Morgunblaðið - 19.04.1988, Side 71

Morgunblaðið - 19.04.1988, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988 71 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGi TIL FÖSTUDAGS /liT Il-**t*l U kl JtW 'IJ Þessir hringdu . . Ráðhúsið verður til prýði S.H. hringdi: * „Ég fagna því að búið er að taka fyrstu skóflustunguna að ráðhúsinu í Reykjavík. Það var tími til kominn að fegra þetta hom við Tjömina með- fallegri ráðhúsbyggingu og vona ég að öfgahópurinn sem hefur verið á móti lækki nú róminn og samein- ist okkur hinum sem fögnum ráð: húsinu. Og svo vil ég þakka okkar duglegá borgarstjóra Davíð Odds- syni fyrir allar hans framkvæmd- ir, þær hafa verið borginni til sóma." Ríkisútvarpið er til fyrirmyndar Sveinn Sveinsson hringdi: „Ég vil þakka Ríkisútvarpinu hjartanlega. fyrir margar góðar stundir. Dagskrá þess er til fyrir- myndar. Við hér á Hrafístu hlust- um mikið á Ríkisútvarpið. Við erum líka mjög ánægð með út- varpsstjórann." Stífar og strekkir dúka Sigrún Ólafsdóttir hringdi: „Mig langar til að segja frá konu sem stífar og strekkir dúka þar sem ég veit að margir eru í vandræðum með slíkt en vita ekki hvar skal leita. Ég hef farið til þessarar konu með stóra mat- ardúka jafnt sem litla. Þetta er mjög vel unnið hjá henni. Hún heitir Þuríður og síminn hjá henni er 30645. Ég þakka henni fyrir vel unnin verk.“ Kádhús vid Tjörnina: Umræðunum er lokið og framkvæmdir teknar við segir Davíð Oddsson borgarstjóri DK'ITA v*r ifVnl og á»urgjulrg Mlnml." MJijfði Itavtil tMdsi«»n lvo»x*r"tj<'ri ( MmUli við Moi-k I uilbUðið ( gH-r. rflii lu»fH I irWió fvi-"in wkftfUutunmvm* nð uó wrkið sknh hafift «>: rjunnti, A jió .mnkvw’int fynrmwlum U*rga.r si lórnar b«*n «ð vínna |>tu1 hratt ..g wl M*r rftu Uað vn-n þ»,aW .■AUs nð okkt nm»iti Im-tU lah».T uni byjfKm>junH oniUlAH*t i*n nú »t uiura’vVinl ígtnu Uvkið «>: frumWvH’iniljuitIg IrkO vh>siigOi DhvIó hHiin var npunVr hv»»rt h«nti t»’ki lUkonm þ«*\rra wiii <*ni ó mAti fvnrhugUiVi rúi>- imsbvgKingu «*g km*nn á ulmonnun U »rg.u-afiiiid um róðlniiUiyggmg Léleg íslenzka Magnús hringdi: „Víkveija varð heldur betur á í messunni föstudaginn 15. apríl. I dálkum sínum fínnur hann að lélegri íslenzku og segir: “Er ekki ástæða til að óttast um framtíð íslenzkrar tungu þegar venjulegt fólk er farið að tala og skrifa eins og sérfræðingar stofnana, líkt og í þessu tilfelli?" Þetta er gott og blessað. En svo heldur Víkverji áfram og seg- ir: „Víkveiji er einn þeirra, sem telur sig eiga tilkall til fískjarins (!) í sjónum." Þama átti að standa físksins. Þetta kallar maður að kasta steini úr glerhúsi." Aths.: Víkveiji hefur þegar beðist afsök- unar á þessum mistökum Vísur og slagorð Akureyringur hringdi: „Mér skilst að efnt hafí verið til samkeppni um vísur og slagorð fyrir reyklausadaginn og fannst mér það vel til fundið. En ég hef ekkert heyrt af þessu frekar, varð ekkert úr þessari samkeppni?" Kanína Hvít kanína fannst við Bræðra- borgarstíg fyrir skömmu. Eigandi hennar er beðinn að hringja í síma 15594 eftir kl. 17. Strætisvagnar ættu að hafa forgang Musteri Davíðs Kæri Velvakandi. Þ Penninn minn skrifaði nýlega ósjálfrátt einhvers konar kveðskap í belg og biðu. Gaman væri að vita hvort einhver kannist við þetta, og hvort þetta sé kannski brot úr lengri texta. Ekki fínnst neitt þessu líkt á prentuðum edduskruddum. Getur verið, að þetta sé úr hinni glötuðu kviðu af Davíð og hinum? Textinn er svona: Og sjá, hér mun rísa musteri Davíðs, byggt fyrir aurana okkar á sandi úr blöndu af frekju og hroka, ef þeim tekst þá að moka í grugg- ugu vatni og botna. Uggur styggir önd og hund. Skuggar læðast um nes og sund. Hrollur hríslast um götur og torg. Loftið mun skera harmagrátur og hrossahlátur og skrugga æra unga sem aldna, engri lík. Sorg mun ríkja í Reykjavík. Brýtur og bramlar, stjóri sterki, lýðræðisreglur og siglir í strand. Endur senda kaldar kveðjur. Valdið spillir. Tröllin tryllast. Degi hallar og húmar að kveldi. Öldin er öll í Davíðs veldi. Jón Kristjánsson Til Velvakanda. Fyrir skömmu birtist grein í Vel- vakanda þar sem bent var á að strætisvagnar verða að fá meiri forgang í umferðinni ef þeir eiga að halda áætlun. Ég vil taka undir orð greinarhöfundar. Það er furðu- legt hversu vel bflstjórum strætis- vagna tekst að halda áætlun eins og umferðin er orðin. Ég nota strætisvagnana mikið og ég tel að það ættu fleiri að gera. Ef ferðum strætisvagna yrði fjölgað og þeim gefínn kostur á að komast hraðar áfram, með því að veita þeim for- gang fram yfir önnur ökutæki, er ég viss um að fólk færi að ferðast meira með þeim. Þannig má spara sér dijúgan skilding og eflaust yrðu umferðarslysin færri. J.S. Takið eftir — Fyrirferðarlítil, en afkastamikil upp- þvottavél. Tekur inn á sig heitt eða kalt vatn. Lýkur uppþvotti á 15 mínútum. Hljóðlát. Verð aðeins kr. 21.925,- með söluskatti. Kjölursf., Kjölursf., Hverfisgötu 37, Víkurbraut 13, Reykjavík. Keflavík. Símar: 21490,21846. Sími 12121. NÚ SPÖRUM VIÐ FENINGA og smíðum sjálf! Við eigum fyrirliggjandi flest það efni, sem til þarf þegar þið smíðið sjálf. Til dæmis efni í fataskápa, eldhús- innréttingar, húsgögn, hvers konar vegghillur o.fl. Enn- fremur loftbitaefni, viðarþiljur, límtré og spónaplötur. Þið getið fengið að sníða niður allt plötuefni í stórri sög hjá okkur. Við veitum fúslega *—%/ 0g nú erum við í Borgartúni 28

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.