Morgunblaðið - 06.10.1988, Side 41

Morgunblaðið - 06.10.1988, Side 41
41 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988 Afinæliskveðja: Sveinbjöm Benedikts- son, Hellissandi En hvað árin eru fljót að líða. Margt af því fólki sem er sterkast í endurminningunni frá uppvaxtar- árum mínum vestur á Hellissandi hefur náð sjötugu. Sveinbjöm Bene- diktsson, stöðvarstjóri Pósts og síma og útgerðarmaður, bætist í þann hóp í dag. Sveinbjöm er fæddur í Gmndar- firði en hefur átt heima á Hellissandi frá því að hann var átta ára. Hann er sonur Benedikts Benediktssonar kaupmanns og Geirþrúður Kristjáns- dóttur, mikils athafnafólks á sinni tíð. Hann er elstur þriggja systkina. Arið 1941 kvæntist Sveinbjöm æskuvinkonu sinni ogjafnöldru, Astu Friðbjamardóttur, dóttur heiðurs- hjónanna Júníönu Jóhannesdóttur og Friðbjamar Ásbjömssonar frá Blómsturvöllum. Þau hafa lifað í hamingjuríku og samhentu hjóna- bandi, eignast fjóra mannvænlega syni, bamaböm og barnabamaböm. Starfsvettvangur Ástu hefur verið að búa fjölskyldunni gott heimili enda hefur eiginmaðurinn alltaf átt annríkt og því ekki um það að ræða að hún ynní úti. Hún er einstaklega geðug og hlýleg kona í allri viðkynningu og lætur sér mjög annt um annarra hag. Þau hjónin hafa verið miklir vinir mínir og fjölskyldu minnar frá því að við áttum heima á Hellissandi og við alltaf verið aufúsugestir á heimili þeirra. Það er ótrúlegt að á næstu mánuð- um hættir Sveinbjöm sem stöðvar- stjóri Pósts og síma og sest í helgan stein. Hann hefur gegnt þessu starfí í meira en fjóra áratugi — eða í 43 ár nákvæmlega. En þetta er víst gangur lffsins hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Það sem stendur þó upp úr er að hann getur litið stolt- ur um öxl. Hann hefur verið gæfu- maður í starfi, virtur af samborgurum sínum, tryggur og greiðvikinn. Fyrir mér, eins og öðmm sem alist hafa upp á Hellissandi, er Sveinbjöm stór hluti af heimsmyndinni; póst- meistarinn sem flestir þurfa að hafa nær dagleg samskipti við. í hvert sinn, sem ég hugsa um pósthúsið á Sandi sé ég Sveinbjöm í sömu andrá sem mikilvægan hluta af því. Kannski ekki furða því að við vomm miklir vinir og ég kom sennilega oftar en flestir aðrir til hans á pósthúsið. Það verður ekki sagt um Svein- bjöm að hann tali af sér. Hann er hlédrægur í eðli sínu, hefur kosið að sitja á friðarstóli, tranar sér aldrei fram — en engu að síður hefur hann ákveðnar skoðanir á málunum. Hann er algerlega laus við hégómagimd. Hann vill ekki segja meira en hann getur staðið við og leiðist allt gasp- ur. Hann er maður athafna fremur en orða. Við Sveinbjöm ræddum oft saman á gamla pósthúsinu og þá var það ég sem lét móðan mása. Ég býst við að ég hafí oft reynt á þolrifm í honum með málæði mínu. Hann lét mig þó sjaldan tmfla sig við störfín, sat dag- langt og ritaði nöfn fylgiskjala í stóra bók, milli þess sem hann sinnti þeim er áttu erindi við hann. Stundum hélt ég, eftir langar einræður, að hann væri hættur að hlusta á mig og spurði þá að því hvort svo væri. Þá leit hann upp frá bókinni, horfði á mig og sagði eitthvað sem var vand- lega hugsað og benti til þess að hann var vel með á nótunum. Undir alvarlegu svipmóti Svein- bjamar leynist skopvísi. Þegar hann var orðinn leiður á masinu í kappsöm- um og hávæmm smástrák skrökvaði hann oftar en einu sinni að honum að hann ætti póstkröfu, það væri hljóðkútur. Það var áminning um að hann ætti að hafa lægra. Eitt af þvi skemmtilegasta, sem gat komið fyrir mig á bemskuámn- um, var að fá sendibréf. Ég var allt- af að inna póstmeistarann eftir því hvort ég hefði nú ekki fengið bréf með síðustu rútu og gilti þá einu hvort ég hitti hann á pósthúsinu sjálfu eða á götu. Jú, í nokkur skipti hélt hann að ég ætti bréf, meira að segja ábyrgðarbréf frá nafngreindum stelpum í þorpinu sem ég hafði trúað honum fyrir að ég væri skotinn í — og bætti stundum við að ég yrði að sækja bréfíð í hvelli því að það legði sterka ilmvatnslykt af því, það væri ekki líft á pósthúsinu. I endurminn- ingunni get ég ekki annað en hlegið að þessum' samtölum okkar. Svona átti póstmeistarinn auðvelt með að slá á létta strengi. Auk þess að vera stöðvarstjóri hefur Sveinbjörn rekið útgerðarfyrir- tækið Skarðsvík hf. ásamt Sigurði Kristjónssyni skipstjóra og gerir út samnefndan bát. Skarðsvík hf. er tvímælalaust eitt af best reknu út- gerðarfyrirtækjum hér á iandi og leggja þeir tveir sitt lóðið hvor á vog- arskálarnar, maðurinn í landi, sem sér um fjárreiður útgerðarinnar og önnur mál, og skipstjórinn sem leitar gjöfulla fískimiða. Skarðsvík var í áraraðir aflahæsti báturinn yfir landið á vetrarvertíð en síðustu ár hefur hann aðallega verið gerður út á loðnu. Góð og samstillt áhöfn hefur verið á bátnum í gegnum tíðina og færri komist þar í skiprúm en viljað hafa. Það segir sína sögu um það orð sem fer af útgerðarmönn- unum. Sveinbjörn og Ásta hafa alla tíð unnað átthögum sínum mikið. Frá heimili sínu, Hraunprýði, sem er í útjaðri þorpsins, hafa þau glæsilegt útsýni. Á aðra hönd sjá þau konung íslenskra eldflalla, Snæfellsjökul, í öllum litbrigðum sínum og á hina út á Breiðafjörðinn. Þau hafa ekki getað hugsað sér að flytjast búferlum frá þeirri stórbrotnu og tignarlegu nátt- úru sem umlykur þau. Þau hjónin hafa bæði tekið mikinn þátt í félagsstarfí á Hellissandi. Þau voru meðal stofnenda Ungmennafé- lagsins Reynis og eru nú heiðurs- félagar þess. Sveinbjöm er einn af stofnfélögum Lionsklúbbs Nesþinga og Ásta hefur verið mikilvirk í starfi Kvenfélags Hellissands alla tíð. Það er stutt á milli stórra afmælis- daga hjá þessum öðlingshjónum. Ásta verður sjötug 29. október nk. Ég veit að margir Sandarar, vinir og vandamenn, hugsa til þeirra á þessum merku tímamótum. Þau njóta mikillar virðingar allra sem þekkja þau, ekki síst fyrir það hve mikilli hlýju stafar frá þeim og hvað_ þau eru heilsteypt og áreiðanleg. Á langri lífsgöngu hafa þau sáð góðum fræjum og leyft öðrum að njóta ávaxtanna með sér. Ég flyt þeim hugheilar ámaðar- óskir og óska þeim langra og góðra ævidaga. Eðvarð Ingólfsson Sveinbjörn Benediktsson verður að heiman í dag. LAGABREYTING Frá og með 1. október 1988 verða breytingar á lögum um leigu- bifreiðir nr. 36. 9. maí 1970. Önnur málsgrein 3. gr. laganna orð- ast svo: „í þeim kaupstöðum og á þeim sýslusvæðum, þar sem viður- kenndar sendiferðabifreiðastöðvar eru starfandi, er öllum óheim- ill leiguakstur á sendiferðabifreiðum utan stöðvar eða frá stöð sem eigi er viðurkennd." Trausti, félag sendibifreiðastjóra, vill benda almenningi, fyrirtækj- um og stofnunum á hagstæðan ökutaxta sendibifreiða. Ökutaxti sendibifreiða dags. Stærð 0-4 m3 StærA 4-7 Stærð 7-10 Stærð 10-15 15. júlí 1988 og flytja m3 m3 m3 0-700 kg. og flytja 700-1.300 og flytja 1,3-2,1 tonn og flytja 2,1-3,5tonn. kfl. I II III IV Startgjald 135.00 205.00 250.00 290.00 Klst. án startgj. 779.30 916.90 1.146.00 1.310.30 Kflómetri dagv. 24,05 28,15 35,40 52,95 40,35 Kílómetri nœtur-hdv. 35,95 42,45 60,55 Heimild erfyrir álag á ökutaxta IV. Sendibíll frá okkur sparar fyrir þig. Trausti, féiag sendibifreiðastjóra. INNRÖMMUN RJÓNS innrömmunSiguijónsj Málverka- og myndainnrömmun. RMULA 22 símí 31788 Málverkasala Námskeið i Macrobiotik hefjast í október. Upplýsingar og innritun í síma 651137 laugardag- inn 8. október 1988. Þuríður Hermannsdóttlr. HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ Vilt þú lesa meira, en hefur ekki nægan tíma? Vilt þú læra meira, en hefur ekki nægan tíma? Lausn á þessum vandamálum færðu með því að margfalda lestrarhraða þinn, en það getur þú lært á næsta hraðlestrarnámskeiði sem hefst 11. október nk. Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 í síma 641091. Hraðlestrarskólinn n IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS Eítirtalin námskeið verða haldin á næstunni hjá Iðntæknistofnun: FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS: 24.-29. okt Loftræsti- og hitakerfi: Námskeiöiö er ætlað mönnum sem annast upp- setningu ogsmíði kerfanna. 20-25 kennslustundir. M/ÁLMTÆKNIDEILD: 7. nóv. Hlff&aigassufa. Ætlað starfandi iðnaðarmönnum. Ryöfritt stál og smiðastál: Flokkun ogciginlcikar, tæring, suðuaðferðir o.fl. Ál: Flokkun og eiginleikar, suðuaðferðir, suðugallaro.fl. 40 stundir. REKSTRARTÆKNI - VTELTÆKNI: 24. -26. okt. Markaðssetning. Markmiðið er aö gera þátttakcndur færa um að útbúa maikaðssetningaráætlun og gcra grein fýrir atriðum sem nauðsynleg em til að koma vöm á matkað. 31. okt.-5. nóv. Stofnun og rekstur fyrirtækja. Ætlað konum. Haldið á kvöldin og fyrir hádegi á Iaugardcgi. Námskeiðinu er ætlað að auka skilning þátttakcnda á hvað atvinnurekstur útheimtir, hvað þurfi að athuga og hvað beri aðvarasL 25. okt. Strikamerki 1. Haidið á Akureyri. Kynntar veiða helstu tegundir strika- merkja, hvað vinnst með notkun strikamerkjan, nauðsynlegur búnaður. 4 kennslustundir. 28. okt. Strikamerki 2. Haldiö á Akureyri. Hvað er strikamerki, notkun. staðsetn- ingstrikamerkja, stærðir, prenttæknilegatriði, gerð umbúða ogeftirlit 6 kennslustundir. 28. okt. Strikamerki 2. Haldið í Reykjavík. 24.-26. okt. örtfibutækni 1. Gmndvallariiugtök örtölvutækninnar. Hvemig vinnur örtölvan? Nemendur leysa sjálfir forritunarveikefni á véla- og smala- máli 8088/86 öigjörvaijölskyldunnar. VERKSTJÓRN ARFRÆÐSLAN: 10. okL Vðraþrðun. Hclstu þættir vömþióunarog hlutverk vcrkstjóra (vömþið- unarstarfínu og gmndvöilur vöruþróunar, hugmyndalciL afl. 11. otk. VerktUsBgn og vinnutækni. Farið er yfir skipulagða verktilsögn, móltöku nýliöa og starfsmannaftteöslu, likamsbeitingu viö vinnu og vinnuvist- fræði. 14. okt. TiAniathuganir og hðpafkösL Fariðeryfirtiönirannsðkniroghvemig meta má afköst hópa, verkstæöisskipulag og hagræöingu vinnustaða, afkastahvetjandi launakeril. 17. okt. Vcrkskipulagning og timastjðmun. Farið er yfir undirstöóuatriði I áæfla- nageið, verkskipulagningu og tlmastjómun fyrir verkstjóra. Geið CPM- framkvæmdaáætlana og Gnatt-ðætlana. 19. okt. MULnPLAN-forrit og greiAsluáætlanir. Farið er yfir undirstöður áætla- nagciðar með PC-tölvu, kennt notkun á töflurcikniforritinu MULTI- PLAN. 21. okt. PROJECT-fomt og verkáætlanir. Fariö er yfir undirstöðu vetkskipulagn- ingar með aöstoð PC-tölvu, kynning á tölvuforritinu PROJECT. 24.okL Samsiartogsamvinna.Hald!ðá Akureyri. Hvað cr syómun og hvert cr hlutverk vcrkstjóra, skipulag samstarfs og samvinnu. 28.okt. StjómunaraðÍMÓir og starfshvatning. i ialdið á Akureyri. Fanð er yfir helstu kcnningar I sljðmun og sljómunarstíl, hvað hvetur menn til vinnu og hvað einkennir gðð verkfyritmæli. 3. nóv. S<jómimaniðferðir og startshvatning. Haldió á Rcyðarfuði. 28. okt. öryggismál. Farið er yfir helstu öryggismál og ábyrgð stjómenda á örygg- ismálum. Kostnað slysa og hvað vinnst með bæltu öryggi. 3l.okL Bnma-ogslysavamir. Fariðeryfirbruna-ogslysavamir.bninaflokka, slökkvitæki o.fl. Sjúkrakassann ogæfingar Ifyrstu hjálp. 4. nóv. Undirstafarinntihagræðingar. Fariðcryfirundirstöðu vinnuhagncðing* ar á vinnustöðum og helstu hjálpartæki við hagræöingu og mat á ár- angri o.fl. 9. nóv. Kjarasamniitgar og Iðg. Fariö cr yfir skaðabótarátt og vinnulöggjöf. saka- rcgluna, saknæmi. Túlkun kjarasamninga o.fl. Námskelð ( Reykjavfk eru hakfln I húsakynnum lAntæknistofnunar, nema annað sé tekið fram. Nánari upptýsingar og innrttun hjá stofnuninni f sima 81-68-7000, Fraaðsksnið- stöð Iðnaðarins I afma 81-68-7440 og Verkatjðmarfraaðslunni ( skna 81-68-7008. GEYMIÐ A UGL ÝSINGUNA.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.