Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
Vegið að starfsemi
Krabbameiiisfélagsins
eftirDavíð
*
Olafsson
Fram er komið á Alþingi frum-
varp til laga um sérstaka fjáröflun
til Skáksambands íslands. Efni
frumvarpsins er um skattlagningu
greiðslukorta og samkvæmt því
skal verja innheimtum skatti til
styrktar skákíþróttinni í landinu.
Flutningsmenn frumvarpsins eru
Guðmundur G. Þórarinsson, Albert
Guðmundsson og Steingrímur J.
Sigfússon. í rökstuðningi fyrir þess-
ari tillögu segir aðalflutningsmaður
m.a. í blaðagrein nýlega:
„Skáksambandið fær til starf-
semi sinnar almennrar rúmlega
milljón krónur á fjárlögum. Margra
ára reynsla sýnir að ekki dugar að
treysta á fjárveitinganefnd. Þar er
einfaldlega verið að deila út alltof
litlum peningum til alltof margra
aðila. Frjáls framlög eru ágæt en
á þeim verður ekki byggt til lengd-
ar. Því er nauðsynlegt að sjá SI
fyrir öruggum tekjum."
Hér er ekki einu sinni hálfur
sannleikurinn sagður, eða fá ekki
fjórir stórmeistarar föst laun frá
ríkinu, og. væntanlega er það á fjár-
lögum. Þar eru nokkrar milljónir
til skákíþróttarinnar í viðbót við
þessa rúmlega einu til „almennrar"
starfsemi. Þetta er rétt að telja með
þegar framlag ríkisins til skák-
íþróttarinnar er tíunda. Á öðrum
stað í greininni segir þingmaðurinn
„stjómmál eru val“. Það er laukrétt
og það er einmitt hlutverk alþingis-
manna að velja og hafna þegar
þeir semja fjárlög. Hversvegna
brugðust þeir þá skákíþróttinni?
Þeir höfðu líka tækifæri, eins og
virðist nú vera að renna upp fyrir
þingmanninum, til að veita skák-
íþróttinni fastar tekjur þegar lögin
um lottóið voru samþykkt en þá
gleymdist líka að velja rétt og skák-
íþróttin var skilin útundan. Þar er
að vísu ekki um að ræða skattlagn-
ingu heldur fijáls framlög, en þó
mjög öruggan tekjustofn. Það er
gálfsagt að taka fram, að gagmýni
á þetta frumvarp má engan veginn
skiljast sem að verið sé að amast
við fjárstuðningi við skákíþróttina.
Hins vegar er spuming hvort þeirri
göfugu íþrótt er nokkur greiði gerð-
ur með skattlagningu á borð við
þá, sem frumvarpið gerir ráð fyrir.
En það var ekki ætlun mín að
hefja almenna umræðu um þessa
fjáröflunarleið og rökin fyrir henni,
heldur aðeins benda á, að með þessu
er verið að taka hið eiginlega hlut-
verk af fjármálaráðherra, að gera
tillögur um. öflun og ráðstöfun
tekna ríkissjóðs eins og hann leggur
það fyrir árlega í fjárlagafmm-
varpi. En hér hefur líka verið gefið
fordæmi og önnur tillaga er þegar
komin fram á Alþingi um sérstaka
skattlagningu til annars góðs mál-
efnis og trúlega verður það ekki sú
síðasta því nóg er af „góðum mál-
efnum" og sjálfsagt enn margar
skattlagningaleiðir ónotaðar. Það
er bara að nota hugmyndaflugið.
Aðaltilefni mitt með þessum skrif-
um er þó allt annars eðlis og miklu
alvarlegra. Til er í landinu félags-
skapur, sem nefnir sig Krabba-
meinsfélag íslands. Það saman-
stendur af 24 félögum víðsvegar
um landið með mörg þúsund með-
limum. Þeir sem að þessum félags-
skap standa hafa sett sér það mark
að berjast gegn einum mesta vá-
gesti, sem nú heijar á fslensku þjóð-
ina. Þessi barátta krefst mikilla
fjármuna og það er gott til þess
að vita, að um helmingur þeirra
fjármuna, hefur hingað til komið
af fijálsum framlögum. Hinn helm-
ingurinn kemur frá ríkinu, en það
er allt greiðsla fyrir ýmiss konar
þjónustu félagsins við heilbrigðis-
kerfið í landinu. Á sl. ári ákvað
Krabbameinsfélagið að stíga enn
eitt mikilvægt skref í baráttunni
við krabbameinið og setja á stofn
rannsóknarstofu í sameinda- og
frumulíffræði. Er þar um að ræða
grunnrannsóknir á krabbameini,
sem ekki hafa verið stundaðar hér
áður og miklar vonir eru bundnar
við. Hér er tekist á við langtíma-
verkefni, sem áríðandi er að tryggja
fjárhagslegan grundvöll fyrir, því
slíkar rannsóknir mega ekki rofna
í miðjum klíðum.
Að mati vísindamanna eru að-
stæður til slíkra rannsókna mjög
góðar hér á landi. Á það hefur oft
verið bent með réttu, að íslendingar
eru sérlega vel fallnir til rannsókna
á hegðun sjúkdóma eða annarra
læknisfræðilegra fyrirbæra. Þetta
byggist einkum á því, að á íslandi
býr heil þjóð af sama kynstofni og
uppruna og fólkið er annars vegar
nógu fátt til þess að unnt sé að ná
til stórs hluta þjóðarinnar, en hins
vegar nógu margt til þess að niður-
stöður verði marktækar. Hér á landi
hefur lengi verið góð heilbrigðis-
þjónusta og góð skráning, auðvelt
er að ná til fólks og það almennt
mjög áhugasamt og fúst til að taka
þátt í rannsóknarverkefnum. Síðast
en ekki síst veldur ættfræðiáhugi
íslendinga því að hér gefast einstök
tækifæri til ættrakningar á ýmsum
fyrirbærum.
Allt það fé, sem fengist hefur til
þessarar rannsóknarstofu, er komið
af fijálsum framlögum. Húsnæðið
er í húsi Krabbameinsfélags íslands
við Skógarhlíð í Reykjavík, keypt
fyrir fé, er safnaðist í þjóðarátaki
gegn krabbameini árið 1982. Tæki
rannsóknarstofunnar, sem eru af
fullkomnustu gerð, voru keypt fyrir
gjafafé, aðallega frá Islenskum að-
alverktökura, en einnig frá Kvenfé-
laginu Hringnum og Eggert Briem.
Pars Pro Toto í Hlaðvarpanum:
Leikrænt dansverk
um lífið og tilveruna
„...en andinn er veikur“, nýtt íslenskt leikhúsverk
Danstilþrif á stofnunmni.
Leikmynd Pars Pro Toto í Hlaðvarpanum er einföld en áhri-
farík, en sæti er fyrir 60 gesti í salnum.
Þau leika og dansa fi .. en andinn er veikur“.. Frá vinstri: Ell-
ert Ingimundarson, líatrín HaU, ILára Stefánsdóttir, Sigrún Guð-
mundsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson og Birgitta Heide. Ljós-
myndir: Eva Karlsdóttir.
Blússandi leikrænt dansverk
er í uppsiglingu í Hlaðvarpan-
um á vegum leik- og dans-
hópsins Pars Pro Toto, sem er
úr latneskri tungu og þýðir
hluti fyrir heild. Sex liðsmenn
eru í sýningunni, fjórir dansar-
ar í íslenska dansflokknum og
tveir leikarar. Það eru ekki
mörg orð viðhöfð í þessu lið-
lega klukkustundar leikhús-
verki, en tvímælalaust er um
að ræða mjög sérstætt íslenskt
leikhúsverk, þar sem túlkun og
sviðssetningu leikdansaranna
er ætlað að laða fram orðanna
hljóðan i hugsun hvers leik-
hússgests út af fyrir sig.
Rökkkurskuggar með grænni
slikju stofnunarinnar, sem leik-
dansinn fer fr'am í, tók á móti
blaðamanni Morgunblaðsins á
einni af lokaæfingum hins leik-
ræna dansverks „ ... en andinn
er veikur", sem Pars Pro Toto
munu frumsýna 20. apríl nk. í
Hlaðvarpanum. Höfundar verks-
ins eru Guðjón Pedersen, Katrín
Hall og Lára Stefánsdóttir, en
verkið er samið í samvinnu við
aðra félaga ieikhópsins. Margsl-
unginni og hraðri danstækni er
beitt í „andanum", en frumsamin
tónlist er eftir Kjartan Ólafsson.
Efnisþráður „andans" í veik-
leika sínum fjallar á sinn hátt um
þá stofnun sem samfélag manna
býður upp á í öllum sínum fjöl-
breytileika, skyldum, vonum og
þrá, en áherslumar í nýrri merk-
ingu orðsins dansleikur gefa ýmsa
möguleika fyrir áhorfandann,
bæði í þröngum og víðum skiln-
ingi.
Þátttakendur eru Ellert Ingi-
mundarson, Katrín Hall, Lára
Stefánsdóttir, Sigrún Guðmunds-
dóttir, Ámi Pétur Guðjónsson og
Birgitta Heide. Danshöfundar eru
Lára Stefánsdóttir og Katrín Hall,
lýsing í höndum Ágústar Peters-
en, leikmynd og búninga gerir
Ragnhildur Stefánsdóttir mynd-
höggvari, en leikstjóri er Guðjón
Pedersen.
Forsýning á „ ... en andinn er
veikur" verður 19. apríl, en frúm-
sýning 20. apríl. Önnur sýning
verður 21. apríl kl. 9 og 3. sýning
24. apríl kl. 9. Fjöldi sýninga verð-
ur takmarkaður vegna annarra
verkefna leikara og dansara og
þess tíma sem leikhópurinn hefur
:iðstöðu í Hlaðvarpanum.
Pars Pro Toto hóf starf suma-
rið 1985 þegar dönsurum í ís-
lenska dansflokknum barst ix>ð
um þátttöku norrænni menning-
;irhátíð ungs fólks í Stokkhólmi.
.1986 kom hópurinn aftur saman
með breyttri liðsskipan og tók
þátt í norrænni listahátíð í
Reykjavík, en hún var haldin í
Borgarskála Eimskips. Þar sýndi
hópurinn frumsamið verk eftir
Láru Stefánsdóttur, „Hendur
sundurleitar", leikrænt dansverk
fyrir einn leikara og fímm kven-
dansara, en það verk var tekið
upp fyrir íslenska sjónvárpið og
sýnt á páskadag síðastliðinn und-
ir heitinu Sofandi jörð. Hópurinn
viidi halda áfram starfínu og sótti
um styrk til menntamálaráðu-
neytisins og fékk 300 þús. kr. til
þessa nýja verkefnis, en án þeirr-
ar aðstoðar menntamálaráðuneyt-
isins hefði leikhópurinn ekki getað
ráðist í dansleikinn „ . . . en and-
inn er veikur". - áj.