Morgunblaðið - 19.04.1988, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
17
Hrika-
legur
celló-
leikur
Tönlist
JónÁsgeirsson
Misha Maisky er stórbrotinn
cellisti, bæði hvað snertir tækni
en sérstaklega þó fyrir afburða
sterka túlkun.1 Fýrsta verkið sem
hann lék á tónleikum Tónlistarfé-
iagsins í Gamla bíói sl. laugardag
var þriðja cellósvítan eftir J.S.
Bach. Það eina sem finna mætti
að leik hans í svítunni var of til-
fínningalega þrungin túlkun, sem
auðvitað má lita Bach með en er
of mikil þegar túlkunin fer að
draga athygli hlustenda frá sjálf-
um tónvefnaðinum. Hvað sem
þessu líður var leikur Maisky
feikna góður.
Annað verkið á efnisskránni
var cellósónatan eftir Sjostako-
vitsj og þar kom til samleiks
píanóleikarinn Steven Hoogen-
berk, góður píanóleikari sem þó
lék á köflum nokkuð oflátungs-
Misha Maisky
lega. í þessu glæsilega verki Sjos-
takovitsj var leikur Maisky eitt
af því stórbrotnasta sem undirrit-
aður man eftir og hefur þó æði
oft heyrt sónötuna leikna. Leikur
hans og túlkun var eitt stórt ævin-
týri.
Arpeggione-sónatan eftir Schu-
bert og Italska svítan eftir Strav-
inskí voru seinni verkefnin og má
það sama segja um flutning þeirra
og þau fyrri, að leikur Maisky var
hrikalegur og að Maisky er stór-
brotinn og sérstaklega tilfínninga-
ríkur listamaður, er hefur svo
mikla en agaða tækni að hann
getur bókstaflega talað sleppt til-
finningum sínum lausum og þegar
kyrrist um, á hann til yndislegan
og mannhlýjan tón, gæddan sér-
stæðri einlægni í fullkominni and-
stæðu við tilfinningaofsann.
Trúlega er ekki að fínna marga
listamenn sem búa svona vel hvað
snertir tilfínningaiegar andstæður
og geta tjáð þær af slíkri ein-
lægni sem heyra mátti hjá celló-
snillingnum Misha Maisky.
Hljómeyki
í Kristskirkju
Tónlist
JónÁsgeirsson
Sönghópurinn Hljómeyki, undir
stjóm Hjálmars H- Ragnarssonar,
stóð fyrir ágætum tónleikum í
Kristskirkju sl. sunnudag en á
efnisskránni voru eingöngu tón-
verk eftir Hjálmar. Hljómeyki er
tólf manna hópur, sem hefur með
árunum náð að vinna sig saman
og er auk þess skipaður vel
menntuðu og söngvönu fólki.
Söngur kórsins var að þessu sinni
betri en nokkru sinni fyrr og má
vera að stjóm og samvinna Hjálm-
ars við kórinn eigi sinn þátt í
góðri samstillingu sönghópsins.
Þá ber einnig að hafa í huga að
tónlist Hjálmars er á köflum leik-
ræn og blæbrigðarík.
Undirritaður hefur áður heyrt
öll verkin, nema Lauffall við texta
eftir Snorra Hjartarson, en það
lag var flutt af Halldóri Vilhelms-
syni við undirleik Marteins H.
Friðrikssonar. Þrátt fyrir fyrri
kynni við verkin, var upplifun
þeirra nú sem um ný verk væri
að ræða, sérstaklega Gamalt vers,
sem er hrein tónperla og sömuleið-
is Ave María.
Gloria og Credo em rismikil
verk, full upp með sterkar and-'
stæður er komu sérlega vel fram
í vönduðum flutningi Hljómeyki.
Hjálmar H. Ragnarsson
Kvöldvísur um sumarmál við texta
eftir Stefán Hörð Grímsson er
fallega unnið en einhvem veginn
fann undirritaður ekki það sam-
spil tóna og texta sem koma eink-
ar skýrlega fram í öðmm verkum,
sérstaklega þó í Lauffallinu hans
Snorra.
Þá jók það sérstaklega á
ánægjuna, að Kristskirkja var
bókstaflega talað troðfull, svo að
ljóst er að tónleikagestir telja sig
eiga erinidi við Hjálmar og þá er
sama þó menn viti að um nútíma-
lega trúartónlist er að ræða, ef
þar í móti kemur, að von er í
góðri tónlist og vönduðum flutn-
ingi, eins og hér var að hafa.
Ennþá einu sinni nýr og byltingarkenndur HONDA CIVIC með breytingum,
sem gera HONDA CIVIC tvímælalaust fremstan í flokki minni bíla.
Allar gerAir koma nú með vól úr lóttmálmi og 16-VENTLA, ýmist með
einum eða tveimur kambásum, sem þýðir meiri orku og minni eyðslu.
Ný frábær fjöðrun, sem á sór enga hliðstæðu í sambærlegum bílum og
óvenju mikil lengd á milli hjóla gefur bílnum mjög góða aksturseiginleika
og aukin þægindi í akstri.
Með þessu hefur HONDA sannað enn einu sinni, að þeir framleiða „litla
bílinn" með þægindi og rými stóru drekanna en aðalsmerki HONDA í
fyrirrúmi:
SPARNEYTNI, GÆÐI OG ENDINGU.
^\NÝ HONDA CIVIC KYNSLÓB,^
W HONDA
HONDA Á ÍSLANDI Vatnagörðum 24 s. 689900.