Morgunblaðið - 12.11.1987, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
75
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
FH sigraði í fyrsta taugastríðinu
„STEFNUM við á íslandsmeist-
aratitilinn? Það hef ég ekki
hugmynd um, en hvernig er
staðan?" sagði Þorgils Ottar,
fyrirliði FH, eftir sigurinn gegn
Víkingum í Höllinni i gœr-
kvöldi. Rúmlega 2.000 áhorf-
endur sáu hörku spennandi og
skemmtilegan leik, þar sem
Víkingur - FH
24 : 27
Laugardalshöll, íslandsmótið í hand-
knattleik - 1. deild, miðvikduaginn 11.
nóvember 1987.
Leikurinn i tölum: 1:1, 4:2, 6:8, 7:9,
11:12, 13:14, 15:14, 15:15, 17:17,
17:20, 20:20, 23:23, 23:27, 24:27.
Mörk Víkings: Bjarki Sigurðsson 6,
Guðmundur Guðmundsson 5, Karl Þrá-
insson 5/2, Sigurður Gunnarsson 3/1,
Hilmar Sigurgíslason 2, Siggeir Magn-
ússon 2 og Einar Jóhannesson 1.
Varin skot: Kristján Sigmundsson 3,
Sigurður Jensson 13/1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk FH: Héðinn Gilsson 7, Þorgils
Óttar Mathiesen 5, Óskar Ármannsson
5/1, Óskar Helgason 4, Pétur Petersen
4, Gunnar Beinteinsson og Guðrjón
Árnason eitt mark hvor.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson
12, Magnús Ámason 2/2.
Utan vallar: 12 mínútur.
Dómarar: Rögnvaldur Erlingsson og
Gunnar Kjartansson, áttu frekar slak-
an dag í n\jög erfíðum leik.
Hafnfirðingarnir skutust á
toppinn á ný og má segja að
þeir hafi sigrað í fyrsta tauga-
stríði toppliðanna í vetur.
Fyrri hálfleikur var köflóttur.
Þegar staðan var 4:3 fyrir
Víkinga var tveimur þeirra vikið
af velli, en hinir gerðu sér lítið fyr-
ir og komust í 6:3.
Skúli Unnar Þá var aftur jafnt í
Sveinsson liðunum, en FH-
skrifar ingar fóru við það í
gang og skoruðu
næstu fimm mörk. Síðan komu fjög-
ur frá Víkingum, en eftir það var
jafnræði með liðunum út hálfleik-
inn.
Seinni hálfleikur var jafn lengst af
og liðin skiptust á að skora nema
um miðbikið, er FH náði þriggja
marka forystu, 20:17. Þegar staðan
var 22:22 var tveimur FH-ingum
vikið af velli og Víkingar skoruðu
eitt mark. Þannig var staðan lengi,
sem var óvenjulegt í þessum mikla
sóknarleik. Taugastríðið var gífur-
legt, FH hafði betur, jafnaði og
skoraði síðan fjögur mörk, en
Víkingur átti síðasta orðið. „Okkur
brást úthaldið í lokin. Við höfum
leikið tvo leiki framyfir FH á
skömmum tíma og þreytan kom í
ljós í lokin, við gerðum dæmigerð
þreytumistök," sagði Guðmundur
Morgunblaðið/Einar Falur
Qunnar Bolntelnsson sést hér fá sendingu inn á línu og síðan sendi hann
knöttinn í netið þjá Víkingum. Hilmar Sigurgfslason kom engum vömum við.
Guðmundsson, fyrirliði Víkings.
„Ég er bara ánægður — auðvitað
er maður ánægður eftir svona leik.
Hann var mjög erfiður, en góð
markvarsla og sóknarleikur skópu
sigurinn. Vömin er okkar höfuð-
verkur og þar skortir einbeitning-
una,“ sagði Þorgils Óttar
Mathiesen, fyririiði FH.
Kristján Sigmundsson fékk boltann
í andlitið í byijun og fór af velli,
en Sigurður Jensson tók við mar-
kvörslunni hjá Víkingi og var besu
maður liðsins. Þá var Bjarki góður,
Guðmundur stóð fyrir sínu, en aðr-
ir vom daprir, einkum Karl, sem
var ólíkur sjálfum sér.
Hjá FH blómstraði Héðinn í seinni
hálfleik og skoraði þá fímm mörk
þrátt fyrir að vera í strangri gæslu
lengst af. Bergsveinn varði mjög
vel, Þorgils var traustur að venju,
en sem fyrr var það liðsheildin sem
var sterkasta vopnið.
Dómaramir vom ekki öfundsverðir
af hlutverki sínu. Mikill hraði og
harka settu svip á leikinn, en dóriPT'
aramir hefðu mátt dæma meira á
brot, en minna á tuð, sem var eðli-
legt í hita leiksins.
Staðan
Fj. leikja U J T Mörk Stig
FH 8 7 1 0 236: 174 15
Valur 8 7 1 0 172: 121 15
UBK 8 5 0 3 164: 165 10
Stjarnan 8 4 1 3 181: 192 9
Víkingur 8 4 0 4 196: 186 8
ÍR 8 3 2 3 167: 179 8
KA 8 2 2 4 154: 168 6
KR 8 3 0 5 168: 183 6
Fram 8 1 1 6 177: 202 3
Þór 8 0 0 8 156: 201 0
Áttum ekki skil-
ið að tá tvö stig
- sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari UBK
Ömggt hjá KR
Við áttum ekki skilið að fá tvö
stig eins og við spiluðum í
kvöld. Það er aldrei gott að vera
búinn að vinna leiki fyrirfram, en
■■■ við látum þetta okk-
Skapti ur að kenningu
Hallgrímsson verða,“ sagði Geir
skrífar Hallsteinsson, þjálf-
ari Breiðabliks, eftir
að lið hans hafði unnið Þórsara í
gærkvöldi. Nokkuð er til í orðurn
Geirs. Þórsarar vom lengst af ekki
síðri, jafnvel betri, og ekki munaði
miklu að þeir nældu í sitt fyrsta
stig í deildinni. En þeir spmngu á
limminu síðustu fimm mlnútumar.
„Þetta var grátlegt. Við vomm ekki
góðir, en mér fannst Blikamir lé-
legri. Við stjómuðum leiknum, en
reynsluleysi hafði áhrif í lokin þeg-
ar á reyndi," sagði Erlendur
Hermannsson, Þórsþjálfari.
Leikurinn var ekki sérlega góður,
en þó brá fyrir góðum köflum hjá
báðum liðum. Markverðimir vörðu
oft vel, vamimar vom misjafnar,
en sóknarleikurinn oft ótrúlega
bragðdaufur. Hans Guðmundsson
er meiddur og söknuðu Blikar hans
greinilega í sókninni. Þórsarar vom
klaufar að ná ekki í a.m.k. eitt stig.
Þama fengu þeir gullið tækifæri tii
þess. En liðið er greinilega á réttri
leið.
UBK - Þór
21 : 19
íþróttahúsið Digranes, fslandsmótið (
handknattleik — 1. deild, miðvikudag-
inn 11. nóvember 1987.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 3:S, 5:3,
5:5, 5:6, 7:8, 8:9, 11:9, 13:12, 14:14,
15:15, 17:15, 18:18, 20:18, 21:18,
21:19.
M8rk UBK: Bjöm Jónsson 6/2, Aðal-
steinn Jónsson 4, Jón Þórir Jónsson
3, Ólafur Bjömsson 3, Kristján Halld-
órsson 1, Magnús Magnússon 1, Svafar
Magnússon 1, Elvar Erlingsson 1, Paul
Dempsey, Andrés Magnússon 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson
14/3.
Utan vallar: 6 mtnútur.
Mörk Þórs: Sigurður Pálsson 6/2,
Ólafur Hilmarsson 4, Kristinn Hreins-
son 3, Ami Stefánsson 3, Sigurpáll
Árai Aðalsteinsson 2/2, Gunnar M.
Gunnarsson 1.
Varin skot: Axel Stefánsson 13/2.
Utan vallar: 2 mlnútur.
Dómarar: Guðmundur Kolbeinsson og
Þorgeir Pálsson, stóðu sig nokkuð vel.
Rautt á loft
í Digranesi
að var heldur betur heitt í
kolunum 5 Digranesi í gær-
kvöldi eftir að leik UBK og Þórs
lauk. Á síðustu sekúndunni ætl-
aði Magnús Bliki Magnússon að
henda boltanum fram völlinn,
en Ámi Stefánsson sló á hönd
hans. í sömu andrá var blásið
til leiksloka. Þá gerði Magnús
sér lítið fynr og grýtti boltanum
af alefli [ Áma. Því næst hrinti
Magnús Áma harkalega í gólfið.
Endaði samkoman þannig að
báðir fengu rautt spjald, Magn-
ús fyrir framkomu sína við Áma
en Þórsarinn fyrir ljótan munn-
söfnuð í garð dómara. Málið
verður sent aganefnd HSÍ til
sérstakrar umfjöllunar.
Markvörður
ÍR meiddist
Hrafn Marteinsson, markvörður
ÍR-inga, varð fyrir því óhappi
í upphitun — fyrir leik ÍR gegn KÁ,
að meiðast. Hrafn fékk knöttinn
beint framan á fingur, sem fór úr
liði.
„BERJIST, berjist," öskraði Jó-
hannes Stefánsson, hinn
harðskeytti línumaður KR, þeg-
ar fimm mínútur voru til leiks-
loka og KR fimm mörkum yfir
gegn Fram. KR-ingar héldu ein-
beitingunni til loka og fengu tvö
dýrmœt stig.
Fram - KR
19 : 21
Laugardalshöll, fslandsmótið I
handknattlelk — 1. delld, mlðvlku-
daglnn 11. nóvember 1987.
Leikurinn í tölum: 1:1, 2:2, 3:3, 3:6,
4:8, 6:9, 8:11, 9:12, 11:13, 11:15,
16:20, 19:20, 19:21.
Mörk Fram: Atli Hilmarsson 4/1,
Hannes Leifsson 3/1, Júlías Gunnars-
son 3, Pálmi Jónsson 3, Birgir Sigurðs-
son 2, Egill Jóhannesson 2/2, Hermann
Bjömsson 1, Sigurður Rúnarsson 1.
Varin skot: Guðmundur A. Jónsson
8/1, Jens Einarsson 4.
Utan vallar: 2 mlnútur.
Mörk KR: Konráð Olavson 8/2, Stefán
Kristjánsson 4, Siguröur Sveinsson 3,
Guðmundur Albertsson 3, Jóhannes
Stefánsson 2/2, Guðmundur Pálmason
1.
Varin skot: Glsli Felix Bjamason 12.
Utan vallar: 8 mlnútur.
Dómarar: Stefán Amaldsson og Ólaf-
ur Haraldsson vora óhlutdrœgir en
slakir.
Framarar söxuðu samt á for-
skotið og þegar 135 sekúndur
voru til leiksloka var munurinn að- ■*"
eins eitt mark, en KR-ingar voru í
HMBnm sókn til loka, léku
SkúliUnnar upp á aukaköst og
Sveinsson skoruðu undir lokin.
skrifar Framarar stilltu í
fyrsta sinn upp sínu
sterkasta liði, en leikurinn gekk
ekki upp hjá þeim.
KR-ingar misnotuðu fjögur vítaskot
í fyrri hálfleik og Framarar tvö, en
auk þess áttu þeir §ögur stangar-
skot fyrstu 20 mínútumar. En
sóknarleikur Framara var aum-
ingjalegur, þar sem sumir ætluðu
að gera allt upp á eigin spýtur í
stað þess að leika saman. Engiiyw.
stóð upp úr hjá Fram, en Guðmund-
ur varði ágætlega í lokin.
KR-ingar léku skynsamlega og voru
yfirleitt þremur til fjórum mörkum
yfír, en reyndu að halda boltanum
í lokin. Hefðu þeir leikið sinn bolta
til leiksloka hefðu þeir sennilega
sigrað með meiri mun, en sigurinn
var sanngjam. Gísli Felix varði vel,
Konráð var stórhættulegur og ör-
uggur í hominu og Stefán Kristj-
ánsson var góður nema í vítaköst-
unum — misnotaði þrjú víti.
Morgunblaðið/Guðmundur Svansson
FrMJón Jönsson, fyrirliði KA,
reynir hér að bijótast I gegnum sterka
vöm ÍR-inga.
Vigfus hetja ÍR-inga
- varði víti á síðustu sekúndunni og tryggði annað stigð
ÞAÐ er alltaf gott að fara
með eitt stig frá Akureyri
en miðað við gang seinni hálfleiks
höfðum við alla burði tii að hafa
þau tvö, en það gekk
ekki upp. Okkur
vantaði herslumun-
inn til að knýja ffam
sigur,“ sagði Guð-
mundur Þórðarson, þjáflari og
leikmaður ÍR, eftir leikinn.
Það má með sanni segja að Vigfús
Þorsteinsson, varamarkvörður ÍR,
hafi verið hetja liðsins þegar hann
varði vítakast á síðustu sekúndu
Frá
Reyni
Eirikssyni
áAkureyri
leiksins. Vítakst frá Erlingi Kristj-
ánssyni og tryggði þar með annað
stigið í viðureigninni við KA. Vigfús
varði mjög vel í leiknum og hvað
eftir annað á mikilvægum aukna-
blikum.
Leikurinn fór rólega af stað eins
og hann var í heild sinni og jafnt
á með liðunum þar til undir lok
hálfleiksins er KA komst þijú mörk
yfir. KA-menn héldu forystu sinni
í upphafi síðari hálfleiks en um
miðjan seinni hálfleik fór leikur liðs-
ins í baklás. ÍR-ingar náðu þá að
jafna og komast eitt mark yfír,
16:15. En KA náði að jafna og
komast aftur yfír en ÍR-ingar áttu
síðast orðið í leiknum.
Það var ekki burðugur handbolti
sem var sýndur í leiknum og marg-
ar klaufavillur að beggja hálfu.
Bjarni Bessason og Frosti voru
mjög atkvæðamiklir auk markvarð-
arins og gekk KA-mönnum illa að
hemja Bjama þótt þeir hafí tekið
hann úr umferð í seinni hálfleik.
Lið KA átti ekki góðan dag og
gekk illa að bijóta sterka vöm ÍR-
inga á bak aftur.
KA - IR
17 : 17
íþróttahöllin á Akureyri, íslandsmótið
I handknattleik - 1. deild, miðvik-
duaginn 11. nóvember 1987.
Leikurinn i tölum: 0:2, 2:8, 4:4, 7:5,
8:6, 9:7, 11:8, 12:10, 13:12, 15:12,
15:15, 16:16, 17:17.
Mörk KA: Guðmundur Guðmundsson
4, Eriingur Kristjánsson 3/1, Eggert
Ttyggvason 3/2, Axel Bjömsson 2,
Pétur Bjamason 2, Hafþór Heimisson
1, Friðjón Jónsson 1 og Svanur Val-
geirason 1.
Varin skofc Bryryar Kvaran 9.
Mörk ÍR: Frosti Guðlaugsson 6, Bjami
Bessason 6, Finnur Jóhannesson 2,
Magnús Ólafsson 1, Ólafur Gylfason
1, Guðmundur Þórðarson 1.
Varin skofc Vigfús Þorsteinsson 16/2.
Dómaran Ámi Sverrisson og Aðal-
steinn Ömólfsson og dœmdu ágœUega.