Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
Víða eld-
ur í sinu
VÍÐA um land átti slökkvilið og
lögregla annríkt vegna sinu-
bruna í gser. Á Akranesi brann
járnklædd skemma tíl kaldra
kola er eldur úr sinu læstist í
veggi hennar á áttunda tímanum
i gærkvöldi. Slökkviliðinu i
Reykjavík var tilkynnt um 12
sinuelda fram til klukkan 22.30.
Skemman, sem stóð við Sól-
mundarhöfða, var í eigu útgerðarfé-
lagsins Heimaskaga og var notuð
sem geymsla fyrir veiðarfæri. Hún
brann til grunna á klukkutíma
ásamt því sem í henni var. fy'ónið
hefur ekki verið metið til flár. Alls
bárust flórar tilkynningar um sinu-
eld til lögreglu á Akranesi.
í Reykjavík var slökkvilið tilkvatt
12 sinnum vegna sinuelda víðs veg-
ar í Reylcjavík og í Kópavogi. Mest-
ur viðbúnaður var á fjórða tfmanum
f Vatnsmýrinni en hvergi hlaust af
slys eða eignatjón svo vitað sé.
Trúnaðarráð
Kennarafélags
Reykjavíkur:
Kennarar
hvattírtilað
kenna ekki
í forföllum
TRÚNAÐARRÁÐ Kennarafélags
Reykjavfkur hefur skorað á kenn-
ara í Reykjavfk að taka ekki að
sér forfallakennslu fyrr en samn-
ingar hafa náðst. Þessa áskorun
samþykkti ráðið á fundi fyrir
rúmri viku og Sigrún Ágústs-
dóttir, formaður KFR, segir að
kennarar hafi tekið þessari áskor-
un vel.
„Fólk er orðið langþreytt á þvf
að bjarga skólastarfinu með því að
bæta á sig yfírvinnu, þannig að fyr-
ir suma var þetta kærkomið tæki-
færi til þess að segja nei, og kannski
með betri samvisku," sagði Sigrún.
Hún sagði að álag kennara hefði
verið mikið f vetur því mjög illa hefði
gengið að útvega forfallakennara
og margir kennarar væru komnir
með mikla aukavinnu strax að
haustinu.
í samþykkt trúnaðarráðsins segir
að foreldrar geti vegna þessa búist
við því að börn þeirra verði send
heim fyrirvaralítið ef kennari forfall-
ist. Mjög þungt hljóðs sé f kennur-
um, enda hafi fulltrúar þeirra staðið
í samningaviðræðum frá því um ára-
mót án árangurs. Síðan segir: „Á
þessu skólaári hefur gengið verr en
áður að fá kennara til starfa við
Grunnskóla Reykjavíkur. Aldrei hafa
eins margir réttindalausir starfað
við skólana, og óhófleg yfírvinna
hefur hlaðist á þá kennara sem fyr-
ir eru, bæði vegna þess að kennarar
fást ekki til starfa og vegna forfalla
sem upp koma á skólaárinu."
Eldur í
ELDUR kom upp í lest flutn-
ingaskipsins fsbergs er það var
á siglingu undan Englands-
ströndum á laugardagsmorg-
uninn. Eldurinn komst i ein-
angrun i lest skipsins, sem er
frystiskip, og var á leið til
Grimsby með um 200 tonn af
fiski. Slökkvistarf gekk greið-
lega, að sögn Bergs Álfþórsson-
ar hjá útgerðarfélagi skipsins,
Oki hf., og skaðaðist hvorki
áhöfn né farmur. ísbergið hélt
áfram för til Grimsby að loknu
slökkvistarfi og kom þangað á
sunnudag.
Nokkrir skipveijar voru að
* c-V
.
Seyðisfjörður:
Hver meö
sínn brúsa
fyrir mjólk
Seyðisfjörður.
ÞAÐ KOM berlega í ljós í
óveðrinu sem gekk yfir Austur-
iand i síðustu viku hversu Seyð-
firðingar eru háðir sam-
göngum yfir Fjarðarheiði.
Siðastliðinn fímmtudag urðu
snjóruðningstæki að hverfa frá
heiðinni vegna veðurs og mjólk-
urbíllinn, sem kemur frá Egils-
stöðum með mjólk fyrir bæjarbúa,
komst ekki jrfír heiðina. En þann-
ig háttar til, að í sveitinni hér út
með Seyðisfírði er stórt kúabú á
Hánefsstöðum og flytur þessi
sami mjólkurbfll mjólk Hánefs-
staðabænda upp í Egilsstaði til
vinnslu í mjólkurbúinu þar. Þegar
Seyðfírðingar urðu svo mjólkur-
lausir komu Hánefsstaðabændur
með mjólkina sína á snjósleða inn
í bæ og seldu bæjarbúum. Þetta
var þá orðið alveg eins og í gamla
daga, menn mættu í búðina hver
með sinn mjólkurbrúsa og fengu
í hann sinn mjólkurskammt.
Garðar Rúnar
Sjá frétt af ófærðinni og
veðrinu fyrir austan á bls.
74-75.
Svanhvit Hávarðardóttir eys
mjólk úr og í mjólkurbrúsa.
Vilhelm Adolfsson biður
spenntur með sinn brúsa.
Leyfi til útflutnings á frystum fiski til Bandaríkjanna:
Tíu fyrirtæki til við-
bótar sækja um leyfi
LEYFI sem Vogar hf., Marbakki
hf., G. Ingason hf., Stefnir hf.,
íslenskur gæðafiskur hf. og ís-
lenska útflutningsmiðstöðin hf.
fengu í október sl. til að flytja
út frystan fisk á Bandaríkja-
markað rennur út 30. aprO nk.
Tíu fyrirtæki I viðbót hafa sótt
um útflutningsleyfi fyrir fryst-
an fisk. Framkvæmdastjórar
fyrirtækjanna sex funduðu með
utanrfkisráðherra í gær og
sagðist ráðherra stefna að því
að afgreiða leyfisumsóknirnar
fyrir lok mánaðarins. Einungis
tvö fyrirtækjanna sex hafa nýtt
leyfin, Vogar hf. og íslenska
útflutningsmiðstöðin hf.
Steingrímur Hermannsson utan-
rfkisráðherra sagði við Morgun-
blaðið í gær að lítil reynsla hefði
fengist á þessar leyfísveitingar, þar
sem aðeins eitt fyrirtækjanna hefði
nýtt leyfið að marki, og það raun-
ar staðið sig ágætlega. Hann sagð-
ist hafa átt fundi með fulltrúum
stóru útflutningsfyrirtækjanna,
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og
sjávarafurðadeild Sambandsins, og
núna með fulltrúum þessara sex
fyrirtækja, og síðan byggist hann
við að halda stóran fund um þessi
mál.
Óttar Yngvason, framkvæmda-
stjóri íslensku útflutningsmið-
stöðvarinnar hf., sagði að fyrirtæk-
ið hefði nýlega hafið útflutning á
frystum fiski til Bandaríkjanna.
Þessi útflutningur væri mjög gagn-
legur til að styrkja önnur viðskipti
fyrirtækisins í Bandaríkjunum en
það hefði aðallega selt þar rækju
og hörpudisk.
Sigurður Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Voga hf., sagði að
fyrirtækið hefði flutt út smávegis
af frystum fiski til Bandaríkjanna
frá því í haust en formlega hefði
það átt aðild að Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna fram að sl. áramót-
um.
Jón Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri íslensks gæðafisks hf., sagði
að það borgaði sig ekki fyrir fyrir-
tækið að flytja út frystan fisk til
Bandaríkjanna ef það fengi ein-
ungis bráðabirgðaleyfi til þess eins
og það hefði fengið í október sl.
Jón Guðlaugur Magnússon,
framkvæmdastjóri Marbakka hf.,
sagði að utanríkisráðherra hefði
varað þau fyrirtæki, sem hefðu
fengið leyfí til útflutnings á fryst-
um fiski til Bandaríkjanna f októb-
er sl., við að leggja f mikinn kostn-
að vegna útflutningsins. Hann
hefði sagt það væri ekki víst að
leyfín yrðu endumýjuð og því hefði
fyrirtækið ákveðið að flytja ekki
út frystan físk til Bandaríkjanna
að svo stöddu.
Eiríkur Hjartarson, fram-
kvæmdastjóri Stefnis hf., sagði að
fyrirtækið hefði fengið leyfi til að
flytja út fiystan físk frá þeim fáu
framleiðendum sem væru ekki aðil-
ar að Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna og Sambandinu en það hefði
ekki nýtt sér það.
Guðmundur Ingason, fram-
kvæmdastjóri G. Ingasonar hf.,
sagði að hann hefði einungis sótt
um leyfí til að flytja út flatfisk til
Bandaríkjanna en ekki nýtt sér
það, enda ætti hann ekki von á
að leyfíð yrði endumýjað.
Grandi hf:
Launahækk-
unum mætt
með spamaði
GRANDI hf. I Reykjavík bregst
við auknum launakostnaði vegna
slðustu kjarasamninga með sparn-
aðar- og hagræðingaraðgerðum.
Þegar hefur verið ákveðið að
lækka viðhaldskostnað þjá fyrir-
tækinu um 20 milfjónir króna og
önnur eins upphæð verður spöruð
á öðrum sviðum. Þessar upplýs-
ingar koma fram f nýútkomnu
fréttabréfi Granda hf.
Auk hins beina spamaðar í rekstri
fyrirtækisins verða gerðar breyting-
ar á Norðurgarði. Þær breytingar
eiga að leiða til aukinnar hag-
kvæmni í fískvinnslunni. í fréttabréf-
inu er haft eftir Svavari Svavarssyni
framleiðslustjóra Granda hf., að
spamaðaraðgerðir séu nauðsynlegar
þar sem ekki fáist hærra verð fyrir
afurðimar á mörkuöum. Meðalfjöldi
starfsmanna hjá Granda hf. var á
sfðasta ári 373. Ef meðallaunahækk-
unin er 10 þúsund krónur á mánuði
þarf Grandi hf. þar af leiðandi að
spara yfir 44 milljónir króna til að
vega upp á móti þessum hækkunum,
miðað við sama starfsmannafjölda.
lest ísbergsins
störfum í lestinni, sem fylltist af
reyk, en þeir komust klakklaust
upp og gátu lokað lestinni. Hún
er einangruð með tregtendran-
legri úreþankvoðu sem myndar
banvænar gufur við bruna. Sjálf-
slökkvibúnaður í lest vann á eldin-
um á innan við klukkustund, að
sögn Bergs. Hann sagði að engar
skemmdir hefðu orðið á skipinu,
nema einangrun hefði sviðnað á
nokkrum fermetrum. Talsverður
reykur var í lestinni en engar
skemmdir urðu á farmi af hans
völdum. Eldsupptök munu ekki
vera fullkönnuð, en Bergur Álf-
þórsson sagði lflcur benda til að
þau standi í tengslum við gastæki
sem verið var að vinna með í lest-
inni.
ísberg er 490 tonna flutninga-
skip. Eigandi er skipafélagið Ok
hf. 11 manns eru í áhöfn skips-
ins. Skipstjóri er Stefán Ellerts-
son. Skipið losaði og lestaði f
Grimsby í gær. Áður höfðu bre-
skir sérfræðingar skoðað skipið
og gengið úr skugga um að
skemmdir væru óverulegar og
fulltrúar kaupenda fullvissað sig
um að reykur hefði ekki komist í
farminn.