Morgunblaðið - 07.04.1988, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1988
25
Islenskt golfmót
haldið í Lundúnum
Lundúnum, frá Valdimar Unnari Valdimarssyni.
Elías B. Halldórsson myndlistar-
maður.
Elías B. Hall-
dórsson sýnir
í Gallerí Borg
ELÍAS B. Halldórsson opnar sýn-
ingu í Gallerí Borg, Pósthússtræti
9, í dagf, fimmtudag 7. apríl kl. 17.
Elías B. Halldórsson fæddist í
Borgarfirði eystra árið 1930. Hann
stundaði nám _við Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1955—58,
síðan framhaldsnám við akademíuna
í Stuttgart í Þýskalandi og við akade-
míuna í Kaupmannahöfn.
Elías hélt sína fyrstu sýningu í
Bogasalnum 1961. Síðan hefur hann
haldið margar einkasýningar um allt
land, m.a. í FÍM-salnum 1979, Norr-
æna húsinu 1976 og 1982, á Kjarv-
alsstöðum 1985. Einnig hefur Elías
tekið þátt í fjölda samsýninga hér-
lendis og erlendis.
Á sýningunni eru nýlegar olíu-
myndir og er hún opin virka daga
frá kl. 10—18 og um helgar frá kl.
14—18. Henni lýkur þriðjudaginn 19.
apríl.
(Fréttatilkynning)
Svokallað Pre Arctic-golfmót
fer fram í fyrsta skipti í Lundún-
um næstkomandi föstudag, 8.
april. Er mótið haldið að tilstuðlan
Jóhanns Sigurðssonar fyrrver-
andi umdæmisstjóra Flugleiða i
Lundúnum, en hann hefur nú
stofnað fyrirtæki, Anglo Ice-
landic, sem mun beita sér fyrir
auknum viðskipta- og ferða-
mannatengslum milli íslands og
Englands.
Einn þátturinn í starfi þess fyrir-
tækis sem Jóhann Sigurðsson hefur
nú komið á legg er að skipuleggja
ferðir kylfinga á milli íslands og
Englands. Hyggst Jóhann í þessu
efni nýta sér þá reynslu sem hann
öðlaðist af áratugastarfi að ferða-
málum sem umdæmisstjóri íslenskra
flugfélaga í Lundúnum.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Jóhann Sigurðsson að með fyrir-
huguðu Pre Arctic Open-golfmóti
muni rætast draumur, sem hann
hafi lengi alið með sér. „Áratuga-
starf mitt í þágu íslenskra flugfélaga
og náin tengsl og vinátta við ýmsa
aðila hér í Bretlandi sannfærðu mig
um nauðsyn og gildi þess að auka
samskipti íslendinga og Breta á hin-
um ýmsu sviðum. Ég vil að löndum
mínum gefist kostur á að njóta þess
besta sem boðið er upp á í Bretlandi
á öllum sviðum — íþróttum, viðskipt-
um og öllu sem nöfnum tjáir að
nefna. Golfmótið, sem haldið verður
8. apríl, Pre Arctic Open, er einn
þátturinn í þessari viðleitni að auka
kynni og tengsl þjóðanna tveggja."
Pre Arctic Open er eins konar
undanfari Arctic Open-golfmótsins,
sem haldið verður á íslandi í lok júní
næstkomandi. Að sögn Jóhanns Sig-
urðssonar er fyrirhugað að mót þetta
verði haldið árlega í Lundúnum og
leysi þannig af hólmi sambærilegt
golfmót, sem haldið hefur verið í
Skotlandi undanfarin ár.
Pre Arctic Open-mótið mun fara
fram á stórglæsilegum golfvelli,
Sundridge Park, í suðurhluta Lund-
úna en sá völlur ku vera meðal hinna
bestu í suðurhluta Englands. Að sögn
Jóhanns Sigurðssonar er gert ráð
fyrir að keppendur verði um 40 tals-
ins og breskir kylfingar í meirihluta.
Nokkur hópur íslendinga hefur skráð
sig til leiks og segir Jóhann Sigurðs-
son að ekki fari á milli mála að
mótið veiti þeim dýrmæta reynslu.
„Það er auðvitað mikilvægt fyrir
íslenskra kylfinga að komst í návígi
við erlenda keppinauta og það er
öðrum þræði tilgangurinn með þessu
móti. En tilgangurinn er einnig að
kynna íslenska kylfinga hinum
bresku, leiða saman keppendur frá
löndunum tveimur og leggja þannig
grunn að frekari samskiptum og
keppnum í framtíðinni," sagði Jó-
hann Sigurðsson að lokum.
Alþýðuflokkurinn:
Rætt við Samtök
umjafnrétti
milli landshluta
FLOKKSSTJ ÓRN Alþýðuflokks-
ins samþykkti á fundi sínum 26.
mars sl. að beina tilmælum til
framkvæmdastjómar að skipa
fulltriia til viðræðna við Samtök
um jafnrétti milli landshluta um
fjárhagslega og stjóraunarlega
stöðu landsbyggðar.
orn fra 6
ára aldri,
unglingar,
framhaldsflokkar,
m byrjendaflokkar.
Upplýsingar og
Bolholt Suðurver Hraunbero
•36645 #83730 • 79988
Eitt lítið hylki af
GERICOMPLEX
inniheldur:
----GINSENG G115
Stadlað þykkni úr Ginseng rótinni,
eykur líkamlegt og andlegt starfsþrek.
DIKALCIUM
---FOSFAT
Mikilvægt byggingarefni fyrir tennur
og bein, einnig mikilvægt fyrir vöðva, taugar
og æðakerfi.
----LECITHIN
Nauðsynlegt fyrir taugavefina
og minnkar líkur á æðakölkun með þvi að halda
blóðfitu uppleystri.
JARN
Nauðsynlegt til blóðmyndunar,
vöm gegn streitu og sjiikdómum.
MAGNESIUM
Mikilvægt byggingarefni
fyrir bein, æðar, taugau og tennur.
—KALIUM
Kemur í veg fyrir að
of mikill vökvi bindist í líkamanum (bjúgur).
KOPAR
Nauðsynlegt til myndunar RNA-kjamsýra,
hjálpar til við myndun hemoglobins og rauðra
blóðkoma.
------MANGAN
Nauðsynlegt við myndun kynhormóna, mikilvægur
hluti ýmissa efnahvata.
ZINK
Mikilvægt við frumumyndun og efnaskipti.
Mjög nauðsynlegt til þess að blöðruhálskyrtillinn
starfi eðlilega.
-----A-VÍTAMÍN
Blóðaukandi, styrkir beinin
og tennumar. Hefur góð áhrif á nýru óg lungu.
—B-1 VÍTAMÍN
Styður orkugjafa líkamans.
Viðheldur tauga- og jafnvægiskeríinu.
Vinnur gegn streytu.
-----B-2 VÍTAMÍN
Nauðsynlegt fyrir húðina, neglur og hár.
-B-3 VÍTAMÍN
Auðveldar starf taugakerfisins.
Hjálpar til við meltinguna og hressir upp á húðina.
----B-5 VÍTAMÍN
Aðstoðar við hormónamyndun og myndar mótefni.
Tekur þátt í orkumyndun líkamans.
Vinnur gegn streytu.
----B-6 VÍTAMÍN
Nauðsynlegt fyrir nýtingu likamans á fituefnum.
Hjálpar til við myndun rauðra blóðkoma.
—B-12 VÍTAMÍN
Mjög blóðaukandi.
Nauðsynlegt fyrir taugakerfið og heilasellumar.
—C-VÍTAMÍN
Vinnur gegn kvefi og kvillum. Hefur stjóm
á blóðfitumagninu.
—D-VÍTAMÍN
Nauðsynlegt í nýtingu kalks og fosfoms.—
Talið hindra vöðvarýmun.
—E-VÍTAMÍN
Mótefni sem hindrar óæskilega virkni súrefnis
í líkamanum. Lengir lif
rauðu blóðkomanna, eykur þrekið.
----P-VÍTAMÍN
Eykur áhrif C-vítamíns og vinnur með þvi.
Gericomplex fæst í Heilsuhúsinu,
Skólavörðustíg 1a og Kringlunni,
einnig i heilsuhillum matvöruverslanna
og í apótekum.
Éh
eilsuhúsið
Hylkið á myndinni er stækkað um 375%.