Morgunblaðið - 19.04.1988, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
Ofnæmisprófuðu buxnableiurnar eru
þynnri og þurrari en áður og taka ennþá
beturá móti vætu.
Hagstætt verð.
Mölnlycke 1
Ortega y Gasset
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
José Ortega y Gassett: Psyc-
hological Investigations. Trans-
lated by Jorge García-Gómez. New
York — London — W.W. Norton &
Company 1987.
Ortega y Gasset (1883-1955) var
prófessor við háskólann f Madrid frá
I9ll til 1954. Hann var merkasti
essayisti spænska menningarheims-
ins og áhrifa hans gætir langt út
fyrir þann málheim. Hann skrifaði
um heimspeki, sagnfræði, bókmennt-
ir, listir og sálfræði. Frægasta rit
hans er „La rebelion de la masas"
1929. Grundvöllur heimspeki hans
var „persónuleg skynjun hvers ein-
staklings, tími, rúm, samfélag og
saga, einstaklingurinn er nafli heims-
ins og skynjun hans lykillinn". Öll
viðleitni mannanna beinist að því að
forða því að maðurinn hrapi niður í
dýraheima, hvatameðvitund dýrsins.
Ortega y Gasset telur að öll sköpun
mannsins, það sem nefnt er menning
og mótun hans á samfélögum, þar
sem manninum gefst val, miði að
því að forða manninum frá kyrrstöðu
og sljóleika lokaðs náttúrukerfis.
Maðurinn er hluti lífheimsins, náttú-
runnar, en jafnframt utan hennar
og er aðeins „homo sapiens" sem
slíkur. Þráin eftir að hverfa inn í
móðurdjúpið inn f samlífíð, sníkjulíf-
ið, er afneitun á allri baráttu manns-
ins sem skapara, sem fyrirbæris sem
er ábyrgt og gætt eigin viija.
Ortega y Gasset lifði fullkomnun
hugmyndafræðanna í fullvissu kerf-
issmiðanna um að kerfi þeirra bygg-
ist á vfsindalegri þekkingu á gerð
mannsins og samfélaganna. „Fram-
farimar er lög samfélagsins" og
„mannkynssagan er saga stéttabar-
áttunnar." Fullvissa kerfissmiðanna
um „þjóðfélagsvísindi" höfðu þrengt
svo að þekkingarleitinni og efanum
um daga Gassets, að brýnasta verk-
efnið var að sýna fram á haldleysi
einfeldninglegustu staðhæfínga
kerfislokaðra hugmyndafræðinga.
Heimspekin var svar hans við þesari
þröngu meðvitund, þróun, útlistun
og réttlæting hugmyndainnsæis.
Þaðan kom honum sýn þess sem
vænta mátti í „La rebelion..." og
ritun hans um tæknivæðinguna og
um afmennsku listanna og um sagn-
fræði sem kerfis. Gagnrýni hans á
algildi efnisvísinda í hugvísindum
kemur heim og saman við rit og
skoðanir Thomasar S. Kuhns um
vísindi sem þátt heimsmyndar hvers
tíma (The Structure of Sientific Re-
volutions, 1962), og er sú kenning
þar, bundin hreinum efnisvísindum.
Hugmyndafræðingurinn er full-
komlega öruggur, vegna þess að
„hann trúir á það, sem hann er full-
viss um og veit, þar kemst engin efí
að. Trúaður maður gerir sér grein
fyrir því, að vissa hans byggist á trú
og efinn er þar engan veginn útlæg-
ur“ (Alain Besancon): Efinn og opinn
hugur einkenndi skrif Gassets. Hann
játaðist hvorki guðstrú né freðinni
hugmyndafræði, viðfangsefni hans
var eðli og grundvöllur þess sem leit-
ast er við að nefna „sannleikanna"
inntak merkinganna og þeirra efna
sem Heidegger rýndi í „Sein und
Zeit“.
í þessum fyrirlestrum fjallar höf-
undinn um heimspeki og sálfræði,
kenningar Husserls um fyrirbæra-
fræði og greiningu og útlistun vit-
undarlffsins. Han ræðir um andleg
raunsvið, efann, sannleikann, af-
stæðishyggju í sálfræði og tungumál
og merkingu. í bókarlok Qallar höf-
undurinn um þau hugtök, sem hann
notar í fyrirlestrunum. Aðgreiningin
milli sálfræði og heimspeki er oft
óþörf eins og kemur fram í þessum
fyrirlestrum. Þýðandinn ritar inn-
gang að fyrirlestrunum og þýðingar
þeirra og tengsl við önnur rit höfund-
arins.
Hjá Ferðaskrifstofu FÍB sérhæfum við okkur í flugi og bíl, einfaldlega
vegna þess að þar getum við boðið þér vel.
tengsla okkar við ýmis systursamtök í
þér hagstæð bílaleigukjör eðaflutning á eigin
vandaða gistingu og skemmtilegar ökuleiðir.
Viljirðu njóta frísins í flugi og bíl, hafðu þá fyrst
samband við okkur. Við finnum með þér
ik vænlegustu kostina, - í ánægjulegt frí,
W nákvæmlega að þínum óskum.
Þjónusta okkar er öllum opin.
FERÐASKRIFSTOFA FIB
BORGARTÚNI 33 SÍMAR 29997 & 622970