Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 7
MOEGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
Offramboð á ferskfiski í Bretlandi:
Freðfiskmarkað-
urinn að glatast
- segir Signrður Á. Sigurðsson
hjá Iceland Seafood Ltd.
SIGURÐUR Á. Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood
Lirnited, dótturfyrirtækis SÍS í
Bretlandi, segist telja brýnt að
gera ráðstafanir til að takmarka
útflutning á ferskum íslenskum
fiski til Bretlands, þar sem of-
framboðið á ferskfiski sé að eyði-
leggja freðfiskmarkaðinn og
stríði gegn íslenskum hagsmun-
um. Sigurður nefndi dæmi um
að bresk fyrirtæki seldu fiskflök
úr íslenskum fiski fyrir 8-9 pund
á meðan sambærileg vara íslensk
kostaði 11-13 pund.
„Það eru ekki grænfriðungar,
sem valda okkur mestum vandræð-
um í sölu á íslenskum físki, heldur
offrámboð íslendinga," sagði Sig-
urður. „Við verðum að gæta okkar
á því að yfírfylla ekki markaðinn
af ferskum físki, því að þá erum
við að eyðileggja margra ára mark-
aðsstarf, sem hefur verið mikið og
kostnaðarsamt og verður ekki end-
urheimt á skömmum tíma.“
Sigurður tók dæmi af marsmán-
uði, og sagði að þá hefðu ríflega
8.000 tonn af íslenskum físki verið
flutt inn á Humberside-svæðið 1
Englandi, bæði í gámum og skipum.
„Þetta er miklu meira en við eigum
að venjast, yfírfyllir markaðinn og
veldur því auðvitað að verðið
hríðfellur og fiskiðnaðurinn hér
kemst þama í hráefni á svo lágu
verði að þeir geta undirstungið okk-
ur og yfírtekið viðskiptin," sagði
Sigurður. „Við sitjum hins vegar
uppi með töluverðar birgðir af fryst-
um flökum, bæði hér í Englandi og
heima, sem seljast ekki.“
Að sögn Sigurðar er sala á fryst-
um flökum yfírleitt hæg og.markað-
urinn hefur verið veikur undanfama
mánuði, meðal annars vegna um
10% samdráttar í neyslu á svæðinu.
Sigurður sagði að óhóflegt magn
af ferskum físki ofan á þetta mark-
aðsástand þýddi algjöra ládeyðu í
sölumálum íslendinga. „Þetta
stríðir gegn íslenskum hagsmunum.
Við emm að endurreisa þennan
breska fiskiðnað, sem hefur átt í
erfíðleikum frá því þorskastríðinu
lauk, með því að mata hann á ódýra
hráefni, sem við ættum auðvitað
að nýta okkur sjálfír og stjóma
markaðsátakinu í heild. Það er að-
kallandi að gera einhveijar ráðstaf-
anir til þess að takmarka útflutning
á ferskfíski til Bretlands. Þetta
hefur verið gert í dálitlum mæli
varðandi Þýskalandsmarkaðinn og
gefið góða raun,“ sagði Sigurður.
Nauðsynlegt að
stýra framboði
- segir Bjarni Lúðvíksson hjá SH
NÆR allur ferskur fiskur frá
íslandi, sem seldúr er á markaði
í Bretlandi, fer nú í flökun eða
frystingu þar ytra, sagði Bjarni
Lúðvíksson hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna í samtali við
Morgunblaðið. Mikið framboð á
fiski héðan undanfarið hefur
valdið verðfalli á mörkuðunum í
Englandi og frystihúsin hér
heima geta ekki keppt við það
verð, sem vinnslustöðvar á Hum-
ber-svæðinu geta boðið. Af þess-
um sökum segir Bjarni, að stýra
þurfi framboði á ferskum fiski
héðan á markaði ytra.
Bjami sagði að undanfarið hefðu
60-70% af fískinum héðan farið í
frystingu á Humber-svæðinu. Eftir
páska væri hlutfallið komið í um
90%. Þegar lægri launakostnaður
ensku vinnslustöðvanna bætist við
lágt verð á mörkuðunum veldur það
því, að ensku vinnslustöðvarnar
geta boðið afurðir sínar á 10-15%
lægra verði en ísiensk frystihús
geta boðið. Bjami sagði vera ljóst,
að við höfum að stærstum hluta
verið að þjóna vinnslumarkaði. „Ef
við eigum að þjóna ferskfískmark-
aði verðum við að gera það með
skynsamlegum hætti. Við verðum
að stýra framboðinu, ef við ætlum
að halda hæsta verði sem við getum
fengið," sagði Bjami Lúðvíksson.
Hann sagði verð á mörkuðunum í
Englandi vera heldur skárra nú
síðustu daga en það var í fyrri viku.
Þó væri það ekki sambærilegt við
það verð sem fæst hér heima á
rrtörkuðunum, ef kostnaður við sölu
erlendis er dreginn frá.
Gjaldþrot Scana:
Eignir nægja ekki fyrir 7
milljóna forgangskröfum
Kröfur alls rúmar 43 milljónir
KRÖFUM fyrir rúmar 43 miRjón-
ir króna hefur verið lýst í
þrotabú saumastofunnar Scana.
Almennar kröfur nema um 34
milljónum, veðkröfur eru tæpar
tvær milljónir en forgangskröfur
7,2 milljónir. Að sögn bústjórans,
Sigurmars Albertssonar hdl,
liggur ekki fyrir fúllnaðarmat á
eignum búsins en ljóst er að
munu ekki duga fyrir forgangs-
kröfum.
Að sögn Sigurmars á ríkissjóður
stærstu kröfuna, um það bil 6 millj-
ónir, vegna yfirtekinna launa- og
líeyrissjóðsgreiðslna. Sú krafa fær
forgangsmeðhöndlun við skipti.
Meðal annarra stærstu kröfuhafa
má nefna Gjaldheimtuna í
Reykjavík með 4 milljón króna
kröfu og SÍS með 3,8 milljóna
kröfu. Einnig hafa borist kröfur frá
Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Belgíu
og Bandaríkjunum vegna ógreidds
hráefnis fyrir samtals á fimmtu
milljón króna.
Að sögn bústjórans horfír ekki
vænlega með sölu á eigum búsins
og er ljóst að eignir hrökkva ekki
fyrir forgangskröfum. Scana átti
engar fasteignir og era verðmæt-
ustu eignir í vélabúnaði. „Það er
ekki hlaupið að því að selja sauma-
vélar á íslandi í dag og tilraunir til
að selja erlendis hafa ekki borið
árangur,“ sagði Sigurmar Alberts-
son. Skiptafundur verður haldinn
5. maf.
. 7
SAGAN
UM SIGVALDA
OG FJÓRHJÓUÐ! *
Þetta er sagan um Sigvalda, sem vann stóra vinninginn í happdrættinu. Hvorki meira
né minna en Mercedes Benz. Hann seldi bílinn þegar í stað og keypti sér Kjarabréf
í staðinn. Þetta er svo sem ekki óvenjuleg saga, ef það væri ekki staðreynd að Sigvaldi
ekur nú, eins og greifi, á Mercedes Benz, konan hans á Toyota Corolla og
dóttursonur þeirra var tekinn úr umferð á nýju fjórhjóli í fyrradag.
Þetta byrjaði með miða...
Þú kannast ábyggilega við hann Sigvalda. Hann er búinn að vinna hjá borginni í
fjöldamörg ár. Konan hans, hún María, vinnur á lögmannastofunni austur í bæ. Þú
þekkir þau ábyggilega þegar þú sérð þau. Sigvaldi er mikill útilífsmaður. Hann er
alltaf í einhverju ferðastússi allan ársins hring. Þess vegna komst hann ekki hjá því
að kaupa happdrættismiða á árshátíð ferðaklúbbsins. Hann keypti að vísu ekki nema
tvo miða.
Vinningur í maí
Árshátíðin var í mars, árið 1985. Nokkrum vikum seinna var dregið í happdrættinu.
Það er að segja þann 20. maí 1985. Vinningurinn, Mercedes Benz 190 E árg. 85,
kom á númerið hans Sigvalda. Nú voru góð ráð dýr. Venjulegir borgarstarfsmenn
eins og Sigvaldi aka ekki um á borgarstjórabílum. Slíkt bara gerist ekki.
Happdrættismiði til sölu
Það er ekki hægt að segja að hann Sigvaldi sé bjáni. Síður en svo. Að minnsta kosti
segir hún María, að hann hefði átt að skella sér í pólitíkina, — í stað þess að ve;ra
félagi í SFRB. Það var ekki liðinn dagurinn þegar Sigvaldi var búinn að selja
happdrættismiðann.
„Ég fór bara og talaði við nokkra bíladellukarla. Einn þeirra borgaði miðann út í
hönd,“ sagði Sigvaldi þegar hann kom heim með úttroðið veskið, rúmlega eina
milljón í vasanum!
Peningarnir á fast...
Hún María gat ekki sofið um nóttina. Hún bylti sér á alla enda og kanta í rúminu.
Hún sá fýrir sér innbrotsþjófa, gengisfellingar og alls kyns hörmungar. Sigvaldi aftur
á móti svaf eins og ungabarn - með veskið undir koddanum. Morguninn eftir fór
hann og ræddi við hann PétUr, ráðgjafa hjá Fjárfestingarfélaginu. Pétur ráðlagði
honum að kaupa Kjarabréf, og aðstoðaði hann við kaupin.
Þremur árum síðar...
Laugardagurinn tuttugasti febrúar nítjánhundruð áttatíu og átta var stór dagur í
lífi þeirra hjóna, Maríu og Sigvalda. Þau heimsóttu nýju söluskrifstofuna hjá
Fjárfestingarfélaginu í Kringlunni strax og opnað var um morguninn. Þar fengu þau
kaffisopa hjá Stefáni ráðgjafa og aðstoð við sölu á Kjarabréfunum frá 1985.
... nýr bíll og meira til!
Þegar Sigvaldi seldi happdrættisvinninginn árið 1985 fékk hann 1.050.000 krónur
fyrir miðann. Hann keypti Kjarabréf fyrir 1.049.580 krónur. Við sölu Kjarabréfanna
fékk hann 2.685.422 krónur. Þannig gat hann samdægurs keypt sér 1988 árgerð af
Mercedes Benz. Nákvæmlega sama bíl og var í vinning á sínum tíma, en auðvitað
spánýjan. Bíllinn kostaði hann 1.360.000 krónur sléttar. Hann keypti þar að auki
Toyota Corolla bíl fýrir Maríu. Corollan kostaði 505.000 krónur. Þar af leiðandi átti
hann eftir 820.422 krónur, sem nægðu honum til að gefa Jónasi dóttursýni sínum
splunkunýtt fjórhjól í fermingargjöf. Þá átti Sigvaldi ennþá eftir 630.422 krónur, sem
hann vill ekki segja hvað hann gerði við. Hann Stefan hjá Fjárfestingarfélaginu veit
allt um það, þó að hann segi engum frá því. Hann Stefán selur nefhilega Kjarabréf.
* Þetta er alveg satt. Sögunni og nöfnum hefur að vísu verið breytt — af augljósum ástæðum!
FJÁRFESTINGARFÉIAGIÐ
_Kringlunni 123 Reyl^javík S 689700_
ósarfslA