Morgunblaðið - 19.04.1988, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
21
Davíð Ólafsson.
„Vísa-korthöfum hafa
verið send tilmæli um
að taka þátt í þessu
söfnunarátaki Krabba-
meinsfélagsins og hafa
margir þegar svarað
með því að heita fram-
lagi sínu, misjafnlega
miklu, allt eftir efnum
ogástæðum."
Þá var eftir að sjá fyrir rekstri
rannsóknarstofunnar, þar sem ljóst
var að tekjur Krabbameinsfélagsins
hrykkju ekki til hans. Á síðastliðnu
ári var leitað til Vísa íslands um
stuðning. Var því mjög vel tekið
og ákvað stjóm Vísa íslands að
leggja Krabbameinsfélaginu lið,
m.a. með því að gefa félaginu kost
á að hagnýta sér greiðslukerfi Visa
til millifærslu flárframlaga frá vel-
unnurum. Er notendum greiðslu-
korta Vísa gefínn kostur á að leggja
fram 100 krónur eða meira á mán-
uði svo lengi sem þeir óska og Vísa-
kort þeirra heldur gildi sínu. Vísa
ísland mun annast millifærslu þess-
ara flármuna aðilum að fyrirhafnar-
lausu og rennur allt söfnunarfé
óskert til Krabbameinsfélags ís-
lands.
Þetta er ómetanlegt framlag af
hálfu Vísa íslands og annarra, sem
stuðlað hafa að því að þessi rann-
sóknarstofa hefur nú hafíð starf-
semi með færum vísindamönnum,
og sýnir góðan skilning á mikilvægi
þessarar starfsemi. Forsvarsmenn
Krabbameinsfélagsins tengja mikl-
ar vonir við þessa fjáröflun.
Vísa-korthöfum hafa verið send
tilmæli um að taka þátt ( þessu
söfnunarátaki Krabbameinsfélags-
ins og hafa margir þegar svarað
með því að heita framlagi sínu,
misjafnlega miklu, allt eftir efnum
og ástæðum. Ennfremur liggja nú
frammi seðlar í öllum bönkum og
sparisjóðum, þar sem fólk getur til-
kynnt þátttöku sína í söfnuninni.
Nú má það vel vera, að flutnings-
mönnum frumvarpsins hafí alls ekki
verið kunnugt um þessa sérstöku
fjársöfnun Krabbameinsfélagsins,
sem -er nýlega hafín. Þessi grein
er skrifuð m.a. til þess að upplýsa
alþingismenn um þetta.
Ef frumvarpið, sem er tilefni
þessara skrifa, verður að lögum er
mjög ómaklega vegið að þessari
þýðingarmiklu starfsemi Krabba-
meinsfélagsins og því óhjákvæmi-
legt að vekja athygli alþingismanna
á þessum þætti málsins, áður en
kemur til þeirrar afdrifarfku
ákvörðunar að afgreiða frumvarpið.
Það er auðveltað ímynda sér við-
brögð Vísa-korthafa við slíkri skatt-
lagningu. Hún hlýtur óhjákvæmi-
lega að leiða til stórlegra minnk-
andi þátttöku þeirra í frjálsum
framlögum til starfsemi Krabba-
meinsfélagsins, sem Vísa ísland
hefur svo góðfúslega stutt að kort-
hafar þeirra gætu tekið þátt í. Það
væri hörmulegt ef alþingismenn,
með samþykkt þessa frumvarps,
kipptu fótunum undan mikilvægum
þætti í baráttunni gegn krabba-
meini.
Höfundur er fyrrverandi seðla-
bankasijóri.
Aukin þjónusta í
Borgarbókasafni
Borgarbókasafn Reykjavíkur
er 65 ára um þessar mundir. í
tilefni afmælisins verður sektar-
laus vika í öllum deildum safns-
ins dagana 19.-26. apríl. í frétta-
tilkyhningu frá safninu segir að
þetta sé kjörið tækifæri fyrir þá,
sem af einhveijum orsökum hafi
i fórum sinum bækur, sem komn-
ar séu i vanskil, þar sem þessa
viku þarf ekki að greiða af þeim
dagsektir.
Borgarbókasafn tók við af Bæj-
arbókasafni Reykjavíkur, sem var
arftaki Alþýðubókasafns
Reykjavíkur, en það tók einmitt til
starfa 19. apríl 1923 á Skólavörðu-
stíg 3 og átti þá um 900 bækur.
Ári síðar var bókaeignin orðin rúm-
lega 4.500 eintök og nú um síðast-
liðin áramót átti safnið um 367.000
bækur. Safnið fluttist í Ingólfs-
stræti 12 árið 1928 og var þar til
húsa þar til það fluttist í Þing-
holtsstræti 29a, Esjuberg, en þar
var opnað 21. janúar 1954, og er
aðalsafn nú þar til húsa.
Fyrsta útibú safnsins tók til
starfa 1934 í Franska spítalanum,
og í mars 1986 var ljórða útibúið
opnað, Borgarbókasafnið í Gerðu-
bergi. Er það stærst útibúanna og
býr við bestan húsakost.
Eðli sínu samkvæmt byggist
starfsemi bókasafns vitanlega á
•bókum og hinu ritaða orði, og ekk-
ert bókasafn er hlutverki sínu vax-
ið, nema það hafi upp á að bjóða
góðan og fjölbreyttan bókakost.
En í almenningsbókasafni nútí-
Úr útibúi Borgarbókasafnsins í Gerðubergi
mans er einnig að fínna annars þar sem öll aðstaða til hlustunar
konar safnkost en bækur, og má er mjög góð. Hljómplötumar hafa
þar nefna tónlistarefni svo sem ekki verið til útlána fram að þessu,
snældur og hljómplötur. Borgar- en í tilefni aftnælisins hefur verið
bókasafn hefur um skeið starfrækt ákveðið að bæta nýjum þætti við
tónlistardeild með nótum og efni þjónustu safnsins og hefja útlán á
til hlustunar. Var deildin upphaf- hljómplötum (geisladiskum) í Borg-
lega í Bústaðasafni og þá hægt að arbókasafni í Gerðubergi og heijast
hlýða á hljómplötur þar, en var þau á afmælisdeginum, 19. apríl.
síðan flutt í útibúið í Gerðubergi, (Fréttatilkynning)
ÞVOTTEKTA GÆÐI
íheimilistækjunum frá AEG fara
saman afköst, endingoggæði.
Þvottavélarnar frá AEG bera
þviglöggt vitni.
AEG
- þvíþú hleypir ekki kverju sem er í húsverkin!
I
Akc OKO.AAVAMAr r.
t --N, --N, Ato DKO.IAVAMAT tjl
!í ŒíiEUi
_ t,
■ :
Lavamat981 w
Alltað 1200snúnlnga vínda pr. mínútu.
Sparnaðarkerfl fyrir2,5kg. afþvotti eða minna.
Sérstakt ullarþvottakerfi með 25 sn pr. min.
Áfangavinding.
ÖKÖ kerfi - sparar 20% þvottaefni.
Tekur 5 kgafþurrum þvotti.
Froðuskynjari.
Belgur og tromla úrryðfríu stáli.
Eyðslugrönn á vatn ografmagn 2,1 kwpr. klst. 75 ltr.
á lengsta kerfi.
3 ára ábyrgð.
Verð kr. 54.384. - stgr.
Lavamat951 w
Allt að 850 snúninga vinda pr. minútu.
Sparnaðarkerfi fyrir 2.5 kgafþvottí eða minna.
Stiglaust hítaval.
ÖKÖ kerfi - sparar 20% þvottaefni.
Tekur 5 kgafþurrum þvotti.
Ullarþvottakerfi.
Froðuskynjari.
Belgurog tromla úrryðfriu stálí.
3áraábyrgð.
Verð kr. 44.426. - stgr.
>■' 'sxs
—
AFKOST
ENDING
GÆÐI
Vestur-þýsk gæði á þessu verði,
engin spumingl
Umboðsmenn um land allt.
BRÆÐURNIR
ONHF