðu
þama í fyrsta sinn.
Þá var fjallað um leitartækni og
skipulagningu leita, um ýmis hjálp-
artæki við leitar- og björgunarstörf
Tryggvi PáU Friðriksson setur námstefnuna. Morgunbiaðið/Sverrir
og um hættur og hættumat. Þátt- verkefni sem þeir vom látnir leysa
takendur fengu síðan stjómunar- á sunnudeginum.
ISUZU
ISUZU
ISUZU
!SUZU
ISUZU
n
ISUZU
ISUZU
ISUZU
ISUZU
ISUZU
ISUZU TROOPER
er framleiddur af
fyrsta og elsta bílaframleiðanda
lmTROOPERerfjö|hæfurog
sterkbyggður ferðabíll með gnægð
rýmis fyrir farþega og farangur,
aægilegur og sparneytinn fólksbíll í
Mtdí&OPER erorf),nne,nn
vinsælasti innflutti jeppinn í
Bandaríkjunum og valinn einn af 10
stj^fji^jjQj^þfebílum þar í landi.
er án efa einn sá
traustasti á markaðinum í dag, enda
framleiddur af LU
IS
Styttri gerðir fáanlegar um áramót.
Verð frá :
Trooper — bensín 2,3 Itr. Kr. 1.096.000,-
Trooper — diesel 2,8 Itr. tu.b. Kr. 1.358.000,-
BíLVANGURse
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
tbesre •
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
í gömlu orðtaki segir:
Hinn fávísigimist það sem fjarlægt er,
en forsmáir það sem nálægt er.
Þetta er sígilt sannmæli sem lýsir
vel mannlegum veikleika — fóta-
kefli okkar flestra einhvemtíma á
ævinni. Við upplifum þetta stundum
gagnvart hollum þjóðlegum mat eins
og t.d. fiski.
Menn forsmá þó varla lengi þann
fiskrétt sem hér fylgir. Þetta er
Pönnusteikt-
ur f iskur með
appelsínubráð
800 g fiskur (ýsa, smálúða)
V2 sítróna
50 g smjörlíki
3 matsk. hveiti
1 tsk. salt
malaður pipar
V2 tsk. rifinn appelsínubörkur
6 matsk. appelsínusafi
1 tsk. kínversk soya
1. Smjörlíkið er hitað á pönnu.
Hveiti og salt og malaður pipar er
hrist vel saman í litlum plastpoka.
2. Fiskurinn er roðflettur og skor-
inn í hæfilega stór stykki, safi úr
V2 sítrónu er settur yfir fiskinn og
hann er látinn standa í u.þ.b. 10 mín.
3. Fiskstykkin em því næst hrist
eitt og eitt í einu, með hveitinu í
plastpokanum, þar til þau haa feng-
ið iéttan hveitihjúp. Þau eru síðan
steikt í feitinni við meðalhita í 3
mín. á hvorri hlið eða þar til þau
hafa fengið léttbrúna steikarhúð og
eru steikt í gegn.
4. Fiskurinn er síðan tekinn af
pönnunni og haldið heitum á meðan
sósan er útbúin. Kínverskri soyu er
bætt í feitina á pönnunni og app-
elsínusafa, 1—2 matskeiðum í einu.
Suðan er látin koma upp og er pann-
an hrist svo vökvinn leysi upp
kraftinn á pönnu og sósan nái að
þykkna. Rifinn appelsínubörkur er
settur út í sósuna og soðinn með á
meðan sósan er að jafnast. Magnið
af appelsínuberkinum ræður bragð-
styrk sósunnar.
6. Þama á að vera komin bragð-
mikil sósa, örlítið sæt og með falleg-
um karamellulit. Sósunni er hellt
yfir steiktan fískinn og hann er bor-
inn fram með soðnum kartöflum.
Einnig á vel við þennan fiskrétt létt
salat úr söxuðum agúrkum og eplum
blönduð ávaxtajógúrt sem salatsósu.
Til að gera málsverðinn fullkom-
inn þykir meiriháttar að fá í eftirrétt
Marineraða
kiwiávexti
7 kiwiávextir
2 matsk. sykur
V2 sítróna, safinn
1. Kiwiávextimir eru afhýddir,
þeir eru skomir í þunnar sneiðar og
settir í skál. Sykri er stráð yfír ávext-
ina og síðan er sítrónusafanum hellt
yfir.
2. Þessu er öllu blandað varlega
saman og eru ávextimir síðan látnir
standa í kæli og marinerast í minnst
eina klukkustund.
3. Ávextimir eru bomir fram vel
kældir, þannig eru þeir mjög ferskir
á bragðið. Rjóma má að sjálfsögðu
bera fram með ávöxtunum en hann
er eiginlega óþarfur.
Verð á hráefni:
800 gýsa..........kr. 160.00
1 sítróna.........kr. 15.00
1 appelsína.......kr. 20.00
7 kiwi .......... kr. 100.00
Kr. 295.00
upiæi h go ova upí«ns6ui(i/ini é
m iTiwiresuTeuA
á 19d iBnisigunnivls lijgævíijii/n