Morgunblaðið - 12.11.1987, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 12.11.1987, Qupperneq 76
^/\uglýsinga- síminn er 2 24 80 JltrogiiiiMftfeifr Framtíð ER VIÐ SKEIFUNA anaa $SUZUKI FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. Borgarráð: Átak gegn erlend- um vörumerkj- um og vígorðum JÓN Signrðsson viðskiptaráð- herra hefur leitað eftir aðstoð borgarráðs við að framfylgja lagaákvæðum um íslensk heiti fyrirtækja svo islensk tunga Vigri í Bremerhaven: 77 krónur fyrirkarfa TOGARINN Vigri RE fékk mjög hátt verð fyrir karfa í Bremerhaven i gær, mest 77 krónur, en að meðatali yfir 70 krón- ur. Verð á ufsa var hins vegar lágt, um 40 krónur á kíló. Alls seldi Vigri í gær um 174 tonn að verð- mæti 11,3 milljónir króna, meðalverð 65 krónur. Vigri selur um 50 tonn til viðbótar I dag. Verð á karfa hefur því náð hámarki að nýju eftir tals- verða lægð síðustu vikur, er það féll niður í um 40 krón- ur. Mikið framboð af smáum ufsa hefur hins vegar valdið verðlækkun á honum. Verð var heldur í lægri kantinum í Bretlandi í gær. Sindri VE seldi 98 lestir í Grimsby. Heildarverð var 6 milljónir króna, meðalverð 61,10. Heiðrún ÍS seldi 87 lestir að verðmæti 5,1 millj- ón króna, meðalverð 58,96. verði ekki undir í samkeppni við vörumerki og viðskiptavíg- orð á erlendum tungumálum. í bréfí ráðherra til borgarráðs segir: „Ég hef beint því til skrá- setjara fyrirtækja, að þeir geri það sem í þeirra valdi stendur til þess að lagaákvæðunum um íslensk heiti fyrirtælqa verði framfylgt, en mér er Ijóst að eigi verður spomað gegn þeirri „mengun" tungunnar er erlend- um vörumerkjum og vígorðum fylgir nema til komi samstillt átak ríkis og sveitarfélaga. Ég leyfí mér að hreyfa þeirri hugmynd, að byggingaryfírvöld beiti ákvæðum byggingarreglu- gerðar þannig, að ekki sé leyfð uppsetning auglýsingaskilta á erlendum málum utanhúss á fyr- irtækjum nema hinu íslenska heiti fyrirtækisins, vöru eða þjón- ustu, sem á boðstólum er, sé þar gert jafnhátt undir höfði. Sams konar tilmælum verður komið á framfæri við aðrar sveitarstjómir landsins." Reuter Lokakeppnin í kvöld LOKAKEPPNIN um titilinn Ungfrú Heimur fer fram í London í kvöld. Anna Margrét Jónsdóttir, fegurðardrottning íslands, er meðal keppenda og hefur henni verið spáð einu af efstu sætunum. Þessi mynd var tekin í gær af Önnu Margréti við draumabílinn ásamt Sebnem Dinogor frá Tyrklandi. Pejisi Cola sýmráhuga á Sóldósum PEPSI COLA-fyrirtækið hefur sýnt áhuga á að kaupa 2.500 plastdósir í tilrauna- skyni af Sól hf., sem er eini framleiðandi dósanna. Dós- irnar hafa vakið athygli víða um heim, að sögn Davíðs Schevig forstjóra Sólar hf., og er fyrirhugað að flytja út vatn í dósunum til Eng- lands á næstunni. Davíð sagði að samið hafí verið við fyrirtæki í Martiniq í Vestur- Indíum um tæknilega aðstoð við uppsetningu á dósaverksmiðju þar. Þá eru væntanlegir menn frá Oman og Mexíkó í sömu erindum en hugmyndir em uppi um að setja upp verksmiðjur í þessum löndum. Skip fengu brot á sig Sigiufirði. TVÓ loðnuskip fengu á sig brot á miðvikudag og héldu til hafnar. Ekki er ljóst hve miklar skemmd- ir hafa orðið á skipunum Skarðsvík SH og Magnúsi NK, en engin slys munu hafa orðið á mönnum. Skarðsvík fór til Siglufjarðar og Magnús í Krossanes. Fréttaritari Alþingi: Meirihluti gegn svæða- skiptingu í sóknarmarki MEIRIHLUTI alþingismanna, alls 32, hefur sent sjávarútvegs- ráðherra bréf og farið fram á það, að í lögum um stjómun fisk- veiða verði jafnaður sá munur, sem er á þorskaflahámarki sókn- armarkstogara milli landshluta. Þorskaflahámark sóknarmarks- togara á norðursvæði er nú 1.750 tonn en 1.200 á suðursvæði og Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson Eins og í þá „gömlu góðu daga “ RÚMLEGA 2.000 manns fylgdust með leik Vfkings og j ur hafa verið á deildarleik hér á landi. „Þetta er eins og FH í 1. deildinni í handknattleik í Laugardalshöll í I í þá „gömlu góðu daga,“ eins og einn áhorfenda í gærkvöldi. Ár og dagar eru slðan svo margir áhorfend- I Höllinni orðaði það í gærkvöldi. Sjá íþróttir á bls. 72-75. er ráð fyrir því gert i frumvarps- drögunum að svo verði áfram. Jafnframt er ráð fyrir því gert að með aflahámarki á karfa sóknarmarkstogara, hærra fyrir sunnan en norðan, verði þessi munur jafnaður að mestu, talið í þorskígildum. Sjávarútvegsráð- herra er erlendis og hefur því ekki kynnt sér innihald bréfsins, en ljóst er að það hlýtur að setja strik í reikninginn, að minnsta kosti hvað þetta atriði fiskveiði- stjórnunarinnar varðar. Ellert Eiríksson, varamaður Matthíasar Á. Mathiesen á Alþingi og sveitarstjóri í Garði, er einn þeirra, sem undirrita bréfið. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið, að þetta væri gamalt baráttumál Suðumesjamanna, sem á undan- fömum árum hefðu orðið að sjá á bak mörgum togurum úr kjördæm- inu. Þessi munur milli svaeða hefði kannski verið eðlilegur á sínum tíma, en væri það ekki lengur. Þessi munur þýddi að skip á suðursvæð- inu væru ódýrari en fyrir norðan, þar sem þeim fylgdi ekki jafnmikill afli. Þegar þau væru svo keypt milli svæða fengju þau sjálfkrafa 550 tonn af þorski, sem væri 16 til 17 milljóna króna virði. Þannig gæti þetta ekki gengið áfram. Þingmennimir 32 em úr öllum flokkum og koma úr Vesturlands- kjördæmi, Reykjavík, Reykjanes- kjördæmi og af Suðurlandi. Þeir telja að fella beri niður muninn á þorskaflahámarkinu og telja ekki að sóknarmark á karfa dugi til að jafna muninn. Munurinn á þorsk- aflahámarkinu er byggður á afla- reynslu viðmiðunaráranna áður en kvótinn var settur á. Þá var að meðaltali meiri munur en þetta á þorskafla togara eftir landssvæð- um, en hann hefur verið minnkaður undanfarin misseri. Talsvert hefur verið deilt umþessa skiptingu und- anfarin ár. A aðalfundi LIÚ á síðasta ári kom fram tillaga þess efnis að þessi munur yrði afnum- inn, en hún var felld eftir talsverðar deilur. í fyrirliggjandi tillögum sjávarút- vegsráðuneytisins um breytingar á sóknarmarki er gert ráð fyrir því að karfaafli sóknarmarksskipa verði hámarkaður. Togarar á norð- ursvæði fái mest 600 tonn en togarar á suðursvæði 1.400. Með þessu telur ráðuneytið að aðstöðu- munur milli svæða sé að mestu jafnaður. Gunnjón til Kópavogs BARÐINN hf. í Kópavogi hefur keypt Gunnjón GK 506. Gunnjón er rækjuskip og var í eigu Gauksstaða hf. í Garði. Hann er 271 brúttólest að stærð byggður í Njarðvík árið 1982.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.