Morgunblaðið - 06.10.1988, Qupperneq 49
rrnr ry A*rrvt/\
gjg.fi iflmmflqM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988
49
Ó, blessuð stund, er sérhver mín er náðin
og raunaspuming, sem mér duldist hér,
og ég sé vel, að viskan tóm og náðin
því veldur, að ei meira sagt oss er.
Ó, blessuð stund, er hátt í himinsölum
minn hjartans vin ég aftur fæ að sjá
og við um okkar ævi saman tólum,
sem eins og skuggi þá er liðinn hjá.
(Wexels-Sb. 1886 — M.Joch.).
Það er svo margt sem kemur upp
í huga okkar á þessari stundu.
Margs góðs er að minnast.
Okkur langar í fáum orðum að
gefa okkur tilfinningunum á vald,
að leyfa minningunum að tala sínu
máli.
Amma hafði verið hjartveik
síðastliðin sex ár og mátti því alltaf
búast við kalli Guðs, hvenær sem
var. — En hún bar veikindi sín svo
vel, að það var einsdæmi.
Hún bjó ein í leiguíbúð fyrir aldr-
aða í Furugerði 1, eldaði fyrir sig
sjálf og bauð bömum sínum og fjöl-
skyldum þeirra til skiptis í matar-
boð til sín, allt fram til síðasta dags.
Amma vildi ætíð standa á eigin
fótum og tók það ekki í mál, að
maður vaskaði upp fyrir hana, hvað
þá meira.
Henni leið vel í Furugerði, þó hún
hefði stundum viljað hafa meira
„flör“ þar. — Já, kemst ekki hjá
því að brosa út í annað, er maður
hugsar til þess, þegar hún talaði
um flörið og „gamla fólkið". Henni
fannst hún aldeilis ekki vera „göm-
ul“ sjálf. Okkur fannst hún reyndar
heldur ekkert vera „gömul", því hún
var svo ung í anda.
Þegar við síðast töluðum við
ömmu, þá lá mjög vel á henni.
Reyndar lá oftast vel á ömmu og
alltaf mikið um að vera í kringum
hana. Hún var mjög félagslynd
kona og hafði gaman af söng, enda
var hún m.a. í bama- og unglinga-
kór Akureyrar. Já, amma var alltaf
raulandi hin og þessi lög fyrir munni
sér og tók ætíð undir er söngur
hljómaði á öldum ljósvakans. — Hún
átti sín eftirlætisskáld, þá Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi og Matt-
hías Jochumsson, sem var góður
heimilisvinur og tíður gestur á
æskuheimili hennar.
„Einir koma og aðrir fara í dag.“
Við höfum varla áttað okkur á því,
að nú getum við ekki lengur farið
í kaffi til „Valgerðar ömmu“, —
eins og við sögðum alltaf. — Það
er erfitt að hætta slíku og eigingim-
in og tómleikinn tekur völdin.
Hún amma okkar var trúhneigð
og umhyggjusöm kona. Við viljum
þakka henni alla þá þekkingu er
hún miðlaði okkur af. Hún var allt-
af tilbúin til þess að hjálpa okkur,
hvemig sem á stóð. — Við minn-
umst ferðalaganna með henni og
umhyggju hennar fyrir okkur systr-
unum, með ástúð og söknuði.
En eitt vitum við, að þó lífsgöngu
ömmu sé lokið í þessum heimi, þá
heldur hún áfram í hinum óþekkta
heimi Guðs.
Blessuð sé minning hennar.
Barnabörnin Sólveig
og Valgerður Franklinsdætur.
í Kaupmannahöfn
FÆST
Í BLADASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
+
Þökkum öllum innilega veitta samúð og hlýhug við andlát og út-
för eignmanns míns,
EGILS BACHMANNS HAFLIÐASONAR,
Meistaravöllum 21.
Einnig læknum og hjúkrunarfólki 11A Landspítalans og heima-
hjúkrun Seltjarnarness og Reykjavíkurborgar.
Guðrún Ragnarsdóttir
og fjölskyldur.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR.
Sigurður Lýðsson, Sæunn Gunnarsdóttir,
Guðmundur Lýðsson, Inga Ágústsdóttir
og barnabörn.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
I minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
INNRETTINGAR
Sestu við gamla eldhúsborðið.
Lokaðu augunum. Hugsaðu þér iimréttingar.
Nýjar iimréttingar í baðherbergið, nýja
skápa og liillur.
Allt nýtt
Ekki opna augun alveg strax.
Hugsaðu þér líka splúnkunýja innréttingu í
eldhúsið — með skápum, skúffuin, hillnm
og öllum hirslum á réttum stöðuin. Hugsaðu
þér svo fallega fataskápa í forstofuna,
svefnherbergið og barnaherbergið. Nýjar,
fallegar og heimilislegar innréttingar frá
HEIMILISVERSLUN HÚSASMIÐJUNNAR.
Opnaðu svo auguii.
Nú geturðu komið í heimsókn til okkar og
skoðaðu hvernig draumurinn þinn getur
orðið að veruleika. Við gætum jafnvel gert
þér tilboð í draumainnréttinguna.
Koiiidu í dag.
Koindu áður en þú ferð að láta þig dreyma
um eitthvað annað.
Lokaðu ekki augunum fyrir
HEIMILISVERSLUN HÚSASMIÐJUNNAR.
HUSA
SMIÐJAIM
SKÚTUVOG116 S(MI 6877 00