Morgunblaðið - 12.11.1987, Side 64

Morgunblaðið - 12.11.1987, Side 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987 Kínverski kokkurinn mataruppskriftir. 1*1 k í fréttum Mig hefur alltaf langað til að koma fram í óperu, en þar sem enginn hefur boðið mér hlutverk var ekki um annað að ræða en að setja þetta upp sjálf- ur,“ sagði Laddi, sem efnir til Qölskylduskemmtunar í íslensku óperunni í Gamla bíói um næstu helgi. „Nei, svo að maður tali í alvöru þá er tilfellið að margir hafa hvatt mig til setja upp svona sýningu fyrir alla fjölskylduna og ég sló til. Þetta verða valin atriði úr sýningum sem ég hef verið með á Sögu á undanfömum árum og svo kannski eitthvað nýtt líka. Það voru margir sem ekki höfðu aðstöðu til að sjá þetta á Sögu, til dæmis ungling- ar og eldra fólk og ég vil gefa þessu fólki kost á að sjá þessi atriði. Ég valdi það úr sem ég taldi best heppnað, tók út mest af kláminu þannig að þetta ætti að henta vel fyrir alla fjölskyld- una.“ Á skemmtuninni í Gamla bíói koma fram margar þjóðfrægar persónur sem Laddi hefur gert ódauðlegar á undanfömum árum. Má þar nefna Skúla raf- virkja, Eirík Fjalar, Olla úr Heilsubælinu, Reyni aumingja, Móa gamla, eldri bróður Þórðar húsvarðar, sem mun að sjálf- sögðu taka lag sitt „Austur- stræti", Ómar tannlækni úr Litlu hryllingsbúðinni, kínverska kokkinn, fyllibyttuna og fleiri auk þess sem Bjami Fel verður þama með íþróttaþátt. Laddi var spurður hvaða persónu hann teldi njóta mestra vinsælda í dag: „Það er erfitt fyrir mig að dæma um það. Skúli rafvirki hefur verið sterkur að undan- fömu og Olli úr Heilsubælinu virðist vera að vinna á. Upphaf- lega ætlaði ég ekki að hafa hann með í þessari sýningu en svo var mér bent á að ég yrði bara að gera það vegna vinsælda hans. Þó hann gerði ekki annað en að rúlla einu sinni yfír sviðið í hjóla- stólnum og segja „oj, oj oj“. Aðspurður um hvort einhveij- Reynir aumingi rekur raunasögu «tna Skúli hefur verið sterkur að undanförnu ar fyrirmyndir væru að þessum persónum sagði Laddi að svo væri ekki. „Alla vega ekki með- vitað. Auðvitað hittir maður alls konar fólk á lífsleiðinni og verður fyrir áhrifum sem síðar koma kannski fram í þessum persón- um. En beinar fyrirmyndir em ekki til svo að ég viti. Ef við tökum Þórð húsvörð sem dæmi, þá er hann blanda úr mörgum. Ég uppgötvaði það löngu eftir að hann varð til að sumt í hans fari er komið frá afa mínum, til dæmis kreppta höndin og axla- Skúll rafvirki á góðri stund ásamt Halla bróður og Eggert Þorleifssyni. Eiríkur Fjalar er enn að streða við að „slá í gegn“. Kannski tekst honum það á sviðinu I íslensku óperunni. hnykkurinn, sem raunar er ættgengur. Önnur einkenni Þórðar em kominn frá gömlum húsverði í bamaskóla sem jafn- framt var smíðakennari. Þaðan er peysan komin sem Þórður er alltaf í og er alltaf full af sagi og ryki. En talandi um Þórð þá er ég að hugsa um að sleppa honum í þessari sýningu. Ég er búinn að nota hann svo mikið og er sjálfur orðinn hálf þreyttur á honum. Hann er orðinn svo skapstirður upp á síðkastið, allt- af með eitthvað röfl og skamm- ir.“ Annars vil ég taka það fram að ég verð ekki einn á þessari sýningu. Halli bróðir verður þama og svo Edda Björgvins og Eggert Þorleifs með fullt af skemmtilegum persónum sem þau hafa skapað og svo dansar- amir Guðrún og Gitta. Laddi sagði að aðeins yrði um þessa einu helgi að ræða fyrir pessa skemmtun. „Ég er að fara af stað með nýja skemmtidag- skrá fyrir árshátíðir og einka- samkvæmi ásamt Eddu Björgvins og Júlla Bijáns. Svo kemur út ný plata fyrir jólin þannig að það er í nógu að snú- ast. Platan verður svolítið „sjúkleg" enda verður Saxi læknir þar mjög áberandi ásamt auðvitað Eiríki Fjalar, Skúla raf- virkja, Olla og Hallgrími úr Heilsubælinu, Móa gamla, sem lætur ekki deigan síga þrátt fyr- ir háan aldur, og svo koma þama fram nýjar persónur, sem verður spennandi að sjá hvemig spjara sig á þessum markaði." Fel með léttan íþróttaþátt Bianu LADDI og Olli virðist vera að vinna á - segir Laddi sem efnir til fjölskylduskemmtunar í Islensku óperunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.