Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 72

Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 72
72 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988 Sjávarútvegsráðuneytið: SR fær leyf i til að vinna aflaúr sovéskum skipum Samningar milli SR og finnsks fyrirtækis á viðræðustigi Sjávarútvegsráðuneytið hefur veitt Síldarverksmiðjum ríkisins formlegt leyfi til vinnslu á fiski og fiskúrgangi úr sovéskum skipum fyrir finnskt stórfyrirtæki. Hins vegar hefur ekki verið endanlega „ gengið frá samningum milli SR og hins finnska fyrirtækis en að sögn Jóns Reynis Magnússonar, forstjóra SR, mun hann hitta full- trúa þess aftur að máli í London nú á næstu dögum. Hann sagði að hér yrði um að ræða mikla búbót fyrir SR ef um semdist. Finnska stórfyrirtækið, sem með- al annars starfar að skipasmíðum og pappírsvinnslu, á inni fé hjá Sovétmönnum, en vegna gjaldeyr- isskorts í Sovétríkjunum hafa þeir reynt að greiða skuldir sínar í vör- um. Samningar hafa nú tekist milli Sovétmanna og finnska fyrirtækis- ins um að þeir fyrmefndu greiði skuld sína með kolmunna og ýmsum fískúrgangi, en þar sem ekki er aðstaða til bræðslu í Finnlandi var leitað til Síldarverksmiðja ríkisins um verkið. „Málið er enn á viðræðustigi, þótt leyfi sjávarútvegsráðuneytisins liggi nú fyrir,“ sagði Jón Reynir Magnússon, fostjóri SR. Hann kvaðst á þessu stigi ekki vilja nefna neinar upphæðir hvað varðaði hugs- anlegan hagnað. Síldarverksmiðja ríkisins vegna þessa verkefnis, en hér væri um að ræða frá 50 þúsund og upp í 100 þúsund tonn af fiski og fiskúrgangi ef um semdist. „Við komum ekki til með að kaupá þenn- aii fisk heldur mun finnska fyrir- tækið láta hann okkur í té og við myndum gera samning um vinnslu á honum. Þeir ættu síðan afurðim- ar, eða að minnsta kosti mjölið. Hins vegar er svo lítið lýsi í þessu að það er hugsanleg að þeir fengju okkur til að koma því í verð. Okkur finnst þetta mjög fýsilegt verkefni ekki síst þar sem við erum með verksmiðjur sem em of lítið notað- ar, en það yrðu einkum verksmiðj- umar fyrir austan, á Seyðisfirði og Reyðarfirði, sem kæmu til með að vinna þetta ef úr yrði,“ sagði Jón Reynir. AFLABROGÐ A VETRARVERTIÐ Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Guðmundur Guðbergsson með stórþorsk, sem var veiddur í net í Stakksfirði, en annað slagið veiðast 32—35 kg þorskar i netin. Morgunblaðið/Júlíus Félagar í Ísland-Palestína fyrir utan Alþingshúsið þar sem utanríkisráðherra tók við áskorun félags- ms. Steingrímur Hermannsson veitir áskoruninni viðtöku. Fremstur á myndinni er Heimir Páls- son talsmaður félagsins Ísland-Palestína. Félagið Island-Palestína: Áskorun um skilyrði fyrir stjórnmálasambandi við Israel FORSVARSMENN félagsins ís- land-Palestína, afhentu Steingrími Hermannssyni ut- anríkisráðherra í gær áskorun um að íslenska ríkisstjórnin beiti sér fyrir því innan Norður- landanna að sett verði skilyrði fyrir áframhaldandi stjórn- málasambandi við Ísraelsríki. í áskoruninni segir að á helgi- degi gyðinga hafi morðingjasveit írsaelska ríkisins ráðið af dögum Sögufélag Ámesinga: Röng dagsetn- ing aðalfundar RANGT var farið með dagsetn- ingu í frétt um aðalfund Sögufé- lags Arnesinga í blaðinu á sunnu- dag. Fundurinn verður haidinn 27. apríl næstkomandi en ekki „á morgun miðvikudag" eins og sagði í fréttinni. Aðalfundurinn hefst kl. 20.30 á Hótel Selfossi. Fyrirlesari verður Ögmundur Helgason sem Qallar um Guðmund Sigurðsson þjóðfræði- safnara í Ámesþingi. Að erindi Ögmundar loknu taka við venjuleg aðalfundarstörf. Nýir félagar eru boðnir velkomnir á fundinn í frétta- tilkynningu Sögufélagsins. ejnn af hófsömustu leiðtogum PLO á heimili sínu frammi fyrir konu og dóttur og á sama degi drepið 16 vopnlausa palestínumenn og sært á annað hundrað þeirra á Gazasvæðinu og Vesturbakkan- um. Þessi morð séu skelfilegt áfall fyrir þá sem vilja vinna að friðsam- legri lausn Palestíumálsins en jafnframt eðlileg afleiðing af of- stækisfullu stjórmálakenninga sem niótað hafi stefnu ísraels- stjómar frá upphafi. í ákomninni er þess síðan farið á leit að íslenska ríkisstjórnin beiti sér fyrir því á vettvangi Norður- landanna að sett verði 4 skilyrði fyrir áframhaldandi stjómmála- sambandi við ísrael: 1. Ríkisstjórn ísrael láti af ofsóknum á hendur Palestínumönnum. 2. Pólítískum föngum ísraelsstjórnar verði sleppt úr haldi. 3. Brottreknum Palestínumönnum verði leyft að snúa aftur. 4. Ríkisstjóm Israels virði samþykktir Sameinuðu þjóð- anna í Palestíunumálinu. Steingrímur Hermannsson tók við áskoruninni og sagðist taka undir fordæmingu á því hroða- verki sem þama hefðu verið fram- ið. Hann tók fram að íslenska ríkisstjómin styddi tilveru ísra- elsríkis en sagðist sjálfur telja hættu á að það ástand sem nú ríkti, myndi leiða til tortímingar þess. Félagsmenn Íslands-Palestínu afhentu samskonar ályktun bandaríska sendiráðinu. Stórþorskar veiðast í net í Stakksfirði Vogum. TRILLUR hafa aflað vel í net í Stakksfirði í vetur og eru dæmi um að trillurnar hafi farið tvær ferðir samá daginn vegna mikils afla. Aflinn er aðallega vænn þorskur, en annað slagið slæðast stórþorskar í netin, allt að 32—25 kg að þyngd. Það er mikill fjöldi af trillum sem era gerðar út frá byggðarlögunum við fjörðinn, Keflavík, Njarðvík og Vogum, en það hafa einnig komið trillur á miðin frá öðram stöðum við Faxaflóa. Stakksfjörður er norður undan Vogastapa, en norðan undan hon- um þóttu góð fisliimið á áram áður og fengu þessi mið Gullkistu-heiti vegna mikils fiskirís. Það þótti und- arlegt hve mikið fiskirí var á þess- um slóðum og héldu sumir að þorsk- urinn kæmi um undirgöng sunnan úr Grindavíkursjó en fiskiríið þótti oft best svo nærri berginu að ekki væri hægt að komast í nema aðra baujuna. - EG Keflavík: Ágætur afli hjá netabát- um en lítið hjá öðrum Keflavík. ÁGÆTUR afli var hjá einstaka bátum í síðustu viku og var út- kornan best hjá netabátunum, en minna hjá hinum. Skælingur hef- ur verið hjá handfærabátunum og hafa þeir lítið getað verið við. Stafnes KE var með mestan afla, 68,6 tonn og var aflanum bæði Stofnanakeppni Taflfélags Reykjavíkur: Búnaðarbankinn kærður vegna þátttöku Jóhanns Hjartarsonar SKÁKSVEIT Búnaðarbankans í stofnanakeppni Taflfélags Reykjavíkur hefur verið kærð fyrir að hafa Jóhann Hjartarson innanborðs, á þeirri forsendu að þrjú ár séu liðin síðan Jóhann var starfsmaður bankans. Mótanefnd stofnanakeppninnar segir það liggja fyrir að Jóhann sé á launaskrá hjá Búnaðarbankanum og því verði kærunni vísað frá. Keppnin hófst sl. mánudags- kvöld og þá um kvöldið lagði Gunnar Gunnarsson, fyrir hönd skáksveitar Útvegsbankans, kær- una fram. Gunnar sagði við Morg- unblaðið að í keppninni í fyrra hefði hann gengið úr skugga um að Jóhann hefði ekki verið á launa- skrá Búnaðarbankans í 2 ár, en samkvæmt reglum stofnanakeppi- nnar eru taflmenn löglegir í sveit- ir fyrirtækja í tvö ár eftir að þeir fara af launaskrá. Gunnar sagði það ljóst að Jóhann hefði varla haft tíma á síðasta ári til að vinna hjá bankanum og þótt það væri raunar látið viðgangast að margir væru á hæpnum forsendum í liðum í keppninni væri þama um að ræða einn sterkasia. saákmann heims og því hefði þetta verið kært. Margeir Pétursson liðsstjóri skáksveitar Búnaðarbankans sagði við Morgunblaðið að Jóhann hefði unnið hvert einasta sumar hjá bankanum frá 15 ára aldri til ársins 1985, fyrst sejn sendill og síðan sem gjaldkeri. í 10 ár hefði Jóhann tekið þátt í keppnum á vegum bankans og verið mjög virkur í skákstarfi þar. Margeir sagði það rétt að Jóhann hefði ekki unnið hefðbundin bankastörf síðustu ár en þegar hann hóf æf- ingar síðastliðið haust fyrir ein- vígið við Viktor Kortsjnoj hefði stjóm bankans ákveðið að setja Jóhann á laun, eins og hann væri í hlutastarfi, og hefði þannig verið fyrsti aðilinn til að leggja Jóhanni lið í atlögu hans að heimsmeistar- atitlinum í skák. Síðan hefðu fleiri fylgt á eftir en Jóhann hefði rækt- að sín gömlu tengsl við bankann með því m.a. að koma fram í aug- lýsingum. Margeir bætti við að Jóhann myndi lítið tefla á íslandi á næstunni og menn ættu því að fagna þessári þátttöku hans í stofnanakeppninni. Gylfi Gautur Pétursson, sem er í mótanefnd stofnanakeppninnar, sagði að nefndin hefði gengið úr skugga um að Jóhann Hjartarson væri á launaskrá hjá Búnaðar- bankanum og myndi því kveða upp úrskurð á þeim forsendum. 'Önnur umferð stofnanakeppn- innar var í gærkvöldi og þá mætt- ust sveitir Búnaðarbankans og Útvegsbankans en þær unnu báð- ar andstæðinga sína 4-0 í fyrstu umferðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.