Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
Ríó tríóið frá vinstri: Ólafur Þórðarson, Ágúst Atlason og Helgi
Pétursson. Á bak við þá er Gunnar Þórðarson, tónlistarlegur ráðu-
nautur tríósins frá árinu 1970.
Ný plata frá Ríó tríó
NÝ hljómplata með Ríó tríóinu,
sem ber heitið „Á þjóðlegum nót-
um“, er væntanleg á markað
+
m WH '
Nýmessa í kirkju
Óháða safnaðarins
NÝMESSA verður í kirkju Óháða
safnaðarins sunnudaginn 15. nóv-
ember kl. 17.00. Yfirskrift
nýmessunnar er: „Börnin og krist-
indómurinn".
Bamakór Öldutúnsskóla í Hafnar-
firði kemur í heimsókn og syngur
undir stjóm Egils Rúnars Friðleifs-
sonar kennara. Ritningarlestrar og
bænir verða í umsjón fermingar-
bama og ungt fólk leikur á hljóðfæri.
Þekktir bama- og unglingasálmar
verða sungnir á milli messuliða og
þá taka allir undir, sem em í kirkj-
unni. Safnaðarprestur ávarpar
bömin og segir þeim yngstu sögur.
Sr. Þórsteinn Ragnarsson,
safnaðarprestur.
innan tíðar. Eins og nafnið ber
með sér sækir Ríó tríó efniviðinn
í þjóðlegan sjóð íslendinga og
syngur 15 þekktar þjóðvísur eða
ljóð ástsælla skálda við þjóðlög
og söngva virtra tónskálda.
Ríó tríó er elsta starfandi þjóð-
lagasveit landsins og er þetta 15.
plata tríósins, en sú fyrsta sem það
hljóðritar með þjóðlögum og ættjarð-
arsöngvum. Ríó tríó skipa þeir Agúst
Atlason, Helgi Pétursson og Ólafur
Þórðarson, en Gunnar Þórðarson
annast útsetningar þar sem lögin
eru færð í nútímalegt horf, „án þess
að missa sjónar á mikilvægi hins
upprunalega blæs söngvanna", að
því er segir í fréttatilkynningu frá
útgefendum, Steinum hf.
Ríó tríóið hefur gert víðreist, hald-
ið hundruði tónleika allt frá Denever
í Bandaríkjunum til Sopot í Ungveij-
alandi. Þeir hafa stýrt eigin sjón-
varpsþáttum hér heima, komið fram
í sjónvarpi á Norðurlöndum og í
Vesturheimi, troðið upp í útverpi og
haidið úti langlífustu skemmtidag-
skrá sem sett hefur verið upp í
veitingahúsi hér á landi.
Hljómplatan „Á þjóðlegum nót-
um“ kemur út í tvöföldu umslagi,
með skýringartextum á íslensku,
ensku og þýsku. Einnig fylgir texta-
blað með öllum vísunum sem tríóið
flytur. Gefin hefur verið út kasetta
með lögunum af plötunni og innan
tíðar er von á geisladiski með lögun-
(Úr fréttatilkynningu.)
Dr. Michael Voslensky:
Glasnost,
perestrojka,
nómenklatúra
DR. MICHAEL S. Voslensky,
hinn heimskunni fræðimaður
og rithöfundur, sem flýði árið
1972 frá Sovétríkjunum, þar
sem hann hafði gegnt háum
embættum, verður staddur hér
á landi um næstu helgi. Félögin
Varðberg og SVS (Samtök um
vestræna samvinnu) halda með
honum hádegisfund í Átthaga-
salnum á Hótel Sögu laugar-
daginn 14. nóvember, og
verður salurinn opnaður kl.
12.00.
Hin sovézka tilraun með stjóm-
un á manninum er sjötug um
þessar mundir, og leggja því
margir mát á hana í ljósi sögunn-
ar og núverandi ástands. Rúss-
nesku tískuorðin „glasnost" og
„perestrojka" eru notuð til þess
að skýra ýmsa þætti í stjómar-
stefnu Gorbatséffs, ríkisleiðtoga í
Sovétríkjunum. Dr. Voslensky,
sem hefur ritað bækur og greinar
um Sovétríkin og flutt marga fyr-
irlestra við fjölda háskóla, enda
gerþekkir hann þau sjálfur inn-
anfrá, mun íjalla um þessi tvö
hugtök í framsöguerindi sínu, sem
hann flytur á ensku. Hann tengir
þau þriðja hugtakinu, „nómenk-
Michael S. Voslensky
latúru" (sovéska hástéttakerfinu),
en þetta orð hefur orðið alþjóðlegt
eins og „gúlag“ eftir að bækur
Voslenskys og Solzjenitsíns um
þessi sovésku fyrirbæri komu út
og hlutu báðar heimsfrægð.
Fundurinn er opinn félags-
mönnum í SVS og Varðbergi, svo
og öllum gestum félagsmanna.
(Fréttatilkynning)
Afmælisráðstefna um vís-
indi í þágu atvinnuvega
RÁÐSTEFNA um rannsóknir í
þágu atvinnuveganna verður
haldin í tilefni 50 ára afmælis
Atvinnudeildar háskólans á Hót-
eli Loftleiðum á morgun föstu-
dag frá klukkan 9 til 18. Tiu
opinberar stofnanir sem eiga
rætur sinar að rekja til Atvinnu-
deildarinnar efna til þessarar
afmælisráðstefnu og er markmið
hennar að draga fram megin-
sjónarmið varðandi þróun þeirra
hagnýtu rannsókna sem mikil-
vægastar eru fyrir islenskt
atvinnulif.
ccMrafincciSTfa
Á ráðstefnunni verða leidd saman
sjónarmið rannsóknamanna, full-
trúa atvinnulífs og stjómmála-
manna. Rætt verður um meginlínur
í þróun rannsókna og hvemig efla
megi framlag rannsóknastofnana
atvinnuveganna til þjóðfélagsfram-
fara. Fjallað verður meðal annars
um öflun þekkingar og hvar íslend-
ingar standi þekkingarlega,
samskipti atvinnuvega og stofnana,
skipulag í fjármögnun rannsókna
og stefnumótun stjómvalda á sviði
hagnýtra rannsókna.
Birgir ísleifur Gunnarsson,
menntamálaráðherra, setur ráð-
stefnuna og Vilhjálmur Lúðvíksson
framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs
ríkisins flytur inngangserindi um
rannsóknir í þágu atvinnulífs 50
ára.
Sfðan verður hátíðarathöfn, þar
sem m.a. brautryðjendur verða
heiðraðir og aðhenni lokinni heQast
umræður í fimm deildum: Hugvit
og verkþekking, Auðlindir á landi,
orka, efiii og vatn, Auðlindir sjáv-
ar, Auðlindir á landi - gróður og
Mannvirkjagerð. Fimm erindi verða
flutt í hverri deild og eftir hádegi
umræður í starshópum. Síðdegis
verða svo fluttar sklýrslur starfs-
hópa og umræður um þær. Þegar
ályktanir hafa verið gerðar og nið-
urstöður fengnar verða ráðstefnu-
slit og um kvöldmatarleytið er
móttaka í boði menntamálaráð-
herra.
Atvinnudeild háskólans tók til
starfa 18. september árið 1937 og
skiptist hún upphaflega í fiskrann-
sókna-, landbúnaðar og iðnaðar-
deild, en síðar bættist bygginga-
rannsóknadeild við. Nú eiga tíu
opinberar stofnanir beint eða óbeint
rætur sínar að rekja til Atvinnu-
deildarinnar. Þær eru Hafrann-
sóknastofnun, Iðntæknistofnun
íslands, Orkustofnun, Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins,
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins,
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
Rannsóknaráð ríkisins, Skrifstofa
Rannsóknastofnana atvinnuveg-
anna, Tilraunastofa háskólans að
Keldum og Veiðimálastofnun.
URVALIÐ ER A EINUM STAÐ
Þar fást fjarstýrðir bilar af öllum gerðum og i mörgum verðflokkum.
Jeppar — Pickup — Buggi — Ralli — og kappakstursbllar, með til-
heyrandi mótorum og fjarstýringu.
Bilstjórar frá 3ja til 95 ára, jafnt próflausir og með próf aka bílum frá
Tómstundahúsinu. Póstsendum — Góð aðkeyrsla, næg bílastæði.
„Viljum ekki láta
skikka okkur norður“
— segir Örn Erlingsson um hugmyndir
ráðherra um rækjuveiðar loðnubáta
Keflavík.
„MÉR LÍST ekki allskostar á
þessa hugmynd sjávarútvegs-
ráðherra að senda loðnubáta
til veiða á úthafsrækju og taka
um leið af þeim þorskkvótann,"
sagði Örn Erlingsson skipstjóri
og útgerðarmaður í Keflavík.
Öm sagði að þessar hugmyndir
ráðherra hefðu verið kynntar hjá
Útvegsmannfélagi Suðumesja
fyrir nokkru og ekki fallið í góðan
jarðveg. „Þær gera ráð fyir að
loðnuflotinn fari norður til veiða
á úthafsrælqu og síðan eiga bát-
amir að landa aflanum á fyrir-
fram ákveðnum stað.“
„Aukin hlutdeild í þroskveiði-
kvótanum og rýmra val um hvað
við veiðum eru okkar óskir. Ég
tel ákaflega mikilvægt að okkur
verði gefínn kostur á að stunda
botnfískveiðar á okkar heimaslóð-
um, en ekki skikkaðir til að veiða
og landa aflanum í öðmm lands-
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Örn Erlingsson skipstjóri og
útgerðarmaður í Keflavik.
hlutum," sagði Öm ennfremur.
- BB