Morgunblaðið - 02.12.1987, Qupperneq 80
| ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA |
iGuðjónÓ.hf.
1 / 91-27233 l
trjpttMnMi
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Morgunblaðið/RAX
Guðmundur Magnússon, bóndi í Káraneskoti, stend-
ur á grind viðgerðaverkstæðisins sem lagðist saman
í hvassviðrinu i fyrrinótt.
A innfelldu myndinni eru Guðmundur og eiginkona
hans, Jóhanna Finnsdóttir, sem heldur á dóttur
þeirra, Lovisu Ólöfu.
Viðgerðaverkstæði í Kjós eyðileggst í annað sinn:
Milljón kr. Ijón á mánuði
- segir Guðmundur Magnússon bóndi í Káraneskoti
Viðgerðaverkstæði, sem ábúendur á jörðinni
Káraneskoti i Kjósarhreppi eru með í smiðum á
jörðinni, lagðist saman og eyðilagðist vegna
hvassviðris á miðnætti i fyrrinótt. Það sama
gerðist i byijun nóvember sl. og er tjónið saman-
lagt um ein milljón króna, að sögn Guðmundar
Magnússonar, bónda í Káraneskoti.
„Tjónið er mjög tilfinnanlegt," sagði Guðmundur,
„því við sitjum sjálf uppi með skaðann. Við keyptum
Káraneskot og byrjuðum að búa þar í maí sl. með
nokkrar kindur og kýr. Það virðist ekki þýða neitt
að hafa timburgrind í verkstæðinu, þannig að ég
sé fýrir mér fokdýra steypubyggingu," sagði Guð-
mundur.
Sambandsstjómarfundur ASÍ:
Það hlýtur að
komatílátaka
- breyti vinnuveitendur ekki um afstöðu
FUNDUR sambandsstjórnar Al-
þýðusambands íslands telur að
verði ekki breyting á afstöðu
atvinnurekenda til kjarasamn-
inga hljóti að koma til átaka
fljótlega á næsta ári og sam-
þykkti að hafi samningar ekki
tekist fyrri hluta janúar verði
boðað til kjaramálaráðstefnu á
vettvangi Alþýðusambandsins.
Þá beri brýna nauðsyn til þess
að tekið sé upp kaupmáttar-
tryggingarkerfi á nýjan leik.
Þetta kemur fram í kjararnála-
ályktun sambandsstjómarfundar-
ins, sem haldinn var í gær og í
fyrradag. Þar eru aðildarfélögin
hvött til virkrar umræðu og sam-
stöðu um kjaramálin. Atvinnurek-
endur hafí á undanfömum vikum
dregið upp dökka mynd af afkomu-
horfum næsta árs og hafnað öllum
lagfæringum i samningum. Stjómin
leggur áherslu á að aðildarfélögin
og samböndin gangi á næstu vikum
eftir samningum bæði við einstaka
atvinnurekendur og samtök þeirra.
Hver einstakur vinnuveitandi verði
að finna fyrir ábyrgð sinni og eigi
ekki að fá að skjóta sér í skjól af
vinveitendasamtökunum.
Þá ítrekaði fundurinn mótmæli
miðstjómar ASÍ við áformum
stjómvalda um skattlagningu mat-
vara um áramótin og krefst þess
að felldar verði niður þær álögur
sem þegar hafí tekið gildi. Skatt-
lagning matvara komi óhjákvæmi-
Ný tilgáta um eldvirkni:
Bein tengsl milli megin-
eldstöðvanna á Islandi
Frestaði eldgosið í Heimaey Kötlugosi?
í NÝRRI tilgátu sem Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur, hefur sett
fram, er þvi haldið fram að tengsl séu á milli megineldstöðva á ís-
t landi í gegnum hálfbráðið lag undir jarðskorpunni á 10-20 km dýpi.
Páll telur að beint samband hafi verið á milli eldsumbrotanna við
Kröflu og mikillar skjálftavirkni í Bárðarbungu, og hann telur mjög
líklegt að samband sé á milli skjálftavirkni á Kötlusvæðinu og eld-
gosanna í Surtsey og á Heimaey — jafnvel þannig að eldgosin á
Vestmannaeyjasvæðinu hafi „frestað" Kötlugosi
Páll lýsti þessari tilgátu sinni í
fyrirlestri á vegum Hins íslenska
náttúrufræðifélags í Háskóla ís-
lands á mánudagskvöldið. Hann tók
fram að tilgátan gerði ekki ráð fyr-
ir að bráðin hraunkvika streymdi
beint á milli megineldstöðva, heldur
væri um svokallað þrýstingssam-
■ band að ræða. Undir megineld-
stöðvum er kvikuþró á 3-4 km dýpi
sem aftur tengist vijð hálfbráðið lag
sem liggur undir íslandi á 10-20
km dýpi, og getur uppstreymi á
kviku til einnar eldstöðvar valdið
lækkun á þrýstingi í öðrum eld-
stöðvum, sem aftur getur haft áhrif
~V á eldvirkni og skjálftavirkni í þeim.
Þetta hálfbráðna lag var fyrst
uppgötvað við skjálftamælingar
árið 1977, en það virðist vera í
tengslum við svokallaðan heitan
reit undir íslandi, og fínnst t.d.
ekki undir Reykjaneshryggnum SV
af landinu. Ekki hefur hingað til
verið sýnt fram á að beint samband
sé á milli atburða í megineldstöðv-
um á íslandi, en athuganir Páls
sýna mikla fylgni á miili kvikuupp-
streymis á Kröflusvæðinu og
skjálftavirkni við Bárðarbungu, en
hegðun þeirra skjálfta bendir til að
kvika hafí streymt úr kvikuþró und-
ir Bárðarbungu.
Þá virðist hegðun skjálfta í Kötlu
benda til að kvika hafí streymt
burt þaðan ijórum árum eftir að
eldsumbrot voru á Vestmannaeyja-
svæðinu. Þetta gæti hafa orðið til
þess að Kötlugos hefði ekki komið
á „réttum tíma", en Katla gysi með
mjög reglulegu bili tvisvar sinnum
á öld og hefði síðasta gos sam-
kvæmt því átt að koma í kringum
1960.
lega harðast niður á þeim sem séu
tekjulágir ognoti stóran hluta tekna
sinna til matvörukaupa. Nái áform
ríkisstjómarinnar fram að ganga
muni það spilla frekar en orðið er
samkomulagsmöguleikum á vinnu-
markaði.
Færri jóla-
lömb en und-
anfarin ár
MINNA verður um slátrun svo-
kallaðra jólalamba nú í desember
en undanfarin ár. Undanfarin ár
hefur verið slátrað nokkur
hundruð lömbum fyrir jólin og
kjötið selt ferskt á heldur hærra
verði en frosna kjötið frá haust-
sláturtíð.
Karl Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Verslunar Sig.
Pálmasonar á Hvammstanga, býst
við að slátra 100 lömbum í ár, tölu-
vert færri lömbum en undanfarin
ár. Steinþór Skúlason, framleiðslu-
stjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands,
á ekki von á neinni slátrun hjá SS
í desember, en venjulega hefur SS
slátrað 50—100 jólalömbum. Magn-
ús Friðgeirsson, framkvæmdastjóri
búvörudeildar SÍS, býst við að slátr-
að verði 100—200 lömbum hjá
Sölufélagi Austur-Húnvetninga á
Blönduósi, sem hann segir að sé
svipað og undanfarin ár.
22 DAGAR
TIL JÓLA
Bensínsala hefur aukist um 13%:
Tekjur vegasjóðs umfram
áætlun um 150 milljónir kr.
MIKIL aukning hefur orðið i bensínsölu það sem af er árinu, en 1.
nóvember síðastliðinn hafði bensínsala á öllu landinu aukist um 13%
miðað við sama tima í fyrra. í ár hafa selst um 100 þúsund tonn af
bensíni, en á sama tíma I fyrra tæplega 88 þúsund tonn. Þetta hefur
í för með sér að tekjur vegasjóðs verða meiri í ár en áætlað var og
nemur sú aukning um 150 milljónum króna að þvi að talið er.
í fjárlagafrumvarpinu er áætlað
að lögbundnir markaðir telqustofnar
til vegamála gefí 2.900 milljónir
króna eða 50 milljónir umfram út-
gjöld. Vegna hinnar auknu bensín-
sölu er því gert ráð fyrir að markaðir
tekjustofnar 1987 gefi um 150 millj-
ón krónur umfram áætlun. Ennfrem-
ur er reiknað með að bensinsala
1988 verði 8% meiri en í ár og tekj-
ur um 100 milljónir króna umfram
það sem íjárlagafrumvarpið reiknar
með. Þannig yrðu 300 milljónir króna
til ráðstöfunar og viðbótar við það
sem fjárlagafrumvarpið gerir ráð
fyrir með óbreyttum gjaldstofnum,
en samgönguráðherra lagði fram til-
lögu þar að lútandi á ríkisstjórnar-
fundi í gær, þriðjudag. Við opnun
sýningarinnar „Vegir og umferð á
höfuðborgarsvæðinu" í Kringlunni í
gær kom ennfremur fram að sam-
gönguráðherra telur að af framan-
greindum ástæðum sé nú svigrúm
til að auka íjármagn til vegamála
án þess að grípa þurfí til hækkana
á gjaldstofnum eða að það hafí veru-
leg áhrif á afgreiðslu Qárlaga 1988.