Morgunblaðið - 14.04.1988, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1988
SVIPMYNDIR ÚR BORGINNI / Ólafur Ormsson
Af hveiju borðarðu ekki í
Litlu hrylling'sbúðinni?
Það þarf að koma mörgu í verk
síðustu daga fyrir hátíðar. Um
páskana eiga flestir launþegar tæp-
lega vikufrí og þá þarf að huga að
mörgu og svo eru fermingar í öllum
helstu kirkjum á höfuðborgarsvæð-
inu með öllu því tilstandi sem þeim
fylgir. Fjöldi fólks ver frítíma sínum
í ferðalög innanlands sem utan. í
veðurblíðunni miðvikudaginn fyrir
páska var greinilega í mörgu að
snúast hjá öllum meginþorra Reyk-
víkinga. Innkaup í verslunum stóðu
einna hæst er leið á daginn, sem
var þó hafínn til slíkra hluta strax
að morgni. Nokkrum dögum fyrir
páska leit ég inn á skattstofuna við
Tryggvagötu að skila inn umsókn-
areyðublaði varðandi húsnæðis-
bætur og Guðmundur Steingríms-
son, „papa jazz", gaf merki við af-
greiðsluborðið, rétti upp hendi þeg-
ar ég kom í anddyrið eins og hann
væri með það á hreinu í hvaða er-
indum ég væri, tók við umslaginu
og kom því fyrir á öruggum stað.
Guðmundur er ómissandi þama á
skattstofunni, hann nánast getur
lesið það af andliti manna í hvaða
erindum þeir eru og svo þekkir
hann iíka ótrúlegan flölda Reyk-
víkinga enda séð þeim mörgum
bregða fyrir í dansi eða á vínbömm
danshúsa í höfuðborginni á liðnum
áratugum þegar hann hefur setið
uppi á sviði og lamið trommumar
af slíkri kunnáttu að ekki einungis
er á flestra vitorði hér á íslandi
heldur einnig í nálægum löndum.
Það lá svo ijómandi vel á Guð-
mundi og ljóst að nú er senn fram-
undan meiriháttar jazzhátíð í
Reykjavík. Boy Georg er svo vænt-
anlegur nú í aprílmánuði og komin
plaköt í lit upp á veggi verslunar-
húsa í tugatali, víða í borginni.
Poppgoðið sem á svo sem lítið sam-
eiginlegt með snillingum jazzins
hefur að því er sagt loks sigrast á
eiturlyfjavandamáli sínu og á að
troða upp í Laugardalshöllinni
næstu daga fyrir íslenskan æsku-
lýð. Tvær ungar stúlkur um eða
innan við fermingu vom að virða
fyrir sér plakatið af poppgoðinu við
hljóðfæraverslun í miðborginni í
veðurblíðunni miðvikudaginn fyrir
páska. Það var sól á lofti, sæmilega
hlýtt, eins og vorið væri þegar kom-
ið í borginni:
— Ó, hann er alveg draumur,
sagði. sú ljóshærða.
— Hann er alveg meiriháttar,
sagði sú dökkhærða.
— Hann hefur alltaf verið mitt
uppáhald, sagði sú ljóshærða og
vafði tyggigúmmíi upp á litla fingur
hægri handar.
Síðan fóm stúlkumar inn í plötu-
búðina, líklega í þeim erindum að
kaupa plötu með poppsöngvaranum
sem að öllum líkindum mun koma
fram í Laugardalshöllinni í fjöl-
skníðugu gervi.
í verslun ÁTVR við Snorrabraut
var greinilega fullt út úr dymm er
leið á miðvikudag fyrir skírdag.
Leigubílar að koma og fara og við-
skiptavinir með stóra hvíta plast-
poka á leið út á Snorrabrautina í
bflana og á Karlagötunni stóð Bjöm
Kristjánsson innanbúðar og af-
greiddi hvert páskaeggið af öðm
til krakka og unglinga sem virtust
hafa fullar hendur fjár.
Ég leit inn í Ásbrú, litla verslun
við Njálsgötu sem selur ramma og
myndir, eftirprentanir, í þeim erind-
um að kaupa einhveija ódýra mynd
til að hengja upp á vegg í íbúð
minni. Þar vom einungis tveir
menn, afgreiðslumaður, allnokkuð
við aldur, og annar maður, einnig
kominn á ellilífeyrisaldurinn, og
þeir virtust ekki hafa neitt þarfara
að gera en að deila um það hvor
væri nú eldri. Ég leit á myndir og
var lengi vel á báðum áttum hvort
ég ætti heldur að kaupa landslags-
mynd með stórt og mikið fjall í
baksýn eða eftirprentun, sjálfs-
mynd af Kjarval, á litlar tóíf hundr-
uð krónur, þar til ég kom allt í einu
auga á eftirprentun af málverki af
frelsaranum, Jesú Kristi, þar sem
hann situr við fjallsrætur, hugsandi
á svip og horfír yfír byggð eða
borg, og ég veitti því fljótlega at-
hygli að það er einhver sérstakur
fríður yfír myndinni. Ég spurði af-
greiðslumanninn um verð.
— Tólf hundmð krónur, kostar
myndin, sagði hann.
Ég hafði ekki átt neina mynd af
frelsaranum og vildi því láta verða
af því að eignast myndina. Fram-
undan var einmitt sú hátíð þegar
kristnir menn minnast krossfesting-
ar, dauða og upprísu Jesú og auðvit-
að vildi ég eiga mynd af þeim manni
sem ég hef ávallt talið fremstan
allra manna fyrr og síðar. Af-
greiðslumaðurinn pakkaði mynd-
inni inn í umbúðapappír og við ósk-
uðum hvor öðmm gleðilegrar
páskahátíðar. Ég var ekki fyrr bú-
inn að setja myndina upp á vegg á
heimili mínu en dyrabjallan hringdi.
Góður kunningi var á ferð, á fímmta
degi í glasi, og var svo elskulegur
að vilja endilega bjóða mér í mat í
Glæsibæ sem ég afþakkaði kurteis-
lega, sagðist ekki hafa tíma. Hann
tók eftir myndinni upp á vegg og
horfði á hana næstum hugfanginn.
Ég hellti upp á könnuna, hann gaf
sér tíma til að stoppa um stund,
áður en hann hvarf aftur út í glaum-
inn. Ég reyndi að tala um fyrir
honum, benda honum á böl áfengis-
ins án nokkurs árangurs.
— Má ekki bjóða þér í mat í
Glæsibæ? endurtók hann.
— Æ, nei. Af hveiju borðarðu
ekki í Litlu hryllingsbúðinni? spurði
ég.
— Ha? Hvar er hún? er það nýtt
vínveitingahús? spurði sá er var á
fímmta degi í vínglasi.
Tvær góðar þvottavélar frá
SIEMENS
Góð og hagkvæm
þvottavél
• 18 þvottakerfi.
• Sparnaðarhnappur.
• Frjálst hitaval.
• Vinduhraði 600 og 800
sn./mín.
• íslenskir leiðarvísar.
• Þurrkari fáanlegur með
sama útliti.
WV 2760
Kjörgripur handa
hinum vandlátu
• Fjöldi þvottakerfa.
• Sparnaðarhnappur.
• Frjálst hitaval.
• Áfangaþeytivinding.
Mesti vinduhraði 1200
sn./mín.
• Hagkvæmnihnappur.
• íslenskir leiðarvísar.
WV 5830
Verð \ /Verð
43.760,fy ( 57.950,-
Hjá SIEMENS eru gæði, ending og fallegt
útlit ávallt sett á oddinn!
SMÍTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
15% afsláttur
Ert þú að
undirbúa
bílinn undir
sumar-
aksturinn?
aðstoðum við þig, með
því að veita 15% afslátt á
allar gerðir Gabriel höggdeyfa.
Útsölustaöir utan Reykjavíkur:
Hellissandur:
Bllaverkst. Ægis S 93-66677
Stykkishólmur.
Bllaverkst. Þórðar S 93-81318
Patreksfjörður:
Bllaverkst. Guðjóns S 94-1124
Akureyri:
Bllaréttingar sf. S 96-22829
Húsavlk:
Bilaverkst. BK S 96-41060
Neskaupstaöur:
Varahlutaversl. Vík E 97-71776
Kirkjubæjarklaustur:
Bllaverkst. Gunnars “S 99-7630
Hvolsvöllur:
Kaupf. Rangæinga S 99-821
Selfoss:
Kaupf. Árnesinga "S 99-2000
Þorlákshöfn:
Þjónustustöðin S 99-3578
Keflavlk: Aóalstöðin S 92-11515
G ”
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88
Þýskir
dagar í
Þórscafé
Ferðamálaráð Hamborgar,
Amarflug og Þórscafé gangast
fyrir Þýskalandskynningu í
Þórscafé föstudags- og laugar-
dagskvöld 15. og 16. aprO nk.
Tveir matreiðslumeistarar koma
frá Hamborg til að framreiða þýska
veislurétti og þaðan kemur einnig
fjögurra manna hljómsveit, sem
ásamt hljómsveit hússins mun halda
uppi ekta þýskri stemmningu og
fiöri.
I Þýskalandi er mikið framleitt
af úrvals tískufatnaði og Unnur
Amgrímsdóttir stjómar tískusýn-
ingu þar sem sýnt verður ýmislegt
sem tískuverslanir hér á landi sækja
þangað.
Einnig verða sýndar margvísleg-
ar aðrar vörar sem fluttar em inn
frá Þýskalandi.
Ferðavinningar munu falla
heppnum gestum í skaut og ýmis
önnur verðlaun verða veitt.
Húsið opnar kl. 19 og þá verður
tekið á móti gestum með fordrykk
og dunandi þýskri tónlist.
Kynnir verður Júlíus Bijánsson
(Fréttatilkynning)
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN