Morgunblaðið - 14.04.1988, Síða 27

Morgunblaðið - 14.04.1988, Síða 27
MORGÚNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1988 27 N-Atlantshafsskýrsla BCG: Hagkvæmasti kosturimi að fækka um tvær flugvélar Enginn uppgjafartónn í okkur, segir Sigurður Helgason forstjóri „ÞAÐ er enginn uppgjafartónn í okkur þótt allt bendi til að grípa þurfi til einhvers samdráttar varðandi Atlantshafsflugið, enda er staða okkar sterk á öðrum rekstrarsviðum. Við munum hins vegar bíða og sjá hvað gerist á næstu mánuðum i Atlantshafsfluginu áður en við tökum ákvörðun um frekari aðgerðir þar að lútandi,“ sagði Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða, að loknum fundi með starfs- fólki fyrirtækisins í gær, þar sem skýrsla ráðgjafafyrirtækisins Boston Consulting Group var kynnt. Ráðgjafafyrirtækið bendir á ýmsar leiðir til lausnar þeim vanda, sem Flugleiðir eiga við að etja varðandi N-Atlantshafsflugið og flestar fela þær í sér einhvem sam- drátt. Að mati BCG er hagkvæmasti kosturinn að fækka um tvær flugvélar og nota aðeins eina DC-8-63 þotu á þessari leið. Morgunblaðið/Börkur Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, kynnir skýrslu BCG á fundi með starfsfólki í gær. Sigurður sagði að Boston Cun- sulting Group hefði byijað á þessu verkefni síðastliðið haust og þegar hefði verið gripið til ráðstafana til að rétta hlut félagsins en frekari aðgerðir yrðu teknar í ljósi þess hvemig þróunin yrði á næstu mán- uðum, bæði hvað varðar sjálft Atl- antshafsflugið svo og þróun í geng- ismálum. Hann sagði að engar breytingar yrðu á sumaráætlun fé- lagsins og fækkun ferða eða aðrar aðgerðir myndu í fyrsta lagi koma til framkvæmda með næstu vetr- aráætlun. í skýrslu Boston Consulting Gro- up er staðfest að útlitið í fluginu milli Luxemborgar og Banda- ríkjanna sé dökkt. Þar kemur með- al annars fram að Flugleiðir séu með lægstu meðaltekjur á far- þegakílómetra af öllum Evrópufé- lögum á Norður-Atlantshafinu. í skýrslunni segir ennfremur að Flug- leiðir þurfi að gera sér grein fyrir, að miðað við núverandi kostnaðar- og tekjuforsendur, þá geti félagið ekki hagnast á því að flytja lág- gjaldafarþega á milli Banda- ríkjanna og Evrópu um íslnad. í skýrlunni er rakin þróun í Atlants- hafsflugi á síðustu árum og sagt að þó að þetta flug Flugleiða hafi skilað umtalsverðu framlagi upp í fastan kostnað félagsins og þannig aukið hagkvæmnina, hafi á síðasta ári sigið mjög á ógæfuhliðina vegna mikillar kostnaðarhækkunar innan- lands ásamt gengisþróun, sem hafi verið félaginu mjög óhagstæð. Þá er bent á að markaðsstaða Flugleiða hafi versnað mjög vegna aukinnar samkeppni frá stærri fé- lögum sem bjóði jafnlág og jafnvel lægri fargjöld, oft með tengiflugi inniföldu í verðinu á þessari flug- leið. Þar að auki séu vélar Flugleiða eldri en keppinautanna og stundvísi Flugleiða hafi ekki verið í lagi. Nið- urstaða þeirra er sú, að með því að hafa viðkomu á íslandi, verði kostnaður Flugleiða ætíð það mikið hærri en keppinautanna, að von- laust sé að flytja farþega á milli Bandaríkjanna og Evrópu með hagnaði miðað við þau lágu far- gjöld sem gilda, þrátt fyrir háa sætanýtingu. Sigurður Helgason forstjóri kvaðst á þessu stigi ekki vilja leggja mat á það hvaða leiðir, af þeim sem ráðgjafamir hafa bent á til úrlausn- ar, væru vænlegastar. Að mati þeirra er hagkvæmasti kosturinn fyrir Flugleiðir að fækka um tvær flugvélar og nota aðeins eina DC-8 63 þotu á þessari leið, jafnframt því sem dregið yrði verulega úr föstum kostnaði félagisns. Með þessu móti yrði aðaláherslan lögð á flutninga til og frá íslandi. En það er einnig bent á aðra mögu- leika, til dæmis að reka tvær DC-8 þotur, eða að reka eina Boing 767 þotu, sem yrði staðsett í Luxem- burg. Fundurinn með starfsfólki Flug- leiða var fjölmennur og af máli manna að honum loknum mátti ráða, að fullur skilningur er á því meðal starfsfólks að aðgerða sé þörf varðandi Atlantshafsflugið. Guðmundur Ásgeir Geirsson, for- maður Starfsmannafélags Flug- leiða, sagði í samtali við Morgun- blaðið ekki væri tímabært að gefa yfirlýsingar af hálfu starfsfólks á þessu stigi, enda hefðu engar ákvarðanir verið teknar varðandi aðgeðir. Hann kvaðst þó búast við að gripið yrði til einhvers samdrátt- ar og ef tii uppsagna starfsfólks kæmi kvaðst hann frekar eiga von á að það myndi bitna á starfsfólki erlendis, þótt sá möguleiki væri einnig fyrir hendi að uppsagnir kæmu hlutfallslega jafnt niður á öllum deildum. Guðmundur Ásgeir lýsti yfir ánægju sinni með þann baráttuhug sem fram kom í máli forstjórans á fundinum og taldi ein- sýnt, að þorri starfsmanna myndi styðja aðhaldsaðgerðir stjómenda fyrirtækisins. Beint flug milli Luxemborgar og New York? Ein af þeim hugmyndum, sem BCG setur fram er að hefja beint flug milli Luxemborgar og New York og byggja þar á „business- manna“ markaði í Luxemborg og umhverfi, en þann markað telja þeir álitlegan. Það er hins vegar mat þeirra að til þess að ná ár- angri á þeim markaði þurfi Flug- leiðir að hefja rekstur á B-767 breiðþotu á þessari leið. Því fylgir hins vegar töluverð rekstrarleg og fjárhagsleg áhætta auk þess sem hælpið er að vera með eina vél af ákveðinni tegund í rekstri vegna óhagkvæmni sem því fylgir. Hugmyndir þeirra BCG-manna lúta allar að því að draga úr fjölda þeirra farþega sem fara um ísland milli Bandaríkjanna og Luxemborg- ar. í fyrra voru þeir 211 þúsund eða um 85% af heildarfarþegafjölda Flugleiða á N-Atlantshafsleiðinni. Bent er á að með því að minnka framboð sem nemur einni DC-8 flugvél, þá fækki þessum farþegum úr 211 þúsund í 129 þúsund og komi öll fækkunin fram meðal þeirra er lægstu fargjöldin greiða. Ef hins vegar yrði fækkað um tvær DC-8 flugvélar, af þremur, þá yrðu farþegamir á milli Luxemborgar og Ameríku aðeins um 46 þúsund á ári,_ eða álíka og farþegafjöldinn milli íslands og Bandaríkjanna. Ráðgjafamir hallast helst að síðamefndu hugmyndinni og telja þeir að þannig megi fá N-Atlants- hafsreksturinn til að skila hagnaði, enda yrði jafnframt dregið vemlega úr föstum kostnaði fyrirtækisins. KJÍKIINGAR Eru Holtakj úklingar bestir? Við höfum verið að velta því fyrir okkur vegna þess að við seljum fleiri þúsundir í hveijum mánuði. Grillaðir á aðeins 1 stk. í pakka 3 stk. í pakka 5 stk. í pakka Laugalæk 2, s. 686511 Garðabæ, s. 656400 Fjölmenni var á starf smannafundinum, þar sem N-Atlantshafsskýrsl- an var kynnt. Tveir góðir kæliskáparfrá SIEMENS Frystir, kælir og svali í einum skáp 165x60x60 sm (hxbxd). 671 fjögurra stjörnu frystihólf. 1541 kælirými. 801 svalarými til að geyma einkum ávexti og grænmeti. KV3146 Sannkallad forða- búr heimilisins 182x60x57 sm (hxbxd). 67 I fjögurra stjörnu frystihólf. 180 I kælirými. 761 útdreginn svala- vagn til að geyma m.a. flöskur, grænmeti og ávexti. KV3546 Hjá SIEMENS eru gæði, ending og fallegt útlit ávallt sett á oddinn. SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.