Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
37
HERFORINGJA PLO
Sharon vill fleiri
PLO-menn feiga
Jerúsalem. Túnis. Reyter.
ÍSRAELSSTJÓRN skipaði fyrir um morðið á Khalil al-Wazir, æðsta
herforingja PLO. Var það haft f gær eftir ónefndum embættismönn-
um. Ariel Sharon, viðskipta- og iðnaðarráðherra ísraels, fagnaði þá
einnig morðinu og kvaðst vera hlynntur þvi, að fleiri skæruliðaforingj-
um yrði komið fyrir kattarnef. Palestínumenn á Gaza og Vesturbakk-
anum efndu til allsheijarverkfalls um helgina vegna morðsins en ísra-
elskir hermenn brugðust við með því að setja útgöngubann á ýmsar
byggðir þeirra.
„Fáir báru jafn mikla ábyrgð á
dauða saklausra manna og Khalil,
gyðinga sem annarra," sagði Shar-
on, „og það fer ekki á milli mála,
að réttlætinu hefur verið fullnægt."
Hann vildi ekki segja berum orðum,
að ísraelar hefðu skipað fyrir um
morðið en kvaðst hafa lagt það til
árum saman, að yfirmenn hryðju-
verkasamtaka yrðu upprættir.
Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC
sagði á sunnudag, að menn frá ísra-
elsku leyniþjónustunni, Mossad, og
sjóher og landher hefðu myrt Wazir,
sem var betur þekktur undir nafninu
Abu Jihad. Ritskoðarar ísraelska
hersins hafa hins vegar bannað er-
lendum fréttamönnum að fjalla um
þetta mál í fréttum sínum.
ísraelskir hermenn settu um helg-
ina útgöngubann á borgina Nablus
og 15 flóttamannabúðir á Gaza og
Vesturbakkanum til að koma í veg
fyrir mótmæli en Palestínumenn
hafa boðað til allsheijarverkfalls
vegna morðsins. Wazir verður jarð-
settur í Damaskus í Sýrlandi þar sem
foreldrar hans búa en þeir hafa ver-
ið flóttamenn frá stofnun fsraelsrík-
is árið 1948.
Bassam Abu Sharif, ráðgjafi
Yassers Arafats, leiðtoga PLO, sagði
á sunnudag, að hann teldi Banda-
ríkjastjóm samseka ísraelum um
morðið á Wazir vegna þess, að hún
vildi ekkert tillit taka til eðlilegra
mannréttinda Palestínumanna.
Sagði hann einnig, að dauði Wazirs
væri mikið áfall fyrir Palestínumenn
en ísraelar væðu í villu og svíma
héldu þeir, að hann yrði til að draga
úr mótmælunum á hemumdu svæð-
unum.
Reutcr
Heimili Khalils al-Wazirs í Túnisborg.
Sovéska sjónvarpið:
Slj órnmálaráðið
viðrar viðhorf sín
Moskvu. Reuter.
FULLTRÚAR í stjómmálaráði
sovéska kommúnistaflokksins
munu koma fram í sjónvarps-
þáttum á þessu ári og láta í ljós
skoðanir sínar, og er það mikil
breyting frá þeirri leynd, sem
hvilt hefur yfir hæstráðendunum
í Kreml.
í frétt í blaðinu Govorit i Pokazivaet
Moskva sagði, að fengist hefði leyfi
fyrir því á æðstu stöðum, að fulltrú-
ar í stjóm og stjómmálaráði komm-
únistaflokksins kæmu fram í þessum
þáttum. „Þetta sýnir, hversu mikil-
vægt sjónvarpið er talið nú um
stundir — m.a. til þess að gera þjóð-
félagið opnara og lýðræðislegra,"
sagði Leonid Kravchenko, aðstoðar-
forstöðumaður sjónvarpsins, í viðtali
við blaðið.
Hingað til hafa sovéskir leiðtogar
aðeins komið fram í sjónvarpi, þegar
þeir hafa flutt ræður eða við hátí-
ðleg tækifæri. í frétt Govorit i
Pokazivaet Moskva sagði, að sjón-
varpsþættimir yrðu með ýmsu sniði,
en ekki var tekið fram, hvenær á
árinu þeir hæfust.
7 7 SCHILLER 77 ]
SCHOOL DF HDTEL MAHAGEMENT
S|S lONDON C 3 SWITZERLAND | | STRASBOURG
FRÆÐSLU- OG KYNIMINGARFUNDUR
Á HÓTEL BORG, REYKJAVÍK 19. OG 20. APRÍL
MILLI KL. 15 OG 19 (SÍM111440).
I Komið og fáið nánari upplýsingar hjá Mr. Marco Monteforte fram-
( kvæmdastjóra Swiss Study Center, Engelberg, um námskeiðin
, sem undirbúa þig undir glæstan starfsframa i hóteliðnaðinum.
SCHILLERINTERNATIONAL UNIVERSITY Dept EN1) I
51 Waterloo Road, London SE18TX Tel (01) 928 8484 Telex 8812438 SCOL
(Accredited member AICS Washington DC. USA)
Okkur
tókstþað
VID NÁÐUM VERÐINU NIÐUR
MEÐ STORUM INNKAUPUM
KOMDU OG SKOÐAÐU ÞESSI FALLEGU SÓFASETT,
SEM ERU SVO MJÚK OG ÞÆGILEG - MEÐ HÁU BAKI.
ÞAU ERU BÓLSTRUÐ í SVAMP SEM ÞAKINN ER DAC-
RONLÓ OG KLÆDD MEÐ NÍÐSTERKU, KRÓMSÚTUÐU
OG ANILINLITUÐU NAUTALEÐRI (EINS OG YFIRLEÐRIÐ
Á SKÓNUM ÞÍNUM) Á SLITFLÖTUM.
Verðið er mjög hagstætt, því við náðum því niður með
stórum innkaupum- og svo bjóðum við þér 2ja ára
ábyrgð.
6 SÆTA HORNSÓFAR 97.860
5SÆTAH0RNSÓFAR 92.860
3+1+1SÓFASETT 92.860
3+2+1+SÓFASEH 99.860
ÚTB. 25.000 OGCA. 6-7.000 ÁMÁN.
ÚTB. 23.000 OGCA. 6-7.000 ÁMÁN.
ÚTB. 23.000 OGCA. 6-7.000 ÁMÁN.
ÚTB. 25.000 OGCA. 6-7.000 ÁMÁN.
LEÐURLITIR: SVART-BRÚN-UÓSGRÁTT-DÖKKGRÁTT-
BLEIKT-DRAPPLITT- OG DUMBRAUTT.
OG AUDVITAÐ BORGARÐU ÚTBORGUNINA-
EDA ÞÁ ALLT SAMAN MEÐ VISA OG EURO.
REYKJAVfK