Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988
37
Útgefandi Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúarritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 70 kr. eintakið.
Samdráttur í afla
Fyrirsjáanlegt er, að veru-
legur samdráttur verður
í afla á næsta ári. Hafrann-
sóknastofnun hefur lagt til
umtalsverðan samdrátt vegna
ástands fiskistofna og sjávar-
útvegsráðuneyti hefur í fram-
haldi af því tekið ákvörðun
um niðurskurð á aflamagni,
þótt ekki sé farið að tillögum
Hafrannsóknastofnunar í einu
og öllu.
Þórður Friðjónsson, for-
stöðumaður Þjóðhagsstofnun-
ar, sagði á aukafundi Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna
í gær, að aflamagn á næsta
ári yrði svipað því, sem var á
árinu 1981. Sá samanburður
gefur fólki nokkra hugmynd
um, hvað í þessari ákvörðun
sjávarútvegsráðuneytis felst.
Landsmenn deila um margt
í sambandi við efnahagsmál
og afkomu þjóðarinnar. Um
það verður hins vegar ekki
deilt, að veruleg minnkun
fískafla hlýtur að koma fram
í versnandi lífskjörum þjóðar-
innar. Til þess að vega upp á
móti slíkum samdrætti, sem
nú er stefnt að, þyrfti fiskverð
á erlendum mörkuðum að
hækka mjög mikið. Fiskverð
hefur hins vegar lækkað veru-
lega undanfarin misseri og
þótt nú sjáist merki þess, að
það sé á uppleið á ný er alveg
ljóst; að það bætir ekki upp
minnkandi afla.
Þjóðin verður því, hvað sem
deilum um aðra þætti efna-
hagsmála líður, að sætta sig
við verri lífskjör á næsta ári,
en við höfum búið við að und-
anfömu. Það verður hins veg-
ar hlutverk ríkisstjómar
Steingríms Hermannssonar
að leggja fram tillögur um á
hvem hátt sú kjaraskerðing
verður framkvæmd. Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna leggur
til, að það verði gert með veru-
legri gengislækkun og hörð-
um hliðarráðstöfunum en í því
felst, að komið verði í veg
fyrir, að verðhækkunaráhrif
gengislækkunar komi fram í
hækkuðu kaupgjaldi í landinu.
Það verður út af fyrir sig
fróðlegt að sjá, hver viðbrögð
vinstri stjómarinnar verða við
þessum vanda. Ríkisstjómin
hefúr fram til þessa nánast
ekkert gefíð upp um efna-
hagsstefnu sína. Hún hefur
komið á stöðvun í nokkra
mánuði en ekki gefíð nokkra
vísbendingu um, hvað við
muni taka að stöðvunartíma-
bilinu loknu. Yfírleitt hafa
vinstri stjómir getað leyft sér
að efna til veizlu, þegar þær
hafa tekið við völdum, en það
er auðvitað alveg ljóst, að ef
þessi ríkisstjóm tekur ekki í
taumana efíiir hún til þess
þjóðargjaldþrots, sem
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, sagði á
fundi Sölumiðstöðvarinnar í
gær, að gæti blasað við okkur.
Til viðbótar við þann vanda,
sem fyrirsjáanlegur er vegna
minnkandi sjávarafla, standa
menn nú frammi fyrir gífur-
legum hallarekstri frystihús-
anna í landinu. í sambandi við
stöðu frystihúsanna er nauð-
synlegt að huga annars vegar
að lausn aðkallandi vanda en
hins vegar að marka
langtímastefnu í málefnum
frystiiðnaðarins. Því miður
hefur yfírleitt skort á, að at-
vinnugreinin sjálf og stjórn-
völd legðu vinnu í langtíma-
stefnumörkun varðandi þessa
undirstöðuatvinnugrein lands-
manna. Það er hins vegar
óhjákvæmilegt að gera það
nú.
Miklar breytingar hafa orð-
ið í sjávarútvegi á undanföm-
um árum. Utflutningur á
ferskum físki hefur aukizt,
frystitogarar hafa komið til
sögunnar. Þess vegna hefur
þrengt að frystiiðnaðum á
ýmsan annan veg en þann,
sem Ieiðir af rangri gengis-
skráningu. Samhliða því að
leita lausna á þeim taprekstri,
sem hijáð hefur frystiiðnaðinn
um skeið, er nauðsynlegt að
hefja undirbúning að
langtímastefnumótun. Hver
verður þróun frystiiðnaðarins
fram að aldamótum? Er tilefni
til að auka fjárfestingu í þess-
ari atvinnugrein eða dugar sú
fjárfesting, sem er til staðar?
Hver verður samkeppnisstaða
frystiiðnaðarins gagnvart
frystitogurum og ferskfiskút-
flutningi á næstu ámm?
Nauðsynlegt er að hagsmuna-
samtök frystiiðnaðarins fjalli
um þessi viðhorf og marki
langtímastefnu, svo að menn
viti að hverju skal vinna.
Aukafundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
Jón Ingvarsson, formaður stjómar SH:
Langvarandi rekstrarvandi hefur
eytt eiginfé flestra fyrirtækja
Hér fer á eftir ræða Jóns Ingvarssonar, formanns stjórn-
ar Sölumiðstöðvar hraðfirystihúsanna, á aukafúndi samtak-
anna í gær.
Það skyldi engan undra þótt frysti-
húsamenn boði nú til fundar í ljósi
þess alvarlega ástands sem frysti-
húsin standa nú frammi fyrir. Slíkt
er það efnahagslega öngþveiti sem
greinin hefur mátt búa við í nær
heilt ár og farið hefur stig versnandi
eftir mikið góðæri sem staðið hafði
allt árið 1986 og framyfir mitt sl.
ár. Nær daglega fréttum við af fisk-
vinnslufyrirtækjum sem hafa þegar
stöðvast vegna rekstrarerfíðleika eða
eru við það að stöðvast.
Frá því við hittumst á aðalfundi
samtakanna snemma í maí, hafa
ýmsir hlutir gerst og flestir hveijir
á þann veg, að til hins verra horfír.
Útflutningsverðlag á afurðum frysti-
húsanna hefur haldið áfram að lækka
jafnt og þétt auk þess sem vaxandi
sölutregðu hefur gætt. Vil ég sér-
staklega nefna Japansmarkað í því
sambandi. Þá tókst ekki að gera við-
bótarsölusamning við Sovétmenn
eins og vonir stóðu til og þannig
mætti lengi telja.
Hér innanlands hefur allur til-
kostnaður við framleiðsluna farið
stöðugt hækkandi auk þess sem fjár-
magnskostnaður hefur vaxið úr hófí
fram á sama tíma og gengi krónunn-
ar hefur lengst af verið haldið föstu,
og þær smávægilegu gengisbreyt-
ingar sem gerðar hafa verið því run-
nið út í sandinn, bæði vegna aukins
tilkostnaðar innanlands og einnig
vegna lækkandi gengis Bandarílqa-
dollars, sem vegur þyngst í tekjum
frystingarinnar.
Þessi langvarandi rekstrarvandi
sem raunar hefur staðið yfír í mörg
ár ef undan er skilið árið 1986 og
fyrri helmingur síðasta árs hefur
eytt eiginfé flestra fyrirtækja í frysti-
húsarekstri og ég vil leyfa mér að
fullyrða að ástandið hefur aldrei ver-
ið jafti ískyggilegt og nú og vonleysi
þeirra sem standa fyrir rekstri frysti-
húsanna, og reyndar annarra físk-
vinnslufýrirtækja, er slíkt að flestir
þeirra vita ekki sitt ijúkandi ráð.
Slík eru þau skilyrði sem greininni
eru búin.
Ekki bætir það heldur úr skák
hvemig ýmsir Qölmiðlar hafa fram
að þessu tekið á þessum málum.
Þeir hafa margir hveijir velt sér upp
úr vanda fiskvinnslunnar og þá fryst-
ingarinnar sérstaklega með þeim
hætti sem tæpast er sæmandi ábyrg-
um aðilum. Einu úrræðin sem þeir
hafa bent á er að enn frekari hagræð-
ingar væri þörf í frystihúsunum án
þess þó að skilgreina það frekar,
nema að því leyti sem felst í samein-
ingu fyrirtækja í sjávarútvegi. Auk
þess hefur þeim verið afar tíðrætt
um ágæti aukins útflutnings á fersk-
um físki, sem öllu á að bjarga.
Þegar fiystihúsamenn lýsa
áhyggjum sínum yfir þessu ástandi
og vara við afleiðingum þess eru
þeir úthrópaðir sem gengisfellingar-
kór, grátkonukór eða pilsfaldakapí-
talistar. Á sama tíma þiggja sumir
þessara fjölmiðla stórfellda styrki úr
ríkissjóði þótt þeir geti sjálfír eins
og aðrar þjónustugreinar í landinu
velt öllum kostnaðarhækkunum er
þeir verða fyrir innlendum jafnt sem
erlendum yfir á neytendur. Þessu til
staðfestingar hefur ma. verið á það
bent í þessu sambandi, að fjölmörg
þjónustufyrirtæki, þar með talin dag-
blöðin svo og opinberar stofnanir,
hafí hækkað gjaldskrár sínar á
síðustu flórum til fimm árum um
80—150 prósent. En á sama tíma
urður útflytjendur á frystum físki
að sætta sig við það að Bandaríkja-
dollar hækkaði úr 41 í 47 krónur eða
einungis um 15%.
Það er ömurlegt til þess að vita
hvemig rætt er um þá atvinnugrein
sem skilar mestum gjaldeyristekjum
í þjóðarbúið og'er undirstaða atvinn-
ulífs víðs vegar um landið.
Rekstrarvandi sá er frystihúsin
standa nú andspænis er nú orðinn
svo alvarlegur að hann snertir ekki
einungis eigendur frystihúsanna,
starfsfólk þeirra og nánasta um-
hverfí þeirra, heldur allt þjóðfélagið.
Síðasta ríkisstjóm bar því miður
ekki gæfu til að koma sér saman
um aðgerðir f efnahagsmálum og
náði ekki samstöðu um niðurfærslu-
tillögur efnahagsnefndarinnar svo-
nefndu, sem þáverandi forsætisráð-
herra skipaði á sl. sumri.
Þetta samstöðuleysi stjómarflokk-
anna í efnahagsmálum leiddi til
stjómarslita og hin nýja ríkisstjóm
sem tók við völdum var nánast mynd-
uð utan um sérstakar efnahagsráð-
stafanir.
Ifyrstu aðgerðir ríkisstjómar
Steingríms Hermannssonar hafa því
miður ekki vakið vonir fiskvinnslu-
manna um bætt rekstrarskilyrði
frystingunni til handa. Aðgerðimar
miða flestar að því að lána fiystihús-
unum fé til áframhaldandi halla-
rekstrar. Minni áhersla virðist lögð
á að bæta hin almennu rekstrarskil-
yrði frystingarinnar að undanskilinni
3% gengisbreytingu sem nú er að
vísu uppurin vegna lækkunar dollar-
ans.
Verðjöfnunarsjóði er gert að taka
750 milljón króna erlent lán til að
verðbæta framleiðslu frystihúsanna
frá 1. júní sl. með 5% verðuppbót.
Lán þetta er talið geta verðbætt
framleiðsluna um þessi 5% út aprfl
á næsta ári. Fyrir liggur yfírlýsing
sjávarútvegsráðherra um það, að lá-
nið skuli ekki endurgreitt af fram-
leiðendum og í trausti þess sam-
þykktu fulltrúar frystingarinnar í
stjóm Verðjöfnunarsjóðs að þessi leið
skyldi farin. Eðlilegt væri því að
ríkisstjómin beitt sér fyrir breytingu
á lögunum í samræmi við yfírlýsingu
sjávarútvegsráðherra til að taka af
öll tvímæli í þeim efnum.
Ég ætla ekki að fara mörgum orð-
um um nýstofnaðan Atvinnutrygg-
ingasjóð. Það getur auðvitað verið
nauðsynlegt að skuldbreyta vegna
þess uppsafnaða vanda sem öll fyrir-
tæki í frystihúsarekstri hafa mátt
þola á umliðnum árum vegna óviðun-
andi rekstrarskilyrða. Eg vil þó
minna á að þennan vanda má að
miklu leyti rekja til rangrar efna-
hagsstjómar og standa því öll fyrir-
tækin jafnt að vígi að því leyti að
þau hafa öll skaðast jafnt ( hlutfalli
við útflutningsverðmæti.
Það er því mín skoðun að hvort
heldur sé um að ræða lán eða óaftur-
kræfar bætur fyrir liðinn tíma þá sé
eina réttlætið fólgið í því að fyrirtæk-
in fái rétt til láns eða bóta í hlut-
falli við útflutningsverðmæti sín, t.d.
frá 1. nóvember á sl. ári, en þá má
segja að verulega hafi farið að halla
undan fæti í frystingunni. Að öðrum \
kosti er hætt við mismunun milli
fyrirtækja og alls kyns hrossakaup--
um.
Ég tel þó að vandinn sé svo mik-
ill að það stoði lítt og komi frystihús-
unum að litlu gagni að fá lán til
lausnar á vandanum. Þau eru nú flest
nú þegar svo skuldsett vegna lang-
varandi rekstrarvanda og síendur-
tekinna skuldbreytinga, að eitt lánið
nú er aðeins frestun á vandanum.
Enda hefur manni sýnst að flestar
þær skuldbreytingar sem gerðar hafa
verið undanfarin ár hafí fyrst og
fremst komið viðskiptabönkunum til
góða að því leyti að skuldir fyrirtækj-
anna við bankana hafa notið algers
forgangs. Skuldir við aðra viðskipta-
aðila hafa því verið látnar mæta af-
T, T Morgunblaðið/Sverrir
Jon Ingvarsson.
gangi.
Það getur tæpast verið annað en
sanngjamt að þjóðfélagið skili frysti-
húsunum því fjármagni aftur sem
ranglega hefur frá þeim verið tekið
í gegnum kolranga gengisskráningu.
Það er óafsakanlegt að láta það
viðgangast að skapa undirstöðuat-
vinnuvegi þjóðarinnar svo ömurleg
skilyrði að hann sé nánast allur í
rúst. Þessi atvinnuvegur sem er upp-
spretta velmegunar hlýtur að verða
að lifa við þau rekstrarskilyrði að
hann geti gegnt því hlutverki sínu
að vera undirstaða atvinnulífsins víðs
vegar um landið í framtíðinni sem
hingað til.
Það má ekki skilja orð mín þannig
að verið sé að biðja um það að illa
reknum frystihúsum séu sköpuð skil-
yrði til áframhaldandi reksturs. Þvert
á móti er aðeins farið fram á að
meðalfrystihúsi séu sköpuð viðun-
andi rekstrarskilyrði.
Það má heldur ekki skilja orð mín
á þann veg að okkur finnist allt vera
í stakasta lagi í rekstri frystihúsanna
og að hvergi megi betur gera. Sjálf-
sagt má alltaf gera betur en ég full-
yrði að á undanfömum ámm hafa
„ÉG VERÐ svartsýnni með hverj-
um degi og hika ekki við að segja
að við erum liklega nær þjóðar-
gjaldþroti en nokkru sinni fyrr,“
sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra í ávarpi á auka-
fundi SH. Var hann að lýsa tilfinn-
ingu sinni eftir viðræður við menn
og skoðun skjala eftir að hann tók
við forsætisráðherraembættinu.
Forsætisráðherra sagðist hafa
fengið að sjá í trúnaði ýmsar upplýs-
ingar sem atvinnutryggingasjóði hafí
borist og sagði að á örfáum mánuð-
um hafí efnahagur margra fyrir-
tækja algerlega snúist við. Nefndi
hann sem dæmi að þrátt fyrir að
svokölluð framlegð sumra fyrirtækja
væri svipuð á milli ára hefðu skuldir
þeirra aukist mikið. Það hlyti að stafa
af auknum fjármagnskostnaði. í öðr-
um tilvikum hefði framlegð minnkað
niður f ekki neitt. Nefndi hann sem
skýringar á því að hlutfall launa-
kostnaðar væri í sumum tilvikum
yfír 20%, færi jaftivel upp undir 30%,
einnig væru dæmi um að hlutfall
hráefniskostnaðar færi yfir 50%.
Sagðist Steingrímur hafa spurt menn
margháttaðar endurbætur í rekstrin-
um átt sér stað, sem leitt hafa til
verulegs spamaðar og hagræðingar
í rekstrinum.
Ekki skal ég draga í efa að sums
staðar á landinu hagar svo til að
skynsamlegt og hagkvæmt sé að
sameina rekstur tveggja eða jafnvel
fleiri fískvinnslufyrirtækja. Alls ekki
er þó sjálfgefið að stærri einingar
hljóti ávallt að vera hagkvæmari
heldur en þær minni. Það hlýtur t.d.
að vera hveijum manni ljóst, að það
þjónar litlum tilgangi að sameina
rekstur tveggja fyrirtækja, sem em
svo skuldsett, að heildarskuldastaða
þeirra verður jafn vonlaus eftir að
reksturinn hefur verið sameinaður,
eins og fyrir hann, ef ekkert annað
kemur til, eins og t.d. sala eigna og
margháttuð samnýting véla, tækja
og húsa.
Mér dettur ekki í hug að halda,
að ráðherrum í þessari ríkisstjóm sé
ekki orðið full ljóst hvemig staðan
er. Svo alvarleg hættumerki blasa
við allt í kringum okkur, að öllum
sem eitthvað til þekkja ætti að vera
ljóst að við svo búið má ekki standa.
Það er stórkostlega alvarlegur
hlutur að horfa upp á það, að eigið
fé all flestra fyrirtækja í fískvinnslu
skuli nánast vera að engu orðið.
Ég vil ekki trúa þvi að óreyndu,
að ríkisstjómin geri ekki viðhlítandi
ráðstafanir til þess að rétta hag físk-
vinnslunnar.
Rekstrarvandinn hefur magnast
mjög á síðustu þremur mánuðum og
það er ekkert og ég ítreka ekkert,
sem bendir til þess að nein sú upp-
sveifla verði á markaðsverðum, sem
gæti með nokkrum hætti komið
reksrarskilyrðunum í viðundandi
horf, hvað þá síður lagað vonlausa
eiginfjárstöðu fyrirtækjanna.
Það er að sjálfsögðu von manna,
að eitthvað rætist úr markaðsmálum
þegar svo illa hefur gengið sem raun
ber vitni. En það er óraunhæft að
láta sér detta í hug að markaðsverð-
hækkanir sem kynnu að líta dagsins
ljós í náinni framtíð breyti miklu ein-
ar sér.
Við höfum hér á þessum fundi
um skýringar á þessu og hefði kom-
ið fram að stjómendur fyrirtækjanna
hafí þurft að yfírborga fískinn vegna
samkeppni við fiskmarkaðina fyrir
sunnan og yfírborga launin til að fá
starfsfólk í vinnu.
Steingrímur sagði hörmulegt að
fyrri stjóm hefði ekki getað komið
sér saman um nauðsynlegar aðgerð-
ir. Hann ítrekaði stuðning sinn við
niðurfærsluleiðina, en sagði að hún
hefði ekki nægt til að koma rekstrar-
grundvelli undir frystinguna, þó hún
hefði orðið varanlegri en þær ráðstaf-
anir sem nýja stjómin ákvað. Hann
sagði að vissulega væri gengið rangt
skráð en benti á að það hefði verið
fellt um rúmlega 20% á árinu. Þrátt
fyrir það hefði staðan aldrei verið
verri. Það sýndi að nauðsynlegt væri
að taka áhrif gengisfellingarinnar
út úr hagkerfinu. Hann benti t.d. á
að ekki gæti verið skynsamlegt að
fella gengið þegar skuldir margra
fyrirtækja væru orðnar meiri en ár-
sveltan. Ráðast yrði gegn fjármagns-
kostnaðinum áður en gripið yrði til
slíkra ráðstafana.
Steingrímur sagði að ýmislegt
væri hægt að gera sem komið gæti
fjallað um horfur f framleiðslu- og
markaðsmálum á næsta ári. Þar
blasir m.a. við okkur framleiðslu-
samdráttur vegna minnkandi afla hér
við land á næstunni. E.t.v. er það
eitt það alvarlegasta sem við eigum
við að glíma og vekur síður en svo
bjartsýni um betri tíð. Það skiptir
því miklu að unnt sé að hámarka
verðmæti framleiðslunnar úr þeim
afla sem leyfílegt er að veiða á næstu
árum. Þess vegna er þörf á traustum
útflutningsfyrirtækjum með öfluga
markaðssetningu erlendis.
Velmegun þjóðarinnar mun standa
og falla með því nú sem fyrr hvemig
tekst til við öflun sjávarfangs, úr-
vinnslu þess og sölu.
íslenskur sjávarútvegur hefur um
langan aldur búið við þau skilyrði
að standa í harðri samkeppni við
ríkisstyrktan sjávarútveg annarra
landa, sem hefur beitt sér í harðvít-
ugri verðsamkeppni.
íslenskur sjávarútvegur getur
aldrei þegið styrki af þjóðinni. Slíkt
væri alger þversögn, þar sem tekjur
sjávarútvegsins em uppspretta
þeirra tekna sem verða til í þjóð-
félaginu. Á hinn bóginn hljótum við
að lýsa áhyggjum okkar yfír þeirri
staðreynd að á síðustu árum hafí
erlendar verðhækkanir og sérhver
uppsveifla í sjávarútvegi verið notuð
til þess að halda gengi krónunnar
háu, langt umfram það sem eðlilegt
gat talist og fíármagnað þannig
þensluna í landinu, og fjánnunir
þannig fluttir frá frumframleiðslu-
greinunum í stórum stíl til þjónustu-
greinanna.
Sjávarútvegurinn á skýlausan rétt
að fá þessa fjármuni aftur til sín,
ekki eingöngu hans sjálfs vegna
heldur einnig til þess að hann geti
haldið áfram að standa undir velmeg-
un þjóðarinnar.
Góðir fundarmenn.
Að lokum vil ég aðeins ítreka það
sem ég sagði í morgun, að ég vænti
þess að þessi fundur megi verða til
þess að frystihúsamenn standi enn
þéttar saman í þeirri viðleitni að
knýja á um viðunandi starfsskilyrði
frystiiðnaðinum til handa.
að ’gagni og forðað þjóðargjaldþroti.
Hann nefndi uppskurð á bankakerf-
inu. Hann spurði hvort til dæmis
væri hægt að fara í róttækar aðgerð-
ir til að fækka fískiskipum og hvort
ekki væri hægt að fækka frystihús-
unum. Hann spurði hvort kylfa hafi
ekki verið látin ráða kasti og nefndi
uppbyggingu frystingar um borð í
skipunum en fiystihúsunum í landi
fækkaði ekki að sama skapi. Hann
spurði af hveiju lánastofnanir hafi
verið að lána til slíkra hluta og hvort
þær hafí áttað sig á afleiðingunum.
Hann sagðist hafa áhyggjur af vax-
andi sókn í smáfískinn fyrir norðan
og sagði að þjóðin þyldi ekki hrun
fiskistofnanna.
Forsætisráðherra lagði áherslu á
gott samstarf stjómvalda við þá sem
starfa í sjávarútveginum og sagði
að þegar væri unnið að því. „Mér
finnst til dæmis óhjákvæmilegt að
fá á einskonar gjörgæsludeild góðan
hóp fískvinnslufyrirtækja og skoða í
grunninn hvað hefur gerst á þessum
mánuðum og hvaða breytingar verða
á næstu vikum," sagði Steingrímur.
Hann ræddi um efnahagsráðstaf-
anir ríkisstjómarinnar og sagði að
Erum nær þjóðargjald-
þroti en nokkru sinni
- segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurður Stefánsson, endurskoðandi, Ágúst Eliasson og Arnar Sigurmundsson ræða málin á aukafundi
SH í gær.
Rekstrarskilyrði fiskvinnslunnar:
Hallinn er nú um 6%
TAPIÐ á fiskvinnslunni, það er
söltun og frystingu, nemur á
þessu ári 1200 milljónum króna
miðað við 9% ávöxtun stofnQár.
Tapið á frystingunni er 1112
milljónir og söltuninni 84 milljón-
ir. Ef bætt er við tapið á frysting-
unni greiðslum úr verðjöfriunar-
sjóði á árinu, samtals 791 milljón
kr., nemur tapið tæpum tveimur
milljörðum króna. Þar með er
frystingin raunverulega komin í
sömu stöðu og hún var verst
áður á þessum áratug eða árin
1980 og 1984. Þjóðhagsstofhun
áætlar að hallinn á fiskvinnslunni
í heild nemi nú um 6%.
Þetta kom m.a. fram í máli Am-
ar Sigurmundssonar formanns
Samtaka fískvinnslustöðva á fé-
lagsfundi SH í gær. Um þetta efni
ræddu auk Amars, þeir Þórður
Friðjónsson sem fjallaði um stöðuna
Steingrímur Hermannsson
þær væru vissulega aðeins til bráða-
birgða. Menn mættu ekki gera of
lítið úr þvl sem atvinnutrygginga-
sjóðnum væri ætlað að gera. Við
yrðum að losna úr allri vísitöluteng-
ingu, sérstaklega lánskjaravísi-
tölunni. Þá mætti hagræða innan
atvinnugreinarinnar. Nauðsynlegt
væri að vinna af krafti að þessum
málum og meta það síðan eftir ára-
mót hvað hægt væri að gera. Hann
sagðist gera sér ljóst að töluvert
meira yrði að gera en áformað hefði
verið fram til þessa og ýta á eftir
öðru sem gengi allt of hægt að fram-
kvæma. Nefndi hann að ríkisstjómin
yrði með langan fund um miðja
næstu viku og vonaðist tii að þá
lægi fyrir úttekt á þeim upplýsingum
sem borist hefðu.
„Mér fínnst margt hafa mistekist
að mati Þjóðhagsstofnunar og Sig-
urður Stefánsson löggiltur endur-
skoðandi sem fjallaði um rekstrar-
afkomuna fyrstu níu mánuði ársins.
Amar byggði úttekt sína á árs-
reikningum 70 fyrirtækja í fryst-
ingu og söltun. í máli hans kom
fram að frá 30. september og til
dagsins í dag hefði gengissig dollar-
ans aukið hallann um 1,5% eða
4-500 milljónir króna.
Amar sagði að frystingin væri í
bullandi taprekstri og yrði það
áfram ef ekkert yrði að gert. Hann
taldi það ekki lausn á vandanum
að reikna eitthvert meðalfyrirtæki
upp í núllið og miða allt við það.
Slíkt þýddi að þessi atvinnugrein
kæmist ekki úr skuldavandanum...
„Við höfum sjaldan búið við jafn
erfiða tíma og þeir verða erfiðir
áfram," sagði hann.
Þórður Friðjónsson forstjóri
hiyllilega. Það er sárgrætilegt þegar
í hlut á grundvöllur okkar þjóðartil-
veru,“ sagði Steingrímur í lok ávarps
síns.
Að lokinni ræðu Steingríms voru
leyfðar fyrirspumir. Sigurður Ein-
arsson spurði um úthlutunarreglur
atvinnutryggingasjóðs og benti á til-
lögu Jóns Ingvarssonar um að lána
fyrirtælq'unum í hlutfalli við veltu.
Steingrímur hafnaði þeirri leið. Sagði
að með því kæmi sjóðurinn ekki að
tilætluðu gagni, þá væri til dæmis
verið að lána þeim sem ekki þyrftu
á skuldbreytingu að halda. Sagðist
Steingrímur efast um að helmingur
þeirra fyrirtækja sem sótt hefðu um
lán í atvinnutryggingasjóði stæðust
kröfur sjóðsins vegna þess hvað
staða þeirra væri orðin slæm. Ólafur
Gunnarsson spurði hvaða fyrirtæki
muni taka þátt í skuldbreytingu at-
vinnutryggingasjóðs og hvort búið
væri að tryggja markað fyrir þessa
pappíra. Steingrímur sagði að þetta
mál væri í ítarlegri umfjöllun. Það
kæmi að sjálfsögðu alls ekki til
greina að skylda fyrirtæki til að selja
þessi bréf á gráa markaðnum með
25% affollum.
Sem svar við spumingu Brynjólfs
Bjamasonar sagði Steingrímur að
það væri ekki veijandi að ríkissjóður
eyddi umfram efni en það gengi í
gegn um allt þjóðfélagið. Hann benti
á að einkaneyslan hefði þó aukist
margfalt meira en hin opinbera.
Nauðsynlegt væri að gera uppskurð
á mennta- og heilbrigðiskerfínu en
benti á erfiðleika við niðurskurð
kostnaðar.
Þjóðhagsstofnunnar sagði það enga
spumingu að staða frystingarinnar
væri slæm um þessar mundir. Þjóð-
hagsstofnun hefði metið afkomuna
eftir hefðbundnum aðferðum og
bráðabirgðatölur úr því mati bentu
til að frystingin væri nú rekin með
5% halla, botnfiskveiðar og vinnsla
með tæpum 5% halla. Á heildina
litið næmi hallinn 6% af tekjum.
Væri staðan nú svipuð og hún var
1984 f kjölfarið á miklum afla-
bresti þá.
í máli sínu rakti Þórður þróunina
á ámnum 1980 til 1988. Þetta tíma-
bil hefur einkennst af miklum
sveiflum í aflabrögum og afurða-
verði. Á þessu tímabili hefur aðeins
verið hagnaður á ámnum 1982 og
1983. Hvað árið í ár varðar sagði
Þórður að aflaverðmætið hefði
dregist saman um 10% frá áramót-
um. Við þetta bættist svo að raun-
gengi krónunnar hefði ekki verið
hærra en nú á þessum áratug.
Þórður sagði að þótt myndin sem
nú væri dregin upp af afkomuhorf-
um í sjávarútvegi væri ekki björt
mætti sjá nokkur merki um bata.
Hann nefndi að verðlag á sjávaraf-
urðum erlendis hefði verið að nálag-
ast botninn undanfama mánuði en
einhveijar breytingar væm að verða
á því í rétta átt.
Sigurður Stefánsson lagði fram
útreikninga á afkomu 10 frystihúsa
fyrstu níu mánuði þessa árs. Hann
sagði þær tölur er kæmu þar fram
vera hryllilegar. Meðaltapið hjá
þessum 10 húsum væri 7,3% en það
fer allt niður í 18,6% hjá einu hú-
sanna. Hvað breytingar á eiginfjár-
stöðu þessara húsa varðar sagði
Sigurður að frá 1. janúar s.l. hefði
hún rýmað um 12,7%. Lausafjár-
staðan aftur á móti væri neikvæð
um 28% af ársveltu.
„Af þessu er ljóst að miðað við
17-18 milljarða króna heildarveltu
þarf um 5-7 milljarða króna til
skuldbreytinga til að koma rekstrin-
um á núllið,“ sagði Sigurður.
Sigurður sagði að á árinu hefði
helmingur þeirra 15 frystihúsa sem
væm innan SH á Suðumesjum helst
úr lestinni. Þarf af hefðu 3 orðið
gjaldþrota og hin dregið vemlega
úr rekstrinum eða hætt honum al-
veg. Hann sagði að sú meginregla
gilti að smærri húsin, sem hefðu
veltu um eða undir 150 milljónum
króna, ættu í mun meiri rekstrarerf-
iðleikum en þau stærri.