Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
félk f
fréttum
LAUGARAUGARDALSHÖLL Á SUNNUDAG
Fjölskylduhátíð til styrktar
Halldóri Halldórssyni
Morgunblaðið/Þorkell
„Mamma beyglar alltaf munninn“...Bjartmar Guðlaugsson fékk faand-
boltamenn og þingmenn tíl að syngja bakraddir ( laginu um týndu
kynslóðina.
Fjölskylduhátíð til styrktar
HaUdóri Halldórssyni, fyrsta
íslenska hjarta- og lungnaþegan-
um, var haldin í Laugardalshöll
á sunnudag. Eftir hátíðina töldu
forráðamenn hennar að safnast
hefðu um 6-700 þúsund krónur.
Það fé rennur allt til Halldórs
og fjölskyldu hans, en Halldór
hefur þurft að dvelja í London
síðan i september og hafa for-
eldrar hans búið þar þann tíma.
Að hátíðinni stóðu félögin
Breiðablik, Augnablik og Aðall.
Hátíðin hófst kl. 15 og var þá
nokkur fjöldi kominn í höllina.
Fyrsta atriðið kom fólki nokkuð á
óvart, en þá komu Augnabliksmenn
inn á völlinn og óku félögum sínum
í hjólbörum. Þeir hafa, að eigin
sögn, lagt stund á „hægrifótar-
froskalappamaraþon", sem felst i
því að spila innanhússknattspymu
með sundfit á hægri fæti. Augna-
bliksmenn stóðu stutt við, en síðan
hélt Kristján Guðmundsson, bæjar-
stjóri Kópavogs, stutta tölu og flutti
gestum kveðju Halldórs.
npiri Valgeir Guðjónsson steig næstur
á svið og fékk alla til að syngja
með sér í laginu „Ég vild’ ég væri
öðruvísi en ég er“. Þá fékk Popplag
í G-dúr góðar viðtökur og áhorfend-
ur „stöppuðu með fingrunum" að
ósk Valgeirs. Þessu næst kepptu
vítaskyttur 1. deildar og stóð Einar
Þorvarðarson í marki. Sigurvegari
varð Eggert Tryggvason, KA, sem
hlaut titilinn Vítakóngur 1. deildar
1988.
Bjartmar Guðlaugsson fékk
þessu næst áhorfendur til að syngja
með sér nokkur lög og þegar hann
söng um týndu kynslóðina fékk
hann þekkta handboltamenn og
þingmenn til að taka undir i viðlag-
inu. Þá var komið að aðalatriði
hátíðarinnar, leik Breiðabliks og
úrvals 1. deildar leikmanna í hand-
knattleik. Leiknum iyktaði með
sigri úrvalsins, 34:30. Greinilegt var
að leikmenn gerðu sitt besta til að
áhorfendur skemmtu sér og lögðu
oft meira upp úr skemmtilegu sam-
spili en að skora mörk.
í hálfleik léku lið þingmanna og
bæjarstjómar Kópavogs innanhúss-
knattspymu og var það einnig hin
ágætasta skemmtan. Þingmenn
voru atkvæðameiri og unnu leikinn
6:4. Steingrfmur J. Sigfússon vakti
mikla athygli fyrir hálfkaraðar hjól-
hestaspymur og góða skallatæloii.
Eftir að skemmtiatriðum lauk
flutti Óskar Guðmundsson, mágur
Haildórs Halldórssonar, stutta ræðu
og þakkaði fyrir þann hlýhug sem
Halldóri væri sýndur. „Halldór bið-
ur Guð að blessa alla sem hér eru
og alla þá sem ekki sáu sér fært
að koma í Laugardalshöllina i dag,“
sagði Óskar. Loks bað hann menn
að klappa fyrir Halldóri og Kristj-
áni Sigmundssyni, sem lék sinn
síðasta leik i handknattleik þennan
dag.
í lok hátíðarinnar var Kristján Sigmundsson markvörður kvaddur með lófataki, en hann lék sinn síðasta
leik á sunnudag. Kristján sést hér við hlið félaga sinna I úrvalsliðinu.
GUNNAR EYJÓLFSSON
I hlutverki sígaunahöfð-
ingja í sænskri kvikmynd
Gunnar Eyjólfsson leikari fer með stórt hlutverk i sænsku myndinni
Vargöld.
Sænska kvikmyndin Vargens
tid, Vargöld, var frumsýnd í
Svíþjóð á skírdag og fer Gunnar
Eyjólfsson leikari með stórt hlut-
verk í henni. Myndin fjallar um
erfiðleika sígauna í Sviþjóð á 16.
öld, þótt efni hennar sé öðrum þræði
ástarsaga. Leikstjóri Vargaldar er
Hans Alfredson, sem íslendingar
kannast við vegna uppfærslu hans
á Atómstöð Halldórs Laxness á
svið sænska þjóðleikhússins. Leik-
gerð Atómstöðvarinnar hlaut nafnið
Lítil eyja í hafinu og var sýnd í
gestaleik í Þjóðleikhúsinu í fyrra-
vetur.
Hans Alfredson er þekktur í
heimalandi sínu sem Hasse í tvíeyk-
inu Hasse og Tage, en þeir félagar
voru frægir grínistar í mörg ár.
Ýmsir munu til dæmis kannast við
fyrstu kvikmynd þeirra, Eplastríðið,
við tónlist eftir Evert Taube. Tage
Danielson er nú látinn og Hans
Alfredson fæst við alvarlegri hluti
! en áður fyrr.
Hann kaus að frumsýna mynd
sína, Vargöld, í Sjöbo sem er lítill
bær í suðurhluta Svíþjóðar, þar sem
bæjaryfírvöld taka helst ekki á
móti flóttafolki. Tilgangurinn var
að vekja athygli á efni myndarinn-
ar, en í Vargöld hrekjast sígaunar
á flótta um skóga Suður-Svíþjóðar.
Að sögn heimildarmanns Fólks í
fréttum í Svíþjóð hefur myndin vak-
ið heilmikla athygli þar í landi.
Blaðadómar um hana hafa verið
misjafnir, en víða má sjá athuga-
semdir eins og að túlkun Gunnars
Eyjólfssonar á sígaunahöfðingjan-
um Horats sé sterk. Gunnar var
BENNYHAAG * MELINDA KINNAMAN
GUNNAR EYJOLFSSON * LILLLINDFORS • PERMATTSSON
GÖSTAEKMAN • STELLAN SKARSGÁRD
Kvikmyndin Vargens tíd eða Vargöld var nýlega frumsýnd ( Svíþjóð
og hefur vakið mikla athygli.