Morgunblaðið - 19.04.1988, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
51
„Ég vann.“ Norska konan Sonja Parrís fagnar sigri í þyngrí flokk
kvenna, en hún var stœltasti kvenmaður mótsins. Gunilla Söderberg
frá Svíþjóð varð önnur og Margrét Sigurðardóttir þríðja, en hún
varð íslandsmeistarí kvenna fyrir skömmu.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson.
Stæltir skrokkar í 90 kg flokknum. Svíinn Lance Gille varð Norðurlandameistarí í yfir 90 kg flokki,
en Finninn Linden Karí við hlið hans annar. Tom Petterson frá Noregi þriðji og Nenato Somenzi frá
Svíþjóð fjórði. Lengst til vinstrí er sigurvegarí í undir 90 kg flokki, Svíinn Stefán Johnson.
Arangur Islendinga á NM í vaxtarrækt:
Tvö silfur og eitt brons
NORÐMENN, Svíar og Danir
áttu besta vaxtarræktarfólkið í
fyrsta Norðurlandameistaramót-
inu í vaxtarrækt sem haldið hef-
ur verið hérlendis. Mótið fór
fram á Hótel íslandi um sl. helgi
og voru fjórír íslendingar meðal
keppenda. Sólmundur Örn
Helgason og Hreinn Vilhjálms-
son náðu silfrí í sinum þyngdar-
flokkum og Margrét Sigurðar-
dóttir bronsi í þyngri flokk
kvenna. Þijátiu og fimm kepp-
endur mættu til leiks og voru
keppendur frá öllum Norður-
löndunum.
„Ég sé ekki neinn Evrópumeist-
ara I þessum hópi, en engu að síður
eru mjög frambærilegir vaxtar-
ræktarmenn á þessu rnóti," sagði
Jaques Brommaert, belgískur yfir-
dómari mótsins og formaður félags-
dómara alþjóðasambands vaxtar-
ræktarmanna. „Þeir bestu sem fara
héðan á Evrópumeistaramótið gætu
náð 5—7 sæti að mínu mati. Tékk-
ar og Pólverjar hafa hreina sérfræð-
inga í vaxtarrækt og möguleiki
Norðurlandabúa er frekar lítill."
Það var keppt í tólf flokkum á
Norðurlandamótinu og sigurvegar-
ar þeirra unnu sér rétt til þátttöku
á Evrópumóti sem haldið verður
eftir tvær vikur. Slík mót reynast
oft stökkpallur áhugamanna upp {
atvinnumennsku í vaxtarrækt, en
að sögn Brommaert yfirdómara
hafa sumir vaxtarræktarmenn jafn-
há laun og bestu tennisleikaramir.
Það eru engar smá peningafúlgur
sem þar eru í húfi. „Fremsti vaxtar-
ræktarmaður heims er Lee Honey
frá Bandarílqunum, hann hefur
unnið titilinn Herra Olympía undan-
farinn sex ár, en þessi titill er sá
eftirsóttasti í vaxtarrækt. Amold
Schwarzenegger var herra Olympía
á undan Haney.
„Ég ætla að beijast af kappi og
reyna að ná langt í þessari íþrótt"
sagði Svíinn Jhonny Grape, sem
vann í flokki undir 80 kg kepp-
enda. „Þessi titill færir mér mögu-
leika, sem mig hefur lengi dreymt
um. Þetta þýðir að ég er einn af
bestu vaxtarræktarmönnum Norð-
urlanda, en hugur minn stefnir
hærra. Mótið var skemmtilegt og
ég sá efniiegan íslending í ungl-
ingaflokknum, Sólmund Öm,“ sagði
Jhonny.
Sólmundur tryggði sér annað
sætið í flokki pilta yfír 80 kg að
þyngd, en sigurvegari í þeim flokki
varð Anders Sembach frá Dan-
mörku. Fjórir keppendur voru f
þessum flokki og Sólmundur að
keppa í fyrsta skipti á stórmóti.
Er árangur hans því mjög góður,
en hann varð íslandsmeistari ungl-
inga fyrir skömmu. Hreinn Vil-
hjálmsson náði einnig góðum ár-
angri, hann varð annar í flokkf öld-
unga, sem voru yfír 80 kg að þyngd.
Jan Ramstad frá Noregi bar sigur
úr býtum í flokknum, en Morgens
Johansen frá Danmörku varð þriðji.
í kvennaflokki áttu íslendingar
einn keppenda, íslandsmeistarann
Margréti Sigurðardóttur. Hún varð
þriðja á eftir Sonju Parris frá Nor-
egi og Gunnillu Södberg frá Svfþjóð.
„Þetta voru hrikalegar manneskjur,
mjkil vöðvafjöll," sagði Margrét.
„Ég ætla mér hins vegar að vera
búin að ná þeim á næstu 2—3 árum,
þær em mikið eldri og hafa æft
lengur. Ég náði líkamanum ekki
eins góðum og á íslandsmótinu, er
líka orðin þreytt. Ég er búin að
SONJA Parris frá Noregi var
vöðvamesta kona Norðurlanda
mótsins og vann meistaratitil í
flokki yfir 57 kg kvenna. Hún
hefur þrívegis orðið Noregs-
meistarí og varð í sjötta sæti á
heimsmeistaramóti í fyrra og
þekkir þvi vel inn á vaxtarrækt.
„Ég æfi vaxtarrækt sex daga
vikunnar allan ársins hring, tek
mér aldrei frí. Það er mun erfíðara
fyrir kvenfólk að safna vöðvum,
við þurfum jafnvel að æfa tvöfalt
meira en karlmennimir til að ná
árangri," sagði Sonja í samtali við
Morgunblaðið. „Mér líður ekki vel
nema ég æfí reglulega og sé ekki
eftir tímanum sem f vaxtaræktina
fer. Það hefur hinsvegar enginn
gott af því að keppa of mikið, tvö
mót á ári eru hæfíleg og þýðir að
keppa á þremur mótum á sex vikum
og það tekur sinn toll."
Þegar gefin voru stig fyrir árang-
ur í mótinu yfír heildina, reyndist
danska landsliðið hafa náð bestum
árangri. Engu að síður unnu Nor-
menn titla, fimm talsins, Svíar fjóra
og Danir þijá. Svfar voru áberandi
bestir í þyngri karlaflokkunum, en
Norðmenn höfðu kröftugum
kvennahópi á að skipa.
G.R.
Hreinn Vilhjálmsson (lengat til hægrí) krækti í silfurverðlaunin I
þyngri flokk öldunga, Jan Ramstad frá. Noregi vann og stendur við
hlið Hreins. Þríðji varð Morgens Johansen frá Danmörku.
Urslit á Norðurlanda-
mótínu í vaxtarrækt
„Við æfum tvöfalt
meira en karlmenn“
- segir Sonja Parris
Stúlkur undir 52 kg
1. Birgitte Blomen, Noregi.
2. Veronica Albertsson, Svíþjóð.
Stúlkur yfir 56 kg
1. Nina Pedersen, Noregi.
2. Helle Lezberg Danmörku.
Konur undir 57 kg
1. Veronica Dahln, Svíþjóð.
2. Inger Poulsen, Danmörk.
3. Alice Eik, Noregur.
Konur yfir 57 kg
1. Sonja Parris, Noregur.
2. Gunilla Söderberg, Svíþjóð.
3. Margrét Sigurðardóttir, lslandi.
Piltar undir 80 kg
1. Henning Bortfeldt, Danmörku.
2. Petri Tappani, Finnlandi.
Piltar yfir 80 kg
1. Anders Sembach Danmörku.
2. Sólmundur Helgason, íslandi.
3. Bo Gottlieb Danmörku.
4. LÚoni Kyllanen, Finnlandi.
haida má lfkamanum í réttu formi.
Ég er búin að æfa í sjö ár en
var áður í maraþonhlaupum, ekki
f keppni heldur bara fyrir sjálfa
mig. Það eru mjög margir sem
æfa vaxtarrækt í Noregi og mér
skilst að áhuginn sé að aukast
hérlendis. Margrét Sigurðardóttir
sem keppti í mínum flokki er efni-
leg. Hún er ung og hefur tímann
fyrir sér, en þetta kostar mikla
vinnu. Mér fannst efri hluti líkama
hennar góður, en hún þarf að æfa
stíft til að ná árangri á stórmótum.
Ég ætla á Evrópumeistaramótið
eftir tvær vikur, en það verður
erfitt, svona stuttu eftir þessa
keppni. Ég get rétt fengið mér
sæmilega ríkulega máltíð núna og
svo fer ég í svelti aftur. Það þarf
sko sjálfsaga til að standast freist-
ingamar .. .“ sagði Sonja.
Karlar undir 70 kg
1. Christian Mortenssen, Danm.
2. Frank Schneider, Danmörku.
3. Ari Oksanen, Finnlandi.
karlar undir 80 kg
1. Jhonny Grape, Svíþjóð.
2. Ylapelto Juoki, Finnlandi.
4. Juhani Herranen, Finnlandi.
4. Jimmy Nakel, Danmörku.
5. Ylapelto Juoki, Finnlandi.
6. Guðmundur Bragason, íslandi.
Karlar undir 90 kg
Stefan Jónsson, Svíþjóð.
Karlar yfir 90 kg
1. Lance Gille, Svíþjóð.
2. Linden Kari, Finnlandi.
3. Tom Petterson, Noregi.
4. Nenato Somulzi, Svíþjóð.
Öldungar undir 80 kg
1. Leif Hoberg, Noregi.
3. Kari Kanninen, Finnlandi.
3. Aksel Larsen, Danmörku.
öldungar yfir 80 kg
1. Jan Ramstad, Noregi.
2. Hreinn Vilhjálmsson, íslandi.
4. Morgens Johnasen, Danmörku.
Svíinn Johnny Grape vann sinn
flokk og stefnir enn lengra i
vaxtarrækt og keppir i Evrópu-
meistaramótinu.
„Hj ólreiðameistari
fór í vaxtarrækt“
er
„Norðurlandameistaratitilinn
mér mikilvægur og ég ætla_____
reyna að ná langt á Evrópumeist-
aramótinu,“ sagði sigurvegarí i
yfir 90 kg flokki, Sviinn Lance
GiUe sem fagnar hér.
„Titillinn er þýðingarmikiU. Ég
er búinn að leggja mikið á mig
og þetta er fyrsta keppnin sem
ég tek þátt í sfðan 1985. Ég tók
mér frí, en nú ætla ég að reyna
að ná langt i Evrópumeistara-
mótinu," sagði Svíinn Lance GiUe
sem vann i yfir 90 kg flokki, sem
er sami flokkur og Jón Páli
keppti í á íslandsmótinu.
Lance sem er 26 ára var með
fremstu hjólreiðamönnum Svfþjóðar
þegar hann var yngri, en varð að
hætta keppni eftir að hafa hlotið
slæma byltu f keppni. „Ég hef æft
vaxtarrækt síðan ég var sextán
ára, en hætti að keppa fyrir þremur
árum. Ég stefndi sfðan á Norður-
landameistaratitilinn og byijaði að
undirbúa mig fyrir hálfu ári, tók
þetta mjög alvarlega.
Árangurinn veitir mér styrk til
að takast á við þá bestu í framtfð-
inni. Þeir sem ná atvinnusamning
f vaxtarrækt lifa góðu lífí og eign-
ast mikla peninga. Það er þó ekki
aðalmálið hjá mér, mér finnst gam-
an að æfa og líður vel f þessu
ástandi. Ef ég hef í mig og á og
get stundað vaxtarrækt þá lfður
mér vel. Ég æfí sex klukkutfma á
dag fyrir mót, en venjulega svona
þijá til fjóra. í þorpinu sem ég bý
S er ég eini vaxtarræktarmaðurinn,
en fyrir utan lyftingamar, hjóla ég
enn mikið. Það gefur mér kraft.