Morgunblaðið - 14.04.1988, Síða 17
_____________MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR Á APRÍL 1988__17
Ríkisútvarp —
rás 1 — rás 2
eftirMá Magnússon
Nýlega hefur komið fram hug-
mynd um að Ríkisútvarpið reki
ekki lengur rás 2. Virðist það vera
sérkennileg ráðstöfun nú, þegar
rás 2 er að færast í það form, sem
upprunalega ætlað var.
Ríkisútvarp
Til eru raddir í íslenzku þjóðfé-
lagi, sem mæla á móti hvers konar
ríkisrekstri og vísa gjaman til íyrir-
komulags í Bandaríkjunum, þar sem
margir þættir aðbúnaðar þegnanna
eru í höndum einkaaðila, svo sem
síma- og heilbrigðisþjónusta. Hefur
það auðvitað bæði kosti og galla og
ekki ástæða til að orðlengja um það
hér. Löggæzla og vamir landsins em
þó á vegum hins opinbera. Við íslend-
ingar höfum engan her af augljósum
ástæðum. Það hefur hinsvegar verið
staðinn sterkur vörður um þann þátt
menningararfleifðar okkar, sem hef-
ur haldið þjóðinni saman og verið
henni leiðarljós gegnum aldimar. Það
er tungumál okkar, íslenzkan, og
þeir ávextir í ræðu og riti sem hún
hefur borið.
Ahrifavaldar á menningarþróun
hvert sem litið er em á hveijum tíma
þeir sem beina orðum sínum til fjöld-
ans, hvort sem það em lýðskmmarar
eða trúarleiðtogar, stjómmálamenn
eða skáld. Eftir þvi sem fram hafa
liðið stundir hefur orðið auðveldara
að ná til fjöldans og hefur ör þróun
á sviði fjölmiðla átt mestan þátt í
því. Það er augljóst að útvarp og
sjónvarp em eitthvert helzta afl í
mótun og vemdun tungunnar. Mætti
þá ekki lita á Ríkisútvarpið sem
öflugan vemdara þessa andlega fjör-
eggs þjóðarinnar?
Ríkisútvarpið er einnig fulltrúi
íslenzkrar menningar út á við og er
ómetanlegt í samskiptum og sam-
vinnu við erlendar útvarpsstöðvar.
Mætti gjama kynna þann þátt starf-
semi Rikisútvarpsins meira en nú er.
Hlutverk Ríkisútvarpsins
Skipta mætti hlutverki Ríkisút-
varpsins i flögur meginatriði.
Fræðslu, skemmtun, varðveizlu og
öryggi. Fræðsla kemur fram í frétt-
um og hverskonar fróðleiksmiðlun
allt frá kennsluefni til skemmtiefnis
með fróðlegu og fréttnæmu efni. Er
þá komið að öðm atriðinu, skemmt-
un. Augljóslega er það misjafnt og
margt sem gleður mannsins hjarta
og þessi hlið á starfseminni hlýtur
því að vera mjög yfirgripsmikil. Oðm
máli gegnir um öryggisþáttinn, þar
er efnismagnið ekki mikið, en þeim
mun þýðingarmeira. Hér er aftur á
móti stöðugleiki f útsendingu ásamt
ábyrgð, sem vart er legjandi á einka-
aðila, algjört skiiyrði. Er þá sérstak-
lega átt við neyðarþjónustu í stórslys-
um. Fréttatengdar upplýsingar svo
sem verðurfregnir, firéttir af ástandi
vega og umferð falla undir þennan
þátt og em mjög árfðandi. Varð-
veizla á efni fluttu f Rfkisútvarpinu
eða söftiuðu/skráðu á þess vegum
er snar þáttur í starfeemi stoftiunar-
innar og verður eftir því sem tímar
Ifða merkari. Engin ástæða er til að
fjölyrða um það hér og ekki mögu-
legt.
Fræðsla og skemmtun
í sambandi við þessi tvö atriði
greinir menn eðlilega á um hlutverk
Ríkisútvarpsins þó að allir geti verið
sammála um öryggis- og varðveizlu-
þættina. Það er þyngri þraut en að
lýsa megi f stuttu máli að verða við
þörfum og óskum allra landsmanna
um flutning efnis f Rfkisútvarpinu
og nokkum veginn ömggt að aldrei
verður fyllilega orðið við óskum hvers
og eins.
Á meðan sent var út á einni rás
heyrðust sffellt óánægjuraddir á víxl
um ónógt tillit til þessa eða hins þjóð-
félagshópsins, hvort sem miðað var
við aldur, störf eða búsetu. Það var
þvf fagnaðareftii þegar stofnað var
til rásar 2. Nú skapaðist möguleiki
tíl flutnings milli rásanna þannig að
fleiri mættu vel við una. Á sama tfma
og tækifæri gæfist til flutnings
veigameiri tónverka, t.d. ópera, fyrir-
lestra og leikrita, væri máleftium
líðandi stundar í ramma léttrar tón-
listar gerð góð skil á rás 2. En í
fyrstu var ekki hægt að flytja yfír
aJlt efnið sem átt hefði heima á rás
2 vegna þess að ekki náðist til stöðv-
arinnar um allt land.
Rás 1 — rás 2
Nú þegar endanlegt hlutverk þess-
arar viðbótarrásar er að mótast á
að kippa henni úr sambandi við
Ríkisútvarpið. Hlutverk rásar 2 er
sífellt að verða veigameira með
stærra dreifikerfi og rás 1 hefur æ
meira svigrúm til flutnings á vönd-
uðu útvarpsefni. Væri það því ein-
dregið stórt skref aftur á bak að ijúfa
tengsl rásanna. Aftur kæmi þá upp
sú staða að reynt yrði að gera öllum
til hæfis á einni rás og allir yrðu
óánægðir á ný.
Má teljast sérkennilegt að kvarta
undan fjárútlátum rikisins f stærðar-
hlutfallinu tugir milljóna við upp-
Már Magnússon
byggingu og endurbætur á jafn
veigamikiu menningarafli á sama
tíma og dagblöð segja frá því í loðnu-
fréttastíl að tap ríkisins vegna
„Hlutverk rásar 2 er
sífellt að verða veiga-
meira með stærra
dreifikerfi og rás 1 hef-
ur æ meira svigrúm til
flutnings á vönduðu út-
varpsefni. Væri það þvi
eindregið stórt skref
aftur á bak að rjúfa
tengsl rásanna.“
bankagjaldþrots sé hálfum milljarði
meira en ætlað var, húsbygging fari
næstum milljarð fram úr áætlun og
fyrirtæki úti í bæ borgi forstjóra
sínum eina og kvart milljón í mánað-
arlaun.
Höfundur stnrf&r viðmorgunút■
varpið árás 1.
MPPDRÆTH
SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS
ÍBÚÐARVINNINGUR
AÐVERÐMÆTl 2.000.000,00 kr.
171950
2l BIFREIÐ
TVEIR TOYOTA LANDCRl'IESER 4WD AD VERDM/ETl KR. 1.121.000.00 HVER
136066 162555
NÍTJÁN TOYOTA COROLl.A BIFREIÐAR AD \ ERÐMÆTl KR. 456.080,00 HVER
17933 43147 63880 102709 132223
18520 57464 64237 105312 166046
30772 57700 79315 112492 180604
37984 63430 .84424 123880
Þökkum landsmönnum öllum veittan stucTning
SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS