Morgunblaðið - 06.10.1988, Side 1
72 SIÐUR B
228. tbl. 76. árg.
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kosningarnar í Chile:
Báðar fylking-
ar hrósa sigri
Santiago. Reuter.
Mikill mannQöIdi hafði safiiast saman fyrir utan marga kjörstaði i Chile áður en þeir voru opnaðir og
fréttir eru um, að kjörsóknin hafi verið nyög mikil. Hermenn gráir fyrir járnum voru hvarvetna á verði
en ekki er vitað til annars en að kosningarnar hafi gengið vel fyrir sig.
Oeirðir og götuvígi
reist í Algeirsborg
Allsherjarverkfall og vaxandi ókyrrð vegna versnandi lífskjara
Túnisborg. Reuter.
MIKLAR óeirðir brutust út í Algeirsborg I gœr og er haft eftir vitn-
um, að þúsundir manna hafi barist við lögregluna. Kom fólkið fyrir
götuvígjum, kveikti í ríkisbifreiðum og opinberum byggingum og
rændi strætisvögnum þeirra bílstjóra, sem ekki höfðu sinnt áskorun-
um um allsherjarverkfall. Síðustu vikur hefur verið nýög ókyrrt í
landinu vegna óánægju almennings með versnandi lífskjör og að-
haldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar.
AUGUSTO Pmochet hershöfð-
ingi og herstjórnin í Chile og
stjórnarandstaðan hrósuðu hvor-
tveggja sigri eftir að fyrstu tölur
bárust úr kosningunum, sem
fram fóru í gær. Var þó ekki um
að ræða opinberar tölur, heldur
upplýsingar, sem fylkingarnar
Sovétríkin:
Medvedev
kúvendir
í hugmynda-
fræðinni
Moskvu. Reuter.
VADÍM Medvedev, hinn nýi
hugmyndafræðingur sov-
éska kommúni itaflokksins,
hvetur til „nýs skilnings á
sósíalismanum“ í ræðu, sem
Pravda, flokksmálgagnið,
birti i gær, og segir meðal
annars, að lögmálið um
framboð og eftirspum sé ein
af forsendum skynsamlegrar
hagstjórnar.
Ræðuna flutti Medvedev á
ráðstefnu þjóðfélagsfræðinga
frá ýmsum kommúnistaríkjum
og lagði hann mikla áherslu á,
að „sameiginleg, mannleg verð-
mæti“ væru æðri stéttabarátt-
unni og sagði, að Sovétmenn
gætu margt lært af Vestur-
landabúum í efnahags- og fé-
lagslegu tilliti.
Af þessum jrfirlýsingum
Medvedevs þykir ljóst, að
mannaskiptin í stjómmálaráði
sovéska kommúnistaflokksins
hafi treyst stöðu umbóta-
sinnanna enda stinga þær í stúf
við málflutning Jegors
Lígatsjovs, fyrirrennara
Medvedevs sem hugmynda-
fræðings, en hann hefur nú
verið gerður að formanni í nýrri
landbúnaðamefnd.
Olíuverð-
ið hrapar
London. Reuter.
Skyndimarkaðsverð á olíu féll
í gær um 40-70 sent á fatið vegna
þess, að allir markaðir eru yfir-
fullir.
Fýrir hvert olíufat af Brent-
svæðinu í Norðursjó fengust í gær
11,35 dollarar og var lækkunin rak-
in til þeirrar yfirlýsingar Saudi-
Araba, að þeir ætluðu ekki að
minnka framleiðsluna meðan önnur
OPEC-ríki virtu kvóta sína að vett-
ugi. Ame Öien, orkumálaráðherra
Noregs, sagði, að kæmu OPEC-
ríkin ekki böndum á eigin fram-
leiðslu sæju Norðmenn enga ástæðu
til að halda aftur af sinni.
höfðu aflað sér sjálfar á kjör-
stöðunum. Þykir flest benda til,
að menn verði ekki á eitt sáttir
um úrslitin hver sem þau verða.
Samkvæmt fyrstu tölum herfor-
ingjastjómar stefndi f öraggan sig-
ur Pinochets en Ricardo Lagos, leið-
togi Sósíalistaflokksins, kvaðst hins
vegar hafa heimildir fyrir því, að
yfirgnæfandi meirihluti kjósenda
hefði sagt „nei“ og hafnað Pinochet
sem forseta í átta ár enn. Herfor-
ingjastjómin hefur heitið því, að
tapi Pinochet kosningunum verði
efnt til fijálsra forsetakosninga á
næsta ári.
Hvortveggja fylkingin hafði lýst
yfir, að hún ætlaði að birta eigin
niðurstöður af talningunni skömmu
eftir að kjörstöðunum hefði verið
lokað en yfírkjörstjómin í landinu
getur dregið það í 10 daga að
greina frá endanlegum úrslitum.
Ef stjómarandstaðan sigrar ætlar
hún strax að eftia til viðræðna við
herinn um skipan borgaralegrar
stjómar en hershöfðingjamir leggja
áherslu á, að stjómarskránni frá
árinu 1980 verði fylgt nákvæmlega.
Samkvæmt henni verður Pinochet
áfram yfirmaður hersins og heldur
sæti sínu í öldungadeildinni meðan
hann lifir. Þá verður hann áfram í
þjóðaröryggisráðinú en það er eitt
helsta valdatæki hersins.
Stjómarandstaðan, ' samfylking
16 mið- og vinstriflokka að komm-
únistum undanskildum, hafði skor-
að á fólk að efna ekki til mótmæla
til að hemum gæfist engin átylla
til aðgerða og er ekki vitað til ann-
ars en að kosningamar hafi gengið
snurðulaust fyrir sig. Rúmlega sjö
milljónir manna voru á kjörskrá í
þessum fyrstu eiginlegu kosningum
frá árinu 1970.
Vitni, sem símasamband var haft
við, sögðu, að lögreglan hefði beitt
táragasi gegn hundraðum eða þús-
undum manna, sem sett hefðu upp
götuvígi, kveikt í bifreiðum í ríkis-
eigu og ráðist gegn öðram „táknum
auðsins". Var aðallega um að ræða
ungt fólk, sem ríkisfréttastofan
APS kallaði „óaldarlýð“, sem ekki
yrði hopað fyrir. Sagði hún að hald-
inn hefði verið skyndifundur í
stjómmálaráði stjómarflokksins
Þjóðlegu frelsisfylkingarinnar, þar
sem ákveðið hefði verið að standa
við strangar efnahagsaðgerðir þrátt
fyrir óeirðimar.
Erlendir stjómarerindrekar í Al-
geirsborg segja, að neðanjarðar-
hreyfing verkamanna hafí boðað til
allsheijarverkfalls í gær og hafi
margir orðið við áskoraninni en þó
STIPE Suvar, leiðtogi júgóslavn-
eskra kommúnista, gaf í gær til
kynna, að miklar breytingar
yrðu gerðar á stjóramálaráði
flokksins og miðstjórn. Deilur
milli þjóðanna, sem byggja Júgó-
slavíu, hafa að undanförnu
skyggt á flest annað en nú er
farið að bera meira á óánægjunni
með bágt efiiahagsástand og
slæm lífskjör.
Suvar sagði í sjónvarpsviðtali í
fyrrakvöld, að allt að þriðjungur
165 manna í miðstjóminni yrði
hugsanlega látinn víkja á næstunni
og þar á meðal ýmsir, sem einnig
ekki allir. Mikil og vaxandi óán-
ægja hefur verið meðal almennings
i Alsír að undanfömu með miklar
verðhækkanir á matvöra en sagt
er, að dropinn sem fyllti mælinn
hafi verið óvenju svæsin ræða
Chadlis Benjedid forseta. í henni
skammaði hann landa sína fyrir
leti og sagði, að þeir yrðu nú að
leggja hið ljúfa líf á hilluna, ríkið
gæti ekki lengur greitt ofan í þá
matinn með alls kjms uppbótum og
sfyrkjum.
Franska blaðið Le Monde sagði
í gær, að komið hefði til uppþota í
öðram borgum en þau verið bæld
niður með valdi. I allan gærdag
sveimuðu herþyrlur yfír Algeirs-
borg og herbflar streymdu til mið-
borgarinnar þar sem átökin vora
mest.
ættu sæti í stjómmálaráðinu. Sagði
hann, að frá flokksþinginu 1986
hefðu 43 miðstjómarmenn og 14
af 23 mönnum í stjómmálaráðinu
verið gagnrýndir opinberlega fyrir
alls kyns yfirsjónir og yrðu þessar
ásakanir helsta umræðuefni mið-
stjómarfundarins, sem haldinn
verður 17. október nk.
Þúsundir manna söfnuðust í gær
saman fyrir framan þinghúsið í
Belgrað til að mótmæla síversnandi
lífskjöram og kröfðust þeir þess
einnig, að alríkisstjómin og forystu-
menn verkalýðshreyfingarinnar
segðu af sér.
Reuter
Vopnin kvödd
í Bretlandi og vafalaust víðar er nokkuð um ólöglega vopnaeign og til
að ráða á því dálitla bót var ákveðið að gefa mönnum kost á að af-
henda óskráð vopn í septembermánuði án þess að þurfa að óttast
neina eftirmála. Bar það þann árangur, að 35.000 skotvopnum var
skilað til lögreglunnar og rúmlega einni milljón skothleðslna. Hér era
lögreglumenn að ferma vörabfl með haglabyssum, sem síðar verða
eyðilagðar.
Júgóslavía:
Verður flokksfor-
ystan stokkuð upp?
Belgrað. Reuter.