Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 30
30_________________MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988_
Nokia og finnsk atvinnustefna:
Forstjóri þróunardeildar
Nokia heimsækir Island
eftír ívar Jónsson og
Örn D. Jónsson
Forstjóri rannsóknar- og þróun-
ardeildar finnska fyrirtækisins Oy
Nokia Ab, dr. Viljo Hentinen, er
væntanlegur hingað til lands í dag
og mun flytja fyrirlestur á af-
- mælisráðstefnu Iðntæknistofnunar
íslands á morgun. Nokia er vel
þekkt á íslandi fyrir gúmmístíg-
vél, sem landsmenn hafa gengið í
um áratugi, en fyrirtækið framleið-
ir fleira en stígyél, eins og ljóst
ætti að vera eftir að þeir keyptu
smátölvuframleiðslu sænska risans
Ericsson. Nokia er stærsta og
öflugasta fyrirtæki Finnlands og
merkilegt fyrir þær sakir að það
hefur náð langt á ólíkum sviðum
samtímis, s.s. framleiðslu bílsíma
(Mobira) og sjónvarpa (Luxor-
Salora) auk framleiðsluvara í efna-
og vélaiðnaði.
Það hefur vakið nokkra athygli
undanfarið hve vel Finnum hefur
tekist að efla útflutning sinn und-
anfarið. Hagvöxtur hefur verið þar
meiri en í flestum öðrum löndum
OECD og jafnvel þó atvinnuleysi
sé enn um 5% þá ríkir almenn
bjartsýni í Finnlandi.
Oy Nokia Ab
Oy Nokia Ab var stofnað 1965
og er nú stærsta fyrirtæki Finn-
lands með yfír 30.000 starfsmenn,
þar af um 19.000 á sviði raftækja-
og rafeindaiðnaðar.
Oy Nokia Ab greinist í 11 sjálf-
stæðar deildir, en íjórar af þeim
eru raftækja- og rafeindatækja-
framleiðendur. Þetta svið fram-
leiðslunnar varð ekki stærsta fram-
leiðslusvið þess fyrr en 1984, en
nú þegar nemur velta þess um
helmingi af heildarveltunni. Fyrir-
tækið hóf starfsemi á þessu sviði
sem viðbót við kaplaframleiðslu
sína 1960. Á tímabilinu 1960—78
þróaðist framleiðsla Oy Nokia Ab
nánast alfarið án þess að það
keypti upp önnur fyrirtæki, en eft-
ir 1978 varð stefnubreyting að
þessu leyti og það hóf samstarf á
sviði áhættuverkefna með öðrum
fyrirtækjum (Mobira Oy og Tele-
nokia Oy) og hóf að kaupa upp
fyrirtæki (Salora Oy og Luxor Áb
1984). Með þessum kaupum jókst
velta þess á sviði raftækja- og raf-
eindaiðnaðarins um helming.
Ólíkt stefnunni 'á áttunda ára-
tugnum þegar fyrirtækið einbeitti
sér að heimamarkaðnum hefur það
á þessum áratug lagt kapp á §öl-
þjóðavæðinguna og þá sérstaklega
á útvíkkuðum heimamarkaði
sínum á Norðurlöndum. I janúar
sl. keypti Oy Nokia Ab „Vand-
ræðabam“ sænska Ericssons,
smátölvudeildina. í nýja fyrirtæk-
inu, Nokia Data, mun Ericsson
eiga 20% en það mun framleiða
smátölvur, skjái, einménningstölv-
ur og fyrirtækja- og bankakerfí.
Þetta verður stærsta fyrirtæki
sinnar tegundar á Norðurlöndum
með 8.000 starfsmenn. Nokia hef-
ur verið í lykilhlutverki í þeirri
vaxtarbylgju sem einkennt hefur
fínnskt atvinnulíf undanfarin ár.
Hér er á ferðinni markviss atvinnu-
stefna sem að mörgu leyti er at-
hyglisverð fyrir okkur hér á landi.
Efnahagsþróun og atvinnu-
stefna
Iðnvæðing í Finnlandi hófst
síðar en í nágrannalöndunum eða
af alvöru eftir seinni heimsstyrjöld-
ina. Uppistaðan var skógarhögg
og málmnám, úrvinnslugreinar
þeirra og þróun á framleiðslu véla
þeim tengdra. Markaðshlutdeild
Finna í einstaka greinum á al-
þjóðamarkaði er mjög mikil þrátt
' fyrir smæð hagkerfísins s.s. í við-
ar- og pappírsframleiðslu og sum-
um greinum véla- og málmiðnað-
ar, þar sem hlutdeildin er 10—15%.
Helstu útflutningslöndin eru
Bretland, Svíþjóð og V-Þýskaland
í vestri, en útflutningur til austan-
tjaldsríkjanna vegur um fímmtung.
45% iðnaðarframleiðslu eru flutt
út.
Finnsk stjómvöld gengu til sam-
vinnu við aðila vinnumarkaðarins
um að efla atvinnulífið og felast
aðgerðimar í eftirfarandi:
a) Stöðugt markvissari tækni-
stefnu stjómvalda sem felur í
sér aukið vægi tækni og sér-
hæfíngu iðngreina. Hér hafa
opinberar tæknistofnanir gegnt
lykilhlutverki.
b) Rannsóknir og þróunarstarf
fyrirtækja hefur aukist jafnt
ogþétt, einkum stórfyrirtækja.
c) Með stjómarskiptum á síðasta
ári tók samsteypustjóm íhalds-
manna og sósíaldemókrata við
af samsteypustjóm (landbúnað-
arflokks)miðjunnar og sósíal-
demók'rata, sem ríkt hefur í
fínnskum stjómmálum um ára-
tuga skeið. Stjórnvöld hafa nú
minni afskipti af markaðsmál-
um, einkum á sviði fjármagns
og verðbréfa, og er sú þróun í
takt við aukin umsvif fyrirtækj-
anna á hlutabréfamarkaðnum.
Vísinda og tæknistefna
í Finnlandi
Vísinda- og tæknistefna Finna
hefur tekið stakkaskiptum á
síðustu tveim áratugum. Aukin
áhersla hefur verið lögð á hagnýt-
ar rannsóknir og tækniyfírfærslu.
Af heildarframlögum hins opinbera
jukust rannsóknir á sviði tækniþró-
unar úr 52% 1971 í 59% 1983.
Rannsóknir á sviði náttúruvísinda
drógust hins vegar saman um 2%
á þessu tímabili og félagsvísinda
um 6%. Samdráttur í rannsóknum
á sviði náttúruvísinda var enn skýr-
ari innan háskólanna en þær
minnkuðu um 6% á meðan framlög
til rannsókna á sviði tækni og
læknavísinda jukust um 5%. Þessi
þróun er í samræmi við þá megin-
stefnu stjómvalda að efla hagnýtar
rannsóknir hlutfallslega meira en
grunnrannsóknir. Stofnanir sem
heyra undir ráðuneyti atvinnuveg-
anna, einkum viðskipta- og iðnað-
arráðuneytið, hafa því vaxið og
atvinnumálaráðuneytið hafa feng-
ið sérstaka fjárveitingu til verkefna
sem ætlað er að auka hagkvæmni
og framleiðni í atvinnulífinu.
Tækniþróunarráð (TEKES) var
stofnað 1983 á vegum viðskipta-
og iðnaðarráðuneytisins og er
tækniyfírfærsla og rannsókna- og
þróunarstarfsemi sem tekur mið
af sérþörfum fínnsks atvinnulífs.
TEKES sér um þjónustu við smá-
fyrirtæki á sviði vöruþróunar og
markaðssóknar, þ.e. aðstoð við
undirbúning afurðaþróunar, mark-
aðssetningu og að veita fyrirtækj-
um upplýsingar um nýjungar og
þróunarverkefni.
Vísinda- og tæknistefna Finna
hefur með árunum orðið að sjálf-
stæðu stefnumörkunarsviði. Aður
var stefnan almennt skilgreind af
ríkisstjóminni, en er nú skilmerki-
legri. Stefnan er að bæta sam-
keppnisstöðu fínnsks iðnaðar með
að auka tæknivægi og efla nýsköp-
un á sviði afurða og framleiðslu-
ferla.
Tvö sjónarmið varðandi þróun-
arstefnu fínnsks efnahagslífs ta-
kast nú á:
Annars vegar sérhæfíng á
Morgunblaðið Amór Ragnarsson
Ólafur Lárusson framkvæmdastjóri Bridssambandsins les upp pörin sem komust í úrslitakeppnina á
Hótel Loftleiðum um mánaðarmótin.
Undankeppni íslandsmótsins í tvímenningí:
Skemmtilegt mót og
lítið um óvænt úrslit
Brids
Arnór Ragnarsson
Gestur Jónsson og Friðjón Þór-
hallsson sigruðu ( undankeppni ís-
landsmótsins í tvímenningi sem fram
fór í Gerðubergi um helgina. Alls
tóku 96 pör þátt í keppninni sem er
ívið minna en undanfarin ár. Keppt
var um 23 sæti ( úrslitakeppninni
og af þeim 24 pörum sem keppa til
úrslita eru a.m.k. 17 frá Bridsfélagi
Reykjavíkur. Nokkur pör sem spilað
hafa í úrslitum undanfarin ár kom-
ast ekki áfram að þessu sinni og
má þar nefna bræðuma Ólaf og
Hermann Lámssyni sem urðu í
27.-28. sæti og Páll Valdimarsson
og Magnús Ólafsson sem urðu í
46.-47. sæti eftir hræðilega vonda
byijun í mótinu. Hins vegar má nefna
að gamla kempan Eggert Benónýs-
son varð í 13.—14. sæti ásamt Rúna-
ri Lárussyni, Bemharður Guðmunds-
son og Ingólfur Böðvarsson urðu í
11. sæti og bræðumir Gísli og Magn-
ús Torfasynir urðu í 8. sæti..
Eitt par af Norðurlandi komst í
úrslitin. Kristján Guðjónsson og Stef-
Sigurvegararnir, Gestur Jónsson og Friðjón Þórhallsson, spila gegn
Erlu Siguijónsdóttur og Kristjönu Steingrímsdóttur.
án Ragnarsson klómðu sig upp stiga-
töfluna síðari hluta mótsins en
Frímann Frímannsson og Pétur Guð-
jónsson fóm með sama hraða niður
töfluna eftir að hafa verið meðal
efstu para allan fyrri hluta mótsins.
Lokastaðan:
Gestur Jónsson —
Friðjón Þórhallsson 1290
' Rúnar Magnússon —
Stefán Pálsson 1280
Jón Baldursson —
Valur Sigurðsson 1258
Guðlaugur R. Jóhannsson —
ÖmAmþórsson 1244
Ingvar Hauksson —
Bjöm Theodórsson 1242
Sigurður Sverrisson —
Þorlákur Jónsson 1228
Guðmundur Pétursson —
Jónas P. Erlingsson 1215
Magnús Torfason —
Gísli Torfason 1209
Matthías Þorvaldsson —
_ Ragnar Hermannsson 1207
Ragnar Jónsson —
Þröstur Ingimarsson 1206
Bémharður Guðmundsson —
Ingólfur Böðvarsson 1204
Amar Geir Hinriksson —
EinarValurKristjánsson 1199
Eggert Benónýsson —
RúnarLámsson 1191
Bragi Hauksson —
Sigtiyggur Sigurðsson 1191
Eiríkur Hjaltason —
Hjalti Elíasson 1190
Kristján Guðjónsson —
Stefán Ragnarsson 1188
Bjöm Eysteinsson —
Þorgeir Eyjólfsson 1186
Ólafur Týr Guðjónsson —
Jakob Kristjánsson 1184