Morgunblaðið - 19.04.1988, Qupperneq 63
63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
staðráðin I að vinda bráðan bug að
því.
Núna, svona stuttu seinna, fæ
ég símhringingu og mér er sagt að
Dóri sé farinn. Gat það virkilega
verið satt? Átti ég ekki eftir að
heyra hann hlæja og njóta nærveru
hans í þeirri heimsókn? Vonin sem
búið var að gefa, hvar var hún?
Það vakna spumingar, sem engin
svör fást við. En minningin um
Dóra á eftir að lifa meðal okkar,
sem þekktum hann.
Ég sendi þér, elsku Lilla mín,
Stefáni og Hönnu Siggu, ásamt
bamabömum þínum, mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur, með ósk um
styrk ykkur til handa á raunastund.
Gréta Óskarsdóttir
Vinur er horfínn á braut. í dag,
þegar við kveðjum Halldór B. Run-
ólfsson, er margt sem kemur upp
í hugann eftir rétt tuttugu ára
kynni. Halldór var sonur hjónanna
Magdalenu Bjamadóttur og Run-
ólfs Runólfssonar, steinsmiðs, á
Baldursgötu 28.
Hann kvæntist Björgu Stefáns-
dóttur og eiga þau tvö böm, Stef-
án, fæddan 1959 og Jóhönnu
Sigríði, fædda 1961, bamabömin
eru þijú. Halldór lést á Landspítal-
anum 10. þ.m. eftir stutta legu, en
á sl. ári hafði hann tvívegis gengist
undir aðgerð á Landspítalanum og
höfðum við kunningjar hans þá
vonað að vel hefði tekist og hann
væri sloppinn, en í byijun þessa árs
fór hann bæði í lyfja- og geisla-
meðferð á Landspítalanum, sem
ekki hefur dugað því enn virtist sem
hann þyrfti að gangast undir að-
gerð sem aldrei varð. Maðurinn með
ljáinn náði yfírhöndinni. Eitt er víst,
Halldór hefur verið veikari en hann
vildi uppi láta, þama hefur hann
harkað af sér og ekki látið í ljós
hversu þungt hann var haldinn þeg-
ar hann fór inn á spítalann nú eftir
páskana og var látinn tæpri viku
síðar.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rít-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skríf-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfílegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Blómastofa
Friðfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,-einnig um helgar.
Skreytingar við Öll tilefni.
Gjafavörur.
Það var í gegnum félagsstarf sem
ég kynntist þeim hjónum, Björgu
og Halldóri, árið 1968 þegar Björg
var kosinn formaður í Kvennadeild
SLF og sama ár hafnaði ég þar í
basamefnd, fljótlega kynntist ég
Halldóri því hann var ávallt skammt
undan, það má nánast segja að þau
hafí alltaf verið saman, heimili
þeirra stóð ávallt opið fyrir okkur
til fundahalda, skrafs og ráðagerða
eða hvað sem var og sjálfur var
hann alltaf reiðubúinn enda sögðum
við stundum að hann væri einn úr
kvennadeildinni. Hann var ávallt
tilbúinn til að leiðbeina, þéttur á
velli og traustur í sessi.
Þess urðum við hjónin einnig vör
þegar við byggðum okkur hús, þá
bjuggum við á neðri hæðinni í húsi
þeirra hjóna á Baldursgötunni um
nokkurt skeið, og ekki stóð á að-
stoð ef Dóri var beðinn að rétta
hjálparhönd, það var alltaf sjálf-
sagt.
Þetta eiga aðeins að vera nokkur
kveðjuorð fyrir samfylgdina með
þakklæti í huga frá okkur hjónun-
um.
Elsku Björg, ég bið góðan Guð
að veita þér styrk við fráfall þíns
trausta maka, einnig ykkur Stefáni
og Jóhönnu svo og bamabömunum.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt
Hólmfríður Guðjónsdóttir
Við fráfall JC-félaga okkar og
vinar, Halldórs Runólfssonar, sen-
ators, er rík ástæða til að færa
hinstu kveðjur og þakklæti fyrir
ánægjulegar stundir og samfylgd í
starfí á liðnum ámm.
Halldór lést langt um aldur fram,
þann 10. apríl sl., tæplega 49 ára
gamall. Hann var einn af eldri og
traustari félögum JC-hreyfíngar-
innar sem í dag kveður hann með
eftirsjá og trega. Árið 1972 gekk
hann til liðs við hreyfínguna sem
einn af stofrifélögum JC-Kópavogs
og átti stóran þátt í uppbyggingu
og mótun JC-starfs á þeim tíma.
Halldór var mjög félagssinnaður
maður og lagði mikla rækt við JC
en vöxtur og velgengni hreyfíngar-
innar var eitt af hans mörgu áhuga-
máium á lífsleiðinni. Það lejmdi sér
ekki að í JC naut hann sín enda
báru öll hans störf þess merki. Fyr-
ir frábært framlag sitt í þágu hreyf-
ingarinnar var hann útnefndur sen-
ator sem þýðir að vera gerður að
ævifélaga í íslensku sem og al-
þjóðlegu JC-hreyfíngunni.
Með þessum fáu kveðjuorðum er
ekki ætlunin að rekja lffshlaup
Halldórs Runólfssonar. En mörg
atvik undanfarinna ára greypast í
minninguna um mætan félaga. í
minningu minni lifír heilsteyptur
félagi, glaðvær og glettin á góðum
stundum, í verki trúr skoðunum
sínum og eigin sannfæringu. Þegar
ég fyrir 11 árum gekk til liðs við
hreyfínguna, fyrst kvenna, kynntist
ég þessum sterku eiginleikum hans
hvað best, og þakka ég honum þá
hvatningu og þann stuðning sem
hann veitti mér þau fyrstu ár, en
Halldór var ákafur stuðningsmaður
þess að konur fengju aðgang að
hreyfíngunni.
Okkur félögum Halldórs var ljóst
að hann átti við veikindi að stríða
en það bar bráðara að en við hugð-
um að hann yrði kallaður til ann-
arra starfa. Eftir lifír þó minning
um traustan félaga sem skilaði góðu
starfí öðrum til heilla og fer á brott
með þakklæti og virðingu okkar
sem eftir horfum.
Eiginkonu hans, Björgu Stefáns-
dóttur börnum og öllum aðstand-
endum, vottum við dýpstu samúð.
Valgerður Sigurðardóttir,
Forseti Hins Islenska senats.
í valinn er fallinn vaskur drengur
langt um aldur fram.
Hugurinn reikar til fyrstu kynna.
Fyrir rúmum áratug þótti það fár-
anlegt að konur gengju í félag þar
sem karlmenn réðu ríkjum, eins og
f JC-hrejrfingunni. Nokkrir fram-
sýnir karlmenn höfðu þá trú að liðs-
auki kvenna yrði viðkomandi fé-
lagsskap eingöngu til framdráttar,
en þessir aðilar voru í æðimiklum
minnihluta. Einn þeirra var Halldór
Runólfsson.
Halldór var sannkölluð félags-
vera. Hann var ætíð hress og kát-
ur, en fastur fyrir hvað varðar skoð-
anir og lét ekki eiga hjá sér. Fyrir
málstaðinn var hann sannur bar-
áttumaður.
JC Vík, fyrsta JC-félag eingöngu
skipað konum, var stofnað 6. apríl
1978, eftir langa og stranga fæð-
ingu. Kona Halldórs, Björg Stefáns-
dóttir, var ritari í fyrstu stjóm þess
félags. Félagið naut frá bjnjun alls
þess óeigingjama starfs, sem þau
hjón lögðu á sig, hvar sem þau tóku
til hendinni. Með ráðum og dáð
hvatti hann okkur. Ófá námskeið
tók hann að sér, sem leiðbeinandi
fyrir hönd félagsins, meðan við vor-
um enn fátækar af eigin leiðbein-
endum. Halldór Runólfsson var einn
besti leiðbeinandi í ræðumennsku,
sem JC-hrejrfíngin hefur eignast.
Þeir eru margir, sem tvíeflst hafa
í baráttunni við sjálfan sig og raeðu-
stólinn, við markvissa leiðsögn Hall-
dórs.
Á vori hveiju halda JC-félögin
uppskeruhátíð, en þá eru verðlaun-
aðir þeir einstaklingar sem skarað
hafa fram úr í starfí innan síns
félags það starfsár. Fyrsti verð-
launagripurinn sem JC Vík eignað-
ist, var gjöf frá Halldóri, silfurbik-
ar, sem veittur skyldi félaga ársins.
Þessi bikar hefur farið um margra
hendur á sl. 10 árum og verið einn
eftirsóttasti gripur félagsins frá'
byijun. Þetta var enn ein hvatning-
in til dáða.
Ófáum kvöldum varði hann tíma
sínum með okkur og var óþreytandi
að veita leiðsögn, en sjálfur hafði
hann þá gegnt flestum trúnaðar-
störfum sem gefast í hreyfíngunni,
og m.a. hlotið viðurkenningu sem
heiðursfélagi JC íslands og ævifé-
laganafnbót, Senator, hjá alþjóða
hrejfíngunni.
Um leið og við í fyrstu stjóm JC
Víkur kveðjum góðan dreng, með
hjartans þakklæti fyrir allt, þá
sendum við þér elsku Björg, bömum
ykkar og bamabömum okkar hjart-
ans samúðarkveðjur, og biðjum
góðan Guð að styrkja ykkur og
styðja.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÁGÚSTÍNA SIGURÐARDÓTTIR,
Stangarholti 12,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 20. apríl kl.
10.30.
Ingibjörg Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir,
Lárus Sigurðsson, Jónína Þorsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför systur okkar,
SÓLEYJAR JÓNSDÓTTUR,
Tendebindervej 4,
Kaupmannahöfn,
verður gerð frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 20. apríl kl. 15.00.
Sigriður Jónsdóttir,
Margrét J. Lilliendahl,
Halldóra Jónsdóttir,
Sigurður Jónsson,
Lilja Jónsdóttir.
t
Bróðir okkar,
ÞÓRARINN SIGURÐSSON,
Kópavogsbraut 5,
verður jarösunginn frá Kópavogskirkju miövikudaginn 20. apríl
kl. 13.30.
Steinunn Sigurðardóttir
\ og systkini.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eigin-
konu minnar, móður og tengdamóður,
SIGRÍÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR.
Karvel Sigurgeirsson,
Sigríður Karvelsdóttir, Jón Hilmar Jónsson,
Þór Magnússon, María Heiðdal.
Lregsteinar
MARGAR GERÐIR
Mamrex/Granii
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
Fjnrsta stjóra JC Víkur,
Reykjavík.
t Þakka innUega samúð og vinarhug við andlát og útför mannsins míns, RAGNARS JÓNSSONAR skipstjóra, Smyrlahrauni 2, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild 11 b Land- spítalanum. Guðrún Andrésdóttir.
t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför frænda míns, GUÐMUNDAR VALGEIRSSONAR, Ljósheimum 16A. Fyrir hönd ættingja og vina, Lína Jónsdóttir.
t Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLBERU HALLSDÓTTUR frá Neskaupstað. Agnar Ármannsson, Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Erla Ármannsdóttir, Kolbrún Ármannsdóttir, Reynir Sigurþórsson, Randver Ármannsson, Kristjana Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
t Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem auðsýndu samúð, hlýhug og virðingarvott vegna andláts og útfarar móður okkar, MAGNEU G. MAGNÚSDÓTTUR. Viðkomandi starfsfólki Hrafnistu þökkum við aödáunarverða umönnun og alúö. Fyrir hönd annarra aðstandenda Helgi Helgason, Halldór Helgason, Elfsabet Helgadóttir, Sveina Helgadóttir.
Lokað Lokað verður vegna jarðarfarar HALLDÓRS B. RUN- ÓLFSSONAR þriðjudaginn 19. apríl 1988. Vélar og verkfæri hf., Guðmundur Jónsson hf.