Morgunblaðið - 12.11.1987, Page 56

Morgunblaðið - 12.11.1987, Page 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987 Plötuútgáfa hórlend stendur með slíkum blóma að ekki er fyr- ir hvern sem er að ætla sór að fylgjast með öllu því sem gefið er út þessa dagana, hvað þá að gera því skil. Hór verður þó getið um þrjár nýútkomnar plötur, en tvær þeirra koma reyndar út í dag. Plöturnar sem út koma í dag eru plata Bjartmars Guðlaugsson- ar, [ fylgd með fullorðnum, og plata Rauðra flata, Minn stærsti draum- ur. Bjartmar hefur þegar gefið út tvær stórar plötur og eina minni. Fyrsta plata hans, Ef ég mætti ráða, kom út sumarið 1984, og náði miklum vinsældum. Önnur platan, Venjulegur maður, sem út kom ári síðar, náði ekki sömu hylli þó meira væri í hana lagt. Þriðja platan var svo fjögurra laga plata sem hann gerði með Pétri Krist- jánssyni, platan Þá sjaldan maður lyftir sér upp, sem út kom vorið 1986. Rauðir fletir hafa ekki gefið út nema eina plötu til þessa, tólf- tommuna Ljónskógar sem út kom fyrir jólin í fyrra. Það hefur þó bor- ið mikið á sveitinni, enda hafa Rauðir fletir verið með afbrigðum duglegir við að spila opinberlega fram til þess að vinna við plötuna hófst í júní. Platan Hremming Smartans kom út fyrir skemmstu, en á henni er tónlist úr leikritinu Hremming sem flutt er í Iðnó um þessar mundir. Tónlistina samdi Kjartan Ólafsson og textana Karl Ágúst Úlfsson, en Kjartan hefur áður starfað með sveitunum Pétur og úlfarnir og Smartbandið. Helmingur Model, Eiríkur, Gunnlaugur og Friðrik. Morgunbiaðið/Þorkell Popp/fönk/diskó Hljómsveitin Modei skaut upp kollinum í Söngvakeppni Sjón- varpsins vegna Eurovison-keppn- innar í vetur. Sveitina skipuðu þá þeir Friðrik Karlsson, Gunnlaugur Briem, Eiríkur Hauksson, Erna Þórarinsdóttir, Eva Albertsdóttir og Edda Borg Ólafsdóttir. Fæstir áttu líklega von á því að sveitin myndi lifa Euorvision-keppnina, en nýlega bárust af því spurnir að sveitin væri enn til og væri Síðan var bara að gera eitthvað nýtt Rætt við Bubba Morthens um plötuna Dögun Bubbi Morthens er við það að senda frá sór stóra plötu, plötu sem beðlð er með nokkurri eftirvæntingu, ekki síst í Ijósi þess að sfðasta plata Bubba, Frelsi til sölu, hefur selst í yfir sautján þúsund eintökum. Bubbi hefur ekki haft hátt um sfg á þessu árí þó hann hafi sent frá sór tólftommur með lögunum Skyttan og Skapar fegurðin hamingjuna? Rokksfðan tók Bubba tali f tilefni af útkomu nýju plötunnar sem hefur fengið heitið Dögun. Bubbi, nú er liðið ár sfðan óg um tíma samdi ég 7-8 texta og sat hór og tók viðtal við þig f tilefni útkomu Frelsi tii sölu. Hvað vilt þú segja um það ár sem iiðið er? Síöasta ár hefur verið eitt gjöf- ulasta ár sem ég hef átt í bransanum. Ég hafði miklar tekj- ur og þaö gerði það aö verkum að ég gat leyft mér aö spila lítið á árinu og gat því gefið mór tíma til að lesa Ijóðabækur, að lesa bækur eldri Ijóöskálda. Það hefur skilað sér á þessari plötu aö mínu mati; það hefur skilað sér í betri textum, betri vinnubrögðum við textagerð. Sem dæmi má nefna að ég byrjaði að gera textana sem á plötunni eru í maí og lauk viö þá í ágúst, í þann mund sem upptökur áttu að hefjast. Á þess- það ér nýtt fyrir mór að ég sé hálfan mánuð með hvern texta. Mór þykir vænst um það að hafa getið lagt þetta mikið í textana. Það hefur ekki freistað þín að gera Frelsi til sölu II til að moka meiri pening f kassann? Það hvarflaði ekki aö mér. Ég heföi getað gert það á sínum tíma að halda áfram að gera ís- bjarnarblús II og III o.s.frv. en það er ekki t mínu eðli. Frelsið var bara Frelsið og síðan var bara að gera eitthvað nýtt. Ég er þegar farinn að spá í gerð næstu plötu og hún verður allt öðruvísi en hinar plöturnar; allt önnur lína. Ég held að með því að gera alltaf eitthvað annað en Ljósmynd/BS það sem maður var að Ijúka við heldur maður sór ferskum. Ég lit á mig sem fistamann og þvi tel ég eðlilegt og sjálfgefið að reyna að fara á nýjar slóðir í hvert sinn. Langar þig aldrei til að hverfa aftur til rótanna, til hins hráa kraftmikla rokks sem þú söngst með Utangarðsmönnum? Jú, mig er farið aö langa til þess aftur, enda kannski komin tími til þess; kannski ekki endi- lega að gera eitthvað hrátt heldur aö gera eitthvað öðruvísi. Hljómur allur á plötunni er afbragð, en mór finnst sem á köflum só hljómurinn of góður, platan só of mikið unnin. Ert þú sammóla þvf? Nei, en að vísu má alltaf deila um það hversu langt menn eigi að ganga í því að ná fram full- komnum hljóm á plötu. Við þessa plötu eru notuð eins fá hljóðfæri og unnt var að komast af með. Tómas var í erfiðri stöðu, því hann vissi það að þaö myndu allir bera plötuna saman við Frelsi til sölu og því lagði hann sig allan fram. Ég er sáttur við það hve útkoman er góð, en ég held ég fari ekki lengra í þessa átt. Mér finnst óg vera búinn að ná því að gera þá fáguðu plötu sem mig hefur langað að gera frá því ég gaf út ísbjarnarblús; mér finnst óg sé búinn að stíga skrefið til fulls í þá átt. Nú get ég snúið mér að því að gera eitt- hvað grófara. Textarnir eru ádeilutextar að vanda, sumir heimsósómatext- ar. Ertu orðinn gamall maður Bubbi? Ég er sjö ára í tónlistinni. Það held ég sé hár aldur, en mér finnst óg ekki vera gamall. Ég finn að ég er eðlilega kominn með mikla reynslu og ég tel það mér til tekna. Maður verður alltaf að vera að hlusta og fylgjast með, annars ertu strax úr leik. Ég hef séð menn verða gamla á einu ári. Annað sem skiptir máli er að halda sínu striki sama hverjar undirtektirnar verða, að gera ekki kartöfluauglýsingar, að halda áfram. Sykurmolarnir eru gott dæmi um þá þrautseigju sem þarf. Á meðan menn halda höfði, er hægt að lifa í poppinu. Það er svo auðvelt að freistast til þess að fara að gera auglýs- ingar og þessháttar þegar ekki gengur að lifa á sköpuninni og þá er Ifka tíminn til að skapa far- inn. Það er hægt að lifa af öðru. Ef ég myndi lenda í þeirri stöðu að ég gæti ekki lifað af tónlist- inni færi ég á vertíö. að leggja sfðustu hönd á plötu sem koma ætti út fyrir jól. Útsendari Rokksíðunnar hitti höfuðpaura sveitarinnar, þá Frið- rik, Gunnlaug og Eirík í Stemmu á Seltjarnarnesi. Nú hóldu víst flestir að hljóm- sveitin væri ekki iengur til, hvað veldur endurreisninni? Það stóð aldrei til að hljómsveit- in starfaði áfram, en Steinar Berg hafði trú á henni og vildi að við gerðum aðra plötu. Því erum við hér. Hljómsveitin sem slík er ekki starfandi, fer ekki á sveitarböll og þessháttar; hún er starfandi núna til að gera þessa plötu og fylgir henni eftir þá tvo mánuði sem plöt- ur lifa yfirleitt. Framhaldið verða síðan viðtökurnar innan lands og utan að leiða í Ijós. Friðrik og Gulli eru auðvitað ekki hættir í Mezzo- forte þó Model sé til. Mezzoforte sendir síðan plötu frá sér eftir ára- mót. Hver semur tónlistina? Karlarnir semja alla tónlistina og Eiríkur alfa texta utan einn sem Eva semur. Síðan verður gamli textinn við Lífið er lag, en það verður á plötunni i nýrri útsetn- ingu. Og hvernig tónllst verður sfðan á plötunni? Þetta verður þrælvönduö popp- plata sem á verður popp/fönk/ diskó-tónlist. Bubbi og Dögun Eins og flestir vita er Frelsi til sölu, síðasta plata Bubba Morthens, orðin ein söluhæsta plata hórlendis; hefur selst í yfir sautján þúsund eintökum. Flestir hefðu Ifklegast freistast til að gera framhaldsplötu til að fylgja henni eftir, en styrkur Bubba er einmitt fólginn í þvf að gera ekki það sem búist er við af honum; að gera það sem hanrt langar en ekki það sem sölulögmál segja til um. Það er og einn helsti kostur Dögunar: Bubbi er að gera það sem hann langar og hann hefur sjaldan gert það betur. Að vísu eru ekki á plötunni rakin vin- sældalög eins og Serbinn og Augun mín, en heildarsvipurinn er sterkari en á Frelsi til sölu og lögin flest betri. Sjáfsagt eiga lög eins og Frelsarans slóð, Aldrei fór ég Suður, Manstu og Bak við veggi martraðar eftir að heyrast mikio í útvarpi næstu daga og vikur, en ekki síðri eru lög eins og Dögun og Bláu tónarnir, svo ekki sé getið um Menningu og leikna lagiö Pikk fyrir Geira sem lýkur plötunni á einkar skemmti- legan hátt. Ekki ber eins mikið á pólitík- inni í textum og oft áður, Bubbi gerir nú meira af því að segja sögur og draga upp myndir en prédika. Ekki má þó skilja það sem svo að það sé ekki broddur í mörgum textanna, gagnrýnin er yfirleitt skammt undan. A Dögun má greina tónlistar- áhrif úr ýmsum áttum, allt frá Pink Floyd til Sigfúsar Halldórs- sonar, sem sýnir að Bubbi er alltaf að leita fyrir sér; alltaf að bæta við sig og alltaf að bæta sig. Frelsi til sölu þótti með því besta sem hann hafði gert fram að því en Dögun er enn betri. Þeir sem fastir eru í pönkróman- tíkinni eiga sjálfsagt eftir að kvarta yfir því að platan er ekki hrárri en raun ber vitni og þeir mörgu sem búnir eru að dæma plötuna fyrirfram vita sjálfsagt hvað þeir ætla að segja. Bubbi sýnir þeim þó á Dögun að það er ekki hægt að setja hann í af- markaðan bás, hann gerir það sem honum sýnist og hann hefur merkilegan hæfileika til að koma á óvart. Dögun er besta plata Bubba hingað til, textalega og tónlistar- lega, og rís hátt yfir mestallt það sem verið er að gefa út á íslandi í dag. Enn plötur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.