Morgunblaðið - 07.04.1988, Page 43

Morgunblaðið - 07.04.1988, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1988 48 STRÍÐS VETUR Kvikmyndir Sæbjöm Valdimarsson REGNBOGINN: BLESS KRAKKAR - „AU REVO- IR LES ENFANTS" Leikstjóri og handrit: Louis Malle. Kvikmyndatökustjóri: Renato Berta. Tónlist: Jean- Claude Aðalleikendur: Gaspard Manesse, Raphael Fejtö, Fran- cine Racette, Stanislas Carre, Philippe Morier, Francois Berle- and, Francois Negret. Líkt og í Lacombe Lucien (1973) greinir Malle hér frá nöturlegum bemskuminningum sínum frá stríðsárunum. Sögusviðið er ka- þólski skólinn í Fontainebleau, hvar leikstjórinn stundaði nám á kalárum hersetu Þriðja ríkisins. Janúar 1944, stríðið stendur sem hæst. Þýski herinn er tekinn að hörfa á austurvígstöðvunum og á Ítalíu, Gestapo herðir þrælstök sín á hinni undirokuðu, frönsku þjóð. Matar- skömmtun og skortur, svartamark- aðsbrask og gyðingaofsóknir myrkva sjóndeildarhring skólapil- tanna, sem í ofanálag þurfa að þreyja óvenjulega kaldan vetur. Manesse leikur 12 ára dreng, gáfað- an og forvitinn, leiðtoga sem fær mikinn áhuga á nemandanum Fejtö, sem hefur nám um miðjan vetur, umvafinn dularhjúpi. Þessir efnis- drengir verða góðir vinir þó bak- grunnurinn sé ólíkur, Manesse kom- inn af efnuðu millistéttarfólki en dulúðin sem umleikur hinn dökka Fejtö er vamarveggur lífshættulegs Ungir aðalleikarar í Bless Krakkar, Gaspard Manesse og Raphael Fejtö, sýna eftirminni- legan og aðdáunarverðan leik. leyndarmáls - gyðinglegs uppruna hans. Frásögn Malle af þessum ógnar- legu æskuminningum er hljóðlát en grípandi og segir mikið meira en háværar, velkunnar tugmilljóndoll- aramyndir og sjónvarpsþættir um hryllinginn sem fylgdi þýsku her- námi einsog dauðinn sjálfur upp- málaður. Þar sem gyðingaofsókn- imar og taumlaust ofbeldi „herra- þjóðarinnar" voru skelfilegustu þættimir. Með því að lýsa ástandinu í hnotskum skólalífsins tekst Malle að draga upp ljóslifandi mynd af hryllingnum. Hvemig slíkir voða- tímar gera suma að hetjum en aðra að armingjum. Hvemig þeir sem minna mega sín brotna undan farg- inu en þeir sterku styrkjast við hveija raun. Allir eru fómarlömb stríðsins sem engu eirir og kæfir bemsku nokkurra skólapilta á ein- um, köldum vetrarmorgni árið 1944. Geysilegur styrkur myndarinnar felst í raunsæi skýrra minninga Malles, meitluðu handriti og ekki síst óvenjulega næmum leik hinna ungu og óreyndu aðalleikara, Gasp- ard Manesse og Rapahael Fejtö. Maður hefur sjaldan, eða aldrei, upplifað jafn sannan dóm yfír stormsveitarböðlunum né fundið jafn afdráttarlaust fyrir sekt þeirra. Förðunar námskeið Öll undirstöðuatriði dag- og kvöldförðunareru kennd á eins kvölds námskeiðum. Aðeins 10 eru saman f hóp og fær hver þátttakandi persónulegatilsögn. Innritun og nánari upplýsingar í síma 19660 eftir kl. 10:00. Kristín Stefánsdóttir Snyrti- og förðunarfræðingur Laugavegi 27 • Sími 19660 Kennari: MYRKRAMAGT Á MANHATTAN Þessir feðgar eiga svo sannarlega við djöful að etja í myndinni Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson TRÚFÉLAGIÐ - „THE BELIEVERS“ Leikstjóri: John Schlesinger. Handrit: Mark Frost, byggt' á skáldsögunni The Religion, e. Nicholas Conde. Kvikmynda- tökustjóri: Robby MuIIer. Tónlist: J. Peter Robinson. Aðalleikend- ur: Martin Sheen, Helen Shaver, Robert Loggia, Richard Masur, Harley Cross, Jimmy Smiths. Bandarísk. Orion Pictures 1987. Sögusviðið er Manhattan sam- tímans. Sálfræðingurinn Martin Sheen, sem býr ásamt ungum syni sínum í hinni heldur óyndislegu spönsku Harlem, er fenginn til að hjálpa lögreglunni við að upplýsa morð ungra drengja sem virðast hafa orðið fómarlömb kuklara. Viss trúarsöfnuður dregst inní málið og virðast sumir meðlimimir hafa sitt- hvað gmggugt í pokahominu. Og skyndilega lendir sonur Sheen í höndum þeirra . . . Schlesinger er skolli mistækur. Maður hélt að karl væri kominn á strik eftir hina ágætu Fálkinn og snjómaðurinn, en hér tekur hinn slyngi leikstjóri Midnight Cowboy og Maraþon-mannsins enn eina Trúfélagið. dýfuna á litríkum, mishæðóttum ferli. Ekki jafn slæma og Honky Tonk Freeway en maður væntir svo sannarlega meira af manni sem á jafn miklar úrvalsmyndir að baki og raun ber vitni. Polanski hefði örugglega ekki misst hér allan kraftinn útí soðið. Schlesinger virð- ist ekki lagið að meðhöndla þetta ósennilega efni, sem minnir örlítið á Rosemary’s Baby. Ekki svo að skilja að Trúfélagið sé alvond mynd, öðru nær. Keyrslan er hröð frá upphafí til enda og margir kaflar hennar bráðspenn- andi. Gallinn er sá að heildin er einum um of subbuleg og sum atrið- in næsta ósmekkleg vegna þess neyðarúrræðis leikstjórans að sýna áhorfendum ofaní sárin. Þá er á mörkunum að Sheen hafi til að bera þann nauðsynlega stjömukraft sem með þarf til að bera uppi mynd- ina. VORNÁMSKEIÐ HEFST 11.APRÍL KERFI —ft m fr mWÆ Afti LIKAMSRÆKT OG MEGRUN fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum. FRAMHALDSFLOKKAR Þyngri tímar, aðeins fyrir vanar. ROLEGIR TIMAR fyrir. eldri konur eða þær sem þurfa að fara varlega. KERFI MEGRUNARFLOKKAR 4x í viku fyrir þær sem þurfa og vilja missa aukakilóin núna. FYRIR UNGAR OG HRESSAR Teygja- þrek - jazz. Eldfjörugir timar með léttri jazz-sveiflu. Morgun- dag- og kvöldtímar, sturta — sauna — Ijós. Innritun hafin. Suðurver, sfmi 83730. Hraunberg sími 79988. Allir finna flokk við sitt hæfi hjá JSB Suðurveri, sími 83750 Hraunbergi, sími 79988

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.