Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
23
Rækja orðin uæst verðmæt-
asti sjávarafli Islendinga
eftir Lárus Jónsson
Rækjuafli varð um 37.700 tonn
á síðastliðnu ári, skv. bráðabirgða-
tölum Fiskifélags íslands og hefur
aldrei verið meiri. Verðmæti þessa
rækjuafla upp úr sjó er áætlað 2.930
millj. kr. eða 11,9% af verðmæti
heildarafla landsmanna. Rækja er
því orðin verðmætasta fisktegundin,
ef frá er skilinn þorskur, verðmæt-
ari en loðna eða karfí svo dæmi séu
tekin. (Mynd nr. 1). Til saman-
burðar var rækjuaflinn einungis um
10.000 tonn 1980.
Veiðar og vinnsla rækju hefur
aukist ótrúlega hratt á undanföm-
um árum. Árið 1982 var hlutdeild
frystrar rækju einungis um 2% af
verðmæti sjávarvöruframleiðsiunn-
ar. Nú er fryst rækja orðin þriðja
mesta framleiðslugrein sjávarvöru,
næst á eftir botnfiskfrystingu og
söltun. Hlutdeild hennar nam milli
9 og 11% i framleiðslu sjávarafurða
1986 og 1987 eða 3.600 til 3.800
millj. króna. (Sjá mynd nr. 2 og nr.
3)-
Astæðan fynr þessari byltingu í
veiðum og vinnslu rækju er auðvitað
fyrst og fremst sú, að settar voru
reglur um veiðikvóta á botnfiskteg-
undir og því var sóknin aukin í út-
hafsrækjuna, enda höfðu fundist
góð rækjumið á djúpslóð á áratugn-
um 1970-80.
Kaldsjávarrækja 15% af
heimsframleiðslunni
Grænlendingar hafa aukið mjög
veiðar og vinnslu rækju á svipuðum
tíma og við íslendingar. Þeir veiddu
um 10 þúsund tonn árið 1975 en
veiða nú 12 árum síðar a.m.k. sex-
falt meira magn. Menn velta því
fyrir sér, hvort þetta aukna framboð
hafi áhrif á verð þessarar afurðar,
sem hefur sveiflast mjög til að und-
anfomu. í þvf sambandi þarf að
hafa í huga, að heimsmarkaðurinn
fyrir rækjuafurðir er mjög flókið
fyrirbrigði og er umfangsmesti fisk-
markaður í heimi, eða um 20% af
allri milliríkjaverslun með fisk. Af
þeim tæplega 2,2 millj. tonna af
rækju, sem var veidd eða ræktuð í
heiminum árið 1987, vom einungis
15% kaidsjávarrækja, eins og veiðist
hér við ísland og í Norðurhöfum.
Engu að síður er aukið framboð
en kaldsjávarrækja, nær a.m.k. af
og til aukinni markaðshlutdeild, ef
verð hækkar um of á kaldsjávar-
rækjunni. Engu að síður virðist
framboð og eftirspum kaldsjávar-
rækju vera í sæmilegu jafnvægi á
markaðinum um þessar mundir.
Mikilvægustu markaðir
og verðþróun
Mikilvægustu markaðssvæði fyrir
útflytjendur rækju í heiminum em
Japan, Bandaríkin og Evrópa.
Neysla rækju á þessum markaðs-
svæðum kemur fram í töflu nr. 1.
Þar er einnig sýnd skipting rækju-
neyslu milli kaldsjávarræktaðrar og
hlýsjávarrækju.
Lárus Jónsson
„Ástæðan fyrir þessari
byltingn í veiðum og
vinnslu rækju er auðvit-
að fyrst og fremst sú,
að settar voru reglur
um veiðikvóta á botn-
f isktegundir og því var
sóknin aukin í úthafs-
rækjuna, enda höfðu
fundist góð rækjumið á
djúpslóð á áratugnum
1970-80.“
12
10
X 6-.
*■■
z-
0-1-
Veptfmsti framleiffslu frystrar rmkju í X
af sjávarvöruframleiðslu í heild.
1960 1981 1962 1983
1964
1965 1966
1987
Tafla 1.
Rækjuneysla á mikilvægustu markaðssvæðum heims
Japan kg/á mann/ á ári 2 Kaldsjávar- rækja: 8% Ræktuð rækja 12% Hlýsjávar- rækja 80%
Bandaríkin 1 10% 20% 70%
Evrópa 1/2 50% 1% 49%
kaldsjávarrækju áhyggjuefni vegna
þess að mikilvægustu markaðimir,
sem vilja kaupa íslenska rækju á
miklu hærra verði en rækju úr hlýj-
um sjó, em jafnframt helstu mark-
aðir Grænlendinga. Norðmanna,
Dana, Færeyinga og Kanadamanna.
Nú síðustu tvö árin hefur dregið
mjög úr veiðum Norðmanna og Sov-
étmanna í Barentshafi og það hefur
valdið því, að framboð af þessari
gæðarækju hefur minnkað síðastlið-
in tvö ár, þrátt fyrir aukið framboð
frá okkur Islendingum og Græn-
lendingum. Veiðar framangreindra
þjóða í heild hafa minnkað úr
219.000 tonnum 1985 í um það bil
160 þúsund tonn 1987, skv. áætlun
Matvæla- og landbúnaðarstofnunar
SÞ (FAO). A hinn bóginn hafa veið-
ar Kanadamanna og Bandaríkja-
manna á kaldsjávarrækju aukist á
sama tíma um nálægt 30 þúsund
tonn, skv. sömu heimild'. Hlýsjávar-
rækja, sem er yfirleitt boðin á tvi-
svar til þrisvar sinnum lægra verði
SaH Rlkja 11.9%
w íorskur 44.5%
□ Ýsa 5.7*
□ Ufsi 5.4%
Karfi 8.2%
□ Grélúáa 6.1*
□ Loðna 8.6%
m Annaí 9.5%
Verdmæti sjávarafla 1987. - Skipting.
Rxkjuafli najstvertfmaetasta fisktebundin,
(Byggt á brádabirgdatölum FI.)
Á þessari töflu sést, að markaðs-
hlutdeild kaldsjávarrækjunnar, sem
selst oft á þrisvar sinnum hærra
verði en hlýsjávarrækja, er lang-
mest í Evrópu. Þar er mesti mark-
aðurinn fyrir íslenska rækju, eink-
um í Bretlandi og Norður-Evrópu.
í Bandaríkjunum hefur dregið úr
innflutningi kaldsjávarrækju und-
anfarin ár að líkindum vegna auk-
inna veiða Bandaríkjamanna sjálfra
og vaxandi neyslu ræktaðrar og
hlýsjávarrækju. Verð er þar óhag-
stæðara en í Evrópu og af þessum
sökum hefur lítið verið selt undan-
farið af íslenskri rækju á Banda-
ríkjamarkaði.
Mikil daukning hefur verið á út-
flutningi óskelflettrar rælqu síðustu
ár og hefur sú afurð selst mest til
Japans og fengist tiltölulega hag-
stætt verð fyrir stærstu flokkana.
Rækjuverð hefur sveiflast gífur-
lega undanfarin ár í Evrópu. A ár-
inu 1986 hækkaði verð í ísl. krónum
frá árSbyijun og þar til það náði
hámarki um 66%, en lækkaði sfðan
í stórum dráttum og er nú um 40%
lægra en þegar það var hæst á
árinu 1986. Verðið virðist nú stöð-
ugt en er ívið lægra en meðalverð
síðustu þriggja ára.
Nýjungar í veiði og meðferð
afla um borð í skipum
Mikil breyting hefur átt sér stað
á sókn í rækju á þessum bylting-
artíma Skipum hefur fjölgað. Árið
1983 stunduðu 83 bátar og skip
úthafsrækjuveiðar en í fyrra voru
þau orðin 211. Skip, sem stunda
rækjuveiðar, hafa sífellt orðið
stærri og fullkomnari, þannig að
miklu fleiri hafa nú frystitæki um
borð. Mörg þessara skipa flokka
stærstu rækjuna úr og blokkfrysta
um borð til útflutnings beint á
markað erlendis, mest á Japans-
markað. Þannig var óskelflett
rækja, sem flutt var út, um 4.500
tonn á síðastliðnu ári, en fyrir
nokkrum árum var þetta nánast
óþekkt fyrirbrigði.
Um síðustu áramót var sem
kunnugt er tekinn _upp kvóti á út-
hafsrækjuveiðar. Ákveðið var að
takmarka veiðamar við 36.000
tonna afla (afiinn var 33.800 tonn
1987) en jafnframt að veita stærri
skipum (loðnuskipum) meiri hlut-
deild í veiðunum en áður. Þetta
gæti enn aukið á útflutning óskel-
flettrar rækju beint úr fiskiskipun-
um.
Verðjöfnun og afkoma
rælquvinnslunnar
Þegar framangreindar verð-
sveiflur eru hafðar í huga, hefur,
sem vænta má, Verðjöfnunarsjóður
fiskiðnaðarins komið mjög við sögu
vegna útflutnings á frystri rækju
undanfarin tvö ár. Meginatriði
reglna um þann sjóð er að greiða
skal í hann, ef söluverð hækkar
umfram meðaltal þriggja til fimm
ára f erlendri mynt. Ur honum eru
á hinn bóginn greiddar verðbætur,
ef verðið lækkar frá slíku viðmiðun-
arverði.
Rækjuframleiðendur hafa und-
anfarin tvö ár greitt gífurlegar §ár-
hæðir í Verðjöfnunarsjóð. Á árinu
1986 urðu þessar greiðslur svo há-
ar, að á einungis flórum mánuðum
greiddu framleiðendur um 175
millj. króna í sjóðinn. Heildarinn-
eign rækjudeildar í Verðjöfnunar-
sjóði var um síðustu áramót um 450
millj. kr. Afurðaverðið hefur lækkað
stórlega undanfarin misseri, en inn-
lendar kostnaðarhækkanir dunið
yfír á sama tíma, án þess að til
útgreiðslu hafi komið úr Verðjöfn-
unarsjóði. Afkoman er því bágborin
og lítj. skiljanlegt að svo sé búið
að nýjum vaxtarsprota í íslenskri
útflutningsframleiðslu á tímum
fastgengisstefnu. Engan þarf því
að undra, þótt lög og reglur um
verðjöfnun þessara afurða séu mjög
til umræðu meðal framleiðenda um
þessar mundir og þeir krefjist þess
að þessar reglur verði afnumdar.
Mikilvæg atvinnugrein, sem
treysta þarf og efla
Það gefur augaleið, að hjá ungri
atvinnugrein, sem framleiðir út-
flutningsvöru fyrir um 4.000 millj.
króna, er mikið verk að vinna til
hagsbóta fyrir greinina og þjóðar-
búið í heild. Stærstu verkefnin eru
vöruvöndun, vöruþróun, bætt gæði
og hráefnisnýting, auk baráttu fyr-
ir eðlilegum rekstrarskilyrðum.
Þessi verkefni hvíla auðvitað aðal-
lega á sjómönnum, útgerðarmönn-
um og framleiðendum sjálfum, en
ótvírætt er, að samtök rækjufram-
leiðenda geta haft gífurleg áhrif til
hagsbóta fyrir framleiðslugreinina
og jafnframt þjóðarheildina, ef sam-
staða er næg til þess að leysa sam-
eiginleg verkefni með samtaka-
mætti.
Höfundur er viðskiptafrsedingur.