Morgunblaðið - 19.04.1988, Side 2

Morgunblaðið - 19.04.1988, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988 Víða eld- ur í sinu VÍÐA um land átti slökkvilið og lögregla annríkt vegna sinu- bruna í gser. Á Akranesi brann járnklædd skemma tíl kaldra kola er eldur úr sinu læstist í veggi hennar á áttunda tímanum i gærkvöldi. Slökkviliðinu i Reykjavík var tilkynnt um 12 sinuelda fram til klukkan 22.30. Skemman, sem stóð við Sól- mundarhöfða, var í eigu útgerðarfé- lagsins Heimaskaga og var notuð sem geymsla fyrir veiðarfæri. Hún brann til grunna á klukkutíma ásamt því sem í henni var. fy'ónið hefur ekki verið metið til flár. Alls bárust flórar tilkynningar um sinu- eld til lögreglu á Akranesi. í Reykjavík var slökkvilið tilkvatt 12 sinnum vegna sinuelda víðs veg- ar í Reylcjavík og í Kópavogi. Mest- ur viðbúnaður var á fjórða tfmanum f Vatnsmýrinni en hvergi hlaust af slys eða eignatjón svo vitað sé. Trúnaðarráð Kennarafélags Reykjavíkur: Kennarar hvattírtilað kenna ekki í forföllum TRÚNAÐARRÁÐ Kennarafélags Reykjavfkur hefur skorað á kenn- ara í Reykjavfk að taka ekki að sér forfallakennslu fyrr en samn- ingar hafa náðst. Þessa áskorun samþykkti ráðið á fundi fyrir rúmri viku og Sigrún Ágústs- dóttir, formaður KFR, segir að kennarar hafi tekið þessari áskor- un vel. „Fólk er orðið langþreytt á þvf að bjarga skólastarfinu með því að bæta á sig yfírvinnu, þannig að fyr- ir suma var þetta kærkomið tæki- færi til þess að segja nei, og kannski með betri samvisku," sagði Sigrún. Hún sagði að álag kennara hefði verið mikið f vetur því mjög illa hefði gengið að útvega forfallakennara og margir kennarar væru komnir með mikla aukavinnu strax að haustinu. í samþykkt trúnaðarráðsins segir að foreldrar geti vegna þessa búist við því að börn þeirra verði send heim fyrirvaralítið ef kennari forfall- ist. Mjög þungt hljóðs sé f kennur- um, enda hafi fulltrúar þeirra staðið í samningaviðræðum frá því um ára- mót án árangurs. Síðan segir: „Á þessu skólaári hefur gengið verr en áður að fá kennara til starfa við Grunnskóla Reykjavíkur. Aldrei hafa eins margir réttindalausir starfað við skólana, og óhófleg yfírvinna hefur hlaðist á þá kennara sem fyr- ir eru, bæði vegna þess að kennarar fást ekki til starfa og vegna forfalla sem upp koma á skólaárinu." Eldur í ELDUR kom upp í lest flutn- ingaskipsins fsbergs er það var á siglingu undan Englands- ströndum á laugardagsmorg- uninn. Eldurinn komst i ein- angrun i lest skipsins, sem er frystiskip, og var á leið til Grimsby með um 200 tonn af fiski. Slökkvistarf gekk greið- lega, að sögn Bergs Álfþórsson- ar hjá útgerðarfélagi skipsins, Oki hf., og skaðaðist hvorki áhöfn né farmur. ísbergið hélt áfram för til Grimsby að loknu slökkvistarfi og kom þangað á sunnudag. Nokkrir skipveijar voru að * c-V . Seyðisfjörður: Hver meö sínn brúsa fyrir mjólk Seyðisfjörður. ÞAÐ KOM berlega í ljós í óveðrinu sem gekk yfir Austur- iand i síðustu viku hversu Seyð- firðingar eru háðir sam- göngum yfir Fjarðarheiði. Siðastliðinn fímmtudag urðu snjóruðningstæki að hverfa frá heiðinni vegna veðurs og mjólk- urbíllinn, sem kemur frá Egils- stöðum með mjólk fyrir bæjarbúa, komst ekki jrfír heiðina. En þann- ig háttar til, að í sveitinni hér út með Seyðisfírði er stórt kúabú á Hánefsstöðum og flytur þessi sami mjólkurbfll mjólk Hánefs- staðabænda upp í Egilsstaði til vinnslu í mjólkurbúinu þar. Þegar Seyðfírðingar urðu svo mjólkur- lausir komu Hánefsstaðabændur með mjólkina sína á snjósleða inn í bæ og seldu bæjarbúum. Þetta var þá orðið alveg eins og í gamla daga, menn mættu í búðina hver með sinn mjólkurbrúsa og fengu í hann sinn mjólkurskammt. Garðar Rúnar Sjá frétt af ófærðinni og veðrinu fyrir austan á bls. 74-75. Svanhvit Hávarðardóttir eys mjólk úr og í mjólkurbrúsa. Vilhelm Adolfsson biður spenntur með sinn brúsa. Leyfi til útflutnings á frystum fiski til Bandaríkjanna: Tíu fyrirtæki til við- bótar sækja um leyfi LEYFI sem Vogar hf., Marbakki hf., G. Ingason hf., Stefnir hf., íslenskur gæðafiskur hf. og ís- lenska útflutningsmiðstöðin hf. fengu í október sl. til að flytja út frystan fisk á Bandaríkja- markað rennur út 30. aprO nk. Tíu fyrirtæki I viðbót hafa sótt um útflutningsleyfi fyrir fryst- an fisk. Framkvæmdastjórar fyrirtækjanna sex funduðu með utanrfkisráðherra í gær og sagðist ráðherra stefna að því að afgreiða leyfisumsóknirnar fyrir lok mánaðarins. Einungis tvö fyrirtækjanna sex hafa nýtt leyfin, Vogar hf. og íslenska útflutningsmiðstöðin hf. Steingrímur Hermannsson utan- rfkisráðherra sagði við Morgun- blaðið í gær að lítil reynsla hefði fengist á þessar leyfísveitingar, þar sem aðeins eitt fyrirtækjanna hefði nýtt leyfið að marki, og það raun- ar staðið sig ágætlega. Hann sagð- ist hafa átt fundi með fulltrúum stóru útflutningsfyrirtækjanna, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og sjávarafurðadeild Sambandsins, og núna með fulltrúum þessara sex fyrirtækja, og síðan byggist hann við að halda stóran fund um þessi mál. Óttar Yngvason, framkvæmda- stjóri íslensku útflutningsmið- stöðvarinnar hf., sagði að fyrirtæk- ið hefði nýlega hafið útflutning á frystum fiski til Bandaríkjanna. Þessi útflutningur væri mjög gagn- legur til að styrkja önnur viðskipti fyrirtækisins í Bandaríkjunum en það hefði aðallega selt þar rækju og hörpudisk. Sigurður Garðarsson, fram- kvæmdastjóri Voga hf., sagði að fyrirtækið hefði flutt út smávegis af frystum fiski til Bandaríkjanna frá því í haust en formlega hefði það átt aðild að Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna fram að sl. áramót- um. Jón Gunnarsson, framkvæmda- stjóri íslensks gæðafisks hf., sagði að það borgaði sig ekki fyrir fyrir- tækið að flytja út frystan fisk til Bandaríkjanna ef það fengi ein- ungis bráðabirgðaleyfi til þess eins og það hefði fengið í október sl. Jón Guðlaugur Magnússon, framkvæmdastjóri Marbakka hf., sagði að utanríkisráðherra hefði varað þau fyrirtæki, sem hefðu fengið leyfí til útflutnings á fryst- um fiski til Bandaríkjanna f októb- er sl., við að leggja f mikinn kostn- að vegna útflutningsins. Hann hefði sagt það væri ekki víst að leyfín yrðu endumýjuð og því hefði fyrirtækið ákveðið að flytja ekki út frystan físk til Bandaríkjanna að svo stöddu. Eiríkur Hjartarson, fram- kvæmdastjóri Stefnis hf., sagði að fyrirtækið hefði fengið leyfi til að flytja út fiystan físk frá þeim fáu framleiðendum sem væru ekki aðil- ar að Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna og Sambandinu en það hefði ekki nýtt sér það. Guðmundur Ingason, fram- kvæmdastjóri G. Ingasonar hf., sagði að hann hefði einungis sótt um leyfí til að flytja út flatfisk til Bandaríkjanna en ekki nýtt sér það, enda ætti hann ekki von á að leyfíð yrði endumýjað. Grandi hf: Launahækk- unum mætt með spamaði GRANDI hf. I Reykjavík bregst við auknum launakostnaði vegna slðustu kjarasamninga með sparn- aðar- og hagræðingaraðgerðum. Þegar hefur verið ákveðið að lækka viðhaldskostnað þjá fyrir- tækinu um 20 milfjónir króna og önnur eins upphæð verður spöruð á öðrum sviðum. Þessar upplýs- ingar koma fram f nýútkomnu fréttabréfi Granda hf. Auk hins beina spamaðar í rekstri fyrirtækisins verða gerðar breyting- ar á Norðurgarði. Þær breytingar eiga að leiða til aukinnar hag- kvæmni í fískvinnslunni. í fréttabréf- inu er haft eftir Svavari Svavarssyni framleiðslustjóra Granda hf., að spamaðaraðgerðir séu nauðsynlegar þar sem ekki fáist hærra verð fyrir afurðimar á mörkuöum. Meðalfjöldi starfsmanna hjá Granda hf. var á sfðasta ári 373. Ef meðallaunahækk- unin er 10 þúsund krónur á mánuði þarf Grandi hf. þar af leiðandi að spara yfir 44 milljónir króna til að vega upp á móti þessum hækkunum, miðað við sama starfsmannafjölda. lest ísbergsins störfum í lestinni, sem fylltist af reyk, en þeir komust klakklaust upp og gátu lokað lestinni. Hún er einangruð með tregtendran- legri úreþankvoðu sem myndar banvænar gufur við bruna. Sjálf- slökkvibúnaður í lest vann á eldin- um á innan við klukkustund, að sögn Bergs. Hann sagði að engar skemmdir hefðu orðið á skipinu, nema einangrun hefði sviðnað á nokkrum fermetrum. Talsverður reykur var í lestinni en engar skemmdir urðu á farmi af hans völdum. Eldsupptök munu ekki vera fullkönnuð, en Bergur Álf- þórsson sagði lflcur benda til að þau standi í tengslum við gastæki sem verið var að vinna með í lest- inni. ísberg er 490 tonna flutninga- skip. Eigandi er skipafélagið Ok hf. 11 manns eru í áhöfn skips- ins. Skipstjóri er Stefán Ellerts- son. Skipið losaði og lestaði f Grimsby í gær. Áður höfðu bre- skir sérfræðingar skoðað skipið og gengið úr skugga um að skemmdir væru óverulegar og fulltrúar kaupenda fullvissað sig um að reykur hefði ekki komist í farminn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.