Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
57
greiðslu söluskatts. Álitið er, að
með tilkomu virðisaukaskatts á
þennan þátt muni'byggingarkostn-
aður íbúðarhúsnæðis geta hækkað
um allt að 7%. Með hliðsjón af stöðu
húsnæðismála og því, að slík hækk-
un myndi hafa veruleg áhrif á vísi-
tölu byggingarkostnaðar og þar
með lánskjaravísitölu, hefur verið
ákveðið, að sá virðisaukaskattur,
sem inn kemur vegna vinnu á bygg-
ingarstað við íbúðarhúsnæði, verði
endurgreiddur húsbyggjendum. Sú
endurgreiðsla verður byggð á því,
að viðkomandi sýni fram á t.d. í
húsbyggingarskýrslu sinni með
skattframtali, að hánn hafí raun-
verulega greitt skattinn.
Hitt tilvikið snertir hitun íbúðar-
húsnæðis. í því efni er gert ráð
fyrir að virðisaukaskattur verði
endurgreiddur á smásölustiginu,
þ.e.hjá orkusölufyrirtækjunum. Slík
endurgreiðsla á orkusölustigi hefur
sömu áhrif gagnvart neytandanum
og niðurfelling skattsins. Verðið,
sem hann greiðir, verður því hið
sama og án skatts.
Eins og fram hefur komið er í
frumvarpinu gert ráð fyrir, að
skatthlutfallið verði 22%. Ljóst er,
að með því skatthlutfallið kemur
til með að vanta 1,2 milljarða upp
á, að virðisaukaskattur skili sömu
tekjum og 25% söluskattur. Þessu
skatthlutfalli verður ekki haldið svo
lágu sem frumvarpið gerir ráð fyr-
ir, nema til komi niðurskurður út-
gjalda eða aukin tekjuöflun á öðrum
sviðum. Vera kann, að endurskoðun
þess hluta tekjuöflunarkerfisins
sem enn er eftir, gefí auknar tekj-
ur, en í öllu falli er hér um að ræða
málefni, sem Alþingi verður að taka
á í síðasta lagi við afgreiðslu fjár-
laga fyrir árið 1989.
Sú tekjuáætlun, sem hér er vísað
til, byggist á áætlun um skattstofn
fyrir virðisaukaskatt. Hefur þá
einnig verið gert ráð fyrir því, að
niður falli jöfnunargjald og að ekki
verði lengur þörf á endurgreiðslum
á uppsöfnuðum söluskatti. Þá er
gert ráð fyrir verulega bættri inn-
heimtu, eða að hún skili einum
milljarði umfram það sem nú er.
í þessu sambandi vil ég einnig
minnast á atriði, sem mun hafa
veruleg áhrif á fjárhagsstöðu ríkis-
sjóðs að minnsta kosti tvö fyrstu
árin eftir upptöku virðisaukaskatts-
ins. Eins og fram kemur í frum-
varpinu er gert ráð fyrir, að al-
mennt uppgjörstímabil í virðisauka-
skatti verði tveir mánuðir, en það
er einn mánuður í söluskatts-
kerfínu. Þessi breyting mun hafa
þau áhrif, að skil á virðisaukaskatti
til ríkissjóðs verða að jafnaði um
einum mánuði síðar á ferðinni en
skil á söluskatti eru nú. Það þýðir
ennfremur að á árinu 1989, mun
einungis skattur af 11 mánaða sölu
skila sér í ríkissjóð, verði ekkert
að gert. í frumvarpinu er hins veg-
ar bráðabirgðaákvæði, sem gerir
ráð fyrir því, að á fyrsta árinu verði
síðasta uppgjörstímabili virðisauka-
skatts hagað á þann veg, að þetta
tímabundna tekjutap dreifist á tvö
ár. þ.e. árin 1989 og 1990.
í reynd verður hér ekki aðeins
um tímabundið tap að ræða, heldur
einnig það að þessi inneign ríkis-
sjóðs hjá skilaaðilum virðisauka-
skatts verður viðvarandi. Er það í
reynd lán úr ríkissjóði. Má gera ráð
fyrir, að þetta nemi nálægt 1,5
milljarði króna. Ríkissjóður mun þvi
þurfa að fjármagna samsvarandi
fjárhæð með öðrum hætti. Kostur-
inn við þetta er þó sá, að með þessu
mun lausafjárstaða fyrirtækjanna
þó batna, þörf þeirra fyrir lánsfé
minnka og ætti það að geta leitt
til lægra verðlags en ella.
Framteljendum fjölgar
Eins og mönnum er kunnugt var
í fyrstu miðað við að virðisauka-
skattskerfíð tæki gildi um næstu
áfamót, en nú er gert ráð fyrir því
að gildistími verði 1. júlí 1989.
Virðisaukaskatt ber að greiða til
ríkissjóðs 5. dags þess mánaðar sem
hann gjaldfellur og er þar m.a. tek-
ið tillit til nýrra viðskiptahátta sem
notkun kreditkorta hefur leitt af
sér.
Hins vegar er eindagi söluskatts
25. hvers mánaðar. Samtök við-
skiptalífsins hafa fært að því rök
að núverandi eindagi sem er áður
en allur innheimtur söluskattur hef-
ur í raun skilað sér til söluaðila
auki kostnað við verslunarrekstur
verulega. Þó fjármálaráðuneytið
fallist ekki á ítrustu útreikninga er
ljóst að af þessu hlýst vaxtakostn-
aður sem væntanlega kemur fram
í vöruverði. í lögum um söluskatt
eru takmarkaðar heimildir til þess
að breyta eindaga skattsins.
Þessi ágalli leysist í virðisauka-
kerfinu.
Vegna þess dráttar sem á upp-
töku virðisaukaskatts verður mun
ég óska eftir því *að bætt verði inn
í frumvarpið ákvæði til bráðabirgða
sem gefi fjármálaráðherra heimild
til að færa eindaga söluskatts fram
yfir mánaðamót þannig að verð-
hækkunaráhrifum eindagans verði
eytt. Þetta mál verður tekið upp
af minni hálfu við þingnefnd.
Þó flest atriði, er snerta virðis-
aukaskattinn, séu þess eðlis, að þau
geri hann eftirsóknarverðan með
tilliti til söluskatts má benda á
nokkur atriði, sem oft hafa verið
talin mæla gegn honum. Ljóst er,
að þeim, sem standa ber skil á virð-
isaukaskatti, mun fjölga verulega
frá því sem er í söluskattinum.
Hefur verið áætlað, að framteljend-
um fjölgi um 14.000 og verði alls
um 26.00. Þessi fjölgun mun að
sjálfsögðu gera innheimtukerfið
eitthvað þyngra í vöfum, en hins
vegar kemur þar á móti, að fram-
teljendur munu skila 6 skýrslum á
ári í stað 12 nú og sumir, svo sem
bændur, aðeins 2 á ári. Þess vegna
munu skattaskýrslur síst verða
fleiri en þær eru nú. Er því gert
ráð fyrir að skýrslur, sem nú eru
um 135 þúsund, verði framvegis
um 132 þúsund á ári hverju.
Meðal itriða á Arshátíð grunnskólans
söngvakeppni.
Morgunblaðið/Sveinn J. Þórðarsón
á Barðaströnd var
Barðaströnd:
Árshátíð grunnskólans
^ lnnri-MúlaJSarðastrtind.
ÁRSHÁTIÐ grunnskóla Barða-
strandar var haldin í lok mars í
félagsheimilinu Birkimel.
Undirbúning að hátíðinni sáu
nemendur sjálfír um. Var þar margt
til skemmtunar, m.a. söngkeppni,
frumsamdir dansar og margt fleira.
Var það nemendum til mikils sóma.
Fólk skemmti sér konunglega og
boðið var upp á kaffi og meðlæti á
eftir.
- SJÞ
Annað atriði, sem oft er nefnt
sem ókostur við virðisaukaskatt,
meint þörf á fjölgun starfsmanna
og stóraukinn kostnaður. Víst er,
að þörf verður á auknum mannskap
til þess að reka virðisaukaskattkerf-
ið. Það hefur verið áætlað, að
starfsmenn í því kerfi þurfi að vera
70—80 talsins, eða u.þ.b. helmingi
fleiri en nú starfa við söluskatts-
álagningu og söluskattsinnheimtu.
Við mat á þessum upplýsingum ber
þó að hafa eftirfarandi í huga.
í fyrsta lagi er samanburður við
núverandi söluskattskerfí ekki eðli-
legur. Vitað er, að það er mjög
undirmannað og þyrfti sjálfsagt að
auka starfsmenn í því mjög mikið
og myndi þó hvergi nærri duga til
að starfrækja það með góðu móti.
í öðru lagi ber að hafa í huga,
að virðisaukaskattur verður lang-
stærsti tekjuþáttur ríkisins. Þótt
starfsmenn við virðisaukaskatt
verði helmingi fleiri en þeir eru nú
við söluskattinn, verður þessi skatt-
ur engu að síður ódýrasti skattur
hér á Iandi og tilkostnaður við öflun
hans minni en nokkurs annars
skatts eða tekna, sém eitthvað hafa
að segja fyrir afkomu ríkissjóðs.
Á hinum Norðurlöndunum liggur
fyrir sú reynSla, að virðisauka-
skattskerfíð er rekið fyrir innan við
1% af því sem það aflar. Sú áætl-
un, sem gerð hefur verið um mann-
aflaþörf hér á landi bendir til svip-
aðrar niðurstöðu. Með hliðsjón af
mikilvægi þessa skatts verður varla
annað sagt en, að slíkur kostnaður
sé mjög viðunandi og að sá kostnað-
ur, sem kann að falla til í atvinnulíf-
inu vegna upptöku skattsins, muni
fljótt skila sér aftur í bættri sam-
keppnisaðstöðu íslenskra fyrir-
tækja, lægra vöruverði, skilvirkara
skattkerfí, betri innheimtu og rétt-
látari niðurstöðu.
Herra forseti.
Virðisaukaskattur hefur lengi
verið á dagskrá hjá stjórnvöldum
hér á landi og undirbúningur
skýrslu og frumvörp, verið unnin
undir stjóm fjármálaráðherra úr
flestum stjómmálaflokkum hér á
Alþingi.
Af þessum ástæðum er mál þetta
ekki nýtt og þótt það 'sé lagt fram
þetta seint á þingtímanum á löng
umfjöllun og kynning að gera Al-
þingi mögulegt að ljúka afgreiðslu
þess fyrir þinglok.
Niðurstaða þeirra, sem kynnt
hafa sér málið vegna þessa undir-
búnings, allt frá því að hann hófst
er nær einróma sú að spumingin
sé ekki hvort heldur hvenær virðis-
aukaskattur verði tekinn upp og
hvemig bmgðist verði við þeim
áhrifum af honum, sem ástæða er
til að mæta með sérstökum aðgerð-
um.
Þessum spurningum ber okkur
að svara nú. Með aðgerðum í efna-
hagsmálum og skattamálum á
síðustu mánuðum hafa verið skap-
aðar allar forsendur í efnahags- og
verðlagsmálum til þess að taka upp
virðisaukaskatt. Oðrum nauðsyn-
legum aðgerðum er lýst í fmm-
varpinu og greinargerð með því.
Eg treysti því að þingmenn veiti
þessu mikilsverða máli brautar-
gengi og leggi þar með sitt af mörk-
um til þess að bæta skattkerfi
landsins, gera það réttlátara fyrir
þegnana, skilvirkara fyrir ríkissjóð
og hagkvæmara fyrir atvinnuveg-
ina.
* ' Frá Tónlistarskóla
KOPfNQGS Kópmogs
Tónleikar verða haldnir miðvikudaginn 20. apríl
kl. 20.30 í sal skólans, Hamraborg 11,3. hæð.
Lengra kómnir nemendur leika.
SKÓLASTJÓRI.
Glæsileg karlmannaföt
margir litir.
- Klassísk snið og snið fyrir yngri menn.
Verð kr. 5.500,-, 8.900,- og 9.900,-
Terylenebuxur kr. 1.195,-, 1.395,-, 1.595,- og
-- 1.795,- teryl./ull/stretch.
Gallabuxur kr. 820,- og 895,- sandþvegnar.
Flauelsbuxur kr. 795,-
Rúllukragabolir kr. 520,- Stuttermabolir kr. 235,-
Andrés,
Skólavörðustíg 22a,
______________ sími 18250.
HRUNB
Hárgreidslustofa
áðurHjallabrekku, Kópavogi,
hefurflutt starfsemi sína að
Hólmgarði2, Keflavík.
opnað verður laugardaginn 16.
apríl, sími 92-15677.
VERIÐ VELKOMIN.
Bjarnveig Guðmundsdóttir;
hárgreiðslumeistari.
Erum fluttir í Skútuvog 13
VÖRULEIÐIR
RITVÉLAR
’ REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
T Ö L V UHÚSGÖGN
1 MILUÓN PS/2
HEFUR SELST ÁSÍÐUSTU =w===
6 MÁNUÐUM -IBM PS/2 ÍMI