Morgunblaðið - 02.12.1987, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987
Strákarnir ganga hér brosleitir inn á leikvanginn f Amsterdam. Myndina tók Garðar
Vigfússon.
Hér er 17 manna hópurinn er keppti í október sl. við sterkustu jafnaldara sína
viðsvegar að úr Evrópu.
Nóg af efnilegu
frj álsíþróttafólki
Spjallað við Garðar Vigfússon
Gaulverjabœ.
UPPGANGUR hefur verið f
fijálsum fþróttum þjá Héraðsam-
bandinu Skarphéðni undanfarin
ár. Nærtækasta sönnunin er
líklega frammistaða liðsins f
síðustu Bikarkeppni. Aðeins
munaði þar einu stigi að HSK
velti ÍR-ingnm úr sessi. En að
baki slíkum árangri standa fleiri
en afreksfólkið sjálft, þó það sé
skiljanlega mest f sviðsljósinu.
- Einn af mörgum bak við árang-
urinn er Garðar Vigfússon
búsettur að Húsatóftum á Skeið-
um. Hann hefur um áratugaskeið
verið starfsmaður á fijáls-
íþróttamótum hjá HSK. Einnig
sést hann tftt á stórmótum f
Reykjavík og þá yfirleitt að
störfum kringum kastarana.
Stöðugur áhugi hans hefur virk-
að hvetjandi á marga. Garðar
hlaut i haust gullmerki FRÍ fyrir
vel unnin störf.
Fréttaritari tók Garðar tali um
fijálsar íþróttir og för hans með
unglingalandsliði drengja 19 ára og
yngri til Hollands fyrir stuttu.
Garðar sagði að íþróttalíf hefði
verið allmikið á Skeiðunum sín upp-
vaxtarár. Fimleikar voru talsvert
stundaðir en áhugi hans hefði frá
byijun beinst að frjálsum. Sjálfur
stundaði hann köstin en varð að
hætta fljótlega vegna lömunar.
Einn af sonum Garðars, Unnar er
í hópi okkar fjölhæfustu kastara
og hefur náð mjög góðum árangri
í spjótkasti.
Vegna hagstæðra innkaupa getum við boðið REVELL-módel á stórlækkuðu
verði. Takmarkað magn. Póstsendum. „ ,
M Verð aður kr.
Verð nú kr.
Chevrolet Scottsdale m/mótorhjóli 2.630.00 1.315.00
Willys Jeep (Golden Eagle) 2.630.00 1.315.00
Cutty Sark 1.735.00 1.310.00
Garðar Vigfússon
Morgunblaðið/Valdimar Guðjónsson
Umrætt mót var Evrópumeist-
aramót félagsliða 19 ára og yngri.
Það fór fram í Amsterdam 3. októ-
ber sl. Tvö_ landslið tóku þátt í
mótinu, lið íslands og Luxemborg.
Hitt voru 10 öflug félagslið víðsveg-
ar að úr Evrópu.
„Þetta var all sterkt mót og mér
fundust fjölmiðlar hér heima gera
því frekar takmörkuð skil," sagði
Garðar í upphafí. „Það sást á bestu
afrekum keppenda fyrir mót að
margir áttu árangra yfír gildandi
fslandsmetum, þannig að ekki var
keppt við neina aukvisa í mörgum
greinum. Til dæmis átti sleggju-
kastarinn, Grikki, best 68 metra
rúma. Langstökkvarinn, Breti, 7.87
m. Hástökkvari átti 2.16 m. Allt
eru þetta árangrar yfír íslandsmet-
um. Við tókum nú þátt í þessu móti
í annað sinn og síðast lentum við
í neðsta sæti. Nú vorum við áttundu
af tólf iiðum, þannig að um framför
er að ræða. Margir strákanna hafa
líka aldur til að keppa aftur á þessu
móti. Bestum árangri náði Bjarki
Viðarsson HSK, en hann hlaut silf-
ur í kúluvarpi, kastaði 13.32.
Vantaði aðeins nokkra sentimetra
í gullið. Langhlaupurunum gekk
mjög vel og varð Frímann Hreins-
son þriðji í 3000 m hlaupi á 8:41,16
og Steinn Jóhannsson FH einnig
þriðji í 800 m hlaupi á 1:56,00.
Einnig vantaði Finnboga Gylfason
aðeins sekúndubrot í að ná þriðja
sæti í 1500 m. Það er orðið langt
síðan við höfum átt jafn efnilega
langhlaupara.
Garðar sagði strákana annars
hafa staðið sig mjög vel og að það
yrði eftirsjá ef þessir strákar héldu
ekki áfram. Hann kvað alltof marga
efnilega ftjálsíþróttamenn hætta of
snemma, eða snúa sér að öðrum
íþróttagreinum. Honum fínnst fjöl-
miðlar sýna frjálsum íþróttum of
lítinn áhuga og einnig þeir sem
ráða fjármagni. „Þegar farið er í
svona ferðir brennur manni í augum
að sjá aðstöðumuninn. Jafnvel 13
þúsund manna smábæir í Norður
Noregi hafa betri velli en sjást hér.
Nýjasta dæmið er líklega Lottóið.
Loksins þegar íþróttafélög sáu fram
á einhverja peninga til uppbygging-
arstarfs þá sá hið opinbera sér leik
á borði að rýra framlag sitt til
Ungmennafélaganna um 67% og
litlu minna til ISÍ. Stjómvöld geta
tæpast talist hliðholl æskunni þegar
peningar til heilbrigðs íþróttastarfs
eru þannig skertir, og á sama tíma
láta sumir alþingismenn sér sæma
að gera tilraun til að koma einum
vímuefnagjafanum enn í umferð. Á
ég þar við blessaðan bjórinn," sagði
Garðar í lokin.
Valdim. G.
Bók eftir Ludlum
BÓKAÚTGÁFAN Setberg hefur
gefið út bók eftir Robert Ludlum
sem heitir Hart á móti hörðu.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„í næturklúbbi í Hong Kong hafði
verið skrifað með fírigri á blóðstork-
ið gólfíð. Þetta var nafn manns sem
heimurinn vildi að væri grafínn og
gleymdur: Jason Boume.
Washington, London, Peking,
skelfingin fer eins og eldur í sinu
um heiminn. Maðurinn sem stendur
næst sjálfum forseta Alþýðulýð-
veldisins er myrtur af manni sem
áður hafði skilið eftir sig blóðuga
hryðjuverkaslóð um víða veröld.
Þjóðarleiðtogar og undirheima-
furstar — allir spyija sömu
kvíðvænlegu spumingarinnar: Er
Boume aftur kominn á kreik? En
bandarískir embættismenn sitja
uppi með uggvekjandi vitneskju:
Jason Boume er ekki til og hefur
aldrei verið. Nafnið var dulnefni
David Webb á meðan hann var að
elta uppi Carlos, hinn alræmda
MEISTARISPENNUSÖGUNNAR
HARTÁMÓTI
hryðjuverkamann. Nú hefur annar
endurvakið nafnið. Og verði sá
maður ekki stöðvaður vofír yfír ógn
og upplausn."